Morgunblaðið - 29.01.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
27
Tröllið verður ástfangið af pfanó-
leikara úr fslensku hljómsveitinni
í látbragðsleiknum, sem
Leikbrúðuland sýnir á tónleikun-
Hljómsveitin verður staðsett f
sviðsgryfju og þjóna þaðan með
tónlistinni hinum listunum.
Mvnd Mbl./ Emilía.
Ólíkar listir
— við undirleik Islensku hljómsveitarinnar
ÍSLENSKA hljómsveitin heldur
fjórðu tónleika sína f Gamla Bíói
nú um helgina og eru þeir óvenju-
lcgir að því leyti, að undir yfir-
skriftinni „Tónlist, þjónn list-
anna“, verður farið inn á þau svið
listar, þar sem tónlistin þjónar öðr-
um listum svo sem söng, látbragði,
framsögn og dansi.
Sýnd verður gömul kvikmynd
sem gerð var við tónverk eftir
Arthur Honegger og mun ís-
lenska hljómsveitin leika undir í
hljómsveitargryfjunni. Þá mun
íslenski dansflokkurinn sýna
frumsaminn ballett við ball-
ettsvítu eftir Skúla Halldórsson,
Sieglind Kahmann mun syngja
aríur úr óperunni Madame Butt-
erfly og Leikbrúðuland mun
sýna látbragösbrúðuleik eftir
Helgu Steffensen. Stjórnandi
hljómsveitarinnar er Guðmund-
ur Emilsson.
Uppselt er þegar á tónleikana
á laugardaginn en á mánudaginn
31. janúar verður aukasýning kl.
20.30.
Kristniboðsvika í Keflavík:
Hefst á sunnudaginn
HIN ÁRLEGA kristniboðsvika f
Keflavík hefst kl. 20.30 sunnudaginn
30. janúar með samkomu í Keflavík-
urkirkju. Kæðumenn það kvöld verða
sr. Ólafur Oddur Jónsson, Halidóra
Ottósdóttir og Helgi Hróbjartsson.
Einnig mun Helgi syngja einsöng.
Að þessu sinni verða tvær sam-
komur kristniboðsvikunnar haldnar
í Njarðvíkurkirkju, þ.e. mánudaginn
31. janúar og föstudaginn 4. febrúar.
Margir munu taka til máls, þar á
Nýja Bíó frum-
sýnir „The Wall“
NÝJA Bíó tekur í dag til sýningar
myndina „The Wall“, sem gerð er eft-
ir samnefndri plötu rokkhljómsveitar-
innar Pink Floyd. IVIynd þessi hefur
hvarvetna verið sýnd við geysilega að-
sókn og var í fyrra ein af tíu best sóttu
myndum ársins.
Söguþráðurinn gengur í stuttu
máli út á að lýsa ævi rokkarans
Pink, sem fæddist á meðan á síðari
heimsstyrjöldinni stóð. Myndin
hefst á þvf að Pink situr á hótel-
herbergi sínu í Los Angeles, vægast
sagt á barmi sturlunar. Myndin
byggist síðan upp á æviminningum
hans.
Leikstjóri myndarinnar er Alan
Parker, en handrit gerði Roger
Walters, höfuðpaur Pink Floyd. Á
meðal leikara myndarinnar má
nefna Bob Geldorf úr Boomtown
Rats og hefur hann hlotið mikið lof
fyrir frammistöðu sína.
meðal fimm manns sem dvalist hafa
lengur eða skemur á kristniboðsökr-
um íslendinga í Afríku. Um þessar
mundir eru ein íslensk hjón að
starfi í Konsó og Eþíópíu, og önnur
hjón að starfi meðal Pókotmanna í
Vestur-Kenýa, á stað sem heitir
Cheparería. Ung hjón eru á förum
héðan til Kenýa, til málanáms og
kristniboðsstarfa.
Kristniboðið mun verða kynnt að
venju á samkomum kristniboðsvik-
unnar og fluttar hugvekjur, einnig
verður einsöngur, kórsöngur o.fl.
Tekið verður við gjöfum til kristni-
boðsstarfsins. — Ræðumenn á
mánudagskvöld í Njarðvík verða
þeir sr. Þorvaldur Karl Helgason og
Benedikt Arnkelsson.
Eins og fyrr segir hefjast sam-
komurnar kl. 20.30, og verða á
hverju kvöldi fram á sunnudaginn 6.
febrúar. Allir eru velkomnir.
FIR með
skemmtifund
FÉLAG íslenzkra rithöfunda heldur
skemmtifund að Hótel Esju, Skála-
felli 9. hæð, sunnudaginn 30. janúar
1983 kl. tvö.
Eftirfarandi höfundar lesa úr
verkum sínum:
Baldur Óskarsson, Guðrún Jac-
obsen, Gunnar Dal, Indriði G.
Þorsteinsson, Ingimar Erlendur
Sigurðsson, Jónas Guðmundsson
og Óskar Aðalsteinsson.
Austurbæjarbíó sýnir Windwalker
AUSTURBÆJARBÍÓ hefur byrjað
sýningar á bandarísku kvikmynd-
inni Windwalker með Trevor How-
ard í aðalhlutverki. Leikstjóri er
Keith Merrill.
Mynd þessi gerist á slóðum indí-
ána í Ameríku um 1800, eða nánar
tiltekið í Klettafjöllum. Myndin
fjallar um erjur ættflokka og bar-
áttu tveggja indíánahöfðingja um
ástir sömu konunnar. Margir ör-
lagaatburðir gerast áður en tjald-
ið fellur.
Kvenréttindafélag
íslands:
Afmælisvaka á
Kjarvalsstöðum
Sýnir í anddyri Háskólabíós
AFMÆLISVAKA Kvenréttindafé-
lags íslands 1983, verður haldin að
Kjarvalsstöðum sunnudaginn 20.
janúar og hefst kl. 13.30.
Dagskráin verður sem hér segir:
Lesið verður úr nýjum bókum
eftir konur. Kynntar verða eftir-
taldir höfundar: Nína Björk Árna-
dóttir, les úr nýútkominni ljóða-
bók sinni „Svartur hestur í myrkr-
inu“; Geirlaug Þorvaldsdóttir leik-
ari, les úr bók Álfrúnar Gunn-
arsdóttur „Af mannavöldum";
Hrafnhildur Schram mun segja
frá rannsóknum sínum á listasögu
kvenna og les úr bók sinni um
Nínu Tryggvadóttur; Guðrún Svava
Svavarsdóttir les úr nýútkominni
ljóðabók sinni „Þegar þú ert ekki“.
Þá munu tvær stúlkur, þær Ásdís
Gísladóttir og Elsa Waage, sem
stunda söngnám hjá Elísabetu
Erlingsdottur söngvara, við Tón-
listarskólann í Reykjavík, syngja
nokkur lög við píanóleik Selmu
Guðmundsdóttur.
Sýndur verður fatnaður hann-
aður af tveimur íslenskum konum,
þeim Huldu Jósepsdóttur og Evu
Vilhelmsdóttur, fatahönnuðum.
Þá mun ung stúlka, sem í vor
lýkur einleikaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík, Sigur-
laug Eðvaldsdóttir, leika á fiðlu.
í anddyri Kjarvalssalar verður
sýndur vefnaður eftir Sigríði Jó-
hannsdóttur vefara, og vióla,
smíðuð af Erlu Björk Jónsdóttur
hljóðfærasmiði. Þá verða sýndar
bækur eftir konur, sem félaginu
hafa borist frá bókaútgefendum.
NÚ STENDUR yfir sýning á 27 olíu-
málverkum eftir Eggert Magnússon
frá Bjargi í anddyri Háskólabíós.
Eggert hefur haldið 2 mál-
verkasýningar áður, í Lindarbæ
1965 og í Djúpinu 1982. Auk þess
hefur hann tekið þátt í 2 samsýn-
ingum FÍM og samsýningu aldr-
aðra að Kjarvalsstöðum í ágúst
1982.
Sýningin er opin daglega frá kl.
16.30—22.00 og stendur til loka
febrúar.
Um sjálfan sig segir Eggert:
„Ég er fæddur í Reykjavík að
Njálsgötu 17 árið 1915 og var móð-
ir mín Hrefna Eggertsdóttir
Norðdhal frá Hólmi og faðir minn
Magnús Jónsson frá Breiðholti og
Engjabæ í Reykjavík. Kona Egg-
erts Norðdhal á Hólmi var Val-
gerður Guðmundsdóttir, móður-
amma mín, dóttir Guðmundar
Einarssonar bónda og hreppstjóra
í Miðdal. Þaðan er margt ágætt
listafólk komið. Vigdís Finnboga-
dóttir forseti, frænka mín, hefur
nafn af langömmu minni, Vigdísi
Eiríksdóttúr í Miðdal, sem varð
eitthundrað og eins árs.
Ég er til heimilis að Bjargi 1
v/Nesveg og hef málað í frístund-
um mínum, var fyrrum sjómaður,
eins og Kjarval, og hef verið vél-
stjóri síðan 1938 á línuveiðurum,
bátum og togurum."
Leiðrétting
RANGT var hermt í grein um
þorrablót, sem birtist í viðauka
Morgunblaðsins síðastliðinn
föstudag, að þorrablót hefði lagst
niður um og eftir aldamótin. Það
rétta er að þau hefjast seint á 19.
öld og aukast jafnt og þétt alla 20.
öldina en taka nýjan fjörkipp árið
1958. Svo má bæta því við, að í
fyrsta skipti sem getið er um
þorrablót er í fundargerðarbók
Kvöldfélagsins í Reykjavík árið
1868.
Opið laugardag kl. 10—7
EURQCAnO
Og nú geturðu verslað út á kreditkortið þitt
Verksmiðjuútsalan
Blossahúsinu — Ármúla 15.
Sími 86101.