Morgunblaðið - 29.01.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
19
Luxemborgarhátíð:
Luxemborg eitt
besta ferðamanna-
land í Evrópu
— segir Valgeir Sigurðsson veitingamaður
ÞESSA dagana stendur yfír hér á landi Luxemborgarhátíð á vegum Flug-
leiða, Ferðaskrifstofunnar Úrval, Hótel Esju og Broadway. Markmið hátíðar-
innar er ekki síst það að kynna íslendingum ferðamöguleika til Luxemborg-
ar, og þá kosti sem prýða Luxemborg sem ferðamannaland. Valgeir Sigurðs-
son, veitingamaður á The Cockpit Inn í Luxemborg.er staddur hér á landi í
tengslum við hátíðina, og notaði Morgunblaðið tækifærið til að spjalla við
hann um ágæti Luxemborgar sem ferðamannalands.
„Það er eftirtektarvert,“
sagði Valgeir „að á síðustu
tveimur árum hefur ferðum
íslendinga til Luxemborgar
stórfjölgað. Árið 1980 ferðuð-
ust 650 íslendingar til Lux-
emborgar, en ’81 voru þeir
komnir upp í 3600 og 4800 ’82.
Þetta er gífurleg fjölgun, og
hún er alls ekki til komin fyrir
tilviljun. Menn eru í vaxandi
mæli farnir að gera sér grein
fyrir því að Luxemborg er eitt
albesta ferðamannaland í
Evrópu. Kemur þar margt til.
í fyrsta lagi er mjög ódýrt að
lifa þarna, í Luxemborg er
nánast allt ódýrara en í lönd-
unum um í kring, ef undan er
skilinn fatnaður. í öðru lagi er
staðurinn í hjarta Evrópu og
því er kjörið fyrir þá sem ætla
sér að ferðast um á megin-
landinu að fljúga til Luxem-
borgar og taka þar bílaleigu-
bíl. í þriðja lagi má nefna það
að landið er fagurt þótt lítið é.
Og svo má ekki gleyma því að
í Luxemburg búa í kringum
400 íslendingar, og það er allt-
af gott að vita af landanum í
nánd þegar menn eru fjarri
heimaslóðum."
— Þú segir að það sé ódýrt
að lifa í Luxemborg. Geturðu
nefnt einhver dæmi því til
staðfestingar?
„Fjölmörg. Mjólkurlítrinn
kostar t.d. 7 krónur þar en
9,70 hér. Pakkinn af vindling-
um kostar 12 krónur, en 28,90
hér, og um 24 krónur í Þýska-
landi t.d. Bensínlítrinn er á 8
krónur í Luxemborg en á ís-
landi kostar lítrinn 15,50.
Filmur og myndavélar eru
jafnvel ódýrari en í Hong
Kong, og plötur eru þrisvar
sinnum ódýrari en hér. Nú, þá
er áfengi mjög ódýrt í Lux-
emborg. Það er hægt að lítra-
flösku af koníaki fyrir 10 doll-
ara, en slík flaska kostar 22
dollara í fríhöfninni. Reyndar
sýna tölur að það er gífurlega
mikið keypt af áfengi í Lux-
emborg, og sumir kynnu að
draga af því þá ályktun að
hvert mannsbarn á staðnum
sé dauðadrukkið allan ársins
hring. En þannig liggur ekki í
málunum, heldur er mjög al-
gengt að fólk úr nálægum
löndum komi reglulega í
verslunarleiðangur til Lux-
emborgar.
Og úr því ég er að minnast á
vín get ég ekki stillt mig um
að hneykslast á því að ekki
skuli vera hægt að flytja inn
þjóðarvín Luxemborgar, sem
er þurrt hvítvín og heitir El-
bling. Þetta er hinn mesti
heilsudrykkur, og læknar í
Luxemborg ráðleggja
mönnum sem búa við brengl-
aðan blóðþrýsting að fá sér
glas af Elbling við og við. Þá
geta sykursjúkir drukkið
þetta vín sér að skaðlausu
vegna þess hve lítið það er
sykrað."
— Nú hefur orðið þessi
snögga fjölgun á ferðum ís-
lendinga til Luxemborgar sem
þú nefndir; heldurðu að þetta
sé tímabundið eða býstu við
áframhaldandi þróun í sömu
átt?
„Ég hef enga trú á öðru en
að íslendingar komi til með að
heimsækja Luxemborg í vax-
andi mæli á komandi árum.
Hins vegar finnst mér að
Flugleiðir mættu gera meira
af því að beina sjónum manna
að þessu landi. Nú er t.d. verið
að auglýsa beint flug á milli
Akureyrar og Kaupmanna-
hafnar. Ég held að það sé mis-
skilningur að líta á
Kaupmannahöfn sem nafla
heimsins. Það er miklu hent-
ugra fyrir fólk sem ætlar að
Valgeir Sigurðsson veitingamaður á
The Cockpit Inn í Luxemborg.
ferðast um Evrópu að fljúga
til Luxemborgar en Kaup-
mannahafnar, og því álít ég
að það kæmi Akureyringum
að ólíkt meiri notum að eiga
kost á beinu flugi til Luxem-
borgar.
Annað sem ég er ekki sáttur
við er það hvað íslensk stjórn-
völd leggja litla rækt við það
að auka viðskipti við Luxem-
borg. Ég tel að við ættum að
stórauka þessi viðskipti. Bæði
hafa Luxemborgarar upp á
margt að bjóða, svo sem vín,
grænmeti, tækniþjónustu o.fl.,
og eins finnst mér að við ætt-
um að sýna þessari litlu þjóð
ræktarsemi, en hún hefur lagt
íslendingum til gífurlega fjár-
muni í gegnum Flugleiðir, og
á því allt gott skilið af okkur
íslendingum. Annars var ég
að kanna það hvað viðskipti
íslendinga og Luxemborgara
voru mikil undanfarin þrjú ár,
og það kom í ljós að á árunum
’79, ’80 og ’81 fluttu íslend-
ingar inn frá Luxemburg fyrir
1.467 millj. ’79, 5.484 millj. ’80
og 2.597 millj. ’81. Útflutning-
ur var hinsvegar fyrir 1.156
millj. árið ’79. 3.019 millj. ’80
og 3.381 millj. ’81. Svo eitt-
hvað eru viðskiptin að glæð-
ast.“
Skákþing Reykjavíkur:
Margir berjast
um efsta sætið
BARÁTTAN um Reykjavík-
urmeistaratitilinn í skák
jafnaðist til muna á miðviku-
dagskvöldið þegar Dan
Hansson vann Elvar Guð-
mundsson í áttundu umferð,
en Elvar hafði unnið allar
skákir sínar fram að því. Þar
með náði Dan Elvari að vinn-
ingum og eru þeir tveir nú
efstir með sjö vinninga þegar
þrjár umferðir eru eftir af
mótinu. Fleiri úrslit vöktu at-
hygli í áttundu umferðinni;
Halldór G. Einarsson frá
Bolungarvík vann Hauk
Angantýsson, alþjóðlegan
meistara, og Guðlaug Þor-
steinsdóttir vann Ingimar
Halldórsson.
Á mótinu tefla 93 skákmenn,
allir í einum flokki, og verða
tefldar ellefu umferðir eftir
Monrad-kerfi. Níundu umferð-
ina átti að tefla í gærkvöld, tí-
undu umferðina sunnudaginn 30.
janúar kl. 14 og síðasta umferðin
fer fram á miðvikudagskvöldið
kl. 19.30.
Lokabaráttan kemur vafa-
laust til með að verða mjög
spennandi, þó allar líkur séu á að
keppnin um efsta sætið standi á
milli þeirra Elvars og Dan.
Haukur Angantýsson hefur ekki
náð sér á strik á mótinu og er nú
líklega úr leik. Þá verður fróð-
legt að fylgjast með þeim Hall-
dóri og Guðlaugu á endasprett-
inum en þau hafa bæði komið
mjög á óvart.
Guðlaug vann snemma peð af
Ingimar Halldórssyni í áttundu
umferðinni og stýrði endataflinu
síðan til sigurs af miklu öryggi
eins og hennar er von og vísa.
Halldór tefldi byrjunina mjög
djarft gegn Hauki og fórnaði
manni fyrir tvö peð og sókn.
Haukur svaraði með því að láta
skiptamun af hendi og skipti síð-
an upp í endatafl, en það hefði
hann átt að láta ógert.
Hvítt: Halldór G. Einarsson
Svart: Haukur Angantýsson
Sikileyjarvörn.
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
Rc6, 6. Rdb5 — d6, 7. Bf4 — e5, 8.
Bg5 — a6, 9. Ra3 — b5.
Þessi leikmáti var mjög vin-
sæll á síðasta áratug, en vin-
sældir hans hafa minnkað til
muna síðan og nú er oftast leikið
9. - Be6.
10. Bxf6 — gxf6, 11. Rd5 — f5, 12.
Bxb5!?
Eitt allra hvassasta svarið við
Lasker-afbrigðinu. Hér er einnig
stundum leikið 12. Rxb5!?
12. — axb5, 13. Rxb5 — Ha7?!
Svartur blíðkar goðin með
skiptamunsfórn, en í seinni tíð
hefur 13. — Ha4, eða 13. — Dg5!?
þótt vænlegra til árangurs.
14. Rxa7 — Rxa7, 15. c3
Hótar 16. Da4+, en 15. exf5 —
Bxf5,16. Df3 kemur einnig vel til
greina.
15. — Bg7, 16. exf5 — Bxf5, 17.
Da4+ - Dd7, 18. Dh4 — Db7
18. — Rc6 kom til álita, því
hvítur má ekki leika 19. Rf6+ —
Bxf6, 20. Dxf6 vegna Hg8, 21.
0-0 - Bh3.
19. Hdl — Be6, 20. De4 — Bxd5?
Nú lendir svartur í endatafli
þar sem hann hefur ekkert mót-
spil. Nauðsynlegt var 20. — Rc6
og staðan er enn tvísýn, t.d. 21.
Rb4 - Rd8 eða 21. 0-0 - f5.
21. Dxd5 — I)xd5, 22. Hxd5 —
Kd7, 23. 0—0!
Það er sjaldan gott að hróka í
endatafli, en hér hefur svartur
náð gagnfærum eftir 23. Ke2 —
Hb8, 24. b3 - Rb5.
23. — Hb8, 24. Hfdl — Rc8, 25.
b3 — Kc6, 26. c4 — f5, 27. g3 —
Hb7, 28. Kfl - Hf7, 29. a4 -
Hb7.
Svartur teflir án áætlunar.
30. Hb5 — Hd7, 31. a5 — Re7, 32.
b4 — e4, 33. Hb6+ — Kc7, 34. b5
— Bc3
35. c5!
Tryggir hvítum sigur, því eftir
35. - dxc5?, 36. Hxd7+ - Kxd7,
37. Hb7+ — Kd6, 38. Hxe7 -
Kxe7, 39. a6 rennur peðið upp.
35. — d5, 36. c6 — Hd8, 37. Hb7+
— Kd6, 38. a6 — Ha8, 39. Hd7+
— Ke6, 40. a7 — Ba5, 41. Hal —
Bb6, 42. Hb7 - Bd4, 43. Ha6 -
Rc8, 44. Hb8 og svartur gafst
upp.
Notaðir
r sérf lokki
Aðrir bílar:
Skoda 120 L árg 77
Skoda 120 L árg. 78
Skoda 120 GLS árg. '80
Skoda 120 L árg. '80
Skoda 105 S árg. '81
Skoda 120 LS árg. '82
Chevy Nova V8 árg. 74
Alfetta 2,0 árg. 77
Le Baron árg. '78
Le Baron T/C árg. '79
120 GLS árg. ’81
Mjög snyrtilegur Skoda-bíll af
dýrustu týpu. Eklnn aöeins
21.000 km.
Alfa Romeo Sprint 1,5
árg. ’81
Svartur „spes“ gæöingur í
toppklassa, ekinn aöeins 23.000
km. Vetrar- og sumardekk, full-
komin Pioneer hljómtæki.
AHa Romeo Alfsud 1,3
árg. 78
Gullfallegt eintak á góöum vetr-
ardekkjum. Sumardekk fylgja.
SK®DA
Skoda 120 L árg. 79
Þrælhuggulegur bíll, enda veriö
fariö um hann mjúkum kven-
mannshöndum.
JÖFUR HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600