Morgunblaðið - 03.03.1983, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
fjýiiur
'thLPottréi^,
SKYNOtBÉT'ruB •
Hamborgart
"tZLri Pottréttarsosu-
í hádeginu,
á kvóldin - heima
í vinnunni,
á ferðalogum,
og hvar sem er.
F « á »«„
’ • Htt
ffSr
Látið dósina standa 1 5 min.í heitu vatni
í potti eða vaski, áður en hún er opnuð,
og rétturinn er tilbuinn.
Lykkjulok - enginn dósahnífur.
Fæst í næstu versíun!
Niðursuðuverksmiðjan ORA hf.
Minning:
Jón Pálsson
sundkennari
Fseddur 6. júní 1904
Dáinn 21. febrúar 1983
Það kom mér óþægilega á óvart
að dagar Jóns frænda væru taldir.
Hann dó eftir stutta legu á Landa-
kotsspítalanum í umfaðmaðri
elsku dóttur sinnar, Amalíu Svölu,
mánudaginn 21. febrúar.
Jón fór í aðgerð vegna sjónar-
innar, og síðan var talsverð bata-
von. Hann virtist svo hraustur að
sjá, stálminnugur og andlegt at-
gervi í stakasta lagi. En þegar ég
hringdi til hans í desember sl., þá
sagðist hann hafa fengið svo
slæma flensu, og skildi hann ekk-
ert í þvi hvað hún væri lengi að
fara úr sér. En við rannsókn kom í
liós að Jón var fársjúkur maður.
Eg hafði vonast til að hann ætti
lengra líf fyrir höndum, en Ritn-
ingarorðin standa ætíð fyrir sínu:
„Við mennimir ráðgerum, en það
er Guð sem ræður".
Jón byrjaði að kenna sund 16
ára gamall með föður sínum, Páli
Erlingssyni, sundkennara. Þá
voru gömlu sundlaugarnar þær
einu í bænum. Ég minnist með
hlýhug góðu daganna í gömlu
laugunum þar sem Jón og Ólafur,
bróðir hans, voru allt í öllu. Þeir
kenndu bæjarbúum að synda og
gættu þess að enginn drukknaði.
Einnig geymdu þeir muni fyrir
fólk. Þeir voru hlýir og vinalegir,
traustvekjandi persónuleikar og
gerðu sér far um að allt gengi
snurðulaust.
Jón stofnaði sundfélagið Ægi
með ungum áhugamönnum, var
þjálfari félagsins um árabil, og
fyrstu árin var öll vinna gefin.
Þegar ég var lítil var félagsandinn
mjög góður, einlægni og áhugi hjá
sundfólki Jóns, enda bar það virð-
ingu fyrir þjálfara sínum. Fyrr á
árum leituðu sundkennarar af
sjálfsdáðum til Jóns, en hann var
aldrei beðinn um að halda sund-
námskeið eða sýnikennslu á
endurmenntunarnámskeiðum
íþróttakennara, en í starfstíð Jóns
voru aðeins teknir erlendir
keppnis-sundþjálfarar, þar til að
íslenskur sundþjálfari setti
smiðshöggið 1979.
Þegar Sundhöll Reykjavíkur tók
til starfa árið 1937, þá var Jón
ráðinn sundkennari og starfaði
þar þangað til hann komst á eftir-
laun. Eftir það hélt hann áfram að
kenna í sérsundtímum kvenna, og,
eins og Jóni var lagið, að púrra
upp hálfmannlaus sundfélög.
Þannig færðist líf í tuskurnar í
kvennatímunum og oft glatt á
hjalla.
Jón kenndi sígilt og gott sund-’
lag fyrir skóla- og heilsuræktar-
sund. Taka tækni Jóns og öll með-
ferð var borin fram með sérstakri
lagni kunnáttumannsins og ró-
legri yfirvegun, ásamt þægilegu
viðmóti við nemendur, enda var
Jón sérlega yfirlætislaus maður.
Jón fylgdist ætið vel með sund-
mennt og breytilegum sundaðferð-
um annarra þjóða, enda gafst gott
tækifæri þegar hann fór út með
sundlið í keppnisferðir, en f því
sambandi sagði Jón við mig: Ég
prófaði allt og reyndi að halda því
besta. Bæði Olafur heitinn og Jón
mátu mest sundþroska Þjóðverja,
en þeir blanda ekki saman með-
ferð í keppnisþjálfun og kennslu í
skólaíþróttum. Aftur á móti höfðu
Þjóðverjarnir þann sið að fara i
skólana og sjá út bestu efnin, og
síðan allt á fullu ef áhugi nem-
enda var fyrir hendi.
Jón var fjölhæfur og hafði
skemmtilega greind. Hann gat tal-
að blaðlaust hvenær sem var, og
var rökvís og gagnorður. Honum
var létt um vísnasmíði og elskaði
góða tónlist. Hann var mikill nátt-
úruskoðandi og sportmaður á sín-
um yngri árum og einstakur að
meðhöndla og temja dýr.
En árin líða og fyrr en varir er
tíminn útrunninn. Og þegar ég sá
+
Eiginkona mín,
GUDBJORG Þ. GUNNLAUGSDÓTTIR,
Heiöarvegi 28,
Vestmannaeyjum,
andaöist þriðjudaginn 1. mars.
Fyrir hönd dætra og annarra vandamanna,
Björn Kristjénsson.
+
Eiginmaður minn,
STEINN INGVARSSON,
lést 1. mars í sjúkrahúsinu Vestmannaeyjum.
Þorgerður Vilhjélmsdóttir.
+
Eiginkona mín, móöir, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN SIGRfDUR LÁRUSDÓTTIR
fré Hellu, Stelngrímsflrði,
er lést í Borgarspítalanum 26. febrúar sl. veröur jarösungin laug-
ardaginn 5. marz nk. kl. 15.00 frá Drangsneskapellu, Strandasýslu.
Húskveöja veröur frá Hellu sama dag kl. 13.00. Kveöjuathöfn
veröur í Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. marz kl. 10.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarfélög.
Jórmundur Gestsson
fré Hellu,
börn, tengdabðrn,
barnabörn og barnabarnabðrn.
Utför móöur okkar og tengdamóöur,
HELGU INGIBJARGAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
sem lést 25. febrúar sl., veröur gerö frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 4. mars kl. 13.30.
Kristjén Guðlaugsson, Ástríður Ólafsdóttir,
Ásmundur Guölaugsson, Ingibjörg Kristjénsdóttir,
Aðalsteinn Guðlaugsson, Eygló Victorsdóttir,
Jóhanna Sólveig Guðlaugsdóttir.Guömundur Vignir Jósefsson.
Móöir okkar, tengdamóöir, fósturmóöir, amma og langamma,
GUDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR
fré Horni, Ásgaröi 73, Reykjavík,
verður jarösungin fimmtudaginn 3. marz kl. 13.30 frá Bústaða-
kirkju.
Ólína Kristinsdóttir,
Guörún Kristinsdóttir,
Magnús Kristinsson,
Guðveig Hinriksdóttir,
Snorri Júlíusson,
Gróa Alexandersdóttir,
Torfi Ólafsson,
Svanhildur Eyjólfsdóttir,
Gunnar Vilhjálmsson,
Sigríöur Guðbrandsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum öllum sem auösýndu okkur hlýhug og samúö viö andlát
og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
JÓNS I. BJARNASONAR,
ritstjóra,
Langholtsvegi 131.
Kaupmannasamtökum fslands færum viö sérstakar þakkir fyrir
ómetanlegan stuðning.
Guöbjörg Lilja Maríusdóttir,
Jón E. Jónsson,
Bjarni M. Jónsson,
Vigdís Jónsdóttir,
Þuríður E. Jónsdóttir,
Guðmundur F. Jónsson,
Björn I. Jónsson
Hjördis Claessen,
Þóra G. Ingimarsdóttir,
Benedikt Jóhannesson,
Árni Þórðarson,
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn,
ÓSKAR ÓLAFSSON,
Sólhlíð 5, Vestmannaeyjum,
verður jarösunginn frá Landakirkju laugardaginn 5. mars kl. 14.00.
Fyrir hönd aöstandenda,
Rut Ágústsdóttir.
+
Elskuleg eiginkona mín,
GUORÚN PÁLSDÓTTIR,
Rauðholti 11, Selfossi,
andaöist í Borgarspítalanum 1. mars.
Egill Guöjónsson.