Morgunblaðið - 29.01.1983, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1983
+
Utför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
GUÐNÝJAR FRÍMANNSDÓTTUR,
sem lést 22. janúar, veröur gerö frá Dómkirkjunni, mánudaginn 31.
janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar, er vinsamlega
bent á Sjálfsbjörgu, fólag fatlaöra.
Guöjón Kristinsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær móöir okkar,
ÞORBJÖRG ELÍSABET JÓHANNESDÓTTIR,
Brekkustíg 14, Njarövík,
lést á heimili dóttur sinnar, fimmtudaginn 27. janúar. Jaröarförin
ákveöin siöar.
Arnoddur Tyrfingsson,
Jóhanna Tyrfingsdóttir,
Árný Tyrfingsdóttir,
Garöar Tyrfingsson,
Þorsteinn Tyrfingsson.
t
Alúöarþakkir til allra þeirra er auösýndu okkur samúö og vinarhug
við andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
TORFA MAGNÚSSONAR,
Hvammi, Hvítársíöu.
Blessun Guös fylgi ykkur öllum.
Jóhanna Egilsdóttir,
Svanlaug Torfadóttir, Ásgeir Þ. Óskarsson,
Guölaugur Torfason, Steinunn A. Guömundsdóttir,
Magnús Á. Torfason, Steinunn Thorsteinson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall móö-
ur okkar, tengdamóöur og ömmu,
UNU EINARSDÓTTUR.
Sórstakar þakkir eru færöar starfsfólki hjúkrunardeildar Heilsu-
verndarstöðvarinnar fyrir frábæra umönnun.
Ásta Magnúsdóttir, Einar Einarsson,
Einar Magnússon, Sigrún Guölaugsdóttir,
Inga Marie Magnúsdóttir, Eberg Elefsen,
Ingibjörg Pélsdóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför elglnmanns
míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
ÞORLEIFS JÚLÍUSAR EGGERTSSONAR,
fré Haukadal í Dýrafiröi,
Selbraut 30, Seltjarnarneai.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Reykjalundar.
Jóhanna Guöjónsdóttir,
Þórdís Þorleifsdóttir, Jón Snorri Þorleifsson
Guðmunda Þorleifsdóttir, Jónas Jóhannsson,
og barnabörn.
+
Hugheilar þakkir fyrir innilega samúö viö andlát og jaröarför eig-
inkonu minnar og systur okkar,
MARÍU GUDMUNDSDÓTTUR,
fré Villingadal,
Ingjaldssandi.
Sérstakar þakkir eru færöar til alls starfsfólks á deild 14 G, Land-
spítalanum.
Thorberg Einarsson,
Guörún Guömundsdóttir,
Ingólfur Guömundsson.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö vegna andláts og jaröarfarar,
AGNARS LÍNDAL HANNESSONAR.
Sórstakar þakkir til lækna og starfsfólks Landakotsspítala sem
önnuöust hann í veikindum hans.
Mikala J. Hannesson,
Sigurrós Jóhannsdóttir,
Karl Óskar Agnarsson,
Gísli Líndal Agnarsson, Guörún Aöalsteinsdóttir,
Sigurður Agnarsson,
Sigurrós Agnarsdóttir,
Daníel Agnarsson,
barnabörn og systkini.
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför,
PÁLÍNU EIRÍKSDÓTTUR,
fré Varmahlíö,
Vestmannaeyjum.
Sórstaklega sendum viö þakkir til lækna og starfsfólks á Sjúkra-
húsi Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Rut Ágústsdóttir, Óskar Ólafsson,
Marta Ágústsdóttir, Erlendur Jónsson,
Hafsteinn Ágústsson, l'ris Siguröardóttir,
Lérús Ágústsson, Ingibjörg Jónsdóttir,
Arnar Ágústsson, Elín Aöalsteinsdóttir,
Markús Jónsson,
Steindór Hjartarson.
Arni Helgason í
Tungu - Minning
Fæddur 12. október 1895
Dáinn 21. janúar 1982
Árni Helgason f.v. bóndi í
Tungu í Svínadal Hvalfjarðar-
strandarhreppi, lést í Borgarspít-
alanum í Reykjavík föstudaginn
21. janúar sl. Árni var fæddur tví-
buri móti Guðjóni sem dó 8 daga
gamall.
Faðir hans var Helgi Helgason
bóndi á Hlíðarfæti og síðar í
Tungu, Sveinbjarnarson, Svein-
bjarnarsonar prests á Staðar-
hrauni. Kona Helga Sveinbjörns-
sonar var Steinunn Gísladóttir,
áður en hún giftist Helga var hún
bústýra og barnsmóðir Magnúsar
Gíslasonar sýslumanns í Vogi i
Hraunhreppi.
Móðir Árna og kona Helga í
Tungu var Guðrún Árnadóttir,
Jónssonar stúdents á Leirá og
konu hans Höllu Kristínar Jóns-
dóttur. En kona Árna Jónssonar
var Þorbjörg, foreldrar: Gunnar
stúdent Þorsteinssonar á Hlíðar-
fæti og k.h. Ragnhildur Ólafsdótt-
ir. Árni Jónsson bjó að Höfn í
Melasveit og síðar á Hlíðarfæti,
eignarjörð konunnar, hann var
hreppstjóri í Strandarhrepp. Börn
þeirra Helga og Guðrúnar í Tungu
voru 8 fædd.
Guðmundína ógift í Reykjavík,
Gunnar ógiftur og bl. Þorbjörg,
maður hennar er Sigurður Þor-
steinsson bóndi á Brúarreykjum,
Ragnhildur, dó 1903, Guðjón, dó
barn, Árni, hér minnst, Jóhannes
bílstjóri, kona hans var Ólöf
Magnúsdóttir, og Ingibjörg ljós-
móðir, búsett í Reykjavík, sem nú
lifir ein þeirra systkina, góð kona
og hjartahlý. Árni ólst upp í sín-
um föðurgarði, vandist sveitalíf-
inu frá frumbernsku og undirbjó
sig í bóndastarfið, sem varð hans
æfistarf. Hann starfaði mikið að
félagsmálum Ungmennafélaganna
á yngri árum og var allstaðar vel
hlutgengur maður, sem gott var
að leita til.
Hann tekur við búi foreldra
sinna að Tungu árið 1932 og býr
þar samfellt í tæplega hálfa öld,
vantar hluta úr ári. Hann selur
jörð sína seint á árinu 1981. Þann
11. júní 1933 gengur hann í hjóna-
band með Jónínu Ólafsdóttur,
Ólafssonar bónda á Eyri í sömu
sveit, móðir hennar og kona Ólafs
var Þuríður Gísladóttir, sem þar
lifði til hárrar elli.
Það má segja að ættstofn Árna
hafi lengi búið að Hlíðarfæti og
ættfeður konu hans á næsta bæ,
Eyri, langa tíð. Þetta fólk hélt svo
sannarlega tryggð við dalinn sinn,
honum fórnaði það ævistarfinu og
þaðan eru minningarnar kærar.
Hvergi festir tryggðin dýpri rætur
en í fallegri íslenskri sveit. Ég
minnist að hafa heyrt á mínum
yngri árum að Árni í Tungu bæri
vel heitið sjálfseignabóndi, því
hann væri fyrstur bænda í sinni
sveit búinn að borga jörð sína og
væri skuldlaus maður. Það þótti
nokkrum tíðindum sæta í heims-
kreppunni frægu. Já, hjónin í
Tungu höfðu lag á því að búa við
góðan efnahag alla tíð, þó öðrum
gengi það upp og ofan og hætt er
við að þannig verði það eitthvað
lengur. Ég held það hafi ekkert
farið á milli mála að hjónin í
Tungu voru hyggið fólk og búhöld-
ar góðir, þar var vel fyrir öllu séð.
Hyggindi, ráðdeild, samviskusemi
og góð umhirða réð þar ríkjum.
Óþarfa bruðl, sóun og óreiða
með verðmæti þekktist ekki á
þeim bæ. Til bústofns var vel
vandað í Tungu, þar voru góðar
arðsamar kýr og fallegt afurða
gott fé. Bóndinn var glöggur og
búmaður góður, fóðraði vel og um-
hirðan öll eins og bezt gerist, arð-
urinn því góður af búinu. Þar var
það ekki fjöldinn sem réði heldur
góður stofn og vel með farinn, þar
voru sannarlega tvö höfuð á hverri
skepnu. Árni var hestamaður góð-
ur, átti lengst af reiðhest til að
tylla sér á þegar tækifæri gafst.
Áður fyrr á árunum var það
tómstundagaman fólksins í sveit-
inni að taka hest sinn og hnakk og
fara í útreiðartúr með kunningj-
unum, þegar frí stund gafst, það
veitti sanna gleði og ánægju. Þetta
er allt orðið öðruvísi núna á þess-
ari bílaöld, þó margir stundi
hestamennsku, þá helst kaup-
staðabúar. Það kom fyrir að Árni í
Tungu veitti okkur á Eystra-
Miðfelli þá ánægju að koma ríð-
andi í heimsókn, þó ekki væri
nema einu sinni á sumri. Það
leyndi sér ekki að hann hafði gam-
an af hestum og nærveru við þá.
Árni fann sig áreiðanlega í bónda-
starfinu, hann umgengst búfé sitt
af natni og nærgætni og allt lán-
aðist vel og gaf honum arð og
ánægju.
En Árni var ekki einn í sínu
búsýsli, hann átti mikla búkonu,
hrausta og duglega. Hún setti ekk-
ert fyrir sig hún Jóna að skreppa
útí fjós og mjólka ein 10—12 kýr,
sumar í hárri nyt, þó hún væri
komin á efri ár.
Eftir að dæturnar giftust og
gerðust kaupstaðakonur voru þau
gömlu hjónin mest ein í búskapn-
um, nema sumarhjálpin sem þau
fengu. Hins ber að geta að dætur
og tengdasynir réttu oft hjálpar-
hönd og voru alltaf boðin og búin
til að hjálpa og var það ómetan-
legt. Þetta var samrýmd fjöl-
skylda og samhent. Árni gaf nýju
tækninni í búskapnum glöggt
auga og keypti sér vélar til að
létta störfin, þar réði festa og
ráðdeild, sígandi lukka var þar í
góðu gildi. Þó var tún ræktað og
bætt við töðuvöllinn, en engar
stórframkvæmdir í byggingum.
En öllu vel við haldið og ekkert
látið drabbast niður. Seinustu ár-
in bjuggu þau hjón eingöngu með
sauðfé, hæfilegan ærstofn, sér til
arðs og ánægju. Þau voru orðin
fullorðin og vinnulúin og heilsan
fari að gefa sig, sérstaklega hjá
honum. Jónína var heilsuhraust
þar til hún veiktist skyndilega og
bæði voru flutt á Sjúkrahúss
Akraness. Þar með lauk búskapn-
um og allt var selt.
Þau voru búin að standa langa
vakt og dygga. Þessi heiðurshjón
+
Innilegar þakklr fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför konu minnar og móöur okkar,
JÓNU ÁRNÝARJÓHANNSDÓTTUR,
Fossheiði 17, Selfossi.
Gunnar Hallgrímsson
og börn.
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
HELGA G. BENEDIKTSSONAR,
Húnabraut 6.
Guö blessi ykkur öll. „ . .
Kristin Jónsdóttir,
Guðrún H. Helgadóttir,
Þréinn Traustason
og barnabörn.
koma mér oft í hug þegar þekk-
ingarlausir lýðsskrumarar eru að
senda sveitafólkinu tóninn, t.d.
telja það ónytjunga og landbúnað-
inn dragbýt á þjóðarbúinu. Þessu
er þveröfugt farið, þetta eru
traustustu máttarstólpar þjóðfé-
lagsins. Þetta fólk gerir engar
kröfur fyrir sjálft sig, lifir spar-
sömu lífi, því fellur aldrei verk úr
hendi, er allar stundir að skapa
verðmæti, sem skapa þjóðar heill
og eflir þjóðarauð. Þarna er aldrei
svikist um, allt gert af manndóm
og góðum hug.
Þetta fólk skuldar engum neitt,
gerir engar kröfur, en tekur
þakklátt við því lítilræði sem öldr-
uðum er úthlutað í ellinni. Svona
fólk er þakklátt fyrir allt sem því
er vel gert, það á svo sannarlega
skilið að fá að lifa óáreitt í friði.
Þjóðin stendur í þakkarskuld við
þetta blessaða gamla fólk, það vita
allir siðaðir menn á íslandi.
Hún er hlý vináttan sem
streymir frá þessu fólki, það hefir
ég sjálfur reynt. Það var mann-
kærleikur í orðum þeirra hjóna,
sem þau bera okkur sem litum til
þeirra á sjúkrahúsið. Ekki var
okkar greiði stór, þó við litum inn
til gamalla og góðra granna og
sveitunga úr sveitinni okkar kæru.
Vissulega voru okkur samfundir
við þau kærir. En þakklætið fyrir
innlitið frá þeim var lofsvert og
ógleymanlegt.
Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni, var eitt sinn sagt. Það
sanna okkur líka dætur þeirra.
Guðrún sýndi okkur þann sóma og
nærgætni að hringja strax og láta
vita af láti gamla mannsins, eigi
hún þökk fyrir.
Þau hjón áttu tvær dætur, Guð-
rún gift Tómasi Sigurþórssyni,
þau eiga tvö börn og búa á Akra-
nesi og Gréta gift Gilbert Sigurðs-
syni, þau eru barnlaus og búa í
Reykjavík. Ég heimsótti Árna hér
á sjúkrahúsið í sumar leið, en þar
var hann um tíma. Hann kom með
mér fram á setustofu og spjallaði
við mig furðu hress og hreint ekki
farinn að tapa andlega. En hann
var útslitinn og illa kominn af
óstyrkleika, sérstaklega í hand-
leggjunum.
En hann var æðrulaus, rólegur
og prúður eins og venjulega, gat
jafnvel gert að gamni sínu, eins og
honum var svo lagið. Hann var
alltaf viðmótshlýr og glaður,
stilltur maður, prúður, orðvar og
vandaður. Hann sóttist ekki eftir
vegtyllum, en stóð vel fyrir sínu
hvar sem var, vel virtur af öllum
sem til hans þekktu.
Árni mun mér efstur í huga
þegar ég heyri góðs bónda getið
frá liðinni tíð. Hafi hann hjartans
þökk fyrir samfylgdina og góð
kynni. Þetta var kærkomin lausn
úr því sem komið var. Það var sælt
að mega sofna svona þjáninga-
laust svefninum langa, sáttur og
sæll við allt og alla.
Við Jónínu vinkonu mína vil ég
segja það, að ég ber hlýjan hug til
hennar og þá móðursystur hennar,
sem var sem mín amma, því hún
ól móður mína upp sem sitt barn.
Þakkir mínar á hún kærar í
brjósti geymdar.
Það er vegsauki og vinningur að
eiga samleið með slíku fólki,
traustu og trygglyndu. Megi Guðs
friður umvefja ykkur alla stundir.
Aðstandendum öllum sendum við
hjónin hugheilar samúðarkveðjur.
Valgarður L. Jónsson
frá Eystra-Miðfelli.