Morgunblaðið - 29.01.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 29.01.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983 Runólfur ívarsson sýnir Ijósmyndara kúlugat á rúðu á baðherbergisglugga, en skotið var í gegnum hana á miðvikudag, eins og sagt var í Morgunblaðinu í gær. Runólfur býr við Stýrimannastíg og hefur athygli lögreglunnar beinzt að manni í húsi hinum megin við götuna. Morcunbiaóíð/ kee. Fasteignaskattur elli- og örorkulífeyrisþega lækkaður í Reykjavík FRAMTALSNEFND Reykjavíkur mun eins og undanfarin ár í umboði Borg- arráðs Reykjavíkur yfirfara skattframtöl elli- og örorkulífeyrisþega og veita lækkun á álögðum fasteignaskatti skv. ákvæðum laga um tekjustofna sveit- arfélaga, segir í frétt frá borgarstjóra. Borgarráð hefur samþykkt eftirfarandi viðmiðunarreglur um lækkun fast- eignaskatta elli- og örorkulífeyrisþega árið 1983: 1. Niðurfelling: Fella skal niður Sama gildir um hjón, sem höfðu fasteignaskatt hjá þeim elli- og örorkulífeyrisþegum, sem á árinu 1982 höfðu ekki aðrar tekjur en tryggingabætur frá Trygginga- stofnun ríkisins (þ.e. elli- og örorkulífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót). 2) 80% lækkun: Þeir einstakl- ingar, sem ekki falla undir lið 1 (fá niðurfellingu) og höfðu á árinu 1982 kr. 66.000.00 eða lægri tekjur, fá 80% lækkun fasteignaskatts. sameiginlega á árinu 1982 kr. 105.000.00 eða lægri tekjur. 3. 50% lækkun: Þeir einstakl- ingar, sem á árinu 1982 höfðu tekjur frá kr. 66.000.00-86.000.00 fá 50% lækkun fasteignaskatts. Sama gildir um hjón, sem sameig- inlega höfðu á árinu 1982 tekjur frá 105.000.00-136.000.00. Vakin er athygli á því, að heim- ild til lækkunar á fasteignaskatti nær ekki til annarra gjalda á fast- eignagjaldaseðlinum en fasteigna- skattsins. Tilkynningar um afgreiðslu framtalsnefndar á lækkun fast- eignaskattsins verða væntanlega sendar út til viðkomandi elli- og örorkulífeyrisþega í mars og apríl nk. Bæjarútgerð Reykjavíkur: Jónas Pálsson. Jónas Páls- son kjörinn rektor við KHÍ JÓNAS Pálsson var í eær kjörinn rekt- or Kennaraháskóla lslands og tekur hann við af Baldri Jónssyni. 35 fast- ráðnir kennarar og 9 fulltrúar nem- enda höfðu kosningarétt og greiddu 42 atkvæði. Jónas Pálsson hlaut 24 at- kvæði, Stefán Bergmann hlaut 17 at- kvæði og einn seðill var auður. Baldur Jónsson hefur verið rektor Kennaraháskólans síðastliðin átta ár og áður var hann konrektor í átta ár. Samkvæmt lögum má ekki endurkjósa rektor nema einu sinni og getur rektor því ekki setið lengur en í átta ár samfleytt. Jónas Pálsson er sextugur að aldri, fæddur að Beingarði í Skaga- firði. Hann lauk prófi frá Samvinnu- skólanum árið 1942 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri ár- ið 1947. Hann stundaði nám í sálar- fræði við háskóla í Skotlandi, Bandaríkjunum og Englandi. Jónas var skólastjóri Æfingaskóla Kenn- araháskólans 1971—1982. Jónas hóf stundakennslu við Kennaraskólann 1963 og var skipaður lektor við KHÍ síðastliðið haust. Jónas hefur verið prófdómari í uppeldis- og sálarfræð- um við HÍ frá 1968. Eiginkona Jón- asar er Ingunn Hermannsdóttir og eiga þau fimm börn. Hallinn stefnir í 100 milljónir árin 1982 og 1983 verði ekkert að gert segir Ragnar Júlíusson, formaður útgerðarráðs „B/EJARÚTGERÐ Reykjavíkur er ekki framfærsla og á ekki að verða það. BÚR er fyrirtæki, sem á að standa á eigin fótum. Þess vegna hef ég gert það að tillögu minni að gerð verði úttekt á rekstri Bæjarútgerðarinnar," sagði Ragnar Júlíusson, formaður útgerðarráðs BÚR, meðal annars í samtali við Morgunblaðið. „Þegar fjárhagsáætlun borg- arinnar var samþykkt í borgar- stjórn, flutti ég ræðu um BÚR og sagði, að það yrði að skera reksturinn upp frá hinum lægsta til hins hæsta. Hinu sama lýsti ég aftur yfir aftur á næsta útgerðarráðsfundi og taldi þá að allir BÚR-menn hvar í flokki sem þeir stæðu, yrðu að snúa saman bökum og rétta BÚR við. Því samkvæmt þeirri fjárhagsáætlun, sem þá lá fyrir, var áætlað tap áranna 1982 og 1983 um 100 milljónir, yrði ekk- ert að gert. Á síðasta fundi út- gerðarráðs flutti ég um það til- lögu að útgerðarráð léti gera út- tekt á stjórnsýslu og yfirstjórn BÚR. Það var samþykkt að formanni, að höfðu samráði við framkvæmdastjóra, verði falið að undirbúa málið fyrir næsta fund á miðvikudaginn kemur. Ég hef alla tíð verið á móti svartolíunni, en hins vegar ber að geta þess að þegar svartolían var sett á fyrsta togara BÚR var hún 40 til 50% lægri í verði en gasolían, en nú hefur það verð mjög jafnast og stjórnvöld hafa, eftir að búið er að troða svart- olíu um borð í skipin, hækkað hana örar en gasolíuna, jafnvel þó verð á erlendum mörkuðum hafi lækkað. Ég tel því fulla ástæðu til að endurskoða þetta mál núna, þar sem í ljós kemur, að í krónutölu árið 1981 er mjög svipuð olíueyðsla á úthaldsdag hjá ÚA og BÚR, þrátt fyrir að togarar ÚA brenni gasolíu, en mjög mikill munur á viðhaldi, eða tæpar 7 milljónir hjá ÚA á móti 12 hjá BÚR. Það hlýtur að vera eitthvað svartolíunni að kenna," sagði Ragnar. Lýsi og mjöl, Hafnarfirði: Víkur bjóða fímmtán- falt í hluta bæjarsjóðs EINS og fram hefur komið í frétt- um hefur bæjarsjóður Hafnar- fjarðar ákveðið að selja hlutabréf sín, 44%, í fyrirtækinu Lýsi og mjöl þar í bæ. Alls bárust þrjú tilboð í þann hluta fyrirtækisins og var það hæsta frá Skipafélag- inu Víkum, Saltsölunni hf. og fleirum, upp á 825.000 krónur og er það fimmtánfalt nafnvirði hlutabréfanna. Nafnviði hluta- bréfanna í heild er rúmar 120.000 krónur, en hlutur bæjarsjóðs er 55.000. Hefur bæjarráð lagt til að gengið verði að þessu tilboði. Þá bauð Kópa hf. í Njarðvík Ef vel tekst til njótum við góðs af — segir Ólafur Jóhannesson utanríkisráöherra um rannsóknir Norðmanna á hafsbotninum við Jan Magen „NORÐMENN sjá alfarið um þessar rannsóknir og standa undir kostnaði af þeim, en ef vel tekst til þá njótum við góðs af. Við fylgj- umst að sjálfsögðu með rannsókn- unum og ef olía finnst, þá tökum við væntanlega þátt í kostnaði við boranir miðað við mögulegan vinn- ing“, sagði Olafur Jóhannesson utanríkisráðherra, er Mbl. spurði hann hvort íslendingar væru aðilar að þeim rannsóknum á hafsbotnin- um við Jan Mayen sem Norðmenn eru að hefja, í leit að olíu. Ólafur sagði rannsóknir þess- ar fara fram samkvæmt samn- ingum þjóðanna um hafsbotn- inn. Samningurinn er á þá leið, að ef olía finnst á Noregshluta botnsins, þá eiga Norðmenn 75% olíunnar en íslendingar 25%, en ef olía er á íslandshlutanum verða hlutföllin hin sömu, en ís- landi í vil. Hann kvað þessar rannsóknir vera til margra ára, en ef olía fyndist, tækjum við væntanlega þátt í borunum og greiddum þá hlutfallslegan kostnað af þeim. 660.000 krónur og Hilmar Har- aldsson og fleiri 487.000 krónur í þennan hlut fyrirtækisins. Að sögn Einars Inga Halldórsson- ar, bæjarstjóra í Hafnarfirði, eru önnur hlutabréf í eigu Bæj- arútgerðar Hafnarfjarðar og ýmmissa annarra rótgróinna fyrirtækja í Hafnarfirði. Nú liggja fyrir drög að samkomu- lagi við Skipafélagið Víkur, sem afstaða verður væntanlega tek- in til á bæjarstjórnarfundi næstkomandi þriðjudag, en bæjarráð hefur mælt með að þau verði samþykkt. Sagði Einar, að upphaf þess, að hlutur bæjarsjóðs í Lýsi og mjöli hefði verið auglýstur til sölu, væri það, að fyrirtækið hefði verið stopp í nokkurn tíma vegna rekstrarerfiðleika. Hefðu nokkrar viðræður farið fram um það, hvað gera mætti til að koma fyrirtækinu í gang. Hefði það meðal annars komið fram hjá stórn fyrirtækisins, að fengjust nýir aðilar til þess að ganga inn í fyrirtækið, gæti það orðið til þess að fá hjólin til að snúast að nýju. Hefði þar komið fram ósk um það að bæjarsjóð- ur byði þessi hlutabréf sín til sölu til þess að fá nýja aðila inn í reksturinn. Hefði það síðan verið samþykkt af hálfu bæj- arsjóðs. Stofngjald síma hækkar í 2386 kr. PÓST- og .símamála.stofnunin hefur fengið heimild til 14% gjaldskrárhækkunar og tekur ný gjaldskrá fyrir símaþjónustu gildi 1. febrúar, en fyrir póstþjón- ustu 1. mars nk., segir í frétta- tilkynningu frá Pósti og síma. Helstu breytingar á síma- gjöldum verða sem hér segir: Stofngjald fyrir síma hækkar úr kr. 2.093,00 í kr. 2.386,00 og símnotandi greiðir fyrir tal- færi og uppsetningu tækja. Gjald fyrir umframskref hækkar úr kr. 0,80 í kr. 0,91 og afnotagjald af heimilissíma á ársfjórðungi hækkar úr kr. 339,00 í kr. 387,00. Venjulegt flutningsgjald milli húsa á sama gjaldsvæði hækkar úr kr. 1.046,50 í kr. 1.193,00. Við gjöld þessi bætist sölu- skattur. _______ Friðrik tapaði gegn Ribli SVÍINN Ulf Anderson heldur enn forystu sinni á sigurvegaramótinu í skák, sem staðið hefur yfir í Ilollandi síðustu daga. Anderson er með 8% vinning, Ribli er með 8 vinninga og Browne er með 7Vi vinning. Friðrik Ólafsson tefldi í gær við Ribli og tapaði Friðrik í 42 leikj- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.