Morgunblaðið - 28.09.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982
31
Þar með viðurkennir svartur að
hafa tapað hinni fræðilegu bar-
áttu, því biskupinn stendur illa á
c6 þar sem riddarinn á b8 ætti að
standa. Riddarinn verður því að
fara til d7 í framhaldinu en þar
stendur hann lakar en á c6. 10.
Bb5+! byggist á því að 10. — Rc6 er
ekki mögulegt vegna 11. Da4 —
Hc8 (11. - Dc7, 12. Bf4!) 12. Dxa7!
11. Bd3 — Rd7, 12. 0—0 — h6.
Gheorghiu þorir ekki að hróka,
eftir 12. — 0—0 hefur hann líklega
óttast 13. d5. En á miðborðinu
stendur svarti kóngurinn enn
verr.
13. lldl - I)c7, 14. d5! — exd5, 15.
exd5 — Bxd5, 16. Bb5 — a6.
Svarta staðan var þegar hart-
nær töpuð. 16. — Bc6 mátti svara
með 17. Bf4! - Db7, 18. Bxc6 -
Bxc6, 19. Hel — Df6, 20. De4 og
svartur er í hroðalegri klemmu.
Nú vonaðist Gheorghiu eftir 17.
Bxd7+ — Dxd7, 18. c4 — be4! og
svartur er sloppinn fyrir horn.
17. Bf4! — Dxf4, 18. Bxd7+ -
Kxd7, 19. Hxd5+ — Kc7.
Úrslitin eru ráðin. Svarti kóng-
urinn á ekkert skjól.
20. Hel — Bd6, 21. Hf5! — Dc4, 22.
He4 — Db5, 23. Hxf7+ — Kb8, 24.
He6 — Hd8, 25. c4 — Dc6, 26. Re5
— Dc8, 27. Dbl
27. De4 hefði gert sama gagn, en
það skipti ekki máli, því að nú
lagði Gheorghiu niður vopn.
Útför Hallgríms
Þórhallssonar
gerð frá Reykja-
hlíðarkirkju
Mývalnssveit, 27. septemh<‘r.
ÚTFÖR Hallgríms Þórhallssonar,
Vogum, var gerð frá Reykjahlíðar-
kirkju síðastliðinn laugardag að við-
stöddu miklu fjölmenni. Séra Björn
Jónsson, sóknarprestur á Húsavík,
flutti útfararræðu og jarðsöng, í for-
föllum séra Arnars Friðrikssonar.
Kirkjukórinn söng, organisti var Jón
Árni Sigfússon. Sigríður Einarsdóttir
lék á fiðlu. Þorgrimur Starri flutti
kvcðjuorð.
Hallgrímur Þórhallsson var
fæddur í Vogum 28. apríl 1914.
Foreldrar hans voru Þuríður Ein-
arsdóttir og Þórhallur Hall-
grímsson. Þau bjuggu á Vi hluta
Voga alla sína búskapartíð. Hall-
grímur fór snemma að hjálpa til
við bústörfin og tók að sér forustu
við búreksturinn að föður sínum
látnum, 1941, og hafði síðan það
hlutverk með höndum til dauða-
dags. Mjög bætti hann jörð sína,
hvað ræktun og húsakost snerti, í
samvinnu við bræður sína.
Hallgrímur stundaði nám í
Laugaskóla og víðar frá
1930—1935. Hann iðkaði íþróttir á
yngri árum, bæði knattspyrnu og
glímu. Mjög lét hann margs konar
félagsstörf til sín taka og var þar
virkur félagi. Árið 1958 kvæntist
hann Önnu Vilfríði Skarphéðins-
dóttur frá Akureyri. Þau eignuð-
ust fjögur börn, sem öll eru á lífi.
Hallgrímur andaðist á sjúkrahús-
inu á Húsavík 18. september eftir
stutta legu þar.
Fréttaritari
^Ayglýsinga-
síminn er 2 24 80
Helga Guðmundsdóttir, formaður Bandalags kvenna, (.uðríður Elíasdóttir, form. verkakvennafélagsins Framtíðar-
innar, og Lára Jónsdóttir, ritari BK. í.jósm, Mbi. koe.
Austurbæjar-
bíó sýnir
Moröin í
lestinni
AUSTURBÆJARBÍÓ frumsýn
ir í dag kvikmyndina „Morðin i
lestinni", sem á frummálinu
heitir „Terror Train“ og er
handarísk hryllingsniynd, „ein
sú harðsoðnasta, sem hér hefur
sést“ eins og segir í kynningu
kvikmyndahússins.
Myndin er framleidd af
Harold Greenberg og Sandy
Howard og er undir leik-
stjórn Rogers Spottiswoode.
Handrit er eftir T.Y. Drake.
Helztu aðalhlutverk leika
Ben Johnson, Jamie Lee Curt-
is, Hart Bochner og David
Copperfield.
Sölusýning í Hafnarfirði
SUNNUDAGINN 26. septem-
ber opnaði Bandalag kvenna í
Hafnarfirði sölusýningu á
listmunum og fleiru í Iþrótta-
húsinu við Strandgötu til
styrktar elliheimilunum í
Hafnarfirði, í tilefni af ári
aldraðra.
Sýningin mun standa í eina
viku, frá 26. september til 3.
október, og verður opin frá kl.
15 til 22 um helgar, en kl. 20 til
22 virka daga. Um helgar
verða kaffiveitingar á boðstól-
um.
Afhenti Koivisto
trúnaðarbréf
BENEDIKT Gröndal, sendiherra,
afhenti í Helsinki í dag Mauno
Koivisto, forseta Finnlands, trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra Is-
lands í Finnlandi með aðsetur í
Stokkhólmi.
Kynnum nýjar eldhús- og baðinnréttingar í sýn-
ingarsal okkar í Sundaborg.
Þá kynnum viö einnig úrval fataskápa og minnum
jafnframt á mesta úrval landsins af parketi.
ínnréttingaval
Sundaborg, sími 84383.