Morgunblaðið - 03.03.1983, Blaðsíða 1
56SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
50. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Floti íraka ger-
ir stórárás á íran
Fimm skip eyðilögð ásamt
miklum oiíumannvirkjum
Nicosia, 2. marz. AP.
FLOTADEILDIR frá írak eyðilögðu
í nótt og í morgun 5 írönsk skip og
Nýtt olíu-
verð í dag?
Olíumálaráðherra 7
landa á fundi í London
London, 2. marz. AP.
NÚ STYTTIST óðum í það, að sam-
komulag níist milli olíuframleiðslur-
íkjanna um heimsmarkaðsverð á olíu.
Er gert ráð fyrir fundi þeirra á morgun,
fimmtudag, þar sem gengið verður frá
síðustu atriðum varðandi verð og fram-
leiðslumagn einstakra ríkja. Skýrði
Humberto Calderon Berti, orkumála-
ráðherra Vcnezúela, frá þessu í kvöld.
„Við höfum nær alveg náð sam-
komulagi um verð,“ sagði Calderon
Berti við fréttaritara í London í
kvöld. „Nokkrum atriðum er þó ólok-
ið varðandi framleiðslumagnið."
Virtist sem hann hefði í reynd tekið
að sér hlutverk sáttasemjara milli
aðildarríkja OPEC-samtakanna og
annarra olíuframleiðsluríkja, sem
ekki eiga aðild að OPEC, en einnig
gagnvart olíuneyzlurikjunum.
Kvaðst hann hafa komið í veg fyrir
verðstríð olíuframleiðsluríkjanna á
síðustu stundu.
Helztu ráðamenn olíuframleiðslu-
ríkjanna í olíumálum þyrpast nú til
London. Þannig var það staðfest í
kvöld, að Mana Saeed Otaiba, olíu-
málaráðherra Sameinuðu arabisku
furstadæmanna, væri kominn til
London. Yahaha Dikko, helzti ráð-
gjafi Nígeríustjórnar í olíumálum,
kom til London í kvöld og sama máli
gegndi um Belkacem Nabi, olíumála-
ráðherra Alsír.
Gert er ráð fyrir fundi þessara
manna á morgun, fimmtudag, þar
sem Ahmed Yamani, olíumálaráð-
herra Saudi-Arabíu, verður einnig
viðstaddur. Munu olíumálaráðherrar
alls 7 olíuframleiðsluríkja taka þátt
í þessum viðræðum, sem hugsanlegt
er að ljúki með því, að lýst verði yfir
endanlegu samkomulagi um verð á
olíu frá þessum ríkjum.
olíusvæði í norðurhluta Persaflóa,
sem tilheyrir íran. Skýrði fréttastofa
íraks frá þessu í dag. A meðal þeirra
skipa, sem eyðilögðust, voru olíu-
flutningaskip auk annarra skipa.
Árásin á skipin fór fram kl. 2 að
nóttu en árásin á olíusvæðið fór
fram í dögun í morgun.
Fréttastofan í írak skýrði
ennfremur svo frá, að skipin fimm
og öll mannvirki á olíusvæðinu
hefðu verið algerlega eyðilögð, en
öll skip íraks hefðu komizt heilu
og höldnu til baka. Þetta var önn-
ur flotaárás íraks á tveimur dög-
um, en á þriðjudag gerðu flugvélar
og herskip frá írak árás í samein-
ingu á „mikilvæga flotastöð" ír-
ana, eins og komizt var að orði í
frásögn fréttastofunnar í írak.
Hinn 11. febrúar sl. gerðu flug-
vélar og herskip frá írak einnig
umfangsmikla árás á eina stærstu
útskipunarhöfn írana á olíu á
Kharg-eyju, sem er um 250 km
suðaustur af Abadan. Héldu írak-
ar því fram eftir þá árás, að öll
olíumannvirki á Kharg hefðu ver-
ið eyðilögð ásamt olíuflutninga-
skipi, sem þar var að ferma olíu.
íranir hafa neitað því, að nokk-
urt tjón hafi órðið í árásinni 11.
febrúar. Af hálfu þeirra hefur
hins vegar ekkert verið sagt enn
um tjón af völdum hernaðarað-
gerða íraka nú.
Hífður af strandstað
Ljósmynd Mbl. Ragnar Axelsson.
Einn skipbrotsmanna af Hafrúnu hífður upp í frönsku þyrluna sem hékk yfir stórgrýttri urðinni í 10
vindstigum, en niðri i fjörunni má sjá fjóra skipbrotsmenn bíða. Það er sæbarinn svipurinn á sjómannin-
um sem heldur á sjópoka sínum í hífingunni. Sjá bls. 2, miðsíðu og baksíðu.
Bæði frjálsir demókratar
og græningjar komast að
— segir nýjasta skoðanakönnunin í V-Þýzkalandi
Bonn, 2. marz. AP.
HANS-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þýzkalands og
leiðtogi frjálsra demókrata, stað-
hæfði í dag, að flokkur sinn nyti nú
Danmörk:
Mesta rán sögunnar
Kaupmannahofn, 2. marz. AP.
TVEIR menn stöðvuðu bankabifreið í dag í Lyngby, útborg Kaup-
mannahafnar, börðu niður bílstjórann og þustu síðan á brott með um
8 millj. d.kr. (yfir 17 millj. ísl. kr.). Allar eftirlitsbifreiðir lögreglunn-
ar í Kaupmannahöfn og umhverfi tóku þátt í leitinni að ræningjun-
um, sem sáust síðast aka á miklum hraða í norður í átt til Elsinore í
bifreið, sem talin var bera sænskt númer.
Þetta er sennilega mesta rán
sögunnar í Danmörku. Það átti sér
stað áður en sólarhringur var lið-
inn fra því að þrír menn vopnaðir
byssum rændu póststofu í úthverf-
inu Söborg síðdegis á þriðjudag og
hurfu á brott með ránsfeng, sem
nam 1,7 millj. d.kr. (nær 2 millj.
ísl. kr.) í reiðufé.
Samkvæmt frásögn lögreglunn-
ar gerðist ránið í Lyngby með þeim
hætti, að tveir menn réðust á bíl-
stjóra bifreiðarinnar, sem flytja
skyldi bankafé, er hann var að
stíga upp í bifreiðina. Ræningjarn-
ir óku síðan á brott í bankabflnum,
en skyldu síðan við hann í aðeins
nokkurra kílómetra fjarlægð, þar
sem þeir skiptu um bíl.
Ránsféð var að mestu leyti
reiðufé samkvæmt frásögn lögregl-
unnar. Umfangsmiklu leitarneti
hefur verið komið upp af hálfu
lögreglunnar og er sérstakt eftirlit
haft með öllum ferjum, sem fara
frá Elsinore til Svíþjóðar.
Að áliti lögreglunnar er hér um
afar hættulega ræningja að ræða,
sem miðað hefðu spenntum byss-
um að bílstjóra bankabílsins. Þá
var talið líklegt, að einn maður til
viðbótar hefði tekið þátt í ráninu
og hefði hann verið bílstjóri bif-
reiðarinnar, sem ræningjarnir not-
uðu.
stuðnings nægilega margra kjósenda
til þess að verða áfram þingflokkur
eftir kosningar þær, sem fram eiga
að fara á sunnudaginn kemur. Hélt
Genscher því fram, að fylgi frjálsra
demókrata hefði aukizt verulega nú
síðustu viku kosningabaráttunnar.
Þessi bjartsýni Gensrhers er studd
niðurstöðum síðustu skoðana-
könnunarinnar, en samkvæmt þeim
fá frjálsir demókratar 5—6% at-
kvæða í kosningunum.
Skoðanakönnun þessi var gerð
af könnunarstofnun í Hamborg og
náði könnunin til 2.000 manns.
Niðurstöður hennar voru á þann
veg, að kristilegir demókratar
fengju ekki nema 43% atkvæða og
jafnaðarmenn 42%. Þá eiga græn-
ingjarnir svonefndu, sem eru
flokkur umhverfisverndarmanna,
einnig að komast á þing og fá um
6% atkvæða.
Á morgun er gert ráð fyrir, að
atvinnumálastofnun Vestur-
Þýzkalands birti síðustu tölur sín-
ar um atvinnuástandið í landinu
og er búizt við, að þær eigi eftir að
sýna enn meira atvinnuleysi en
áður, sem kann að verða Kohl
kanslara og kristilegum demó-
krötum til tjóns í kosningabarátt-
unni. Fjöldi atvinnulausra í janú-
ar var um 10,2% af öllu vinnufæru
fólki í landinu og kann sú tala að
verða enn neikvæðari fyrir febrú-
ar eða 10,5%.
Genscher hélt því fram í dag, að
frjálsir demókratar nytu nú vax-
andi stuðnings á meðal fólks úr
röðum beggja stóru flokkanna.
Margir jafnaðarmenn óttuðust nú,
að græningjarnir ættu eftir að
hafa of mikil áhrif, ef Hans-
Jochen Vogel yrði kanslari og
margir stuðningsmenn kristilegra
demókrata teldu, að meirihluta-
stjórn kristilegra demókrata yrði
of íhaldssöm. Þeir myndu því
kjósa landslista frjálsra demó-
krata með öðru atkvæði sínu, enda
þótt þeir greiddu frambjóðanda
kristilegra demókrata atkvæði
með hinu atkvæðinu.