Morgunblaðið - 29.01.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
15
Breyta þarf
stefnunni í hús-
næðismálum
— eftir Birgi ísl.
Gunnarsson
í tíð núverandi ríkisstjórnar
hefur komið upp á yfirborðið í
fyrsta skipti í langan tíma
grundvallarágreiningur um stefnu
í húsnæðismálum. Alþýðubanda-
lagið hefur farið með þennan mik-
ilvæga málaflokk og sýnt svo að
ekki verður um villst, hvert stefna
Svavars Gestssonar og flokks
hans leiðir.
Að búa í eigin húsnæði
Grundvallarstefna Sjálfstæðis-
flokksins í húsnæðismálum hefur
verið sú að sérhverri fjölskyldu
verði gert kleift að eignast og búa
í eigin húsnæði. í sveitarstjórnum
og á vettvangi ríkisins hafa allar
aðgerðir flokksins miðað að því að
framkvæma þetta stefnumark. Nú
hefur þessi stefna orðið að víkja
undir forystu Alþýðubandalags-
ins. Svokallaðar félagslegar fram-
kvæmdir í húsnæðismálum hafa
haft algjöran forgang hjá þeim
ráðherra, sem með þessi mál fer.
Félagslegar framkvæmdir í hús-
næðismálum eiga rétt á sér að
vissu marki, en að láta þær ryðja
burt framkvæmdum þeirra, sem
vilja byggja, kaupa og eiga sitt
eigið húsnæði, eins og nú hefur
gerst, er fráleitt.
Það er mikilsvirði fyrir marga
að fá umráðarétt yfir íþúð í verka-
mannabústöðum. Þeim íbúðum
„Það er mikils virði fyrir
marga að fá umráðarétt
yfir íbúð í verkamanna-
bústöðum. Þeim íbúðum
fylgja hinsvegar kvaðir á
umráða- og eignarétti,
sem er mönnum fjötur um
fót og þess vegna er frá-
leitt að opna ekki aðra
möguleika fyrir ungt fólk
til að leysa sín mál.“
fylgja hinsvegar kvaðir á umráða-
og eignarétti, sem er mönnum
fjötur um fót og þess vegna er
fráleitt að opna ekki aðra mögu-
leika fyrir ungt fólk til að leysa
sín mál. Auk þess fylgir verka-
mannabústaðakerfinu kostnaðars-
amt og vaxandi bákn, sem ætti að
vera óþarft — og pólitísk nefnd
ræður, hverjir fá íbúð og hverjir
ekki.
Samdráttur í
íbúðarbyggingum
Stefna Alþýðubandalagsins hef-
ur leitt til þess að mikill sam-
dráttur hefur orðið í byggingu
íbúðarhúsnæðis undir stjórn þess.
Hinn almenni húsbyggjandi hefur
vísvitandi verið látinn sitja á hak-
anum, reynt hefur verið að slæva
frumkvæði einstaklinga, sem
Ein af teikningum Ásgrfms, „Margt býr í þokunni", smalinn og tröllin í
fjöllunum. Myndin er gerð 1957—58.
Skólasýning Ás-
grímssafns opnuð
HIN ÁRLEGA skólasýning Ás-
grímssafns hefur verið opnuð og
stendur yfir til aprílloka. Þriðju
bekkjum grunnskóla er boðin leið-
sögn safnkennara í vetur. Heim-
sóknartímar fyrir þá hópa eru mánu-
dags- og miðvikudagsmorgna og
þriðjudaga eftir hádegi, auk þess
verður tekið á móti öðrum hópum á
opnunartíma safnsins á fimmtudög-
um eftir hádegi.
Á sýningunni er að þessu sinni
fjölbreytt yfirlit verka sem sýna
flest þeirra viðfangsefna sem Ás-
grímur Jónsson grímdi við. Þá
geta nemendur kynnst ýmiss kon-
ar tækni myndlistarmannsins og
séð þær breytingar sem verða á
list hans á löngum ferli.
Heimsóknartíma skal panta
með a.m.k. viku fyrirvara hjá Sól-
veigu Georgsdóttur, safnakennara
á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur,
mánud. kl. 13.30—16.00 í síma
28544. Þá verður undirbúningsefni
sent um hæl. Grunnskólar Reykja-
víkur eiga þess kost að fá
hópferðabifreið til safnferðarinn-
ar sér að kostnaðarlausu.
Ráðstefna um orkunotkun og
orkusparnað í fiskmjölsiðnaði
í GÆR og í dag er haldin ráðstefna í
Reykjavík um orkunotkun og orku-
sparnað í fiskmjölsiðnaði.
Þeir sem boða til ráðstefnunnar
eru Félag íslenskra fiskimjölsfram-
leiðenda, Orkusparnaðarnefnd iðn-
aðarráðuneytisins, Orkustofnun og
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins,
og verður hún haldin að Borgartúni
6.
Á ráðstefnunni er fjallað um
orkunotkun og orkusparnað í
bræðslunum, fjármögnun og fram-
kvæmd endurbóta sem spara orku,
ýmsar nyjar framleiðsluaðferðir,
ástand fiskistofna sem nýttir hafa
verið til bræðslu o.fl. o.fl.
Erindin sem flutt eru á ráðstefn-
unni verða gefin út í tengslum við
hana.
byggja yfir sig — og íbúðarverð
þýtur upp úr öllu valdi vegna hús-
næðisskorts.
Til að reyna að vísa veginn út úr
þessum mikla vanda, sem Alþýðu-
bandalagið hefur sett þennan mál-
efnaflokk í, hafa þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins lagt fram tillögur
til þingsályktunar um ítarlega
stefnumörkun í húsnæðismálum.
Sú tillaga felur í sér gjörbreytingu
á þeirri stefnu, sem fylgt hefur
verið. Hér skal greint frá nokkr-
um meginatriðum hennar.
Þingsályktunartillaga
sjálfstæðismanna
Stefnt verði að því á næstu 5
árum að 80% af byggingarkostn-
aði þeirra, sem byggja eða kaupa í
fyrsta sinn, fáist að láni. Lánstími
verði lengdur í 42 ár. Þessi hækk-
un lána verði í áföngum og á þessu
ári verði lánin hækkuð þannig að
þau nemi 25% af byggingarkostn-
aði staðalíbúðar, en þetta mark er
nú um 17%.
Ljóst er að aukið fjármagn þarf
til að ná fram þessu markmiði.
Gert er ráð fyrir að leitað verði
eftir frjáisu samstarfi við lífeyr-
issjóði um fjármögnun þessa nýja
kerfis. Þá má minna á, að árið
1964 var ákveðið í samráði við
verkalýðshreyfinguna og vinnu-
veitendur í tengslum við lausn á
vinnudeilu að 1% launaskattur
skyldi renna til Byggingarsjóðs
ríkisins. Síðar var launaskattur
hækkaður upp í 2% og naut Bygg-
ingarsjóður þess að hluta fram til
1980. Þá beitti Alþýðubandalagið
sér fyrir því að svipta Bygg-
ingarsjóð þessum fasta tekju-
stofni, en ætla honum í staðinn
beint framlag úr ríkissjóði. Það
hefur leitt til verulegrar lækkunar
á framlagi til Byggingarsjóðs, en á
síðasta ári var framlag ríkissjóðs
minna en xk% af launaskatti.
Þetta þarf að sjálfsögðu að leið-
rétta og hafa sjálfstæðismenn lagt
til að framlög ríkissjóðs verði ekki
minni en sem svarar einu launa-
skattsstigi.
Birgir ísl. Gunnarsson
Þá er lagt til að tekið verði upp
frjálst sparnaðarform, þ.e. að í
bönkum verði opnaðir sérstakir
verðtryggðir reikningar, sem
veittu rétt til sama skattfrádrátt-
ar og skyldusparnaðurinn. Slíkir
innleggjendur fengju sjálfkrafa
rétt til 15 ára láns til íbúðarbygg-
inga eftir þriggja til 5 ára sparn-
að, sem nemi allt að 15% af tekj-
um.
Snúa þarf við blaðinu
Þingsályktunartillaga sjálf-
stæðismanna grípur á fleiri mikil-
vægum atriðum varðandi húsnæð-
ismálin. Þar má nefna íbúðir fyrir
aldraða og fatlaða, lán til endur-
nýjunar og viðgerða, endurskoðun
á lánsreglum um félagslegar íbúð-
arbyggingar og að leggja niður
tæknideild Húsnæðisstofnunar
ríkisins auk þess sem starfsemi
stofnunarinnar verði tekin til
gagngerðrar endurskoðunar.
Ungt fólk á nú æ erfiðara með
að eignast þak yfir höfuðið. Al-
þýðubandalagið hefur sýnt að það
vill beina sem flestum inn á braut
hinna félagslegu byggingafram-
kvæmda, þar sem pólitísk úthlut-
unarnefnd ákveður hverjir fái
íbúð. Brýna nauðsyn ber til að
snúa af þeirri braut og styðja að
nýju það unga fólk, sem vill finna
kröftum sínum viðnám við bygg-
ingu framtíðarhúsnæðis fyrir sig
og sína fjölskyldur. Að því marki
miða tillögur sjálfstæðismanna á
þingi.
20 menn á námskeiði
í siglingafræðum
Stykkishólmi, 23. janúar.
FRÁ því í nóv. sl. hefir staðið hér
í Stykkishólmi, námskeið í sigl-
ingafræðum, svokallað námskeið
til að sjómenn geti fengið skip-
stjórnarréttindi á 30 lesta skipum.
Námskeið þetta hafa sótt yfir 20
manns hér úr kauptúninu og hefir
það verið kvöldnámskeið. For-
stöðumaður fyrir þessu námskeiði
hefir verið Lúðvíg Halldórsson
skólastjóri og hefir hann kennt
nemendum fræðin.
Aðstandendur námskeiðsins
hafa með því viljað hvetja unga og
dugandi sjómenn til að afla sér
frekari menntunar í sjómennsku
og skipstjórn, og virðist áhugí
hafa verið mikill og má búast við
meiri árangri í framtíðinni.
Námskeiðinu lauk nú um þessa
helgi með prófum. Prófdómari var
Þorleifur Kr. Valdimarsson frá
Reykjavík. Var hann mjög ánægð-
ur með árangur og stóðust allir
prófið.
— Fréturiuri
Bílmotlur
sem halda þurru og hreinu
:;:íí
> , 9®»- »í p * **
iK
Eigum nú fjölbreytt úrval af bílmottum. Grófmunstraðar og
fínmunstraðar, margar geröir.
Einnig sniðmottur, sem auðveldlega má sníöa í allar tegundir
bíla.
Bílmottur henta einnig sem venjulegar dyramottur.
Kynnið ykkur úrvaliö.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS