Morgunblaðið - 03.03.1983, Side 16

Morgunblaðið - 03.03.1983, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983 KULDAFATNAÐUR KULOAÚLPUR ULLARPEYSUR STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT NÆLONSTYRKT DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA ULLARLEISTAR KLOSSAR SVARTIR OG BRÚNIR MEÐ OG ÁN HÆLKAPPA GÚMMÍSTÍGVÉL ÖRYGGISSKÓR SKRÚFSTYKKI ALLAR STÆRDIR ÞJALIR MIKIÐ ÚRVAL TRÉRASPAR ÞJALARBURSTAR TENGUR FJÖLBREYTT ÚRVAL PLAST- SLÖNGUR GLÆRAR MEO OG ÁN INNLEGGS • SMURKÖNNUR FEITISSPRAUTUR ÁHELLISKÖNNUR EIRSAUMUR 1“—3“ • MARLÍN-TÓG LÍNUEFNI BLÝ-TEINATÓG FLOTTEINN NÆLON-TÓG LANDFESTAR • BAUJUSTENGUR ÁL, BAMBUS, PLAST BAUJULUKTIR ENDURSKINSHÓLKAR ENDURSKINSBORÐAR LÍNUBELGIR NETABELGIR BAUJUBELGIR ÖNGLAR — TAUMAR MÖRE- NETAHRINGIR NETAKEÐJA NETALÁSAR NETAKÓSSAR LÓÐADREKAR BAUJUFLÖGG NETAFLÖGG PLASTKÖRFUR VÍRKÖRFUR FISKGOGGAR FISKSTINGIR FLATNINGSHNÍFAR FLÖKUNARHNÍFAR BEITUHNÍFAR KÚLUHNÍFAR SVEDJUR STÁLBRÝNI HVERFISTEINAR í KASSA, OG LAUSIR RAFMAGNS-HVERFISTEINAR Sími28855 Opið laugardaga 9—12 Engin mál — ekkert firumkvædi — eftir Birgi Isl. Gunnarsson Eins og oft vill verða, þegar stjórnmálamenn komast í kosn- ingaham er nú þyrlað upp svo miklu áróðursmoldviðri, að fólk veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Einn vinsælasti áróðurs- söngur aðstandenda ríkisstjórnar- innar um þessar mundir er fólginn í því að kenna stjórnarandstöð- unni um allt, sem aflaga hefur farið í þjóðfélaginu. Gjarnan fylg- ir með að stjórnarandstaðan stöðvi framgang mála í neðri deild og sé ekki tilbúin til samstarfs um neinar lausnir í hinum erfiðu efnahagsmálum. Dæmi um áróðurinn Finna má mörg dæmi um þenn- an málflutning og má nefna eftir- farandi: í sjónvarpsviðtali í þættinum „Á hraðbergi" í síðustu viku lýsti Svavar Gestsson því yfir að ein meginástæða þess að engar tillög- ur um frekari aðgerðir í efna- hagsmálum hefðu komið fram frá því bráðabirgðalögin voru sett í ágúst sl., væri nú að ríkisstjórnin hefði misst starfhæfan meirihluta í neðri deild. í viðtaii við Tímann þann 27. febrúar sl. segir Ólafur Jóhann- esson, „að það virðist ekki vera hægt að koma nokkru máli í gegn- um þingið, sem stjórnin reynir að impra á.“ Hann bætir síðan við að það sé eins og stjórnarandstaðan eigi ekkert áhugamál annað en að koma ríkisstjórninni frá. í umræðum á Alþingi á dögun- um lét Gunnar Thoroddsen, for- sætisráðherra að því liggja, að það væri helst stjórnarandstöðu sjálfstæðismanna um að kenna að vísitölufrumvarpið svonefnda hefði ekki náð fram að ganga. Hér má einnig minna á þá gamansemi forsætisráðherra, þegar hann hélt því fram í sjónvarpi í haust, að ástæða þess að hann dró að leggja bráðabirgðalögin fyrir Alþingi væri vegna „ágreinings innan stjórnarandstöðunnar". Hvaða mál hafa verið stöðvuð? Þetta eru aðeins örfá dæmi af fjöldamörgum um þennan mál- flutning stjórnarliða. En hvernig er þetta í reynd? Hvaða mikil- vægu mál eru það, sem stjórnar- andstaðan hefur komið í veg fyrir að næðu fram að ganga? Við skul- um aðeins huga að því. Reyndar er þessum spurningum fljótsvarað. Eina málið, sem ríkis- stjórnin hefur lagt fram, þar sem einhver tilraun er gerð til að glíma við efnahagsvandann, eru bráðabirgðalögin. Að vísu má segja, að frv. um olíusjóð fiski- skipa, sem lagt var fram í tengsl- um við bráðabirgðalausn á vanda sjávarútvegsins um sl. áramót, hafi verið efnahagsmál. Stjórnar- andstaðan greiddi fyrir afgreiðslu þess máls, þó að hún hefði ýmsar efnislegar athugasemdir fram að færa við frumvarpið. Engin tilmæli um samvinnu Að öðru leyti eru það bráða- birgðalögin ein, sem ríkistjórnin hefur lagt fram. Það er allt og sumt. En hefur ríkisstjórnin þá ekki snúið sér til stjórnarandstöð- unnar með tilmælum um sam- vinnu um ákveðnar lausnir á efna- hagsvandanum? Svarið við því er nei. Engin slík tilmæli hafa borist. Vísitölumálið var ekki flutt af ríkisstjórninni, heldur forsætis- ráðherra einum. Stjórnarandstað- an fékk ekkert að vita um efni þess fyrr en það var lagt fram. Það er skylda hverrar ríkisstjórnar að hafa frumkvæði og leggja fram tillögur til lausnar aðsteðjandi vanda- málum. Engar slíkar tillögur hafa séð dagsins Ijós frá ríkisstjórninni síðan bráðabirgðalögin voru lögð fram í ág- úst. Það hefur því ekkert á það reynt, hvort stjórnarandstaðan væri ekki reiðubúin til samstarfs um lausn erf- iðra mála. Allur áróður stjórnarsinna um óvilja stjórnarandstöðu er því ómaklegur og ósannur. Engin tilraun var gerð til að Ieita samstöðu við stjórnarandstöðu um þetta mikilvæga mál alla þá mánuði, sem það var í undirbún- ingi. Þó var það ekki stjórnar- andstaðan, sem drap málið. Það var Alþýðubandalagið, sem þar var að verki. Allt frumkvæði vantar Nú er það skylda hverrar ríkis- stjórnar að hafa frumkvæði og leggja fram tillögur til lausnar að- steðjandi vanda. Þessi ríkisstjórn hefur ekki sýnt neitt slíkt frum- kvæði. Hafi stjórnarandstaðan haft áhuga á að þregða fæti fyrir tillögur ríkisstjórnarinnar, hefur hún ekki fengið neitt tækifæri til þess, því að engar slíkar tillögur hafa séð dagsins ljós. Hitt er svo annað mál að þegar ríkisstjórnin hefur sýnt einhvern lit á vilja til samstarfs við stjórnarandstöðu, þá hefur ekki staðið á þingflokk- um stjórnarandstöðunnar. Það er því eingöngu dugleysi og frum- kvæðisskortur ríkisstjórnarinnar, sem hér er um að kenna. Allar tilraunir hennar til að skella skuldinni á stjórnarandstöðu eru dæmdar til að mistakast. Stjórnin hefur ekki haft neinar tillögur eða hugmyndir. Soropitmistaklúbbur Reykjavíkur I. gefur stórgjöf til Sunnuhlíðar, hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi AÐ AFLOKNU ári aldraðra komu konur úr Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur I. færandi hendi í Sunnuhlíð. í janúar sl. afhentu þær til hjúkrunarheimilisins kr. 50.000,- í kaffisamsæti í Sunnu- hlíð, en þar tóku á móti þeim kon- ur úr Soroptimistaklúbbi Kópa- vogs. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Soroptimistar færa Sunnuhlíð gjafir. Auk rausnarlegra pen- ingagjafa áður, og ýmissa lista- verka, sem prýða veggi heimilis- ins, má geta þess, að Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur, gaf hönnun á garðinum umhverfis hjúkrunarheimilið, en hann verð- ur án efa meðal fegurstu garða í Kópavogi, þegar búið verður að ganga endanlega frá honum. Kristín Snæhólm Hansen, form. Sor- optimistaklúbbs Reykjavíkur I., af- hendir Hildi Hálfdánardóttur, fram- kvæmdastjóra Sunnuhlíðar, pen- ingagjöf. í dagstofu Sunnuhlíðar, þar sem Soroptimistaklúbbur Kópavogs tók á móti Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.