Morgunblaðið - 03.03.1983, Page 21
Frá æfingu á Illgresinu víðforla. Látbragðsleikararnir eru fremst, en kórinn að baki þeirra. Langst til hægri er
sögumaðurinn Brynja Tomer. Morgunblaðið/Emilia
Trommur, gítar og bassi. Það er tríóið sem sinnir undirleiknum í Illgresinu.
Einar Sigurðsson bassaleikari er lengst til hægri á myndinni.
Listahátíð í Versló:
Söngleikur eftir
ans frumsýndur
nemendur skól-
annað kvöld
ÞESSA dagana stendur yfir listahá-
tíð í Verzlunarskóla íslands. Það er
listafélag skólans sem stendur fyrir
hátíðinni, sem er hin fjölbreyttasta.
Á raánudaginn var kynning á ís-
lenskum kvikmyndum, og sýndi
Hrafn Gunnlaugsson þá valda kafla
úr eigin myndum og sat fyrir svör-
um. A þriðjudagskvöldið var bók-
mcnntakynning og fleira, Pétur
Gunnarsson rithöfundur og fleiri
góðir menn komu í heimsókn og
lásu úr verkum sínum. Og í gær-
kvöldi fengu rokkáhugamenn eitt-
hvað fyrir sig, þegar Grýlurnar
mættu á svæðið og spurðu hvað væri
svona merkilegt við það. Kvöldið í
kvöld er helgað myndböndum, og
verða þá sýndar svipmyndir úr fé-
lagslífi Verzlinga og ýmislegt annað
góðgæti úr sjónminjasafninu.
En annað kvöld verður hápunkt-
ur hátíðarinnar. Þá verður frum-
fluttur söngleikurinn Illgresið
víðförla, en hann er að mestu leyti
saminn af nemendum skólans og
eingöngu leikinn og sunginn af
þeim. Brynja Tomer, formaður
listafélagsins, og Einar Sigurðs-
son bassaleikari, sömdu textann í
sameiningu, en tónlistin er eftir
Einar og tvo félaga hans, þá Jó-
hannes Snorrason og Gísla Skúla-
son. Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti þau Brynju og Einar að máli
til að forvitnast lítið eitt um 111-
gresið víðförla.
Sveitastrákur í Verzló
„Það er kannski vissara að taka
það fram í upphafi að þetta er
ekki söngleikur um gróður jarðar.
Illgresið sem gerir það svona víð-
reist, og við erum að fjalla um, er
hræsni og hégómi, en ekki plöntu-
tegund. Annars er þetta saga um
hálfgert olnbogabarn, strák utan
af landi sem kemur inn í Verzló og
fellur ekki í kramið hjá skólafé-
lögum sínum. í skólanum er klíka
sem lítur niður á strákinn, finnst
hann vera sveitó og manna ólík-
legastur til afreka. En svo gerist
það að strákur kemst í lauslegt
samband við aðalstelpuna í hópn-
um, og eins og nærri má geta kann
klíkan því illa og reynir að spilla
því sambandi. Þetta er efnisþráð-
urinn á yfirborðinu að minnsta
kosti."
Óvenjuleg uppsetning
„Uppsetningin á verkinu er
svolítið óvenjuleg. Við notum
látbragðsleikara til að túlka
hverja persónu, en söngvararnir
standa alltaf kyrrir. Þessi hug-
mynd er fengin að láni úr útfærslu
á óperu Atla Heimis Sveinssonar,
Silkitrommunni, sem sýnd var á
Listahátíð Reykjavíkur sl. vor.
Alls koma fram í söngleiknum
rúmlega 20 manns, um 10 söngv-
arar og 10 látbragðsleikarar. Þá
verður sérstakur sögumaður og
þriggja manna hljómsveit."
Grípandi tónlist
„Um tónlistina í söngleiknum er
það að segja að hún er frekar létt
og því grípandi, en kannski undir
nokkrum fusion-áhrifum, jafnvel
djössuð á köflum, segja sumir.
Mörg lögin voru samin í fyrravor,
en ýmislegt hefur bæst við síðan
og heildarsvipurinn er nokkuð
heilsteyptur núna, vonum við.“
Gífurleg vinna
„Þótt þetta sé ekki nema um
klukkutíma löng sýning liggur gíf-
FLEX-O-LET
Tróklossar
Vinsælu tréklossarnir meö beyjanlegu sól-
unum komnir aftur.
GEíSiB
H
urlega mikil vinna að baki. Við
hefðum ekki trúað því fyrirfram
að þetta væri svona mikið mál. En
það er góður andi í hópnum sem
að þessu stendur og þetta hefur
smámjakast. Og nú er allt klappað
og klárt."
Sýningin annað kvöld hefst
klukkan hálf níu og er fyrst og
fremst ætluð nemendum úr Verzl-
unarskólanum. En engum verður
vísað frá á meðan húsrúm endist.
Á laugardaginn klukkan fjögur
verður svo önnur sýning á Illgres-
inu og er hún opin öllum almenn-
ingi. Þau Brynja og Einar sögðu
að fleiri sýningar væru ekki fyrir-
hugaðar í bili,“ en ef vel tekst til
er aldrei að vita hvað framtíðin
ber í skauti sér. Kannski gerir
sýningin stormandi lukku og við
förum með hana út um allar triss-
ur. Hver veit nema allar gáttir
opnist og við verðum fræg og rík,
og hver veit nema Hollywood sé
ekki svo langt í burtu ..., “ sögðu
þau Brynja og Einar að lokum, og
horfðu dreymandi, óræðu augna-
ráði á eftir blaðamanni hverfa út
um gættina á Nemendakjallaran-
um. Hver veit.
Nú býður enginn betur!
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið takmarkað
magn af hinum landsþekktu Superia reiðhjólum á
einstaklega hagstæðu verði.Til dæmis:
Gerð „Touring" 10 gíra 28"...Kr.
Gerð „Minerva“ gíralaust 28" Kr
Gerð „Diana“ 5 gíra 28" .....Kr
Gerð „Bristol“ gíralaust 26".Kr.
Gerð „Voyager“ 10 gíra 28" ..Kr
Stelpu eða strákahjól gíralaust24"Kr.
Stelpu eða strákahjól 4 gíra 24"
Gerð „Viví" barnahjól gíralaust 16" Kr
Góðir greiðsluskilmálar.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Athugið að við höfum flutt sýningarsal okkar og
versliin í nýtt og rúmgott húsnæði á l.hæð
Háteigsvegi 3.
Kr. 3.095
Kr. 3.095
Kr. 3.750
Kr. 3.800
Kr. 4.100
Kr. 2.250
Kr. 2.800
Kr. 2.140
Hjól & Vagnar
Háteigsvegi 3, 105 Reykjavik, Simi 21511