Morgunblaðið - 03.03.1983, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1983
ÍBK 3. flokkur kvenna. íslandsmeistarar í körfuknattleik.
Efri röð frá vinstri: Guðbjörg Jónsdóttir, Bryndís Jóns-
dóttir, Fjóla Þorkelsdóttir, Gunnhildur Hilmarsdóttir.
Neðri röð: Anna Stefánsdóttir, Björg Hafsteinsdóttir, íris
Ástþórsdóttir, Anna María Sveinsdóttir.
Stúlkurnar í ÍBK
uröu íslandsmeistarar
íslandsmótinu í þriója flokki
kvenna í körfuknattleik er nýlok-
ið. Þrjú lið tóku þátt í mótinu, ÍBK,
sem bar sigur úr býtum, liö
Hauka og UMFS. Lokastaðan
varð þessi:
ÍBK 6 5 1 10
Haukar 6 4 2 8
UMFS 6060
Liö ÍBK er vel að sigrinum
komiö, stúlkurnar hafa sýnt mik-
inn áhuga í vetur og æft af kappi.
Evrópukeppni bikarhafa:
Aberdeen náði
jölnu á móti
Bayern Miinchen
ÚRSLIT í Evrópukeppni
hafa uröu þessi:
bikar-
Paris Saint Germain
— Waterschei 2:0 (1:0)
Fimmtíu þúsund áhorfendur
voru mættir á Parc De Prince-
leikvöllinn í París í gær er leikur-
inn fór fram. Luis Fernandes
skoraði fyrsta markiö á 43. mín-
útu leiksins. Þaö síöara skoraöi
Jean Marc Pilorget á 55. mínútu.
Parísarliöiö hafði nokkra yfir-
burði í leiknum en leikmenn Wat-
erschei þóttu verjast vel og náöu
nokkrum vel útfæröum skyndi-
sóknum.
Austria Vín —
F.C. Barcelona 0:0
Jafn leikur en engin marktæki-
færi. Áhorfendur voru 25.000.
Bayern — Aberdeen 0:0
Leikmenn Bayern áttu þrjú
gullin tækifæri til þess aö gera út
um leikinn en þaö tókst ekki. Ab-
erdeen þótti leika góöa knatt-
spyrnu og átti mörg góö tækifæri
og gaf Bayern-liöinu ekkert eftir.
Viö eigum greinilega erfiðan úti-
leik fyrir höndum sagöi Uli Hoen-
ess eftir leikinn.
Inter Milan —
Real Madrid 1:1 (1:0)
Inter var mjög óheppiö aö
sigra ekki í leiknum. Liöið náði
forystu 1—0, en fékk svo á sig
mikið klaufamark. Gabriele skor-
aði fyrsta markiö á 16. mínútu
meö glæsiskoti. Gallego jafnaöi
á 60. mínútu fyrir Real Madrid.
Áhorfendur voru 80.000.
Góð byrjun hjá
Þorvaldi í grind
B-keppnin:
Svíar unnu
stórsigur
á Spánverjum
Úrslit leikja í B-keppninni í
gærkvöldi uröu þessi:
Svíþjóö — Spánn 26—19
V-Þýskal. — Sviss 16—16
Tékkar—Ungverjar 23:20
Neðri riöill:
ísrael — Holland 9—16
ísland — Búlgaría 26—24
Frakkland — Belgía 23—18
Stjörnuhlaup FH
Þriðja stjörnuhlaup FH verö-
ur háð næstkomandi laug-
ardag, 5. marz, og hefst
klukkan 14. í karlaflokki
veröa hlaupnir átta kílómetr-
ar, fimm í kvennaflokki, þrír
í drengjaflokki og tveir kíló-
metrar í flokkum pilta og
telpna.
íslandsmótið
í Judó næsta
laugardag
FYRSTI hluti islandsmótsins
í judó verður næstkomandi
laugardag 5. mars í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans.
Keppnin hefst kl. 15.
A laugardaginn verður
keppt í öllu þyngdarflokkum
karla, sjö að tölu. Allir bestu
júdómenn landsins keppa.
Annar hluti íslandsmótsins
veröur svo laugardaginn 19.
mars, einnig í íþróttahúsi
Kennaraháskólans.
Borðtennis
Borðtennissamband ís-
lands heldur hina árlegu
fyrirtækja- og stofnana-
keppni sína 8.—11. mars
næstkomandi í borðtennis-
sal O. Johnson og Kaaber,
Sætúni 8, og hefst keppnin
kl. 18.00.
Nánari tilhögun keppninnar
er á þá leið aö í hverju liöi eru
tveir leikmenn og skal annar
þeirra hafa unnið hjá fyrir-
tækinu í a.m.k. einn mánuö
fyrir keppnina. Hverju fyrir-
tæki er heimilt aö senda eins
mörg liö og þaö óskar.
Firmakeppni
KR í innanhúss-
knattspyrnu
Vegna fjölda áskorana
hefur Knattspyrnudeild KR
ákveðið að halda firma- og
félagshópakeppni í innan-
hússknattspyrnu.
Til þessa hafa aöeins
starfsmenn fyrirtækja veriö
löglegir í slíkum keppnum, en
nú er komiö til móts viö hina
fjöimörgu féiagshópa, sem
æfa knattspyrnu reglulega
sér til gamans, en hafa ekki
átt kost á aó keppa í móti.
Keppnin fer fram í íþrótta-
húsi KR, stærri sal, dagana
14., 17., 21., 24., 25. og 28.
mars næstkomandi. í hverju
liði skulu vera 4 leikmenn og
allt aö 3 skiptimenn. Leik-
maöur má þó einungis leika
meö einu liöi í keppninni.
Þátttökutilkynningar þurfa
að berast eigi síöar en miö-
vikudaginn 9. mars til fram-
kvæmdastjóra Knattspyrnu-
deitdar KR: Steinþórs Guö-
bjartssonar, sem veitir allar
nánari upplýsingar um
keppnina.
ÞORVALDUR Þórsson sprett-
hlaupari úr ÍR náöi ágætum ár-
angri í 400 metra grindahlaupi á
háskólamóti í San Jose um helg-
ina, hljóp á 53,3 sekúndum og
varð þriöji af níu keppendum.
Þetta er fyrsta utanhússkeppni
Þorvaldar á þessu ári.
„Aöstæöur voru slæmar, út-
synningur og kalt á okkar mæli-
kvarða, en ég er sáttur við þessa
byrjun, því ég er undir miklu æf-
ingaálagi og langt frá þvt aö vera í
keppnisformi Mióa allt viö aö ná
góöum árangri þegar líöur á voriö
og í sumar. Var á toppnum á þess-
um árstíma í fyrra, og gat því frek-
ar lítiö í fyrrasumar. Nú ætla ég aö
snúa þessu viö, enda mörg stór-
mót sem íslenzkir frjálsíþrótta-
menn fá aö spreyta sig á í sumar,"
sagöi Þorvaldur í samtali viö
Morgunblaöið.
Þorvaldur kvaö æfingar hafa
gengiö vel hjá sér í vetur. Hann
kvaöst æfa miklu meira og betur
en í fyrra og kvaöst vona aö erfiðiö
skilaði sér í sumar í meiri framför-
um en í fyrra, en þá stórbætti hann
sig í 400 metra grindahlaupi og
margbætti íslandsmetiö í 110
metra grindahlaupi. ágás.
Juventus sigraði
Evrópumeistara
Aston Villa 2—1
Fra Baldvini Jónaayni é Villa Park i Birmingham:
ÞAD var stórkostlegt að upplifa
leik Aston Villa og Juventus hér á
Villa Park er liðin mættust í Evr-
ópukeppni meistaraliöa. Juvent-
us fór með sigur af hólmi (leikn-
um, 2—1, mjög verðskuldað.
Enda valinn maður ( hverri stöðu
hjá liðinu og sýndi liðið slíka
knattspyrnu aö henni er varla
hægt aö lýsa með nægilega
sterkum orðum.
Gifurlegur hraöi var í leiknum
allan tímann, en leikurinn var
opinn og mikiö um marktækifæri.
Juventus sótti mun meira en Aston
Villa tókst aö verjast nokkuö vel
þrátt fyrir aö nokkurrar tauga-
spennu virtist gæta hjá leik-
mönnum liðsins í upphafi. Tveir
hættulegustu sóknarmenn Villa
voru alveg teknir úr umferö í leikn-
um og sáust ekki.
Miövöröur Juventus Sergio Brio
jaröaöi Peter Withe svo bókstaf-
lega aö hann gat ekkert. Ekki einu
sinni í skallaboltunum, sem er
hans sterka hlið. Járnkarlinn
Gentile sá svo um Garry Shaw og
fór létt meö hann.
Fyrsta mark leiksins kom á 1.
mínútu, þaö var enginn annar er
Paolo Rossi sem skoraði meö
skalla. Staöan í hálfleik var 1—0.1
síöari hálfleiknum náöi Gordan
Covans aö jafna metin, 1 —1, á 50.
mínútu meö þrumuskalla og ætlaöi
þá allt aö ganga af göflunum hér á
vellinum. En stemmningin var ólýs-
anleg enda uppselt. Fjöldinn allur
af ítölskum áhorfendum var mætt-
ur.
Sigurmark leiksins kom ekki fyrr
en á 85. mínútu en hvílíkt mark.
Boniek átti þrumuskot alveg upp í
vinkilinn, óverjandi fyrir Spinks
markvörö Villa. Þaö er mjög erfitt
aö gera upp á milli leikmanna Ju-
ventus, þeir eru allir frábærir. En ef
ég ætti aö taka einhvern út þá
myndi Platini hinn franski vera því
næstur. Hann sýndi mikla knatt-
leikni og yfirsýn í samleik sínum.
Þá lék hann leikmenn Villa oft grátt
er hann plataði þá. Þaö er skoöun
mín aö róöur Aston Villa veröi erf-
iöur á Ítalíu er liöin mætast aftur.
Og þaö má mikiö vera ef nokkurt
liö stöövar Juventus-liöiö af í
meistarakeppni Evrópu í ár.
— ÞR/BJ
Liverpool tapaði
í Póllandi 0—2
Dinamo Kiev—
Hamborg S.V. 0:3
Hamborg vann öruggan sigur á
rússneska liöinu Dinamo í gær
3—0 og þaö í Rússlandi. Þaö var
Daninn Lars Bastrup sem skoraöi
öll þrjú mörkin fyrir Hamborg og
hefur hann nú skoraö 21 mark í
Evrópukeppninni.
Widzew Lodz—Liverpool 2:0
Liverpool sótti ekki gull í greipar
pólska liösins og mátti sætta sig
við aö tapa 0—2. Þrátt fyrir þetta
tap var leikur liöanna nokkuö jafn
og bæði liðin fóru illa meö góð
marktækifæri. 35.000 áhorfendur
voru á leiknum þrátt fyrir aö hon-
um væri sjónvarpað beint um allt
Pólland. Markaskorarar pólska
liðsins voru ekki gefnir upp í frótta-
skeytinu.
Real Sociedad—San Sebastian 1:0
Manuel Fernandes skoraöi eina
mark leiksins á 89. mínútu. Áhorf-
endur að leiknum voru 50.000.
Síöari leikur liöanna fer fram 16.
marz í San Sebastinan á Spáni.
UEFA-keppnin:
Benfica sigraði Roma
Roma—Benfica 1:2 (0:1)
Portúgalska liöiö Benfica sigraöi
ítalska liðið Roma í Rómaborg í
gær, 2—1, í UEFA-keppninni í
knattspyrnu. Sigur Benfica kom
nokkuö á óvart. Benfica haföi yfir
1—0 í hálfleik. Þaö var júgó-
slavneskur leikmaöur í liði Benfica
sem skoraöi bæöi mörkin, þaö
fyrra á 40. mínútu en þaö síöara á
60. mínútu. Eina mark Roma kom
úr vítaspyrnu á 66. mínútu. Di
Bartolemi skoraöi. Liö Benfica hef-
ur enn ekki tapaö leik í UEFA-
keppninni í ár.
Bohemians Prag—
Dundee United 1:0 (1:0)
Tékkneska liöiö Bohemians
Prag sigraði Dundee United 1—0 i
UEFA-keppninni í gærkvöldi. Leik-
ur liöanna fór fram í Prag. Pavel
Chaloupka, 23 ára gamall fram-
herji, skoraöi eina mark leiksins á
11. mínútu leiksins. Leikurinn fór
fram viö erfiðar aöstæöur, kulda,
og var völlurinn mjög þungur.
Leikurinn var frekar jafn. Áhorf-
endur voru 15.000.
Kaiserslautern—Craiova 3:2 (2:0)
Kaiserslautern sigraöi Craiovia
3—2 í UEFA-keppninni í gær.
Markaskorar voru ekki gefnir
upp á fréttaskeytum sem komu í
gær.
Valencia—Anderlecht 1:2 (1:1)
Anderlecht vann Valencia 2—1
á útivelli í gær. Hofkens og Coeck
skoruöu mörkin. Þaö fyrra kom á
4. mín. en þaö síðara á 54. mín.
Áhorfendur voru 40.000. Ander-
lecht var mun betra og átti margar
stórgóöar sóknarlotur.
Kæra
leikinn
Fré Skapta Hallgrímaayni í Hollandi:
Hugsanlegt er að Búlgaríu-
menn kærl leikinn gegn fslandi
sem fram fór hér í kvöld. Það
kom einu sinni fyrir í leiknum aö
sjö útileikmenn voru inni é vellin-
um hjá islandi. Þaö er ólöglegt og
því hyggjast Búlgarir kæra. Ef
kæran veröur tekin til greina
leika liðin aftur á föstudaginn.