Morgunblaðið - 15.05.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
35
ísafjörður:
Litli leikklúbburinn
sýnir „Fjölskylduna
HINN 12. maí frumsýndi Litli
leikklúbburinn á ísafirði vorstykki
sitt „Fjölskylduna“ eftir Claes And-
ersson í þýðingu Heimis Pálssonar.
Er leikritið 39. verkefni klúbbsins.
í haust frumflutti Litli leik-
klúbburinn grínleikinn „Hjálpar-
sveitina" eftir ungan, ísfirskan
höfund, Jón Steinar Ragnarsson.
Jón Steinar hefur starfað með
Litla leikklúbbnum um nokkurra
ára skeið, en leikrit þetta var
frumraun hans i leikritasmíð.
Leikritinu var prýðilega vel tekið
og urðu sýningar alls nfu.
Siðastliðnar vikur hafa staðið
yfir æfingar á vorstykki Litla
leikklúbbsins, sem verður að þessu
sinni „Fjölskyldan" eftir sænsk-
finnska leikritaskáldið Claes And-
ersson. 1 þessu verki eru þau
vandamál, sem skapast við
ofdrykkju heimilisföður, sýnd í
nýju ljósi og kemur fram, að
vandamál heimilisins eru ekki úr
sögunni, þótt faðirinn hætti
áfengisneyslu sinni. Móðirin á
heimilinu, sem búið hefur við of-
drykkju eiginmanns sins i fjölda
ára, missir tilganginn í lífinu, þeg-
ar eiginmaðurinn hættir snögg-
lega vindrykkju sinni og tekst ekki
að brúa það tómarúm, sem skap-
ast í tilverunni við það. Los kemst
á börnin, sem höfðu haft því hlut-
verki að gegna að verja heimilið út
á við og hylma yfir drykkju föður-
ins. Heimilið er i upplausn, því
Úr leikritinu.
ofdrykkju föðurins, sem samein-
aði fjölskylduna og styrkti, er ekki
lengur til að dreifa. Slíkt ástand
endar aðeins á einn veg, sem ekki
verður rakið hér.
Leikstjóri að þessu sinni er
Tomas Ahrens, en leikarar eru
sex, þeir Guðni Ásmundsson, Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, Reynir
Sigurðsson, Herdís Jónsdóttir,
Ásta María Benonýsdóttir og Páll
F. Hólm. Æft hefur verið í Seli
Litla leikklúbbsins, en sýningar
verða í Félagsheimilinu í Hnífs-
dal. (Frétutilkynning)
Edinborgarferö
meö KristniHalLssyni
á vegum Yaröar
Einnar viku lúxusferö - 8. iúní
fcr. 7.900
Fariö meö ms. Eddu frá Reykjavík á miðvikudagskvöldi. Lífsins notið um borð.
Komið til Newcastle á laugardagsmorgni kl. 10.
Þar fær hópurinn rútur til umráða. Ekið til Eldon Square Center, einhverrar stærstu
verslanamiðstöðvar Evrópu. 300 verslanir undir sama þaki, þ.á.m. allar stóru
verslanakeðjurnar.
Komið til Royal Scot Hotel í Edinborg kl. 18.30. Hótelið er í lúxusflokki. öll herbergi
með baði, litsjónvarpi og minibar. Þess utan eru sundlaug og sauna í hótelinu auk
fjölda bara og veitingasala. Kvöldverður á Royal Scot er innifalinn, síðan er kvöldið
frítt til eigin ráðstöfunar.
Morgunverður innifalinn á Royal Scot, sömuleiðis ferð til Edinborgarkastala. Annars
er morguninn frjáls til skoðunarferða um þessa frægu og fögru þorg.
Brottför frá Edinborg kl. 14.30. Ekið um þjóðgarðinn í Northumberland og Cheviot
hæðir, rómað landsvæði fyrir náttúrufegurð og komið til Newcastle kl. 18.30.
Dvalið á Holliday Inn Hotel. Kvöldverður innifalinn, sem og morgunverður á
mánudagsmorgni. Kvöldið frítt til eigin ráðstöfunar.
Holliday Inn Hotel í Newcastle er hreinræktað lúxushótel. öll herbergi eru með baði,
litsjónvarþi, minibar og úrvali kvikmynda á lokuðu sjónvarpskerfi.
Á mánudagsmorgni eru rúturnar að nýju við hóteldyrnar kl. 10 og flytja þátttakendur
um borð í ms. Eddu þar sem þeir hreiðra um sig aftur í notalegum káetum skipsins.
Ms. Eddu þarf e.t.v. ekki að kynna nánar. Flestir vita að um borð er sundlaug,
sauna, fríhöfn, verslanir, kvikmyndasalur, banka- og símaþjónusta, veitingabúð,
veitingahús, 6 barir, krá, danssalur þar sem hljómsveit skipsins leikur, diskótek og
næturklúbbur. Einnig er læknir um borð og íslensk fóstra sem gætir barna í sérstakri
barnagæslu.
Fararstjóri og upplyftingarmeistari verður Kristinn Hallsson, undirleikari
Guðni Guðmundsson
Ferðin verður kynnt á ferðakynningu í Valhöll, Háaleitisbraut 1, n.k. fimmtudag
kl. 20.30.
Pantanir í þessa einstæðu ferð þurfa að berast sem allra fyrst.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Varðar í síma 82963 og hjá Farskipi hf. í síma
25166.
Góðir greiðsluskilmálar
IAXDSMÁIAFÉIAGIÐ
VÖRIKJR
AVftXTUNSf^
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Ávöxtun sf. annast kaup og sölu veröbréfa, fjárvörslu,
fjármálaráögjöf og ávöxtunarþjónustu.
GENGI VERÐBRÉFA
16. maí 1983
Óverðtryggð
veðskuldabréf
18% 20% 47%
1. ár 61,3 62,3 76,3
2. ár 50,6 51,9 69,3
3. ár 43,1 44,6 64,2
4. ár 37,8 39,4 60,4
5. ár 33,9 35,6 57,4
Verðtryggð
veðskuldabréf
Nafn- Ávöxtun
Sölugengi m. v. vaxtir umfram
2% afb. á ári (MLV) verðtr.
1. ár 96,48 2% 7%
2. ár 94,26 2% 7%
3. ár 92,94 2,’/j% 7%
4. ár 91,13 2,%% 7%
5. ár 90,58 3% 7%
6. ár 88,48 3% 7,%%
7. ár 87,00 3% 7,%%
8. ár 84,83 3% 7,V4%
9. ár 83,41 3% 7,V4%
10. ár 80,36 3% 8%
15. ár 74,03 3% 8%
Verðtryggð
Spariskírteini Ríkissjóðs
1970 2 13.348 Endurgr./ 05.02.84
1971 1 11.484 15.09.85
1972 1 11.015 25.01.86
1972 2 8.675 15.09.86
1973 1A 6.698 15.09.87
1973 1B 6.458 25.01.88
1973 2 6.765 15.09.88
1974 1 4.271 10.01.93
1975 1 3.393 25.01.94
1975 2 2.497 10.03.94
1976 1 2.191 25.01.82
1976 2 1.777 25.03.82
1977 1 1.488 10.09.82
1977 2 1.268 25.03.83
1978 1 1.009 10.09.83
1978 2 810 25.02.84
1979 1 702 15.09.99
1979 2 523 15.04.85
1980 1 437 25.10.85
1980 2 330 25.01.86
1981 1 284 15.10.86
1981 2 215 01.03.85
1982 1 200 01.10.85
1982 2 150
1983 1 116
Öll kaup og sala veröbréfa miöast viö daglegan
gengisútreikning.
Framboö og eftirspurn hefur áhrif á verö bréfanna.
Vegna mikilla anna verður opið í hádeginu þessa viku.
ÁVftXTUNSfW
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
LAUGAVEGUR 97 101 REYKJAVÍK SÍMI28815
Opiö frá 10—17