Morgunblaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR
108. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sprengdu
skarð í
gíg Etnu
í NÓTT tókst að sprengja nýja rás
fyrir hraunstrauminn, sem runnið
hefur án afláts niður hliðar Etnu, frá
því að eldgosið þar hófst í lok marz
sl. Mörg þorp í hlíðum fjallsins hafa
verið í sífelldri hættu.
Aðgerðirnar nú til þess að
breyta farvegi hraunstraumsins
eru sagðar einstakar í sinni röð.
Svíinn Eolf Lennhart Abersten,
sem stjórnað hefur þessum að-
gerðum, sagði í dag, að þær hefðu
borið fullkominn árangur miðað
við aðstæður. Aðrir sérfræðingar
töldu, að þær hefðu aðeins tekizt
að nokkru leyti og margir dagar
kunni að líða, unz unnt verði að
gera sér grein fyrir því, hver end-
anlegur árangur þeirra hafi orðið.
Sprengingin var gerð með 500
kg af sprengiefni og þegar hún
varð, reif hún þriggja metra breitt
og fimmtán metra langt skarð í
hamravegg þann, sem hindrað
hafði hraunrennslið. Áður en
þrjár mínútur voru liðnar, mátti
sjá hraunið byrja að streyma í
gegnum skarðið.
Der Spiegel:
Jaruzelski
auðgast vel
Hamborg, 14. m>í. AP.
LEYNISKJÖL, sem gætt hefur verið
árum saman sem „Bezt geymdu
leyndarmála Póllands", gefa til
kynna, að Vojciech Jaruzelski hers-
höfðingi og aðrir háttsettir embætt-
ismenn í Póllandi hafi notað aðstöðu
sína til þess að auðga sjálfa sig. Það
er vikuritið Kpiegcl í Hamborg, sem
skýrir frá þessu í nýjasta tölublaði
sínu.
Der Spiegel skýrir ekki frá því,
hvar og hvernig blaðið hafi komizt
yfir þessi skjöl heldur aðeins, að
það hafi gerzt fyrir skömmu. Sam-
kvæmt þessum skjölum á Jaruz-
elski að hafa komist yfir 350 fer-
metra einbýlishús í Varsjá í apríl
1979 fyrir aðeins þriðjung af verð-
mæti þess. Hafi hann greitt aðeins
373.052 zloty fyrir húsið, sem er
hið venjulega kaupverð fyrir eins
herbergis íbúð í Póllandi. Húsið
hafði hins vegar verið metið á
1.069.338 zloty.
Aflakóngar 1983
Heimaey VE varð aflahæst báta á vertíðinni, sem lýkur í dag. Síðasti róður Heimaeyjar var á fbstudag og nam heildaraflinn 1107
lestum. Skipstjóri er Hörður Jónsson.
Á myndinni eru, aftari röð frá vinstri: Sigurður Sveinsson, Grettir Guðmundsson, Atli Sverrisson, Guðfinnur Þorsteinsson, Einar
Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Birgir Jónsson, Magnús Guðmundsson, Hörður Jónsson, Hjörtur Jónsson, Þorkell Guðgeirsson og
Óttar Egilsson. Morgunblaöiö/Sigurgeir.
ísrael — Líbanon:
Egyptar stydja
samkomulagið
Beirut, Kairó, New York, 14. maí. AP.
LÍBANONSTJÓRN hafði verið boð-
uð til skyndifundar í dag til að ræða
viðbrögð Sýrlendinga við samkomu-
lagi Líbana og ísraela en Hafez
Assad, Sýrlandsforseti, hefur vísað
því algerlcga á bug. Hosni Mubarak,
Egyptalandsforseti, sagði f dag, að
það væri „óviðunandi" með öllu, að
eitthvert Arabarfkjanna kæmi í veg
fyrir brottflutning ísraelsks herliðs
frá Líbanon og hét fullum stuðningi
við samkomulagið.
Gemayel, Líbanonforseti,
hyggst leggja samkomulagið fyrir
þingið þótt sérstök „neyðarvöld",
sem þingið veitti honum, geri það
í raun óþarft. Vill Gemayel með
því sýna fram á, að samkomulagið
njóti víðtæks stuðnings meðal
þjóðarinnar. Shafik Wazzan, for
sætisráðherra, sagði í gær, að
nefnd manna yrði send til Sýr-
lands til að reyna að telja Assad,
Sýrlandsforseta, hughvarf en
hann hefur neitað að fallast á
samkomulagið.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, sagði á þingi í dag, að það
væri með öllu „óviðunandi" ef
eitthvert Arabaríki yrði til að
hindra brottflutning Israelshers
frá Líbanon. Hann nefndi ekki
Sýrland á nafn en ekki fór á milli
mála við hverja hann átti. Sagði
Mubarak, að samkomulagið sýndi
Sekur um and-
sovézkan áróöur
Moskvu, 14. maí. AP.
ALEXEI Smirnov, 32 ára gamal)
rússneskur verkfræðingur, var í
dag dæmdur í sex ára nauðung-
arvinnu í Moskvu fyrir þátttöku
sína í útgáfu rita, þar sem greint
var frá mannréttindabrotum f
Sovétríkjunum.
Var Smirnov fundinn sekur
um „slúður" og andsovézkan
áróður, en sjálfur kvaðst hann
vera saklaus af öllum glæp og
mótmælti dómnum og réttar-
höldunum yfir sér í heild. Vinir
Smirnovs halda því fram, að
hann hafi hvað eftir annað
sætt barsmíðum, á meðan
hann dvaldi í hinu illræmda
Lubyanka-fangelsi.
einlægan vilja Bandaríkjastjórnar
til að koma á friði í Miðaustur-
löndum og að Egyptar styddu það
af heilum hug. Egyptar hafa
margoft varað við því, að ef
brottflutningur erlends herliðs frá
Líbanon dregst úr hömlu geti það
í raun leitt til skiptingar landsins.
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær, að ef Sovétmenn eða
leppar þeirra í Sýrlandi hæfu
hernaðaraðgerðir í Miðaustur-
löndum yrði þeim mætt „af fullri
hörku" og þannig, að árásarmenn-
irnir hefðu engan hag af þeim
átökum. Sagði hann, að Sovét-
mönnum yrðu á „alvarleg og
hættuleg mistök" ef þeir héldu, að
þeir gætu fengið Bandaríkjamenn
til að bregðast skyldum sínum við
Israel með því að spilla friðinum í
Líbanon.
Ariel Sharon, fyrrum varnar-
málaráðherra ísraels, sagði í gær,
að ástandið í Lfbanon færi hríð-
versnandi, skæruliðar Palestínu-
manna flykktust til landsins og að
þess yrði ekki langt að bíða, að
ráðist yrði á alþjóðlega gæsluliðið
í landinu.
Noregun
Vilja semja
um Holberg
Ósló, 14. maí. Fri fréttaritara Mbl.
DANIR og Norðmenn hafa lengi
deilt um skáldið Ludvig Hol-
berg. Norömenn segja, að hann
sé norskur en Danir að hann sé
perudanskur. Nú eru loksins
horfur á að þjóðirnar semji sátt.
Á næsta ári verða 300 ár lið-
in frá fæðingu Holbergs og á
að minnast þess með frí-
merkjaútgáfu í báðum löndun-
um, Noregi og Danmörku. Til
að útkljá deilurnar um þjóð-
erni Holbergs heitins hafa
Norðmenn stungið upp á því
við frændur sína Dani, að þeir
standi sameiginlega að frí-
merkjaútgáfunni, en Danir
hafa enn sem komið er ekki
svarað þeirri málaleitan. Vefst
það helst fyrir þeim að sögn, að
ef þeir samþykkja, hafa 'þeir
þar með að nokkru játað
norskan uppruna Holbergs.