Morgunblaðið - 15.05.1983, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 15.05.1983, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAf 1983 Svona litu tískukjólarnir út fyrsta árið sem Parísartískan starfaði. Rúna hefur geymt þessa kjóla Rúna Guðmundsdóttir kynnir tískusýningu Parísartísk- í 20 ár (Ljósmyndir Kristján) unnar. „I>á braust bítlaæðið út og Parísartískan var opnuð“ r rið 1963 var stórmerkilegt ár í sögunni. Bítlaæðið braust Aút og Parísartískan var opnuð, sagði Rúna Guðmunds- dóttir, eigandi Parísartískunnar, í upphafi glæsilegrar tískusýningar í Þórskaffi í tilefni 20 ára afmælis verslunar- innar. Áhrif Bítlanna á heimsmúsíkina urðu mikil og áhrif Parísartískunnar á útlit íslenskra kvenna urðu heldur ekki óveruleg. f upphafi sýningarinnar, sem stóð viðstöðulaust í klukkutíma, bað Rúna þessar 300 konur sem voru gestir hennar í afmælisboð- inu, um að hverfa með sér 20 ár aftur í timann. Og fram gengu þrjár sýningarstúlkur í kjólum frá fyrsta árinu og með tilheyrandi greiðslu og skó. En Rúna hafði tekið frá og geymt þessa kjóla all- an þennan tíma. Varð mörgum að orði að eitthvað könnuðust þær aftur við tískulínurnar. Þetta voru tveir niðurþröngir kjólar úr blúndu og siffoni, annar með strútsfjöðrum, og síður alsilkikjóll með beinu pilsi og berum öxlum, borinn uppi af stórum barmi, eins og þá þótti nauðsynlegt. — Eg hefi verið svo gæfusöm í lífinu að geta stundað atvinnu, sem ég hefi haft óblandna ánægju af, eignast stóran og sérstaklega skemmtilegan hóp viðskiptavina og vina, sagði Rúna. Já, ég segi vina, því að við vitum öll að fyrir utan góða heilsu er ekkert dýr- mætara í lífinu en góð vinátta. Og án ykkar hefði verslunin aldrei orðið eins árs hvað þá tuttugu ára. En Rúna hafði einmitt boðið 300 viðskiptavinum sínum til að sam- gleðjast sér og samstarfsfólki sínu með kampavíni og góðgæti niðri í Þórskaffi. Og á eftir var fólki boð- ið að gjöra svo vel og ganga upp á loft, þar sem var komið fyrir stól- um og sýningu þannig hagað að hver maður gat séð og hafði ávallt einhverja tískuflík á að horfa þennan klukkutíma þar til sýn- ingu lauk með glæsilegri stúlku í hvítum brúðarkjól með slör og slóða. En áður höfðu komið fram stúlkur í „beige" brúðarkjólum. — Áður fyrr var tískan aðeins fyrir fáa og útvalda, sagði Rúna. — En í dag er tískan fyrir alla. Það er orð að sönnu. Að minnsta kosti var fjölbreytni geysimikil í fatnaðinum á sýningunni — og hattar, sem svo mikið voru í tísku þegar verslunin opnaði, komnir í tísku aftur með kjólum og drögt- um. Þarna var sýndur fatnaður frá þeim aðilum, sem Parísartísk- an hefur haft á boðstólum. Þarna voru hinar klassísku Mansfield- dragtir, -kjólar og -blússur. En sem kunnugt er hefur Thatcher forsætisráðherra Breta unnið sína stærstu sigra í Mansfield-dragt. — Að vísu get ég ekki selt með þeim hennar stórkostlega járn- vilja, sagði Rúna, en þær standa fyrir sínu samt. Þarna gaf að líta dragtir, silki- kjóla, silkiblússur og silkiklúta frá stóru tískuhúsi í París, Louis Fer- aud, sem Parísartískan hefur einkaumboð fyrir, en ein af aðal- tískuteiknurunum þar er íslensk, Helga Björnsson, sem m.a. teikn- aði búningana í Silkitrommunni í Þjóðleikhúsinu. Einnig voru þarna kvöldkjólar úr alsilki frá Janice Wainwright og alsilkikjólar frá ameríska fyrirtækinu Mulqueen. Að ógleymdum Fink-kjólunum, en Fink hlaut 1. verðlaun fyrir bestu fataframleiðslu í Evrópu 1981. Sportfatnaður úr ull, silki og bóm- ull og mjög litríkur var frá Escada í Þýskalandi. En stuttir og síðir kvöldkjólar frá Frank Usher, sem Parísartískan hefur ávallt haft þessi 20 ár. Þess má geta að þegar stórskipið Queen Elizabeth fór á sinum tíma til New York til að kynna breskan iðnað í Vestur- heimi, þá var Frank Usher feng- inn til að halda uppi merki breska tískuiðnaðarins. En brúðarkjól- arnir voru frá saumastofu París- artískunnar sjálfrar og brúðar- vendir frá Blómum og ávöxtum. Þennan fatnað sýndu sýn- ingarstúlkur frá Model 79 með glæsibrag, greiddar af Dúdda og Matta og snyrtar í Sól og snyrting. Lögð hafði verið áhersla á að gera staðinn og sýninguna notalega með blómum og jafnvel lauf- skrýddar trjágreinar frá Blóma- vali heilsuðu gestum við inngang- inn, og ljúfur píanóleikur Carls Billichs innan dyra. — E.Pá. raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar húsnæöi óskast Óskast til leigu Höfum verið beðnir að útvega 3ja herb. íbúð til leigu á Reykjavíkursvæöinu. Upplýsingar á skrifstofunni. Húsafell 4 FAS i cKSNASAlA Lanyholtsveg, 115 A&alsteinn Pétursson (Bætarieiöahusinu) simi 81066 Bergur Guónason hdl Skrifstofuhúsnæði óskast til leigu fyrir stofnun í Reykjavík. Hús- næðið þarf að vera um 350—400 fermetrar. — Sá sem hefur slíkt á boðstólum láti vita með orðsendingu til blaösins merkt: „Skrif- stofuhúsnæöi — 8758“. Áríðandi Þörfnumst strax eöa fljótlega húsnæöi til leigu í Kópavogi, Hafnarfiröi eða annars staöar á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Æski- legast einbýli eða raöhús, en hvað sem er kemur til greina. Mjög góöri umgengni er heitið. Upplýsingar í síma 51395. Húsnæði óskast Hjón frá Akureyri óska eftir 2ja—3ja herb. íbúö. Skilvísar greiðslur og reglusemi. Uppl. í síma 91-32147. húsnæöi i boöi —...... i ——— Til leigu á Seltjarnarnesi sórhæð, 180 fm. 4 svefn- herbergi, mjög stór stofa, tvöfaldur bílskúr. Leigist til lengri tíma. Ekki fyrirframgreiösla en skilyrði góð umgengni og skilvísar greiösl- ur. Tilboð merkt: „Nes — 8510“ sendist fyrir 18. maí til Morgunblaðsins. Verslunarhúsnæði — Útsölur Til leigu verslunarhúsnæði fyrir útsölur eða markaöi. Stærð ca. 40 fm + gott lagerpláss. Staösetning: Einn besti staður viö Laugaveg- inn. Leigutími: Einn, tveir til þrír mánuöir í senn. Þeir sem hafa áhuga, leggi nafn og símanúm- er inn á augld. Mbl. merkt: „Gott tækifæri — 8511“. Til leigu í Hamarshúsi við Tryggvagötu ca. 195 fm skrifstofuhæð. Upplýsingar hjá skrifstofustjóra í síma 22123. Til sölu Vélbáturinn Árni í Görðum VE 73 er til sölu. Báturinn er 103 rl. að stærð, byggöur úr stáli hjá skipasmíöastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi árið 1971. Báturinn er meö 500 ha Alfa diesel-vél auk tveggja hjálparvéla, Bukh 50 ha hvor vél. Hann er búinn öllum helstu siglingar- og fiskileitartækjum. Fiskilest er kæld og frystigeymsla er fyrir 80 bjóö af línu. Upplýsingar um söluverö, greiðsluskilmála o.þ.h. gefa Jónas Haraldsson hjá LÍÚ, sími 29500 og Jón Hjaltason hrl. í sima 98-1847 og 13945 í Reykjavík. Bátar og skip 230 tonn, yfirbyggður, 160 — 150 — 100 — 30 — 26 — 21 — 18 — 11 — 10 — 9 — 8 — 7 tonn. Einnig úrval af minni trillum. Skemmtibátar, ganghraði 20 mílur. Fasteignamiöstööin, Hátúni 2, sími 14120.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.