Morgunblaðið - 20.03.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
79
ísafjörður:
Rekstrartekjur bæjarsjóðs
áætlaðar með 60,3% hækkun
„Á FUNDI bæjarstjórnar ísafjarðar-
kaupstaðar 10. mars sl. var fjár-
hagsáætlun kaupstaðarins fyrir árið
1983 samþykkt samhljóða með 9 at-
kvæðum meiri- og minnihluta bæjar-
stjórnar ísafjarðar.
Fjárhagsáætlunin, sú er nú hef-
ur verið samþykkt, styðst við
annan bókhaldslykil en þann er
notast hefur verið við undangeng-
in ár og er hér um verulega breyt-
ingu að ræða. Bæði er um upp-
stokkun á kostnaðarliðum og til-
flutning á milli málaflokka að
ræða. Hér er á ferðinni samræmd-
ur bókhaldslykill Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga. Nú þegar
hefur 21 sveitarfélag tekið upp
þennan samræmda lykil með
55.182 íbúum.
Heildar rekstrartekjur bæjar-
sjóðs ísafjarðar eru áætlaðar kr.
84.302.400, sem er um 60,3%
hækkun frá sömu áætluðu tekju-
liðunum 1982. Sameiginlegar tekj-
ur, þ.e.a.s. skattgjaldstekjur og
vaxtatekjur eru þar af alls kr.
62.992.900.
Helsti tekjustofn bæjarsjóðs er
útsvör, en þau eru áætluð kr.
37.032 þús. Nauðsynlegt reyndist
að nýta lagaheimild til að inn-
heimta útsvör með álagi og var
útsvarsálagning ákveðin 12,1%.
Tekjur af fasteignagjöldum eru
áætlaðar kr. 6.200 þús. þar af er
áætlaður afsláttur vegna elli- og
örorkulífeyrisþega að fjárhæð kr.
475 þús. Veittur er í ár 50% af-
sláttur af vatnsskatti og holræsa-
gjaldi.
Af öðrum tekjuliðum má nefna
framlag úr jöfnunarsjóði og
landsútsvar kr. 7.365.400, aðstöðu-
gjald kr. 6.750 þús.
Til ráðstöfunar eru einnig fram-
lög ríkissjóðs til sameiginlegra
framkvæmda ríkis og bæjarfélags
að fjárhæð kr. 4.121 þús. og áætlað
er að taka að láni kr. 7.596 þús,
þar af er áætlað til að bæta lausa-
fjárstöðu bæjarsjóðs kr. 5.000 þús.
Útgjöld bæjarsjóðs eru flokkuð í
þrennt: Til reksturs og gjald-
færðrar fjárfestingar, til eign-
færðrar fjárfestingar og fjár-
ráðstöfunar. Þá er útgjöldum
skipt eftir málaflokkum. í fjár-
hagsáætlun er mestu fé ráðstafað
til almannatrygginga og félags-
hjálpar eða um 16,5% af sameig-
inlegum tekjum og tekjum af
málaflokkum samtals. Þá er áætl-
að að verja til fjárfestingar og
reksturs verklegra framkvæmda
um 14,3%, vegna fjármagnskostn-
aðar um 12,4%, fræðslumála 12%.
Af öðrum málaflokkum má nefna
að 10% fara til yfirstjórnar kaup-
staðarins, 6% til æskulýðs og
íþróttamála og 5% til hreinlæt-
ismála.
Gert er ráð fyrir að seldar verði
fasteignir í eigu bæjarsjóðs fyrir
kr. 2 milljónir. Gert er ráð fyrir
framlagi til Hafnarsjóðs að fjár-
hæð kr. 1.263 þús. vegna reksturs.
Helstu framkvæmdir skv. áætl-
uninni á vegum bæjarsjóðs eru
dagheimili við Eyrargötu. Áætlað
er að verja kr. 1.658 þús vegna
dagheimilisins. Framlag bæjar-
sjóðs vegna framkvæmda við
Fjórðungssjúkrahúsið og heilsu-
gæslustöðina er áætlað kr. 1.250
þús. Gert er ráð fyrir að verja kr.
630 þús. vegna hönnunar og undir-
búningsvinnu nýs íþróttahúss á
Isafirði. 300 þús kr. framlag í
hönnunarkostnað vegna bygg-
ingar tónlistarskóla. 150 þús. kr.
vegna hönnunar stjórnsýsluhúss.
Gert er ráð fyrir að verja, ásamt
framlagi ríkissjóðs, kr. 3.100 þús.
vegna hafnarmannvirkja við
Sundahöfn. Gert er ráð fyrir
framlagi að fjárhæð kr. 200 þús.
til Rauðakrossdeildar ísafjarðar
vegna kaupa á nýrri sjúkrabifreið.
Gert er ráð fyrir nýframkvæmd-
um vegna gatna og holræsa fyrir
um 3.100 þús. kr. Vegna Hlífar —
íbúða aldraðra — er gert ráð fyrir
að verja kr. 620 þús.
Ýsmar fleiri framkvæmdir eru á
döfinni á vegum ísafjarðarkaup-
staðar á þessu ári.
Rétt er að geta hér nokkurra
rekstrarliða sem gert er ráð fyrir
að aukist verulega á þessu ári. Hér
er helst að telja rekstur nýrrar
heilsugæslustöðvar, sjúkraflutn-
inga og með tilkomu Hlifar —
íbúða aldraðra — hefur verið
veruleg breyting á félagsstarfi
aldraðra hér í bæ sem kallar á
aukinn kostnað."
Kjörskrá
Kjörskrá til alþingiskosninga er fram eiga aö fara 23.
apríl nk. liggur frammi almenningi til sýnis á mann-
talsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2. 2.
hæö, alla virka daga frá 22. mars — 8. apríl nk. þó
ekki á laugardögum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist skrif-
stofu borgarstjóra eigi síöar en 8. apríl nk.
Menn eru hvattir til aö kynna sór hvort nafn þeirra sé
á kjörskránni.
Reykjavík 20. mars, 1983.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
GULLNA LINAN FRA
MARANTZ DC-350
System 1 50-70 Wött.
Frá aldaöðli hafa menn reynt að búa
til hreint gull en enn hefur engum tekist
það. Hreint gull hefur aldrei verið til og
jafnvel besta gull er aðeins hreint að 99,98%
en 0,02% eru önnur efni. Samt sem áður
hafa menn talið gull vera tákn fullkomnunar
og lykil að auðæfum og velsæld.
Á þessari öld hafa verkfræðingar,
vísindamenn og tónlistarmenn leitast við
að uppfylla annarskonar draum: drauminn
um fullkomin hljómtæki. En 100% hreinn
hljómur hefur reynst vera jafn torfundinn
og 100% hreintgull. Tæknimenn MARANTZ
hafa þó að okkar mati komist nær tak-
markinu en gullgerðarmenn.
Cullna línan frá MARANTZ er svo
nærri fullkomnun að jafnvel besta tóneyra
greinir ekki mun. Aðeins tæknimenn
MARANT^ geta með réttu sagt að enn megi
bæta ögn um, en við látum okkur nægja
dóma tónlistarsnillinga og notenda um
heim allan.
Ressvegna höfum við hjá MARANTZ
ákveðið að gull skuli vera framtíðarlitur allra
tækja okkar. Þannig getur þú á augabragði
greint MARANTZ frá öðrum tækjum, sem
ekki hafa náð sömu fullkomnun.
©
MERKI UNGA FÓLKSINS
I tilefni ferminganna bjóöum viö
System 1 á vildarlgörum, tilboð
okkar samanstendur af:
• Magnara 2x25W RMSeða 2x35
W DIN. Petta er hæfilegur
kraftur fyrir kröfuharða tón-
listarunnendur.
• útvarpsmóttakari: FM-Stereo
og MW bylgjur.
Allt þetta kr. 5.000.-
Stgr. kr.
#Segulbandstæki: Dolby, Metal,
Fluor mælar.
®Plötuspilari: Hálfsjálfvirkur,
léttarmur, vökvalifta.
#Skápur: Sá flottasti í bænum.
®Hátlarar: 2x60 Wött 3 way
tryggja hljómgæði sem eru
einstök.
út og rest á 6 mán.
23.730.-
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800