Morgunblaðið - 28.09.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982
41
fclk í
fréttum
Ali ætlar ekki
aftur í hringinn
+ Múhameð Ali, sá frægi boxari og orðhákur, sagði nýlega, að hann gæti fullvissað alla um það, að hann færi
aldrei framar í hringinn, þrátt fyrir orðróm um hið gagnstæða. „Eftir útreiðina, sem ég fékk hjá Larry Holmes,
er það útilokað. Eg er of gamall og þreyttur. Ég hef í rauninni aldrei haft ánægju af boxi. Mér finnst það
grimmileg og miskunnarlaus íþrótt. Astæðan fyrir því að ég gerðist boxari, var sú, að ég vildi vera mínu fólki
hvatning til að rífa sig upp úr ræsinu og öðlast stolt. Mér tókst það, en nú vil ég hins vegar einbeita mér að því,
að breiða út boðskap Islam."
Travolta og Stallone
vinna að nýrri mynd
+ Kvikmyndaleikarinn John Travolta vonast nú til að ná fyrri hylli með
hjálp frá Rocky-stjörnunni Sylvester Stallone, sem er að semja fyrir hann
handrit.
Þessi nýja mynd mun bera nafnið „Stayin’ Alive" og mun Sylvester
einnig vera leikstjóri, en ekki er ljóst hvort takast mun að fá Bee Gees
til að sjá um tónlistina í myndinni, eins og ráð hafði verið fyrir gert, þar
sem þeir hafa nú tilkynnt að þeir séu farnir í eins og hálfs árs starfshlé.
COSPER
— Þegar hann byrjar að ganga hlýtur hann að vekja athygli.
Leikkonan Evelyne Bouix.
Ný mynd
um Edith
Piaf
+ Frakkar eru nú að gera enn
eina mynd um söngkonuna
smáu en miklu, Edith Piaf.
Spörfuglinn, eins og hún var
kölluð hefur sig til flugs að
nýju þegar leikkonan Evelyne
Bouix mun leika aðalhlut-
verkið í nýrri mynd um hina
stórkostlegu Edith Piaf. Að
þessu sinni verður fjallað um
ástarævintýri hennar og
heimsmeistarans í hnefaleik-
um, Marcel Cerdan. Hann var
eini eiginmaður söngkonunnar
heimsfrægu.
DANSSKÓLI
Siguröar
Hákonarsonar
BÖRN-UNGLINGAR-FULLORÐNIR
Kenndir alliralmennirdansarog margt fleira.
KENNSLUSTAÐIR ERU
Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2
_ Þróttheimar v/Sæviöarsund
Félagsheimili Víkings, Hæðargarði
Sérstakir tímar verða fyrir hópa, klúbba eða félög,
ef óskað er.
Barnatímar m.a. á laugardögum eins og verið hefur.
Stígið gæfuspor, því dans er skemmtileg tilbreyt ing
fyrir alla, skemmtilegri en þú heldur.
Lærið hjá þeim sem reynslu og þekkingu hefur.
Hressilegt og óþvingað andrúmsloft.
Innritun og upplýsingar daglega kl. 10.00 - 19.00
í síma 46776 og 41557.
Sigurður Hákonarsson
15 ára kennslureynsla
50.493 mfn.
löng dagskrá
eöa
— ef þú heldur vilt —
10 ára
birgöir af
laugardagsmyndum.
Yfir 500 titlar.
Fyrir
VHS, BETA og 2000.
Opiö
frá kl.12.00-21.00
virka daga.
12.00 —18.00 laugardaga.
Lokaö á sunnudögum.
JJJ
VIDEOMIÐSTÖÐIN
Laugavegi 27 — Sími 14415.