Morgunblaðið - 15.05.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Dómnefndin veltir vöngum. Frá vinstri: Hanna Frímannsdóttir, Ólafur Stephensen, Ásdís Eva Hannesdóttir, Brynja Nordquist, Henný Hermanns-
dóttir, Guðrún Möller, Fegurðardrottning íslands 1982 (hún á ekki sæti í nefndinni) og Ólafur Laufdal. Á myndina vantar Friðþjóf Helgason.
Kynning stúlknanna f úrslitum keppninnar um Fegurðardrottningu íslands:
Forsmekkurinn að sjálfu
krýningarkvöldinu gefinn
Frá tískusýningu á vegum Karnabejar. Sumarlfnan kynnL
Snjókoma og kuldi á Norðurlandi:
Sauðburður hafinn og hey
víða af skornum skammti
Það var mikið um dýrðir
og ekki laust við að fiðringur
færi um gesti, einkum karl-
peninginn, í veitingahúsinu
Broadway á fostudagskvöld
þegar stúlkurnar í úrslitum
samkeppninnar um Fegurð-
ardrottningu íslands voru
kynntar. Sjálf krýningin
verður ekki fyrr en nk. föstu-
dag, en forsmekkurinn var
gefinn í fyrrakvöld.
Jafnframt kynningunni á stúlk-
unum var efnt til skoðanakönnun-
ar á meðal fjölmargra gesta. Dóm-
TÍÐARFAR er nú með versta móti
norðanlands og veldur bændum erfið-
leikum um sauðburðinn og við önnur
störf. Vegna þessa ræddi Morgun-
blaðið við nokkra bændur þar um
slóðir og fara viðtölin hér á eftir:
Vonzkuhríð og jörð
á kafi í snjó
„Hér er vonzkuhríð og útlitið hjá
okkur óvenju dökkt. Jörð er á kafi í
snjó og sjálfsagt allt dautt þar und-
ir. Nú er sauðburður að byrja og
byrjaður, en heybirgðir eru mjög
litlar enda var lítil spretta síðasta
sumar. Við vonum bara, að úr þessu
rætist fljótlega og veður skáni,"
sagði Vigfús B. Jónsson, bóndi á
Laxamýri í Aðaldal.
Vetur kominn aftur
„Það er bara kominn vetur aftur.
Hér varð alhvítt af snjó í nótt og
enn snjóar. Jörð var annars orðin
nokkurn veginn auð, en vorið hefur
verið með kaldasta móti. Það er ekk-
ert annað en að bíða og sjá hver
framvindan verður. Menn eru nú
uppteknir við sauðburðinn, en hann
byrjaði um 10. maí. Ærnar bera all-
ar í húsum, en það verður þröng á
þingi þar, ef ekki verður hægt að
setja bornu ærnar út vegna veðurs,"
sagði séra Sigurvin Elíasson, prest-
ur á Skinnastað í Axarfirði.
Norðan belgingur
og næturfrost
„Veður hafa að undanförnu verið
rysjótt. Fyrir nokkrum dögum héldu
menn að vorið væri að koma, en í
dag er kaldasti dagurinn í langan
tíma. Þetta er norðan belgingur og
næturfrost og veður verður að fara
að skána ef sauðburður á að ganga
sæmilega. Það verður ljótt ástandið,
nefndin hefur úrslit hennar til
hliðsjónar þegar hún kveður upp
úrskurð sinn nk. föstudagskvöld.
Þá verður Fegurðardrottning ís-
lands krýnd með mikilli viðhöfn í
Broadway.
Stúlkurnar tfu, sem til úrslita
keppa, undirstrikuðu glöggt með
framkomu sinni á föstudag, að þar
fara verðugir fulltrúar íslands á
erlendri grundu. Komu þær tvíveg-
is fram, fyrst í baðfötum og þá á
síðkjólum.
Ein stúlknanna komst reyndar
ekki í tæka tíð fyrir fyrra atriðið,
þar sem hún var að leika í Fröken
Júlíu. Henni var hins vegar vel
fagnað eins og öllum hinum þegar
ef þetta verður þriðja kalda vorið I
röð,“ sagði Magnús Jósepsson á
Steinnesi, Austur-Húnavatnssýslu.
Hross enn á fullri gjöf
„Það er kalt hér nú, en úrkomu-
og sólarlaust. Sauðburður er byrjað-
ur og ég hef látið eitthvað af fénu út
í afgirt hólf, þar sem þvf er gefið.
Hross eru enn á fullri gjöf og man
ég ekki eftir svona gjafafrekum
vetri hjá þeim. Það eru yfirleitt til
næg hey hér, en nokkuð mun um það
að menn hafi miðlað sfn á milli. Þá
er það til tfðinda hér, að tveir menn
hafa legið úti á refaveiðum og hafa
þeir fengið alls 20 dýr, öll frá sama
kofanum, sem er rétt utan Forsælu-
dals, við Friðmundará. Þá er vax-
andi áhugi hér á loðdýrarækt og á
að draga úr sauðfjárræktinni. Þykir
mönnum hér einkennilegt að fyrir-
greiðsla vegna loðdýraræktunarinn-
ar skuli vera alveg f lágmarki, þegar
augljóst er að draga þarf úr kinda-
kjötsframleiðslunni," sagði Gfsli
Pálsson, bóndi á Hofi f Vatnsdal.
Sér ekki fyrir endann
á ótíðinni
„Horfurnar eru ekki góðar hér,
komin norðan hrið og farið að skafa.
Allt fé er f húsi og sauðburður f
hún kom fram á síðkjól síðar um
kvöldið.
En það voru ekki bara stúlkurn-
ar, sem glöddu augu gestanna á
þessari „generalprufu" fyrir sjálft
krýningarkvöldið. Boðið var upp á
skemmtilega tískusýningu undir
röggsamri stjórn Heiðars Jónsson-
ar, kynnis kvöldsins, og þá var sér-
stakt verk, „Tilbrigði við fegurð"
eftir Gunnar Þórðarson, frumflutt.
Það var hljómsveit Björgvins
Halldórssonar undir stjórn Gunn-
ars, sem flutti verkið við góðar
undirtektir áhorfenda. Auk þeirra
tveggja léku þeir Hjörtur Hows-
er/hljómborð, Pétur Hjalte-
sted/hljómborð, Haraldur Magn-
ússon/bassi, Rafn Jóns-
son/trommur og Björn Thorodd-
sen/gítar í sveitinni, auk þess sem
Jóhann Helgason söng með
Björgvin texta Egils Eðvarðssonar
við lagið.
Gestir í Broadway fengu einnig
að kynnast dómnefndinni, sem
kveður upp úrskurð sinn næsta
föstudagskvöld. Hún er skipuð sjö
manns, allt þekkt fólk á sínu sviði.
Konurnar eru fjórar, Brynja
Nordquist, Hanna Frímannsdóttir,
Henný Hermannsdóttir og Ásdfs
Eva Hannesdóttir. Karlarnir þrír
eru Ólafur Stephensen, Friðþjófur
Helgason og ólafur Laufdal.
Þótt vel hafi tekist til í fyrra-
kvöld var það í raun aðeins for-
smekkurinn að því er koma skal
við sjálfa krýninguna. Þá munu
þær Guðrún Möller, Fegurðar-
drottning íslands 1982, og Della
Dolan, Ungfrú Stóra-Bretland
1982, krýna hlutskörpustu stúlk-
una í úrslitakeppninni. Jafnframt
verða við það tækifæri krýndar
Fegurðardrottning Reykjavíkur,
Ljósmyndafyrirsæta ársins og
Vinsælasta stúlkan, en hana velja
stúlkurnar sjálfar úr eigin hópi.
- SSv.
þann mund að hefjast. Ljósi punkt-
urinn er þó sá, að fóðurbirgðir hafa
verið kannaðar og virðast þær næg-
ar. Maður sér þó ekki fyrir endann á
þessari ótíð, mikinn snjó setti niður
um páskana og hann situr enn eftir
í stórum sköflum og svo er hann
byrjaður aftur," sagði Benedikt Sig-
urðsson á Grímsstöðum á Fjöllum.
Vonum að úr rætist
„Hér er norðanstormur og kuldi,
en ekkert hefur snjóað hér inni f
sveitum. Jörð er orðin þokkalega
auð, en skaflar sitja eftir hér og þar,
sem ekkert væri, ef farið væri að
hlýna. Sauðburður er lítt hafinn, en
ég er hræddur um að fóðrið fari að
sneyðast upp hjá manni um mán-
aðamót, ef allt þarf að vera á gjöf til
þess tíma. Það var einhver að spá
því, að það færi að hlýna um þann
sautjánda, við vonum að úr rætist,"
sagði Þórarinn Jónasson í Hróars-
dal f Skagafirði.
Myndin er tekin á
bænum Vík í Fá-
skrúðsfirði. I'ar eru
nokkrar ær bornar, þó
svo að háannatíminn
við sauðburð hefjist
ekki fyrr en undir
na'stu helgi.
MorgunblartiA K.W.
it> m
1