Morgunblaðið - 03.03.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
SENDUMGEGN PÓSTKRÖFU
VAiHÚSGÖGN
ÁRMÚLI 4 SÍMI82275
með upplyftingu
í skammdeginu
Hresstu upp
á útiitið
Er nú tekin aftur við rekstri á Snyrtistofunni Sælan,
Dúfnahólum 4.
Ég mun sem áður kappkosta að veita sem besta
þjónustu s.s. andlitsböð, húðhreinsanir,
handsnyrtingu, kvöldsnyrtingu, litanir, vaxmeðferð
á andlit og fætur.
Sértilboð
Fótaaðgerð aðeins kr. 150.-
Sólarlamparnir hjálpa ykkur að fá fallegan
hörundslit og slaka vel á fyrir vorið því það er
á næsta leiti.
Úrval af snyrtivörum: Lancome, Biotherm, Dior
og Margret Astor.
Dekraðu við sjálfa(an) þig.
Líttu við:
Fótaaðgerða-, snyrti- og Ijósastofan
cpœlbx
Helga Þóra Jónsdóttir,
fótaaógerða- og snyrtifræðingur,
Dúfnahólum 4, sími 72226.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Frá viðræðum ísraelsmanna og Líbana. Fulltrúar ísraels til hægri, fulltrúar Líbanons til vinstri. Fremst á
myndinni sést í nokkra áheyrnarfulltrúa Bandaríkjastjórnar.
Ríkisstjórn Begins
treystir sig í sessi
Tel Aviv, 27. febrúar.
ÞAÐ ER VARLA nokkrum blöðum um það að flétta nú þremur
vikum eftir að niðurstöður rannsóknarnefndarinnar um fjölda-
morðin í (lóttamannabúðunum við Beirut voru birtar, að stjórn
Begins nýtur meiri stuðnings en nokkru sinni fyrr. Þó svo að
Sharon hafi verið látinn víkja úr embætti og bæði Begin og Sham-
ir, utanríkisráðherra, hafi fengið ákúrur fyrir hugsunarleysi og
barnaskap, að Begin hefur snúið vopnin gersamlega úr höndum
andstæðinga sinna og þjóðin virðist hafa þjappað sér þéttar saman
um hann en nokkru sinni fyrr. Skýringar eru m.a. taldar viðbrögð
stjórnarandstöðunnar, sem ekki hafa þótt viturleg, og í öðru lagi
hefur gagnrýni erlendra ríkja haft sitt vægi, og því sé þrátt fyrir
allt best að lúta forsjá Begins a.m.k. enn um hríð.
að hefur mælst afar illa
fyrir að Simon Peres,
leiðtogi verkamannaflokks-
ins hefur hamrað á því að
Begin ætti að mynda þjóð-
stjórn og að hann væri fús að
taka við embætti aðstoðar-
forsætisráðherra. f blöðum
hér er farið háðuglegum orð-
um um forsætisráðherrasýki
Peres, og margir segja að
með þessu hafi Peres niður-
lægt stjórnarandstöðuna
með því að koma þannig á
fjórum fótum og lofa öllu
fögru bara ef hann fengi að
koma inn í stjórnina. Peres
hefur minnt á að Begin hafi
verið tekinn inn í verka-
mannaflokkstjórn daginn
fyrir sex daga stríðið, en þeir
eru ekki margir sem finnst
þessi málflutningur vænleg-
ur til árangurs.
Nýr varnarmálaráðherra
Moshe Arens kom til ísraels
nú fyrir helgina og hann
sagði aðspurður við komuna
að hann teldi ekki nema eðli-
legt að Sharon hefði verið
skipaður yfirmaður tveggja
mjög mikilvægra nefnda sem
fara með öryggismál og hann
sagði að það hefði verið frá-
leitt að hann teldi sér mis-
boðið að hafa ekki verið
spurður álits. Búist er við að
Arens skipi aðstoðarvarn-
armálaráðherra um miðja
viku og flestir virðast veðja á
Yosef Rom, þingmann.
Af Sharon er það að frétta
að hann hefur krafizt þess að
fá tvær skrifstofur til um-
ráða, eina í Jerusalem og
aðra í Tel Aviv og að starfs-
liði verði fjölgað um helm-
ing. Talsmaður fjármala-
ráðuneytisins sagði við mig
að það væri óskiljanlegt að
Sharon færi fram á slíkt
enda vissi hann manna best
að fjármál ríkisins væru ekki
í sem bestu standi.
Þó svo að engum blandist
hugur um að Begin-stjórnin
hefur hér tögl og hagldir hef-
ur verið ókyrrt víða í landinu
síðustu daga, sprengjur hafa
sprungið hér og hvar og vald-
ið mannskaða og ýmis
skemmdarverk verð unnin. í
gærkvöldi efndu samtök sem
heita Friður nú, til göngu um
miðborg Tel Aviv. Aður hafa
slíkar göngur verið farnar og
mikil þátttaka verið í þeim
eins og fram hefur komið í
fréttum. Síðustu daga hefur
verið hið versta veður í ísra-
el, úrhellisrigningar og norð-
ar í landinu snjókoma.
Sjálfsagt hafði veðrið hér í
gær sín áhrif alténd voru
göngumenn ekki nema þrjú
þúsund. Lögreglan hafði
mikinn viðbúnað, því að í síð-
ustu göngu var handsprengju
kastað inn í hópinn og maður
hafði bana af. Að þessu sinni
bar þó ekkert til tíðinda og
göngumenn fuku áfram í
veðrinu eins og hundar af
sundi dregnir.
Ég tók nokkra tali að
göngu lokinni og þeir sögðu
að léleg þátttaka bæri ekki
merki um að Friður nú, væri
að missa fylgi, heldur réði
dæmalaust illviðri og svo
hitt, að hátíðahöldin Purim,
endurtek Purim, standa yfir
og fagnar þá hver sem betur
getur heima hjá sér. Þeir
sögðu að friður yrði ekki í
landinu fyrr en Begin færi
frá og menn honum skynugri
tækju við stjórn, menn sem
væru reiðubúnir að viður-
kenna að ísraelar gætu ekki
endalaust fylgt ofstækis-
fullri stefnu sinni gegn aröb-
um.
í viðtali við þingmann
Verkmannaflokksins fyrir
fáeinum dögum, kom fram
að vaxandi stuðningur er við
þá hugmynd að Yitzak Nav-
on, forseti, taki við forystu í
Verkamannaflokknum eftir
að hann lætur af starfi for-
seta í vor. Að vísu yrði súrt
fyrir Peres að kyngja því að
forsætisráðherrastóllinn
væri endanlega runninn hon-
um úr greipum en það væri
sennilegt að hann féllist á
það. Trúlega myndi Navon þó
ekki storma rakleitt inn
formannsembættið, heldur
vinna að því í kyrrþey að
tryggja sér nauðsynlegan
stuðning. Það er a.m.k. skoð-
un þessa þingmanns sem er
að vísu í Peres-armi Verka-
mannaflokksins, en er langt
frá því dús við framgöngu
hans í stjórnarandstöðunni
hin síðustu ár.