Morgunblaðið - 28.09.1982, Page 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 28. SEPTEMBER 1982
Námskeið
Félagsmálastofnun Kópavogs gengst fyrir námskeiöi
í meðhöndlun iönaðarvéla, í samvinnu við Trefja-
deild Iðntæknistofnunar íslands.
Hér er um að ræða grunnþjálfun. Farið verður yfir
grundvallaratriöi í saumaskap og meðferð véla.
Þetta námskeið verður sérstaklega ætlaö fólki meö
skerta starfsorku.
Fjöldi þátttakanda er takmarkaöur.
Leiðbeinendur á námskeiðinu veröa Sigrún Jóhann-
esdóttir og Martha Ó. Jensdóttir.
Nánari upplýsingar veitir Hrafn Sæmundsson, Fé-
lagsmálastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12 — sími
46863.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Tölvunámskeið
Byrjendanámskeið
Námskeiðin standa yfir í 2 vikur. Kennt
er 2 stundir á dag virka daga, kl.
17.30—19.30 eöa 20.00—22.00.
Viö kennsluna eru notaðar míkrótölvur af algengustu
gerö. Námsefnið er allt á íslensku og ætlaö byrjend-
um sem ekki hafa komiö nálægt tölvum áöur.
Á námskeiðunum er kennt m.a.:
Grundvallaratriöi forritunarmálsins BASIC. Fjallað er
um uppbyggingu, notkunarsviö og eiginleika hinna
ýmsu geröa tölva. Kynning á tölvukerfum, hugbúnaði
og vélbúnaöi, sem notuð eru við rekstur fyrirtækja.
TÖLVUSKÚLINN
Sldpholti 1. Simi 254 00
FARANDKIRKJUR
eftir Hermann
Þorsteinsson
Ymsir kirkjunnar menn hér
heima hafa haft af því spurnir,
hvernig Danir hafa í yfir 90 ár
með heildarstjórnun skipulagt
nauðsynlegar kirkjubyggingar á
höfuðborgarsvæði sínu og víðar.
Þeir stofnuðu fyrir þetta viðfangs-
efni það sem þeir nefna Kirke-
fondet. Framkvæmdastjóri Kirke-
fondet, sr. Erik Normann Svensen,
var hér á ferðinni í þessum mán-
uði sem þátttakandi í kirkjulegri,
norrænni fjölmiðlaráðstefnu að
Ikíngumýri. Hann hafði löngun til
að sjá og fræðast um kirkjubygg-
ingar hér á höfuðborgarsvæðinu
og fékk hann þann, er þetta ritar,
til að fara með sér í hringferð á
alla kirkjustaði prófastsdæmisins.
Þetta reyndist fróðleg ferð á
björtum, fögrum sumardegi. Það,
sem skoðað var, bar miklu fram-
taki og fórnfýsi vitni, en vöntunin
á heildarstjórnun á skipulagi
þessara mála var einnig mjög svo
augljós.
Til ársins 1940 var gamla
Dómkirkjan eina kirkjuhús þjóð-
kirkjumanna í Reykjavík og söfn-
uðurinn var einn. Með lögum, sem
Alþingi samþykkti 1940, var
Reykjavíkursöfnuði skipt í 4 söfn-
uði: Dómkirkju-, Hallgríms-,
Laugarnes-, og Nessöfnuð. Alþingi
ákvað, að Dómkirkjusöfnuði
skyldi án endurgjalds afhent hin
gamla Dómkirkja, en hinum söfn-
uðunum var gert að sjá sér fyrir
kirkjuhúsum og fengu þeir til þess
Hermann Þorsteinsson
af ríkisfé samtals 300 þús. sem
greiðast skyldu á 35 árum. Af
þessari upphæð átti Hallgríms-
söfnuður að fá stærstan hluta, því
að honum var ætlað að byggja
hina stóru Hallgrímskirkju á
Skólavörðuhæð, sem verið hafði á
dagskrá hjá Reykjavíkursöfnuði í
allmörg ár. Höfuðborgarsvæðið
var gert að sérstöku prófasts-
dæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi,
en innan þess eru nú Reykjavík,
Seltjarnarnes og Kópavogur.
I þessu prófastsdæmi eru nú 16
prestaköll og 19 sóknarprestar
starfandi á vegum þjóðkirkjunnar
auk presta í sérþjónustu. Þeir,
sem hafa verið að verki í þjóð-
kirkjunni á höfuðborgarsvæðinu
og fylgst hafa með hinni öru þjóð-
félagsþróun, hafa haft af því vax-
andi áhyggjur, hve seint og þung-
lega kirkjunni hefur gengið að
skapa sér viðunandi starfsaðstöðu.
í prófastsdæminu eru nú 7
kirkjur í smíðum og 2 í undirbún-
ingi, auk þess sem einn söfnuður-
inn er að byggja safnaðarheimili
við sína litlu sóknarkirkju. Sum
kirkjuhúsin hafa verið áratugi í
smíðum vegna vöntunar á nauð-
synlegum fjármunum og vegna
skipulagsleysis og skorts á eðli-
legri samvinnu kirkjunnar manna.
Greinilegt er, að stjórnvöld hafa
lengst af verið skilningstreg á
þarfir kirkjunnar fyrir eðlilega
fjármuni fyrir hina umfangsmiklu
starfsemi og þjónustu hennar.
Kirkjunnar menn hafa ekki reynst
eins aðgangsharðir um fjármuni
við stjórnvöld og talsmenn ann-
arra stofnana, og e.t.v. hefur
djörfung þeirra og festa kirkjunn-
ar vegna ekki verið sem skyldi. Og
hæfni til heildarskipulagningar á
notkun þeirra fjármuna, sem fyrir
hendi hafa verið á hverjum tíma,
hefur greinilega verið ábótavant.
Núverandi staða kirkjubygginga í
Reykjavíkurprófastsdæmi er
hrópandi dæmi um það.
Ef það mætti verða til þess að
hlífa væntanlegum söfnuðum í
nýjum byggðum við sundin blá eða
kring um vatnið rauða við því oft
algjöra aðstöðuleysi, sem söfnuðir
okkar og starfsmenn þeirra hafa
lengi mátt búa við hér í þéttbýl-
inu, skal hér kynnt hvernig Danir
Beint flug í sólina !
Síöasta ferðin meö beinu flugi til og frá
BENIDORM á þessu ári. Nú er mjög þægi-
lega heitt á ströndinni og þessvegna til- *
valin ferö fyrir eldri borgara. Gréta Hall- 1
dórs, hjúkrunarfræöingur frá Akureyri,
veröur fólki til aöstoöar í þessari ferö.
ATH.: Möguleíki á aö hafa viödvöl í □!
LONDON eöa AMSTERDAM á heimleiö- \l
inni ffyrír þá sem það vilja. ^
FERÐA
MIÐSTODIIM
yAÐALSTRÆT! 9 S. 28133
NYJUNGIPLASTEINAN GRUN Á ÍSLANDI
Aukið öryggi fyrir
húsbyggjendur
Plasteinangrun hf. á Akureyri hefur nú hafið framleiðslu á einangrunarplasti í
öðrum eldvarnarstaðli en eldri framleiðsla. Þetta plast er ekki eldleiðandi og
lendir því í flokki B1 skv. staðli DIN 4102 (tregbrennanleg byggingarefni).
Þar sem útlit er
óbreytt munum við
í framtíðinni bjóða
eingöngu þessa gerð
og á sama verði
og fyrri framleiðslu.
Á þessum myndum
gefur að líta báðar
gerðir af plasti sem eru
á markaðnum í dag.
Myndirnar til hægri eru
teknar einni mínútu
eftir að eldur var borinn
að kubbunum.
Sama verð um allt land.
Helstu útsölustaðir:
REYKJAVlK - SAMBANDIÐ, BYGGINGAVÖRUDEILD
REYKJAVlK - JL-HÚSIÐ. BYGGINGAVÖRUDEILD
HÚSAVÍK - KAUPF. ÞINGEYINGA
VOPNAFIRÐI - KAUPF. VOPNFIRÐINGA
EGILSSTÖÐUM - KAUPF. HERAÐSBUA
HÖFN I HORNAFIRÐf- KAUPF. A -SKAFTFELLINGA
ICEPIAST
PIASTEINANGRUN HF.
ÚSEYRI3 PÚSTHÚLF 214 602 AKUREYRI SÍMI96 22300 & 22210 TELEX 2083 F.NR.7123-2344