Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 36

Morgunblaðið - 14.12.1982, Síða 36
PRISMA 36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1982 Gjöfin sem gefur aro Sodastream tækið er tilvalin jólagjöf fyrir alla fjölskylduna Gerið sjálf gosdrykkina og sparið meira en helming. Sól hf. Þverholti19, sími 91-26300 KENWOOD CHEF 8ESJ/ HJALPARKOKKUR/NN KENWOOD CHEF fylgir þeytari, hrærari, hnoðari, grænmetis- og ávaxtakvörn, plasthlíf yfir skál. KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum. Ennfremur er ávalit fyrirliggjandi úrval aukahluta, svo sem, hakkavél, grænmetisrifjárn, grænmetis- og ávaxtapressa, kartöflu- afhýðari, dósahnífur ofl. UMBOÐSMENN: J L-húsið, Hringbraut 121, Reykjavík Rafha hf., Austurveri, Reykjavík. Rafþjónusta Sigurd. Skagabraut 6, Akranesi Húsprýði, Borgarnesi. Húsið, Stykkishóimi. Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal. Kaupfélag Saurbæinga, Skriðulandi, Dal. Póllinn h/f, ísafirði. Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík. Verslun Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi. Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki. Radío- og sjónvarpsþjónustan, Sauðárkróki. Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri. Grímur og Árni, Húsavík. Verslun Sveins Guðmundssonar, Egilsstöðum. Mosfell, Hellu. Kaupfélag Árnesinga, Selfossi. Radío- og sjónvarpsþjónustan, Selfossi. Kjarni, Vestmannaeyjum. Rafvörur, Þorlákshöfn. Verslunin Bára, Grindavík. Stapafell h/f, Keflavík. RAFTÆKJADEILD IhIHEKLAHF J LAUGAVEGI 170-172 SÍMAR 11687 • 21240 Ingimundur fiðla Svar til Einars G. Ólafssonar — eftir Gunnar M. Magnúss Ég skrifaði þátt um tónmeistar- ann Ingimund Sveinsson fiðlu, sem mér fannst liggja óbættur hjá garði. Nýútkomin bók mín, Ingi- mundur fiðla, er kennd við hann. I bókinni eru fimm heimildaþættir: Tónmeistarinn Ingimundur fiðla og fleira fólk — Tunnustafurinn og alþýðufræðarinn — Karlmenn- ið Guðný og skáldið á Þröm — Framandi gestir á Isafirði — Guðaveigar lífga sálaryl. Þátturinn um Ingimund fiðlu er skrifaður jákvæður á allan hátt, hvergi er hallað á Ingimund, hvergi er hallað á nokkurn mann, sem nefndur er til sögunnar, hvergi reynt að gera hlut fólks niðurlægjandi, öðru nær. Nú kemur fram á sjónarsviðið Einar G. Ólafsson og ritar grein í Morgunblaðið 9. desember sl., þar sem hann ber mér á brýn að ég „halli réttu máli“ í þættinum um Ingimund fiðlu og nefnir dæmi máli sínu til staðfestingar. En þar fer Einar út á hálan ís og hefur skreikað fótur. Grein hans snýst að miklu leyti í níð og falsanir um Ingimund fiðlu. Hann talar um óreiðu hans og amlóðahátt, að hann hafi kvænst ekkjunni Guðbjörgu á Bakkanum, til þess að hrifsa eigur hennar, en hún hafi tekið þennan „lánlitla" mann upp á arma sína. Auðfundið er, að Einar ber kala til Ingimundar. Úr penna Einars drýpur óvæginn dómur um látinn mann og heldur óvenjuleg eftir- mæli. Mér þykir leitt Einars vegna, að hann skyldi lenda í þessari slysni. Einar lætur að því liggja, að Ingi- mundur hafi lifað gálauslega eftir að hann „lenti á ekkjunni". Þetta hef ég ekki sagt. Þessi orð eru úr ævisögu Þorsteins Kjarvals, bróð- ur Ingimundar, enda eru þau hér í gæsalöppum. Einar hefur farið í Húsvitjun- arbækur Stokkseyrarsóknar, til þess að sýna fram á að Ingimund- ur hafi ekki haft heimilisfang á Bakkanum þessi missiri. Vel má svo vera. En allt í einu er Ingi- mundur kominn á Bakkann 1901 og kvæntist Guðbjörgu það ár. Þetta sagði Einar mér sjálfur í síma fyrir nokkru. Annars hefði ég ekki sett giftingarár þeirra í þáttinn. Það skipti engu máli í frásögn minni, hvort þau gengu í hjónaband þetta árið eða hitt. Ég skrifaði þáttinn um Ingimund sem tónlistarmann, þurfti hvorki ártöl né efnahagsskýrslur. En um þetta æviskeið Ingimundar þurfti að geta þess, að hann gekk í hjóna- band með ekkjunni, að þau bjuggu á Bakkanum, seldu húsið, keyptu hús á Skólavörðustígnum, bjuggu þar í basli, þar til yfir lauk og þau slitu samvistum. í Lesbók Morgunblaðsins 3. október sl. birtist kafli úr þættin- um um Ingimund fiðlu. Þar er tek- in frásögn Þorsteins Kjarvals um Ingimund, bróður hans, m.a. eru þar ártöl og frásögn um Ingimund, þegar hann settist að hjá Guð- björgu Sigurðardóttur á Eyrar- bakka. Þessi orð Þorsteins voru ekki að öllu leyti rétt. Ekki veit ég, hvort þessi missögn Þorsteins hef- ur verið leiðrétt. Þetta las Einar G. Ólafsson í Bók sem uppfyll ir brýna — eftir Úlf Ragn- arsson lœkni FRÁ KONU TIL KONU, Kvenna- læknir svarar spurningum um konur og kvenlíkamann. Höfundur: Lucienne Lanson M.D. F.A.C.O.G. Stærd bókar: 412 blaðsíður. Útgefandi: Skjaldborg, Akureyri. Þýðandi: Gissur Ó. Erlingsson. Brynleifur H. Steingrímsson, læknir, ritar formálsorð. Kynningarorð á bókarkápu: Bókin fjallar um skýrt markað efni, kyn- færi og kyneðli konunnar. Einnig um þá sjúkdóma, sem þessi líffæri og þetta lífeðli geta átt við að stríða. í meira en 30 ára læknisstarfi hefur sá er þetta ritar komist að raun um, að fjöldi kvenna er svo fáfróður um eigið eðli og jafnvel eigið sköpulag að furðu sætir. þörf Úlfur Ragnarsson, læknir Svo virðist sem ótrúlega margt fólk líti enn á það, sem bók þessi fjallar um, sem feimnismál. Sum- um finnst áreiðanlega jaðra við brot gegn almennri háttvísi að nefna kynfæri og kyneðli opin- skátt á bókarkápu og fá ósjálfráða sektarkennd af því einu að taka sér slíka bók í hönd og játa á sig áhuga á efni hennar. Slíkt hátta- lag þvert ofan í heilbrigða skyn- semi sannar það, hversu sterk ítök ævagömul bannhelgi eða TABU getur átt í vitundinni. Bannhelgin sækir afl sitt til óttans. Þannig er hver, sem lætur stjórnast af bannhelgi eða TABU, raunveru- lega ófrjáls mannvera á valdi óttans. Öttablandið laumuspil í kringum fordómafulla bannhelgi á sér líka stað í sambandi við elli og dauða, krabbamein, þvagfærasýk- ingar og fleira. Af þessu hefur hlotist og hlýst enn ómælt tjón, langtum meira en flesta grunar. Samt hefur gerst sú sólskinssaga, að fjölda kvenna hefur verið bjargað, sem ella hefði dáið úr krabbameini, og er því að þakka, að læknar mátu meira hlutlæga þekkingu en tryggð við gamla fordóma. Eins og sjá má í þeirri bók, sem hér er um að ræða, er margt óunnið enn á vettvangi kvenlækninga, sem stuðlað getur að hamingjusamara lífi og betri endingu heilbrigðrar lífsorku til líkama og sálar. Brynleifur H. Steingrímsson, læknir, lýkur formálsorðum með þessum ummælum: „Því ber að fagna, að bók Lucienne Lanson er nú komin út á íslensku og breiðir þar með út þekkingu og skilning til íslenskra kvenna og karla um konuna og kveneðlið." Sannarlega orð í tíma töluð. Karlmönnum er heldur ekki vanþörf á að átta sig á kveneðlinu samkvæmt trúverðugri heimildum en óhroðanum, sem fiæðir yfir löndin hindrunarlítið. Þegar þagnarmúr aldinna for-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.