Morgunblaðið - 03.03.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.03.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983 25 i eftir að við fengum ullarklæðnaðinn“ Ljósmyndir Mbl. Ragnar Axelsson. ktu á neyöarblysi. — rætt við skipbrotsmenn á Hafrúnu ÍS 400 Fréttaritarar Morgunblaðsins á ísafirði og í Bolungarvfk, Úlfar Ágústsson og Gunnar Hallsson, ræddu við skipbrotsmenn af Hafrúnu við komuna ti) heimahaga sinna af strandstað í gær, en skipbrotsmennirnir voru komnir heim til sín nokkrum klukkustundum eftir strandið vegna þess hve björgunarþyrlurnar komu skjótt á vettvang og fluttu mennina til byggða skömmu áður en myrkur skall á. „Þrekraun að þurfa að ganga alla leið“ „Ég var niðri í þvottahúsi skips- ins ásamt 1. vélstjóra að gera við þvottavélina, þegar ég veitti því athygli að slegið var af vél skips- ins og síðan sett á fulla ferð aftur á bak og rétt á eftir tók skipið niðri um kl. 14.30,“ sagði Róbert Róbertsson 1. stýrimaður á Haf- rúnu i samtali við Mbl. „Þar sem ég vissi að við gátum ekki verið komnir inn til Bolung- arvíkur, hljóp ég strax upp í brú og sá þá að við vorum strandaðir yzt á Stigahlíð. Ég kallaði saman áhöfnina og lét alla fara í hlý föt og setja á sig björgunarbelti. Þeg- ar ákveðið var að reyna að komast í land, fór ég ásamt einum háseta, á gúmmíbjörgunarbát upp í fjör- una. Það gekk mjög vel að ná skipsfélögum okkar í land og voru þeir allir komnir i land kl. 4, nema skipstjórarnir tveir, sem biðu átekta um borð. Við vissum þá fljótlega að þyrlur væru á leiðinni til að bjarga okkur, en þar sem veður var tvísýnt og styttist í myrkur var ákveðið að labba að skipbrotsmannaskýli SVFÍ á miðri Stigahlíð. Við löbbuðum um það bil 1 km í sleipu stórgrýti og var það mönnunum mikið erfiði. Ég hefði talið það mjög mikla þrekraun ef við hefðum þurft að ganga alla leið til Bolungarvíkur um 14 km veg í urð og hálku." Róbert Róbertsson er fæddur í Færeyjum en kom til landsins 13 ára gamall og hefur að mestu stundað sjómennsku síðan. „Ég vil gjarnan," sagði Róbert, „koma á framfæri þakklæti til slysavarnafélagsmanna og björg- unarmanna á þyrlum og jafn- framt bið ég fyrir kveðjur til skipsfélaga minna með þakklæti fyrir samstarfið við þessar erfiðu aðstæður." __ ^JIfar „Skipið kastaðist með bárunni lengra upp fjöruna“ „Um klukkan tvö í dag höfðum við lokið við að leggja netin og var þá keyrt í land þar sem Lárus Grímsson, sem verið hefur skip- stjóri á skipinu, var að hætta og ætlaði í land, en Finnbogi Jak- obsson átti að taka við skipinu um tíma og af þeim sökum voru þeir báðir um borð í þessari veiðiferð," sagði Helgi Ingibergsson háseti í samtali við Mbl. skömmu eftir að hann kom til Bolungarvíkur í gær af strandstað. „Ég er ekki alveg viss um tím- ann,“ sagði Helgi," klukkan hefur verið langt gengin i þrjú, þegar skipið strandaði. Við vorum flest allir staddir i borðsalnum, nema skipstjórarnir, stýrimaður og 1. vélstjóri. Við urðum varir við mik- inn gauragang og vélin var sett á fullt aftur á bak. Við hröðuðum okkur þá upp og sáum hvers kyns var. Það var mikil hreyfing á skip- inu fyrst og kastaðist það með bárunni lengra upp í fjöruna. Við fórum strax í það að reyna að koma út björgunarbát og settum í hann band og síðan fóru - tveir okkar um borð í bátinn og létu berast upp í fjöruna, en það hafa vart verið mikið meira en 10 metr- ar frá bátnum og í land. Síðan var dregið á milli og gekk það allt að óskum, þarna var mjög grunnt, því gúmmíbáturinn flaut varla nema á fyllingum sem gengu inn. Við fórum allir í iand á þennan hátt nema skipstjórarnir Lárus og Finnbogi, sem urðu eftir um borð til þess að sinna fjarskiptum og kanna aðstæður. Þeir yfirgáfu síð- an skipið um það bil einni klukku- stund á eftir okkur. Okkur var orðið mjög kalt þarna í fjörunni á meðan við bið- um, þar sem allir höfðu blotnað meira og minna, en Lárus og Finnbogi komu með ullarklæðnað á okkur alla með sér frá borði og fórum við í þann fatnað. Kom það að verulega góðum notum. Þessi ullarklæði eru til, eftir því sem ég bezt veit, í öllum skipum sem gerð eru út frá Bolungarvík, og voru gefin á sínum tíma af Slysavarna- félagi staðarins. Okkur hlýnaði fljótlega eftir að við fengum ull- arklæðnaðinn og eins við hreyf- inguna þegar við fórum að labba áleiðis til Bolungarvíkur, en menn sem þekktu til, gizkuðu á að gönguferð okkar til Bolungarvíkur gæti tekið 4—5 klukkustundir. Þarna er fremur stórgrýtt og erf- itt yfirferðar. Við urðum því ákaf- lega fegnir þegar þyrlan kom, kveiktum strax á neyðarblysi þeg- ar við urðum hennar varir til að leiðbeina henni og gat hún athafn- að sig til að hífa okkur upp skammt frá þeim stað sem við vorum þá, en þá höfðum við gengið í um það bil hálfa klukkustund. Þetta er að sjálfsögðu óskemmtileg lífsreynsla og ég vona svo sannarlega að ég eigi ekki eftir að lenda í slíku aftur. Ég vil færa öllum þeim sem unnu að björgun okkar, mínar beztu þakk- ir,“ sagði Helgi Ingibergsson. — Gunnar Skipbrotsmennirnir þakka þyrlumönnum fyrir aðstoðina. Sjómaðurinn fjær er Róbert Róbertsson stýrimaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.