Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
27
Á sunnudaginn var kveikt á jólatrénu á Austurvelli, hinni árlegu gjöf Oslóborgar til Reykvíkinga. Sendiherra
Noregs á íslandi, Annemarie Lorentzen, afhenti tréó fyrir hönd Oslóborgar, en Davíð Oddsson, borgarstjóri,
veitti trénu viðtöku. Á myndinni eru þau Annemarie Lorentzen og Davíð Oddsson ásamt konu Davíðs, Ástríði
Thorarensen, syni þeirra hjóna, Þorsteini Davíðssyni, og stúlkunni sem kveikti á trénu, Kristbjörgu Kari
Sólmundsdóttur.
Jólasveinahátíð á þaki Kökuhússins. Myndin er tekin á sunnudaginn eftir að kveikt hafði verið á jólatrénu á
Austurvelli.
„Ósköp er stutt á þér skeggið, lögga mín góð,“ gæti jólasveinninn á
myndinni verið að segja við þennan vörð laganna. Líklega hefur löggan
ekki tekið þessa framhleypni jólasveinsins illa upp, enda vita allir að
jólasveinar eru bestu menn inn við skeggið þótt þeir láti stundum ófrið-
lega. Myndin var auðvitað tekin á jólasveinahátíðinni á Austurvelli á
sunnudaginn.
„SkI og blessuð dúfan mín, það gleður mig stórlega að kynnast þér. Ég
heiti Askasleikir og er leiðtogi jólasveinanna. Þú ert auðvitað byrjuð að
setja skóinn út í glugga. En í Grýlu bænum hafðu stóra rifu á glugganum,
við erum orðnir svo feitir bræöurnir. Og annað til, þú verður að fara
snemma að sofa. Við erum nefnilega í yfirvinnubanni og megunt ekki
vinna eftir kl. 12 á nóttunni."
Stjórnunarfélag Islands:
félagasamtökum,M segir ennfrem-
Landsbanki Islands hlaut árs-
skýrsluverðlaunin fyrir 1981
— Landsvirkjun hlaut ennfremur viðurkenningu fyrir góða skýrslu
LANDSBANKI íslands hlaut árs-
skýrsluverðlaun Stjórnunarfélags fs-
lands fyrir árið 1981, en á fundi í
gærdag afhenti Árni Vilhjálmsson,
9 Ljósmynd Mbl. KÖE
Árni Vilhjálmsson, prófessor, formaður ársskýrslunefndar, t.h., afhendir Jón-
asi H. Haralz, bankastjóra Landsbanka íslands viðurkenningu fyrir beztu
ársskýrsluna.
prófessor, formaður ársskýrslu-
nefndar, Jónasi H. Haralz, banka-
stjóra sérstakan verðlaunagrip fyrir
beztu ársskýrsluna. Auk þess var
Landsvirkjun afhent viðurkenn-
ingarskjal fyrir mjög góða árs-
skýrslu.
í frétt frá Stjórnunarfélaginu
segir, að þetta sé í annað sinn sem
efnt sé til samkeppni um beztu
ársskýrslu, sem fyrirtæki eða
stofnun gefa út á árinu. „Stjórn
Stjórnunarfélagsins skipaði
þriggja manna dómnefnd sem hef-
ur það hlutverk að meta þær
skýrslur sem berast í samkeppn-
inni og skera úr um hvaða skýrsla
skal hljóta viðurkenningu," segir
ennfremur í frétt Stjórnunarfé-
lagsins.
í nefndinni eiga sæti Helgi
Bachmann, forstöðumaður hag-
deildar Landsbanka íslands, Stef-
án Svavarsson, löggiltur endur-
skoðandi, og Arni Vilhjálmsson,
prófessor, sem jafnframt er for-
maður nefndarinnar.
„Ársskýrslunefndin hefur að
undanförnu skoðað og lagt mat á
þær ársskýrslur sem bárust í sam-
keppnina nú í ár, en þær voru alls
frá 16 fyrirtækjum, stofnunum og
Niðurstaða nefndarinnar er sú
eins og áður sagði, að veita Lands-
- banka Islands viðurkenningu fyrir
beztu ársskýrsluna að þessu sinni.
Við umfjöllun nefndarinnar um
ársskýrslu Landsbankans var
samin eftirfarandi umsögn: „Eins
og fyrr þykir ársskýrslan í heild
vera frábærlega vel unnin. Endur-
taka verður, að miður þykir að
fjármagnsliðurinn „sjóður vegna
ábyrgðarskuldbindinga við eftir-
launasjóð starfsmanna" er ekki
skýrður með vísun til vandaðs
mats á þessum umræddum
skuldbindingum.“
Ljósmynd Mbl. KÖE
Landsvirkjun hlaut viðurkenningu fyrir góða ársskýrslu. Hér afhendir Hörð-
ur Sigurgestsson, t.h., formaður Stjórnunarfélagsins, Halldóri Jónatanssyni,
aðstoðarframkvæmdastjóra Landsvirkjunar, viðurkenningarskjal. Milli
þeirra er Árni Vilhjálmsson, prófessor, formaður ársskýrslunefndar.