Morgunblaðið - 14.12.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982
31
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Nýjar bækur
Litla skinniö og Ljóömæli Olinu
og Herdísar fást á Hagamel 42.
Sími 15688.
Frúarkápur og slár
og fallegir skinnkragar til sölu.
Einnig litlar ódýrar kápur t.d. á
ömmu og fleira.
Kápusaumastofan Díana,
Miötúni 78, sími 18481.
Jólamarkaöurinn
Freyjugötu 9
Vegna breylinga selur heild-
verslunin mjög ódýrar vörur f.d.
ungbarnaföt, jólaskraut, ódýra
konfektkassa og fl. Opiö kl.
1—6, bakhúsiö.
Jólamarkaöurinn Freyjugötu 9.
Antik húsgögn
Fjölbreytt úrval gjafavara.
Antikmunir, Laufásvegi 6.
Sími 20290.
Mottur - teppi - mottur
Veriö velkomin. Teppasalan er á
Laugavegi 5.
Víxlar og skuldabréf
i umboðssölu.
Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu
17, simi 16223, Þorleifur Guö-
mundsson, heima 12469.
Vil kaupa notaö
skrifborö má þarfnast andlits-
lyftingar. Á aö notast i leikmynd.
Allt kemur til greina. Sími 28810
og 22517.
19 ára norsk stúlka
óskar eftir au pair vinnu í
Reykjavík frá febrúar 1983. Tal-
ar eitthvaö í íslensku. Skrifiö til:
Jane Soley Nadden, Fredens-
borgv. 8, Oslo 1, NORGE, sími
(02) 206988.
Handverksmaður
3694-7357
Fjölbreytt þjónusta úti sem inni
sími 18675.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnar-
stræti 11, sími 14824.
Ljósritun
Stækkun — smækkun
Stæröir A5, A4, Folió, B4, A3,
glærur, lögg. skjalapappir. Frá-
gangur á ritgerðum og verklýs-
ingum. Heftingar m. gormum og
m. plastkanti. Magnafsláttur.
Næg bílastæöi.
LjósfeH,
Skipholti 31,
sími 27210.
[ einkamál i
M________i__A__» aA 1
Óska eftir stúlku
til sparimerkjagiftingar. Uppl. í
síma 51372.
J.O.O.F. Eb. 1 = 13212148’/i —
Jólaf.
□ Edda 598212147 — 2.
Fundur fellur niöur í kvöld en
munið sameiginlegan fund meö
KFUM fimmtudaginn 16. des-
ember. Þar veröur Jónas Gísla-
son dósent meö biblíulestur.
Skíóadeild KR
Árskort i skiöalyftur veröa seld í
KR-heimilinu miövikudaginn
15.12. milli kl. 19—21.
Árskort veröa einnig fáanleg hjá
Ásbirni Einarssyni simi 30833
fram að áramótum. Ath. félagar
fá 20% afslátt gegn framvisun
félagsskírteina.
Stjórnin.
Villy Hansen
Samkomur i Síöumúla 8 kl.
20.30 fimmtudag og föstudag.
Vegurinn.
Fíladelfía
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20.30.
Dórótea Gísladótt-
ir - Minningarorö
Fædd 15. júní 1886
Dáin 16. október 1982
Útför Dóróteu fór fram laug-
ardaginn 23. október að Brimils-
völlum í Fróðárhreppi. Stór hópur
vina og kunningja var við útför-
ina, séra Rögnvaldur Finnbogason
prestur að Staðarstað jarðsöng.
Dórótea var fædd að Ráðagerði í
Leiru. Foreldrar hennar voru
hjónin Gísli Halidórsson og Elsa
Dórótea Jónsdóttir. Dórótea ólst
upp hjá foreldrum sínum, og var
hjá þeim fram yfir fermingu en þá
fór hún frá þeim til hjónanna
Finnboga G. Lárussonar og Bjarg- 1
ar Bjarnadóttur, en þau bjuggu þá
í Gerðum í Garði, og var hún hjá
þeim hjónum fyrst í Gerðum, en
fluttist svo með’ Finnboga og
Björg að Búðum í Staðarsveit, lík-
lega um 1906. Þar giftist hún eig-
inmanni sínum, Þorleifi Þor-
steinssyni, sem var starfsmaður
hjá Finnboga og lengi formaður á
bátum sem Finnbogi gerði út frá
Búðum.
Þau hjónin byggðu yfir sig lítið
timburhús á Búðum og hét það
Vinaminni en frá Búðum fluttu
þau árið 1909 að Hólkoti í Stað-
arsveit og byggðu þar upp. Þar
hófu þau sveitabúskap. Þorleifur
hélt áfram að sækja sjóinn og var
lengi formaður á bátum fyrir
Finnboga eftir að hann fluttist að
Hólkoti og var hann mjög aflasæll
formaður.
Þorleifur, maður Dóróteu, dó
árið 1938. Þau hjónin eignuðust
tvö börn: Leif, fæddur 1911 og
Björg, fædd 1919. Þá ólst upp hjá
þeim Bergþóra Guðjónsdóttir,
bróðurdóttir Dóróteu, og var hún
hjá þeim fram undir þrítugt.
Eftir að Þorleifur dó, bjó Dór-
ótea með syni sínum Leifi frá 1938
til 1943 og aftur frá 1945 til 1948,
en þá tók við búskap á Hólkoti
tengdasonur Dóróteu, Kristján
Guðbjartsson frá Hjarðarfelli og
kona hans, Björg, dóttir Dóróteu
og bjuggu þau á Hólkoti þar til
árið 1968.
Lengi framan af æfinni var
Dórótea heilsuveil, en batnaði
heilsan síðari hluta ævinnar, og
var sérstaklega ern allt fram á
síðustu daga æfinnar.
Þau Þorleifur og Dórótea voru
svo heppin að fá til sín vinnukonu,
Guðrúnu Pétursdóttur frá Malar-
rifi, Breiðavikurhreppi. Hún var
með afbrigðum dugleg, dygg og
góð kona, hún var hjá þeim allan
þeirra búskap á Hólkoti og einnig
var hún hjá Kristjáni og Björgu
eftir að þau hófu búskap.
Eg var innan við fermingu þeg-
ar ég kynntist Dóróteu fyrst. Eg
var tvo vetur í barnaskóla á Blá-
feldi í Staðarsveit, sem er næsti
bær við Hólkot og hélt ég til á
Hólkoti þessa tvo vetur. Þar leið
mér mjög vel í alla staði, þau Þor-
leifur og Dórótea voru mér eins og
bestu foreldrar. Elsa, móðir Dóró-
teu var þá lifandi en gömul og
blind, hún var mér mjög góð.
Heimilið á Hólkoti var rómað
fyrir myndarskap og reglusemi.
Dórótea var mesta myndarkona í
öllum verkum og ól upp börn sín
með mikilli prýði, hún var vinur
vina sinna, trygg og drenglynd, vel
gáfum gædd og trúuð kona. Alltaf
tók hún mér opnum örmum er ég
kom til hennar eins og væri hún
móðir mín, sömuleiðis konu minni
eftir að hún kynntist henni.
Þau Leifur og Björg, börnin
hennar, hafa verið mér sem systk-
ini frá fyrstu tíð. Dórótea hefur
verið nú síðustu árin á Hólkoti hjá
syni sínum Leifi en hann er ógift-
ur, og hefur alltaf verið á Hólkoti.
Björg er í Reykjavík, hún á tvær
dætur, Elsu og Heiðu og hafa báð-
ar verið ömmu sinni góðar. Dóró-
tea dvaldist oft hjá þeim þegar
hún var að leita sér lækninga.
Dórótea var lánsöm í lífinu, hún
átti því láni að fagna að eiga ind- j
ælan mann, góð og mannvænleg
börn og prýðis tengdason. Þetta I
allt var henni mikils virði og létti
henni lífið. Hún var sterktrúuð
kona og treysti Guði. Ég var hjá
henni síðasta daginn sem hún var
á Hólkoti í þessu lífi, en þá fór hún
á sjúkrahús í síðasta sinn. Ég sat
lengi hjá henni við rúmið hennar
því hún var þá rúmföst. Hún sett-
ist á rúmstokkinn á meðan ég
dvaldi hjá henni og yfir henni
hvíldi friður og ró. Hún sagði mér
margt dulrænt sem fyrir hana
hafði borið, hún hafi sumt af því
skrifað hjá sér og las hún það
fyrir mig. Það sem hún sagði mér
var mjög merkilegt og snart mig
mjög, hún sagðist hafa séð Frels-
arann í allri sinni dýrð, ekki sagð-
ist hún kvíða dauðanum, því hún
sagðist vera viss um að eftir dauð-
ann tæki við eilíf sæla í dýrð
himnanna hjá Drottni. Yfir henni
hvíldi himnesk gleði og friður.
Ég þakka Dóróteu allar indælar
samverustundir í þessu lífi og allt
það góða sem hún gerði mér og
mínum. Ég veit að þessi látna vina
mín hefur nú hlotið eilífa sælu hjá
Guði og hvílist nú eftir langt og
fagurt æfistarf með englum Guðs
við sumaryl og sólardýrð.
Blessuð sé minning hennar, hafi
hún þökk fyrir allt og allt.
Innilegar samúðarkveðjur til
barna, barnabarna og tengdason-
ar. Guð blessi ykkur öll.
Finnbogi G. Lárusson
Unnið að gerð vegar yfir
Steingrímsfjarðarheiði
síðastliðið sumar
iióimavik, io. desember. úr Strandasýslu hefur í
í SUMAR voru hafnar vega- Staðardal lokið við brú-
framkvæmdir í því skyni að arsmíði yfir Aratunguá;
tengja Djúpveg vid aðalvega- ræsagerð yfir Sunndalsá
kerfi landsins. Verður hér um (70—80 metra langur kafli);
mikla samgöngubót að ræða og er langt kominn með að
fyrir Djúpmenn, svo og undirbyggja um 5 km kafla
Strandamenn því með þessum 0g að í vetur hefur verið
framkvæmdum verður ein- unnið að því að ýta upp um 4
angrun þeirra frá öðrum , km kafla. Enn er ekki hafin
íbúum fjórðungsins rofin. endurbygging vegar frá
Vegur þessi mun liggja yfir Hólmavík og inn í Stein-
Steingrimsfjaröarheiði. grímsfjarðarbotn. Ekki má
í viðtali við Magnús Guð- gleyma að geta þess að vega-
mundsson verkstjóra kom vinnuflokkur að vestan hóf í
fram, að vegavinnuflokkur sumar vegaframkvæmdir
„Barnið okkaru
— leiðbeiningarrit handa foreldrum
IÐIINN hefur gefið út bókina Barnið
okkar. Fyrstu sex árin. Höfundur er
Penelope Leach, breskur sálfræðing-
ur. Sigurður Thorlarius læknir og Jón
Sig. Karlsson sálfræðingur þýddu. f
bókinni er mikill fjöldi mynda.
Barnið okkar skiptist í sex aðal-
kafla þar sem þroska barnsins er
fylgt frá fæðingu og fram á for-
skólaaldur. I hverjum kafla er fjall-
að um margbreytileg atriði sem
varða andlega og líkamlega líðan
barnsins og samskipti þess við for-
eldrana. Aftast er rækilegur upp-
flettikafli með hagnýtum ábending-
um. Myndir eru rúmlega fimm
hundruð, teikningar, ljósmyndir og
linurit.
Barnið okkar er rúmlega 500
blaðsíður, sett í Korpus en prentuð
á Ítalíu.
Svend Otto S.
Börnin
við fljótið
„Börnin við fljótið“
— ný bók eftir Svend Otto S
IÐUNN hefur genð út nýja bók eftir
danska teiknarann Svend Otto S.
Nefnist hún Börnin við fljótið og
segir frá börnum í Kína sem búa í
þorpi við fljótiö Jangtse Kiang.
Til að undirbúa gerð þessarar
bókar var hann í Kína og sá um-
merki stórflóðs í Jangtse Kiang
1981, þegar fljótið reis 31 metra á
fáum sólarhringum. — Þorsteinn
frá Hamri þýddi Börnin við fljót-
ið. Bókin er gefin út í samvinnu
við Gyldendal í Danmörku.
Magnús Guömundsson Ljósm. ss
uppi á heiðinni. Þessum
framkvæmdum mun verða
haldið áfram á sumri kom-
anda.
í sumar var lagt bundið
slitlag á Strandaveg, frá
Hólmavík og að Húsavík,
um 10 km vegalengd. Einnig
voru hafnar framkvæmdir
við nýtt vegarstæði á Bitru-
hálsi og eru þær u.þ.b. hálf-
naðar. Með tilkomu þessa
vegar mun Bitruháls hald-
ast opinn meirihluta ársins.
Enda þótt mikið hafi verið
unnið að vegabótum á þessu
ári þá blasa við mörg stór
verkefni. Þar má m.a. nefna
að vegurinn fyrir Kollafjörð
þarfnast verulegra lagfær-
inga og sömu sögu er að
segja af Ennishálsi að sunn-
anverðu.
Færð er nú ágæt hér
nyrðra og hefur yfirleitt
verið svo, það sem af er vetr-
ar.
(Kréttaritarar)