Morgunblaðið - 29.01.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
9
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 180.
Feginn vil ég vera með í
leiknum, þegar fjallað er um
hættu þá sem að máli okkar
steðjar vegna breytinga á
framburði. Ég hef nokkrum
sinnum í þessum þáttum, og
áður í útvarpi, einmitt metið
það svo, að máli okkar staf-
aði mestur háski af röngum
áherslum, hrynjandi og
hreimi.
Ágætir áhugamenn um ís-
lenskt mál hafa mörgum
sinnum tekið fast í þennan
streng. Með þökk minnist ég
margra greina eftir Ævar R.
Kvaran, nýlegrar ádrepu
Jóns Óskar, þess hljómvísa
skálds, í lesbók þessa blaðs
og hvassrar umvöndunar
Sigurðar Þórarinssonar
prófessors í bréfi til Árna
Böðvarssonar í morgunút-
varpinu.
Furðu oft leggja nafntog-
aðir stjórnmálamenn og
jafnvel fræðimenn kolrangar
áherslur á orð sín, sældarar
(poppistar) söngla með ein-
hverskonar amerískum upp-
boðshaldaratóni, svo og þulir
og fréttamenn, og veður-
fregnir hafa jafnvel ekki far-
ið varhluta af röngum
áherslum, suðaustan sex, hef
ég heyrt, og er þá ekki gætt
þeirrar einföldu frumreglu,
að hafa aðaláherslu á fyrsta
atkvæði. Stundum verður
þetta enn afkáralegra: Verð-
bólgan hef ég heyrt úr munni
stjórnmálamanns og annað
eftir þessu. Erfiðast er fyrir
mig að lýsa þeirri óeðlilegu
hrynjandi málsins sem ég
hef leyft mér að skíra í hvat-
vísi minni amerískan Upp-
boðshaldaratón. Þyrftu helst
að koma til nákvæmar fram-
burðarrannsóknir, hliðstæð-
ar þeim sem Björn Guð-
finnsson stóð fyrir og fram-
kvæmdi á sínum tíma af ein-
stakri elju og frábærri vís-
indalegri nákvæmni.
En hvað skal þá til varnar
verða vorum sóma? Hvað
geri ég dags daglega til úr-
bóta annað en nöldra í fjöl-
miðlum? Jú, ég kenni.
Er þá komið að skólunum.
Ég hef ekki þekkingu til þess
að dæma um lestrarkennslu í
barnaskólum. Þar er þó
grunnurinn lagður, og lengi
býr að fyrstu gerð. „Smekk-
urinn, sem kemst í ker, keim-
inn lengi eftir ber.“ Hitt veit
ég af reynslu að nemendur
koma upp úr grunnskóla með
ótrúlega litla þjálfun í fram-
sögn og tali (ræðu, mæltu
máli). Eg hygg þó að í lífinu
tali flestir sýnu meira en
þeir skrifa, svo að ekki ættu
menn að vanrækja þátt hins
talaða máls.
Við íslenskukennarar
Menntaskólans á Akureyri
höfum um árabil reynt að
bæta úr þessu, þó að ekki sé
nema að litlu leyti. Hjá sum-
um kennurum hefst hver ein-
asta kennslustund á upp-
lestri nemenda eftir eigin
vali. Á sumum önnum eru
menn ekki síður þjálfaðir í
framsögn og ræðugerð en
ritgerðasmíð. Ég hef orðið
þess var, að nemendur taka
þessari litlu þjálfun með
mikilli þökk. Þeir taka þetta
alvarlega, vanda sig og hafa
gaman af. Þeir segja sem svo
að þarna hafi verið reynt að
troða í löngu opið skarð hins
íslenska skólakerfis.
Á önninni, sem nú er að
ljúka, skráðu sig allmargir
þáttur
nemendur á námskeið sem
skólinn hélt í framsögn,
fundarsköpum og ræðugerð.
Áhugi nemenda var mjög
mikill og sumir lásu og töl-
uðu „betur en páfinn“.
í bili get ég ekki annað en
mælt með því að lestrar-
kennsla barna verði vönduð
sem allra best og nemendum
síðan haldið við með stöðugri
þjálfun og tilsögn í töluðu
máli. Ég held menn geri sér
nú flestir ljóst að megin
vandi steðjar að talmáli
okkar og þar þarf heldur en
ekki að snúa vörn í sókn.
Vendi ég nú kvæði mínu í
kross og svara spurningu um
kvenmannsnafnið Matthild-
ur. Er þar þá fyrst til að
taka, að þetta er þýskt nafn
að uppruna og barst til
okkar, að því er talið er, með
viðkomu á norðurlöndum
öðrum. Ég hef ekki öruggar
heimildir um nafnið hér á
landi eldri en frá 17. öld og í
manntalinu mikla 1703 eru
sextán Matthildar á íslandi,
flestar á Mið-Norðurlandi.
En hvað merkir svo
Matthildur? Hildur er al-
þekkt orð sem bæði táknar
valkyrju og orustu og þarf
ekki um það að fjölyrða.
Fyrri hlutinn getur varla
táknað annað en hið sama og
íslenska orðið máttur, þýska
Macht, skylt mega, magn,
megin og öllu því. Merking
nafnsins virðist því vera
mjög góð: hin máttuga val-
kyrja.
í manntalinu 1910 báru
114 íslenskar konur Matt-
hildar nafn, og á tímabilinu
1921—’50 var 131 mær svo
skírð, og sýnist dreifing þess
jöfn um allt land.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
L0GM J0H ÞOROARSON HDL
Tii sölu og sýnis auk annarra eigna:
Einbýlishús við Langagerði
Vel meö fariö hlaöiö steinhús, hæö og rishæö meö 5—6 herb. íbúö.
Nokkuö endurnýjaö. Teikning á skrifstofunni.
Timburhús í Skerjafiröi
Húsiö er meö 4ra herb. íbúö á hæö og í risi. Eignarlóö. Trjágaröur. Laust
strax. Verö aðeins kr. 1,3 millj. Útb. kr. 900 þúa. Nánari uppl. á skrif-
stofunni.
3ja herb. íbúðir við:
Jörfabakka, 2. hæö um 75 fm. Mjög góö. 1. fl. sameign.
Njálsgötu, á efri hæö og i rlsi um 70 fm. Endurnýjuö. Verö kr. 750 þús.
Furugrund, 2. hæö, 80 fm. Nýleg mjög góö. Herb. í kj. fylgir.
Nýbýlaveg, 2. hæö, 80 fm í enda. Nýleg og góö. Sér hiti. Góöur bílskúr
fylgir.
4ra herb. íbúðir við:
Eyjabakka, 2. hæö 100 fm. Bílskúr. Útsýni.
Básenda, aöalhæð, þríbýli um 85 fm. Ný eldhúsinnrétting o.fl. Bílskúrs-
réttur. Útsýni.
Nökkvavog, 110 fm aöalhæö, reisulegt steinhús, þríbýli. Sér hitaveita.
Nýir gluggar og gler. Nýr stór bílskúr, 40 fm (verkstæöi).
Skólageröi — Kóp., efri hæö 90 fm tvíbýli. Sér hiti. Stór frágengin lóö.
Einbýlishús í austurborginni
Góö 3ja herb. efri hæö í tvíbýli Mikiö endurnýjuö. Allt sér. Stór bílskúr.
Glæsileg lóö. Mikiö útsýni. Verö aöeins 1250 þús.
Verslunarhúsnæði — iðnaðarhúsnæði
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Til sölu
81066
Leitiö ekki langt yfir skammt
Opið 1—3
2ja herb.
Kríuhólar
2ja herb. falleg ca. 52 fm íbúö á
4. hæö. Ibúö í toppstandi. Útb.
ca. 560 þús.
Hraunstígur — Hafn.
Góö 2ja herb. 56 fm íbúð á
jaröhæð í tvíbýlishúsi. Verö 790
þús.
3ja herb.
Grettisgata
3ja herb. mjög falleg 85 fm íb. á
2. hæö. Ný endurnýjaö eldhús
og baöherb. Falleg sameign.
Bein sala.
Hraunbær
3ja herb. ca. 85 fm ibúö á 3.
hæö i enda. Góð íbúö. Verö 1
millj.
Sæviðarsund
Mjög falleg 3ja—4ra herb. ca.
100 fm ibúö á 1. hæö í nýlegu
fjórbýlishúsi. Góð sameign. Til-
valin eign fyrir eldra fólk. Verð
1350—1400 þús.
4ra herb.
Þverbrekka
Mjög góö 4ra—5 herb. 117 fm
íb. á 2. hæö. Sér þvottaherb.
Laus 15. febr. Verð 1250—
1300 þús.
Engihjalli
4ra herb. falleg 106 fm íbúö á 8.
hæö. Verö 1200 þús.
Sér hæðir
Barmahlíð
4ra herb. ca. 115 fm íbúð á 2.
hæö í fjórbýlishúsí. Mikið
endurnýjuö eign. Nýtt gler.
Laus 1. okt. Verö 1500 þús.
Álfhólsvegur Kóp.
Góð 120 fm 6 herb. sórhæö á 1.
hæð í þríbýli. Sér inngangur.
Sér hiti. Bílskúrsréttur. Verö
1600 þús.
Eiöistorg —
Seltjarnarnesi
Stórglæsileg ca. 190 fm pent-
house-ibúð á 3 hæöum sem
nýst getur bæði sem ein eöa
tvær íbúöir. fbúöin er 2 eldhús
og 2 snyrtingar. Fullkláraö
bílskýli. Skipti möguleg á minni
eign. Útb. 1540 þús.
Sórhæð
Höfum til sölu 160 fm nýja
topp-sérhæö á góðum stað í
Austurborginni. Ibúöin er full-
frágengin og til afhendingar nú
þegar.
Stærri eignir
Helgaland Mosf.
Vorum aö fá i einkasölu glæsi-
legt parhús á 2 hæöum ásamt
bílskúr. Húsið er laust nú þegar.
Útþorgun ca. 850 þús.
Húsafell
FASTEtGNASALA Langholtsveg, 115
(BæiarteAahusinu) simi 81066
Adalsteinn Pétursson
BergurGubnason httt
Þurfum aö útvega gott verslunarhúsnæöi 500—1000 fm, viö verslunar-
götu i borginni á 1. hæð. Ennfremur iönaöarhusnæði stórt og rúmgott
aö svipaöri stærö. Allar uppl trúnaðarmál.
Opið í dag laugardag
kl. 1 til 5.
Lokaö á morgun sunnudag.
AtMENNA
FAST El GNASAL AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ptior0tml H
2 Askriftcirsiminn er 83033
Eskihlíð
5 herbergja íbúö á jaröhæö. Er rúmir 130 fm. Björt íbúö meö
góöum gluggum. Hefur veriö mikiö endurnýjuö. Rólegur staöur.
Kaldasel
Einbýlishús í smíöum, oröiö íbúöarhæft. Á aðalhæö eru: stofur, 1
herbergi, eldhús með borökrók o.fl. í rishæö eru: 4 góö svefnher-
bergi, baö, stórt sjónvarpsherbergi o.fl. í kjallara er hægt aö gera
íbúö.
Barmahlíð
4ra—5 herbergja efri aöal-hæö í húsi við Barmahlíö. Hefur veriö
mikiö endurnýjuö og er því í góðu ástandi.
Auglýsingunni veröur svarað á laugardegi í síma 34231.
Árni Stefánsson hrl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suöurgötu 4. Sími: 14314.
' Bústoðir
a FASTEIGNASALA ^
^28911^
WTiLaugavegi 22
mng fra Klapparstig ■ ' ;
Johann Davíðsson
Ágúst Guömundsson
Helgi H. Jónsson viöskfr.
Opið 1—4 í dag
Hjallabraut
2ja herb. 70 fm íbúö á 3. hæö.
Þvottahús og búr inn af eldhúsi.
Suöur svalir. Eign í sér flokki.
Verö 900—950 þús. Einkasala.
Furugrund
3ja herb. 90 fm íbúð á 6. hæö.
Verð 1050 þús. Einkasala.
Kaplaskjólsvegur
3ja herb. 90 fm ibúö á 3. hæö.
Suður svalir. Verö 1100 þús.
Langholtsvegur
3ja herb. 80 fm íbúð í kjallara.
Sér inng. Verö 900—950 þús.
Snyrtileg íbúð. Ákv. sala.
Suðurgata Hf.
3ja herb. íbúð á 1. hæð. Þvotta-
hús og búr inn af eldhúsi. Verö
1100 þús. Ákv. sala.
Flúðasel
4ra herb. 110 fm íbúð á 3. hæð.
Bílskýli. Verö 1400 þús.
Fífusel
140 fm raöhús á tveimur hæö-
um. Verö 1900 þús.
Miðvangur Hf.
190 fm raöhús á tveimur hæð-
um. Bílskúr. Verð 2,3 millj. Ákv.
sala.
Arnartangi Mosfellssveit
145 fm einbýlishús á einni hæð.
40 fm bílskúr. Bein sala. Verö
2,1 millj.
Fjöldi annarra eigna á sölu-
skrá.
Jóhann, sími 34619.
Ágúst, sími 41102.
Helgi H. Jónsson viöskfr.
29555
Opið í dag kl.
1—3
Skoðum og verðmetum eignir
samdægurs
KÓNGSBAKKI 2ja herb. 67 fm
íbúö á 2. hæö. Verö 830 þús.
BOÐAGRANDI 2ja herb. 65 fm
íbúö á 2. hæð. Verö 880 þús.
GAUKSHÓLAR 2ja herb. 64 fm
íbúð á 3. hæö. 25 fm bílskúr.
Verð 920 þús.
HAGAMELUR 3ja herb. 90 fm á
2. hæð. Verö 950 þús.
BREIÐVANGUR 3ja herb. 98 fm
íbúö á 3. hæð. Verö 1150 þús.
K APLASK JÓLSVEGUR 3ja
herb. 90 fm á 1. hæð. Verö 920
þús.
LAUGARNESVEGUR 94 fm
íbúö á 4. hæð. Verð 920 þús.
SÓLHEIMAR 4ra herb. 115 fm
á 8. hæð. Skipti á 3ja herb.
íbúö. Verð 1300 þús.
KAPLASKJÓLSVEGUR 4ra
herb. 100 fm á 1. hæö. Verö
1200 þús.
HRAUNBÆR 4ra herb. 100 fm á
3. hæð. Verð 1250 þús.
MÁVAHLÍÐ 5 herb. 120 fm í
risi. Bílskúr. Verð 1900 þús.
ÁSGARÐUR 150 fm raðhús.
Verö 1450 þús.
ENGJASEL 150 fm raöhús.
Verö 1900 þús.
HJARÐARLAND MOSF. 240 fm
einbýlishús. Verö 2.150 þús.
MIDVANGUR 145 fm raöhús
með 45 fm bílskúr. Hugsanlegt
að taka 4ra—5 herb. íbúö uppí
eöa bein sala. Verö 2,3 millj.
Eignanaust
Skipholti 5.
Símar 29555 og 29558.
Þorvaldur Lúðvíksson hrl.