Morgunblaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Hvernig komast menn
í herrastéttina?
— eftir Birgi ísl.
Gunnarsson
Hvernig komast menn í herra-
stéttina í Sovétríkjunum?
Michael Voslensky lýsir því f bók
sinni, NOMENKLATURA. Leið-
irnar eru reyndar margar. Ivan
Ivanovitsj, sem er metorðagjarn
ungur maður verður að setja sér
þá meginreglu, ef hann ætlar sér
að ná upp í kerfinu, að allt er
rétt, sem skapar honum mögu-
leika til metorða. Ef hann er
ekki svo heppinn að ganga í
hjónaband með dóttur einhvers
flokksleiðtoga (eins og t.d.
Adzjubej, tengdasonur Krút-
sjéffs, sem varð ritstjóri Izvest-
ija), þá verður hann að byrja
neðanfrá.
Að ganga í flokkinn
Ivan Ivanovitsj byrjar á því að
ganga f flokkinn. Það er algjör
forsenda þess að komast áfram í
þjóðfélaginu. Félagi Ivanovitsj
byrjar lengst niðri í flokkskerf-
inu. Hann vekur fyrst athygli
sem góður áróðursmaður f sínu
héraði, síðan verður hann for-
ingi í hópi áróðursmanna, og þar
á eftir er hann gerður að trúnað-
armanni á vinnustað, hann er
valinn í stjórn flokksfélagsins,
sem er á vinnustað hans (flokks-
nefndarinnar) og að lokum er
hann valinn sem vararitari f
flokksfélaginu. í þessu klifri
uppávið í lægstu þrepum
flokkskerfisins er Ivan
Ivanovitsj sléttur og felldur,
hógvær, traustvekjandi og
vinnusamur.
Frammi fyrir félögum sínum í
flokksdeildinni reynir hann að
sýnast fastur á sfnum megin-
skoðunum, en jafnframt lftillát-
ur og samvinnufús. En gagnvart
félögum sínum á vinnustaðnum
reynir hann að dylja fyrirætlan-
ir sínar. Nú fer Ivan að lfta f
kringum sig eftir næsta stökk-
bretti. Hann velur sér kunningja
með tilliti til þess og veit að ein
besta leiðin er að verða ritari í
einhverri af grundvallareining-
um flokksins. En til að komast í
slíka stöðu verður hann að fá
„meðmæli" stofnunar, sem
stendur hærra i flokkskerfinu, f
þessu tilviki frá flokksfélaginu f
héraðinu. í slíkri stöðu er hann
kominn inn í gættina á „NOM-
ENKLATURA".
Endurtryggingin
Vandamálið við slíka ritara-
stöðu er það, að kosið er f hana á
hverju ári. Ivan verður því að
standa sig, þvf að ef hann er ekki
endurkosinn, hefur dyrunum
verið skellt á nef hans. Hann
verður umfram allt að koma sér
vel við þá, sem hærra standa og
ráða í raun hvort hann verður
endurvalinn eða ekki og hvort
hann síðan færi hærri stöðu.
Ivan beinir kröftum sínum sér-
staklega að Petrov, sem er í
þeirri stöðu að geta komið með
tillögur á þeim vettvangi, þar
sem hærri stöðum er úthlutað.
Ivan verður því að smjaðra fyrir
Petrov, snúast í kringum hann
og sannfæra hann um
trúmennsku sína.
Að því kemur, að Petrov sér
ástæðu til að mæla með Ivan
sem forstöðumanni í einhverri
deildinni. Sú staða tilheyrir
NOMENKLATURA og nú þarf
Ivan að fara í gegnum hreinsun-
areld. Skjöl um persónu hans eru
send til aðalstöðva flokksins f
héraðinu. Fyrirspurnir eru send-
ar um Ivan út um allt. Vinnufé-
lagar eru spurðir, verkalýðsfé-
lagið, flokksfélagið, sem hann
hefur verið í. KGB fær einnig
fyrirspurnir um Ivan. Hvernig
er hann? Er hann trúverðugur?
Drekkur hann? Hefur hann lent
í kvennamálum? Munnleg og
skrifleg svör streyma inn. Til-
gangurinn með þessum þætti
málsins er athyglisverður. Ef
ske kynni að Ivan stæði sig ekki,
er nauðsynlegt að dreifa ábyrgð-
inni af vali hans á sem flestar
hendur. Þessi undirbúningur
fylgir sömu meginreglu og
tryggingarfélögin fylgja, þegar
þau reyna að minnka ábyrgð
sína með endurtryggingum.
Þetta orð endurtrygging hefur
meira að segja fengið sess f orða-
safni NOMENKLATURA.
250 þúsund manns
Nú er komið að ákvörðuninni.
Það fer að sjálfsögðu eftir þvf,
hve staðan er há, hverjir ákvörð-
un taka. Er þetta staða fyrir eitt
hérað — eða fyrir eitthvert Sov-
étlýðveldanna — eða á vegum
miðstjórnarinnar í Moskvu? En
alltaf er það einhver nefnd eða
stjórn, sem ákvörðun tekur — og
ákvörðunin er í því formi, að við-
komandi nefnd eða stjórn „mæl-
ir með“ Ivan Ivanovitsj í stöð-
una. Forstöðumaður stofnunar-
innar undirritar sjálfa ákvörðun
um ráðningu. 1 þeirri ákvörðun
er hvergi vfsað til ákvörðunar
flokksnefndarinnar (eða -stjórn-
arinnar) um „meðmælin". Þau
eru læst inni í skáp hjá forstöðu-
manninum.
Ivan Ivanovitsj hefur nú rutt
burt þeim hindrunum sem staðið
hafa í vegi fyrir því að hann geti
notið framtíðarinnar í náðar-
faðmi NOMENKLATURA. Að
sögn Voslenskys endurtekur
„Voslensky telur, að
hin pólitíska herrastétt
telji um 250.000
manns. Þar af séu
starfandi í lægri stöð-
um í hinum ýmsu hér-
uðum um 150.000
manns, en í hærri stöð-
um á vegum ríkisins,
flokksins, KGB og í
utanríkisþjónustunni
um 100.000 manns.“
þessi saga sig með ýmsum til-
brigðum daglega í Sovétríkjun-
um á hinum ýmsu stigum kerfis-
ins — allt frá einangruðum hér-
uðum til miðstjórnarinnar í
Moskvu.
Voslensky telur, að hin pólit-
íska herrastétt telji um 250.000
manns. Þar af séu starfandi í
lægri stöðum í hinum ýmsu hér-
uðum um 150.000 manns, en í
hærri stöðum á vegum rfkisins,
flokksins, KGB og f utanrfkis-
þjónustunni um 100.000 manns.
Þessi hópur, sem hefur tögl og
hagldir í allri stjórnun og ræður
lífi fólksins, er um einn þúsund-
asti hluti íbúanna. Fólkið sjálft
velur ekki þessa menn og getur
því síður sett þá af.
Þessir menn eru þó iðnir við
að skreyta sig með titlum eins og
„vinir verkalýðsins", „fulltrúar
öreiganna" og allt eru þetta „al-
þýðubandalög", sem í áróðrinum
eru talin bera ábyrgðina.
Breytingar í utanríkisþjónustunni
ÁKVEÐNAR hafa verið eftirtaldar
tilfærslur i embættisraönnum I
utanríkisþjónustunni i sumri kom-
anda:
Þorleifur Thorlacius, sendi-
fulltrúi f Kaupmannahöfn, tekur
við starfi prótokollstjóra í utan-
ríkisráðuneytinu.
Birgir Möller, sendifulltrúi, tek-
ur við starfi við sendiráð Islands í
Kaupmannahöfn.
Helgi Ágústsson, sendifulltrúi,
tekur við starfi við sendiráðið í
Washington.
Sverrir H. Gunnlaugsson, sendi-
fulltrúi í Washington, tekur við
starfi deildarstjóra varnarmála-
deildar utanrfkisráðuneytisins.
Sveinn Björnsson, sendiráðu-
nautur, tekur við starfi við sendi-
ráðið í London.
Halla Bergs, sendiráðunautur f
London, tekur við starfi í utanrík-
isráðuneytinu.
Pétur Gunnar Thorsteinsson,
sendiráðsritari, tekur við starfi
við fastanefnd íslands í New York.
Innan ráðuneytisins verða þær
breytingar að Tómas Karlsson,
sendifulltrúi, sem veitt hefur upp-
lýsinga- og menntadeild forstöðu,
tekur við starfi í alþjóðadeild
ráðuneytisins en Sigríður Snæv-
arr, sendiráðsritari, tekur við for-
stöðu upplýsinga- og menntadeild-
ar. Þá hefur Benedikt Jónsson,
MA, verið ráðinn sendiráðsritari
og hafið störf í ráðuneytinu.
Hollenzkt hraö-
sendingarfyrirtæki
hyggst setja á stofn
skrifstofu hér
HOLLENZKA fyrirtækið DHL Int-
ernational auglýsti sl. sunnudag eftir
stöðvarstjóra fyrir fyrirtækið á ís-
landi, en fyrirtækið hyggst setja á
laggirnar skrifstofu hér á landi.
I auglýsingunni segir, að DHL
sé sú hraðboðaþjónusta í lofti, sem
sé á hvað mestri uppleið í heimin-
um í dag. „Síðan fyrirtækið hóf
göngu sína fyrir 13 árum höfum
við komið upp 400 skrifstofum í
öllum helztu borgum heimsins
með 7.000 manna starfsliði, og við
færum stöðugt út kvíarnar," segir
ennfremur í auglýsingunni.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að sjá
um vörusendingar, sem þurfa að
berast milli aðila á sérstaklega
snaggaralegan hátt, en slikt getur
á stundum verið örðugleikum háð.
Leiðrétting
í UMFJÖLLUN um Efnahags-
bandalag Evrópu í Mbl. í gær
kemur fram að ferð, sem farin var
til höfuðstöðva EFTA og EBE sl.
haust á vegum Viðskipta og verzl-
unar hafi verið önnur ferðin sem
farin hefði verið á vegum samtak-
anna til þessara staða. Þetta er
ekki rétt, því fyrri ferðin og
reyndar fyrsta hópferðin sem far-
in hefur verið til höfuðstöðva
EFTA í Genf og EBE í Brússel var
farin á vegum Félags íslenzkra
iðnrekenda.
SUMARHUSASYNING
LAUGARVATNI
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
14. - 15. MAÍ
mm
ýy-vx
wm
■mm
spí:;:
'i'x'x'x'!
IvXvlv!
moHebœk hus ^ ELŒMSKÁLINN
GRENSASVEGUR 12, 108 REYKJAVIK,
||Í^®^pÍÍ:ÍÍÍÍ^||Í^||ÍIÍ|||Í|ÍÍÍÍ SÍMAR 91 39520 & 91 39270
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!