Morgunblaðið - 28.09.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982
39
Sigrún Guðbjarna-
dóttir — Minning
Fædd 26. nóvember 1929
Dáin 18. seplember 1982
„Sofðu mín Sigrún,
sofðu nú rótL
Guð faðir gefi
góða þér nóu.“
Eftir hverja nótt kemur dagur.
Hjá Sigrúnu er kominn eilífðar
dýrðardagur, því svo uppsker
maðurinn sem hann sáir. Ég á
henni persónulega margt og mikið
að þakka, og svo mun um fleiri.
Hún vildi hvers manns vanda
leysa og öllum gott gera, og naut
þess að fórna sér fyrir aðra. Það er
guði þóknanlegt, því að í sannleika
sagt á maður ekkert nema það
sem maður gefur, hitt allt er að
láni. Þess vegna átti Sigrún mikið,
góðan mann, yndisleg born og
barnabörn, sem öll eru henni inni-
lega þakklát og harma hana af
innstu hjartans rótum. Það sama
má segja um vini Sigrúnar alla, og
þeir voru margir. En enginn má
sköpum renna, hún í dag, ég á
morgun. Guð einn veit hvað best
er. Hann blessi hana og varðveiti
um alla eilífð. Ástvinum hennar
votta ég mína dýpstu samúð.
Ég sakna góðrar konu.
Bjarni Kr. Björnsson
Engum, sem til þekkti, kom
andlát hennar á óvart. Síðan
snemma í vor hafði hún átt við
illkynjaðan sjúkdóm að stríða. Að
lokinni ítarlegri læknisrannsókn
og sjúkdómsgreiningu varð ekki
um villzt, að ótímabær ævilok
voru skammt undan. Hvíldin eilífa
hlotnaðizt henni síðan eftir
sumarlanga, erfiða sjúkrahúslegu
á Landakotsspítala undir hádegi
hinn 18. þ.m.
Ég á ekki auðvelt með að taka
undir það, þó að spaklega kunni að
vera mælt, „að þá fyrst skiljum
við dauðann, þegar hann leggur
hönd sína á einhvern, sem við
unnum." Betur gæti ég trúað, að
hið gagnstæða væri nær sanni, því
að þótt sorgarfregnarinnar hafi
mátt vænta fyrr en síðar, fer ekki
hjá, að hún kemur okkur alltaf úr
jafnvægi, okkur setur hljóð og
söknuðurinn grípur hugi okkar og
hjörtu.
Við fráfall tápmikillar starfs-
systur um nokkurra ára bil og
góðrar vinkonu í fjóra áratugi, er
a.m.k. mér þannig innanbrjósts —
mér finnst ég skilja dauðann síður
eftir en áður.
Og nú er Sigrún horfin okkur,
hún er komin heim; þangað, sem
við öll hljótum að hverfa, þegar
skaparinn, er gaf okkur líf, og ör-
lögum ræður, ákveður að þóknast
sér sjálfum með burtköllun okkar.
Heimkoma hennar hlýtur að hafa
verið bæði greiðfær og fögur, svo
hreinskiptin og velviljuð sem hún
ævinlega var í lifanda lífi.
Vinkonan, sem nú er horfin
heim, Sigrún Guðbjarnadóttir, var
fædd í Reykjavík hinn 26. nóvem-
ber 1926. Foreldrar hennar voru
hjónin Sigríður Bjarnadóttir, ætt-
uð úr Vestur-Skaftafellssýslu, og
Guðbjarni Ólafsson, ættaður úr
Þingvallasveit, er lengstum var
sjómaður að atvinnu, eða allt
þangað til heilsu hans tók að
hraka. Þá gerðist hann nætur-
vörður hjá Iðnaðarbankanum, þar
sem hann starfaði á meðan hann
var vinnufær, en hann lézt eftir
langvarandi vanheilsu árið 1969.
Frekari skil kann ég ekki á upp-
runa hennar eða ættum, enda þess
ekki þörf, þar sem ætlun mín er
aðeins að minnast hennar í fáum
kveðjuorðum.
Foreldrar Sigrúnar bjuggu
fyrstu hjúskaparár sín að Oðins-
götu 7 í Reykajvík, þar sem hún
komst á legg og lifði fyrstu ár
bernsku sinnar. Þegar Sigrún var
7 ára að aldri, fluttist fjölskyldan
að Sindra á Seltjarnarnesi. Þar
ólst hún upp með bróður sínum
Sigmundi, sem er nokkrum árum
yngri og lifir systur sína ásamt
móður þeirra, nú í hárri elli. Á
heimilinu voru líka móðuramma
Sigrúnar og föðurafi. Með þeim
systkinum var ávallt mjög kært,
og á heimilið var jafnan þægilegt
að koma og gestum vel fagnað.
Vorið 1941, eða skömmu eftir
fermingu, hóf Sigrún nám í hár-
greiðsluiðn hjá Kristínu Ingi-
mundardóttur, vel þekktri sæmd-
arkonu og yndislegum vinnuveit-
anda, sem þá starfrækti einhverja
vinsælustu hárgreiðslustofu bæj-
arins, en lézt fyrir 9 árum.
Á hárgreiðslustofu Kristínar í
Kirkjuhvoli lágu leiðir okkar Sigr-
únar saman, og tókust strax með
okkur góð kynni, sem með tíman-
um breyttust í vináttu, sem entist
til hinztu stundar hennar. Á stof-
unni störfuðu jafnan með okkur
ágætisstúlkur, og ekki tel ég á
neina þeirra hallað, þó að mér
finnist ég ekki mega láta þess
ógetið, að fljótt kom í ljós, að við
Sigrún og Iðunn Heiðberg, sem
réðst til Kristínar síðar um
sumarið 1941, áttum hvað auð-
veldast með að blanda geði, enda
urðum við þrjár brátt góðar vin-
konur, og afar samrýndar.
Sigrún vinkona mín var fríð
sýnum, í góðu meðallagi há vexti,
grönn, samsvaraði sér mjög vel og
var einstaklega létt í hreyfingum
og bar sig því áberandi vel. Hún
var ör í lund og glaðsinna. Við-
kvæm var hún og mátti ekkert
aumt sjá eða heyra án þess að
vera boðin og búin til að rétta ör-
láta hjálparhönd.
Ung að árum giftist hún eftirlif-
andi manni sínum, Gunnari Pét-
urssyni Guðmundssonar kaup-
manns og verksmiðjueiganda, sem
oftast var kenndur við fyrirtæki
1
Bladburöarfólk óskast!
Austurbær Þingholtsstræ Eskihlíö 5—1£ Vesturbær Tjarnargata 3- Kópavogi . ti. Nýbýlavegur 5—36 UpplýSingar ’• í síma 35408
sitt, Málarann, og eiginkonu hans,
Halldóru Samúelsdóttur.
Þeim hjónum, Sigrúnu og Gunn-
ari, varð tveggja dætra auðið, Sig-
ríðar Halldóru og Sigrúnar, sem
báðar hafa stofnað sín eigin heim-
ili. Dætrabörnin eru orðin 5, og
bar amma þeirra velferð þeirra
allra mjög fyrir brjósti og vildi
veg þeirra sem mestan og beztan,
enda hændust þau sérlega ástúð-
lega að ömmu sinni.
Á raunastundum sem þessum
verða flest huggunarorð lítils
megnug þótt í beztu meiningu séu
sögð eða fest á blað. Eigi að síður
sendi ég aðstandendum hinnar
látnu og kært kvöddu vinkonu
minnar innilegustu samúðar-
kveðjur mínar og fjölskyldu minn-
ar um leið og ég bið þeim blessun-
ar í sárri sorg þeirra nú, og vel-
farnaðar í framtíðinni.
Utför Sigrúnar verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag, þriðjudag
28. september, og hefst kl. 3. Jarð-
sett verður í Gufunesgrafreit.
Elín J. Þórðardóttir
í dag er til moldar borin vin-
kona mín, Sigrún Guðbjarnadótt-
ir, Selvogsgrunn 29 í Reykjavík.
Ekki get ég sagt að fregnin um
andlát hennar, hafi komið mér
mjög á óvart, svo þjáð sem hún
var orðin, en þó lifði alltaf innra
með mér von um bata, henni til
handa, en kallið var komið og því
kalli verða allir að hlýða.
Kynni okkar Sigrúnar hófust
fyrir næfellt fjörtíu árum, og
hófst þá með okkur góður kunn-
ingsskapur, er seinna varð að
traustri vináttu. Upphaf kynna
okkar Sigrúnar var það að eigin-
menn okkar voru æskuvinir, og
hefur sú vinátta aldrei rofnað.
Foreldrar Sigrúnar voru hjónin
Sigríður Bjarnadóttir og Guð-
bjarni Ólafsson sjómaður, hann er
látinn fyrir nokkrum árum, en
Sigríður lifir enn, og tregar nú
ástríka dóttur, er allt gerði til að
gera henni elliárin sem gleðirík-
ust. Einn bróðir átti Sigrún, Sig-
mund að nafni, á milli þeirra voru
ávallt sterk systkinabönd.
Sigrún giftist 28. ágúst 1949 eft-
irlifandi manni sínum, Gunnari
Péturssyni, verslunarmanni í Mál-
aranum, miklum sómadreng, og
eignuðust þau tvær dætur, Sigríði
Halldóru og Sigrúnu. Barnabörn
Sigrúnar og Gunnars eru fimm, og
bar amma mikla umhyggju fyrir
þeim, enda þótti þeim gott að
koma til hennar, og jafnvel fá að
sofa þar nótt og nótt, og er ég
hrædd um að hjá þeim verði sökn-
uðurinn mikill. Minningin um
góða ömmu mun verða þeim gott
veganesti á lífsleiðinni.
Sigrún var mikil mannkosta-
manneskja, kom það best fram í
kærleika hennar til gamals fólks,
hún var aldrei svo störfum hlaðin,
að hún mætti ekki vera að því að
sinna því ef að það þurfti einhvers
með og mun margt af þessu gamla
fólki missa góðan vin að henni lát-
inni.
Sigrún bjó manni sínum og
dætrum gott heimili, því hún var
myndarleg og hagsýn húsmóðir,
og nutum við vinir hennar oft góðs
af, gott var að koma til þeirra
hjóna, þar var manni alltaf tekið
af miklum rausnarskap og hlýhug.
Við færum henni okkar hjart-
ans þakkir fyrir vináttu hennar
alla. Guð bið ég að styrkja Gunnar
vin minn í hans miklu sorg, er
hann sér nú á bak tryggum lífs-
förunaut sínum, en það getur orð-
ið honum huggun í raun, hvað
hann var henni miið góður og
kærleiksríkur í veikindum hennar,
kom þá best fram hvern mann
hann hefur að geyma.
Við leiðarlok vil ég votta öllum
ástvinum Sigrúnar einlæga samúð
og hluttekningu í sorg þeirra.
Helga Kristinsdóttir
KENWOOD chef
8ESJI
HJALPARKOKKUmN
KENWOOD CHEF fylgir þeytari, hrærari, hnoðari, grænmetis-
og ávaxtakvörn, plasthlíf yfir skál.
KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum. Ennfremur er
ávallt fyrirliggjandi úrval aukahluta, svo sem, hakkavél,
grænmetisrifjárn, grænmetis- og ávaxtapressa, kartöflu-
afhýðari, dósahnífur ofl.
CiMBOÐSMENN:
<
</)
£
J L-húsið, Hringbraut 121, Reykjavík
J L-húsið, Borgarnesi.
Húsið, Stykkishólmi.
Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal.
Kaupfélag Saurbæinga, Skriðulandi, Dal.
Póllinn h/f, ísafirði.
Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík.
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi.
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Radío- og sjónvarpsþjónustan, Sauðárkróki.
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri.
Grímur og Árni, Húsavík.
Verslun Sveins Guðmundssonar, Egilsstöðum.
Mosfell, Hellu.
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi.
Radío- og sjónvarpsþjónustan, Selfossi.
Kjarni, Vestmannaeyjum.
Rafvörur, Þorlákshöfn.
Verslunin Bára, Grindavík.
Stapafell h/f, Keflavík.
RAFTÆKJADEILD
IhIHEKLAHF
I LAUGAVEGI 170 -172 SÍMAR 11687 ■ 21240