Morgunblaðið - 15.05.1983, Page 3

Morgunblaðið - 15.05.1983, Page 3
3 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983 Stúlkurnar, sem taka þátt í úrsliukeppninni um titilinn Fegurðardrottning íslands 1983. Frá vinstri: Unnur Steinsson, Stella Skúladóttir, Steinunn Bcrgmann, Lilja Hrönn Hauksdóttir, Kristín Ingvadóttir, Katrín Hall, Inga Valsdóttir, Hulda Lárusdóttir, Elfn Sveinsdóttir og Anna María Pétursdóttir. MorgunbUai«/Frí«þjirur Helguon Sótt um 3 prestaköll af fimm NÝLEGA rann út umsóknarfrestur um fimm laus prestaköll. Var sótt um þrjú þeirra, Hólmavíkur-, Hríseyjar- og Mælifellsprestakall. Engar umsóknir bárust um Sauölauksdalsprestakall í Baröastrandarprófastsdæmi og Djúpa- vogsprestakall í Austfjaröaprófasts- dæmi. Um Hólmavíkurprestakall sótti Flóki Kristinsson cand. theol., en hann lauk guðfræðinámi frá Há- skóla Islands í janúar sl. Um Hris- eyjarprestakall sótti séra Sigurður Arngrímsson, sem þar þjónar sem settur prestur. Verður prestskosn- ing í prestakallinu 15. maí nk. Þá sótti séra Ólafur Þór Hallgrímsson, sóknarprestur í Bólstaðarhlíð í Húnavatnsprófastsdæmi um Mæli- fellsprestakall. Einnig var auglýst til umsóknar embætti farprests þjóðkirkjunnar, en því hefur séra Jón Ragnarsson, núverandi prestur í Bolungarvík, gegnt undanfarið. Tvær umsóknir bárust, frá séra Herði Þ. Ásbjörns- syni og séra Ingólfi Guðmundssyni. Hefur séra Ingólfi verið veitt emb- ættið frá 1. maí sl. Reiðhjól hvarf frá Sólheimum Á fostudagskvöldið hvarf svart og grátt hjól af Universal-gerð frá Sól- heimum 25. Hjólið er nýuppgert, sprautað og á nýjum dekkjum. Tapið er auðvitað tilfinnanlegt fyrir eigandann, 6 ára dreng, sem keypti hjólið fyrir afmælispen- ingana sina. Þeir sem vita um hjólið eru beðnir að skila því í Nökkvavog 30. Foreldrar eru sérstaklega beðnir að kanna hvort börn þeirra viti um hjólið. Heyleysi gæti orðið almennt „Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta. Horfur eru slæmar eins og er. Meirihluti túna og annar jarð- argróður er undir snjó enn þá og veðurfar er nánast eftir þvf. Norðan hvassviðri og hríðarhraglandi. Það, sem er þó kannski tilfinnanlegast hjá okkur um Svarfaðardalinn og eitthvað vestur fyrir okkur er, að við vorum ekki sérstaklega birgir af heyjum eftir sumarið í fyrra. Þá fengum við mjög þurrt vor svo áburður nýttist ekki og grasspretta var léleg. Því hefur bryddað á hey- leysi og ef heldur fram sem horfir verður það nánst almennt. Maður vonar að það leysist með því að kaupa hey einhvers staðar úr ná- grannabyggðunum, ef menn verða aflögufærir. Þetta er með meiri snjó á þessum tíma sumars, sem menn muna, og með leiðinlegri horfum. Við verðum bara að treysta á guð og lukkuna, að nú fari að skána," sagði Þorgils Gunnlaugsson, bóndi á Sökku 1 Svarfaðardal. Menn illa undir þetta búnir „Þetta er lakara útlit á margan hátt en lengi hefur verið. Það er þó kostur að lítill klaki er í jörð, en um páskana kom mikill snjór, sem enn er ekki farinn og þegar þetta bætist við er ekki von á góðu. Það er heylít- ið víða hér í sveit og því eru menn illa undir þetta búnir. Sauðburður er byrjaður og veldur það mönnum erfiðleikum að þurfa að hafa fé allt inni á gjöf. Þá veldur þetta tíðarfar því, að kartöflur verða settar niður seinna en venjulega," sagði Guð- mundur Þórisson, bóndi í Hléskóg- um í Grýtubakkahreppi. Sauðfé allt á gjöf „Það er nú hálf hryssingslegt nú, norðanátt og kalt en ekki snjókoma, en næturfrost. Á láglendi er mikið til að verða autt. Sauðburður er víða kominn langt og sauðfé allt á gjöf og það er erfitt. Það er upp og ofan hvað menn eiga af heyjum, en birgð- ir eru einhvers staðar orðnar litlar en aðrir hafa nóg. Flesta er farið að lengja eftir vorinu, það hefur verið kalt að undanförnu,“ sagði Ásdís Sigurjónsdóttir, á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. sólbaðsstrendur Suður-Evrópu í sömu ferð: 29. júní Algarve 11 dagar Costa del Sol 10 dagar 30. júní Costa del Sol 10 dagar Algarve 11 dagar Verö frá 16.300. miöaö viö dvöl á Timor Sol og Vila Magna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.