Morgunblaðið - 03.03.1983, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
^ Laugardaginn 5. mars veröa til viðtals Magnús
^ L. Sveinsson og Margrét S. Einarsdóttir.
26. leikvika — leikir 26. febrúar 1983
Vinningsröö: X21 — X11 — 1XX — X1X
1. vínningur: 12 réttir — kr. 77.310.-
45053 (4/11)+ 72814(4/11)+
62505 (4/11) 100870(6/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 2.819.-
15578 61528 71980+ 92549 98448 101111
16447 62507 72813+ 94202+ 100849 101181
23375 66139 75463+ 94210+ 100852 Úr 25. viku:
45054+ 67031 91132 94218+ 100856 9581
45055+ 67277+ 91144 94643 101009
Kærufrestur er til 21. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum og á skrif-
stofunni í Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkað, ef kærur
veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
Alltaf á fóstudögum
í LISTMUNAHÚSI
Litið inn á sýningu Margrétar
Guðmundsdóttur listfræðings sem
heldur fyrstu sýningu sína.
HUGLÆKNINGAR
Rætt við Unni Guðjónsdóttur
huglækni hjá Sálarrannsóknarfélagi
íslands.
TEIKNIMYNDABLAÐA-
SÖFNUN
Nokkrir fróðleikspunktar fyrir þá sem
áhuga hafa á söfnun teiknimynda-
blaða.
Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina
Seyðisfjörður:
Vélsmiðjan sjósetur
188 rúmlesta togara
SeyðisfirAi, 28. febrúar.
VÉLSMIÐJA Seyðisfjarðar sjósetti
á laugardag nýtt 188 rúmlesta físki-
skip og hlaut það nafnið Eyvindur
vopni NS 70. Eigandi hins nýja
skips er Kolbeinstangi hf. á Vopna-
fírði, en að því fyrirtæki standa út-
gerðarfyrirtækið Tangi, Vopnafjarð-
arhreppur og Kaupfélag Vopna-
fjarðar.
Þetta nýja og glæsilega skip er
nýsmíði nr. 17 hjá Vélsmiðju Seyð-
isfjarðar og hin stærsta sem hún
hefur sent frá sér. Skipið er teiknað
og hannað af Stefáni Jóhannssyni,
forstjóra Vélsmiðju Seyðisfjarðar,
og er 29,3 metrar að lengd, 7 metrar
að breidd og 3,55 metrar að dýpt.
Það er skutbyggt og fyrst og fremst
ætlað til togveiða en hefur einnig
möguleika til allra almennra veiða
annarra. Aðalvél skipsins er finnsk
af gerðinni Vártsilá, 800 hestafla,
sem er sérstaklega byggð fyrir
brennslu á svartolíu og er þetta í
fyrsta skipti sem þannig smíðuð vél
er sett í íslenskt fiskiskip. Ljósavél
er af Caterpillar-gerð, spilkerfið er
drifið með háþrvstibúnaði og er
með autotrolli. I skipinu eru öll
fullkomnustu siglinga- og fiskileit-
artæki og má nefna að þar er einnig
að finna veðurkortaritara sem get-
ur skráð veðurspár, sem sendar eru
frá gervitunglum í himingeimnum.
Þá eru í skipinu íbúðir fyrir 11
skipverja og eru þær hitaðar upp
með kælivatni frá aðal- og ljósavél
skipsins.
Það var Hrafnhildur Steindórs-
dóttir, eiginkona Sverris Guð-
laugssonar skipstjóra á hinu nýja
skipi, sem gaf því nafnið Eyvindur
vopni, en það er samnefni fyrsta
landnámsmanns Vopnafjarðar.
Eyvindur vopni NS 70, nýsmíði nr. 17 frá Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Morgunblaðið/KjarUn Aðalstein.sson.
Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis:
Reglur um söluvarning í
söluturnum eru óþolandi
STJÓRN Neytendafélags Reykjavík-
ur og nágrennis vekur athygli á því f
ályktun frá fundi sínum 21. febrúar
sl., að með núverandi afgreiðslutíma
verslana í Reykjavík, einkum mat-
vöruverslana, hafí skapast verulegt
ósamræmi afgreiðslutíma verslana
höfuðborgarsvæðisins og að loknum
almennum afgreiðslutíma þurfi íbúar
fjölmennasta sveitarfélags landsins
að leita í nágrannabyggðarlögin eftir
nauðþurftum.
Segir síðan í ályktuninni: „Það er
skoðun NRON að stjórnir sveitar-
félaga eigi ekki að hafa önnur af-
skipti af afgreiðslutíma verslana
en þau, er varðar gerð ramma-
reglna. Að öðru leyti skal við það
miðað, að afgreiðslutíminn sé sem
frjálsastur.
Nú eru í gildi úreltar reglur um
söluvarning í söluturnum (sjopp-
um). Skiptir í því sambandi engu
þótt matvöruverslun reki sölulúgu.
Henni er bannað að versla með
matvöru um lúguna, eftir að al-
mennum afgreiðslutíma verslana
lýkur. Virðist við það miðað að
helst skuli ekki selja aðrar vörur í
söluturnum en þær sem kenna má
við óhollustu. Þetta er með öllu
óþolandi og greinilega sniðið að
hagsmunum annarra en neytenda.
Svo fremi sem söluturn fullnægir
öllum skilyrðum sem heilbrigðis-
yfirvöld setja, á hann að hafa leyfi
til þess að selja hvers konar mat-
vörur."
I& M A IHl I N TT
Sér permanentherbergi
Tímapantanir í síma 12725
Rakarastofan
Klapparstíg