Morgunblaðið - 03.03.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
39
fclk í
fréttum
1‘ * ,r
COSPER
77
■ ' - n r\j
I 0000
>^^2k^^0SPERJ
c ri* M
— Nei, ég var ekkert aö stara á hana. Fallegar
konur hafa aldrei vakið áhuga minn.
Díana skoðar lyfjafyrirtæki
+ Lyfjafyrirtækið Glaxo Pharmaceuticals í Herefordshire fékk tiginn gest og góö-
an fyrir skömmu, þar fór Diana prinsessa af Wales. Hún klæddist þar þeim
hlífðarfatnaði sem sjá má á myndinni þ.m.t. hvíta Trilby-hattinum.
Predikar
alla
sunnudaga
+ Hver man ekki eftir honum
MaCloud, réttu nafni Oennis
Weaver, Texaslögreglunni í
New York, sem þótti dálítið
sveitó stundum.
Dennis er maður mjög trúað-
ur, predikar alla sunnudaga í
kirkjunni sinni í Los Angeles, en
annars er það helst af honum
að frétta, að hann hefur verið
kvæntur sömu konunni í 35 ór,
sem er fáheyrt meðal stéttar-
bræðra hans fyrir vestan.
r
Mondale ætlar sér stóra hluti
+ Það er fyrrum varaforseti Bandaríkjanna Walter Mondale sem
þarna steytir þumalfingur sinn til himins. Hann er kampakátur og
sigurviss til svipsins, enda þýðir ekkert annaö, hann var nefnilega
við þetta tækifæri að tilkynna aö hann myndi keppa að útnefningu
flokks síns til forsetakosninganna næstu. Frú hans, Joan, er við hlið
manns síns og er að sjá ekki síður lífsglöð.
1.
flokks
veitinga
staður í
hjarta
ömaa I)jem
Kaupmannahafnar
Við viljum aðeins minna á okkur.
Allir þeir mörgu íslendingar sem nú
leggja land undir fót í sambandi við
Scandinavian Fashion Week fara auð-
vitað á Syv Smá Hjem og gera sér glað-
an dag.
Veitingastofur
7 stofur
í mismunandi
stíl.
Þú velur það
sem hentar
þér
Músik og dans í vínkjallaranum.
Þið eruð alltaf velkomin á
71 óntaa hjcm
* A lornhanonarlo
4 Jernbanegade.
DK-1603, Köbenhavn V.
AlþjóðEegur
bænadagur
kvenna
Almenn samkoma verður í Dómkirkjunni föstudaginn
4. mars kl. 20.30.
I. Stína Gísladóttir og Miriam Óskarsdóttir tala.
II. Ólöf Kolbrún Haröardóttir syngur.
Allir velkomnir!
Nefndin.
Heba heldur
við heilsunni
Nýtt námskeið að hefjast.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leiklimi - Sauna - Liós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaffi -
Jane Fonda leikfimi
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 53, Kópavogi.