Morgunblaðið - 03.03.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
15
Frá vinstri: Stefán Jóhannsson, forstjóri Vélsm. Seyðisfjaróar, Sverrir Guð-
laugsson, skipstjóri, og Pétur Olgeirsson, framkvstj. Kolbeinstanga hf.
MorgunblaAid Kjartan Adalsteinsson.
Vélsmiðja Seyðisfjarðar var
stofnuð árið 1907 af Jóhanni heitn-
um Hanssyni, miklum atorku- og
dugnaðarmanni, sem byggði fyrir-
tæki sitt upp af myndarskap í byrj-
un aldarinnar, og hófst þegar
handa við að setja niður vélar í báta
þegar „mótorbátaöldin" svonefnda
gekk í garð. Allar götur síðan hafa
aðalverkefni Vélsmiðjunnar tengst
viðgerðum og þjónustu við fiski-
skipaflotann, þó aðalverkefni seinni
ára hafi verið nýsmíði fiskiskipa.
Það var árið 1968 sem Vélsmiðja
Seyðisfjarðar hleypti af stokkunum
sinni fyrstu nýsmíði en síðan eru
skipin orðin 17 að tölu, öll smíðuð
úr stáli.
Að sögn Stefáns Jóhannssonar,
forstjóra Vélsmiðju Seyðisfjarðar,
hefur fyrirtæki hans nú í höndun-
um samning um nýsmíði skips fyrir
útgerðaraðila í Grindavík, en allt er
í óvissu hvort af þessari smfði verð-
ur þar sem Fiskveiðasjóður og aðr-
ar lánastofnanir hafa ekki veitt
samþykki sitt fyrir því verkefni.
Stefán kvaðst kvíða framtíðinni
hvað verkefni varðaði ef ekki fengj-
ust tilskilin leyfi áðurnefndra
stofnana til skipasmíðanna.
Hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar
starfa nú um 30 manns auk annarra
heimamanna sem tengjast skipa-
smíðum, en allt tréverk og raflagnir
er unnið af seyðfirskum iðnaðar-
mönnum.
Að sögn Kristjáns Magnússonar,
sveitarstjóra á Vopnafirði, binda
þeir miklar vonir við hið nýja skip.
Fyrir voru á Vopnafirði skuttogar-
inn Brettingur og einn 50 rúmlesta
fiskibátur, auk nokkurra smærri
báta.
Kristján kvað brýna þörf fyrir
aukið hráefni til fiskvinnslustöðva
staðarins en til að fullnýta afkasta-
möguleika þeirra þurfum við að fá 6
til 7 þúsund tonn á ári. Kristján tók
það fram að samskipti þeirra Vopn-
firðinga við Vélsmiðju Seyðisfjarð-
ar hafi verið mjög góð og smíðin á
hinu nýja skipi tekist mjög vel.
Hann tók það fram að fyrir-
sjáanlegt væri að með óbreyttum
lánakjörum Fiskveiðasjóðs myndi
verða mjög erfitt að láta enda ná
saman gagnvart greiðsluskuldbind-
ingum. „Mér finnst það óeðlilegt að
útgerðin skuli vera látin borga
hærri vexti af fullverðtryggðum
lánum en aðrir atvinnuvegir í þessu
landi," sagði Kristján Magnússon
að lokum.
Húsbyggjendur
Arkitektar - Húsasmíðameistarar
Kynnum EKEFORS-einingarhús úr timbri í
Byggingaþjónustunni Hallveigarstíg 1
kl. 17.00-19.00 í dag fimmtudaginn3. marz.
*
Sérfræðingur frá verksmiðjunni mætir á
staðinn.
VERIÐ VELKOMIN
Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1 S 1 8430 / SKEIFAN 1 9 S. 85244
<B>
CIVIC 3ja dyra.
Verð kr. 210.000
sjálfskiptur
QUINTET
Verð kr. 248.000
CIVIC SEDAN
Verö frá kr. 212.000
ACCORD 3ia dyra EX-gerð.
Verð frá 248.000
ACCORD SEDAN
Verð frá 258.000
5 gíra m. fleiru.
Verð gilda til 7. marz 1983
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMI 38772