Morgunblaðið - 15.05.1983, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 15.05.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983 39 Stýrimannafélag íslands: Álvarlegur fjárskortur hrjáir Siglingamálastofnun MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var á aðalfundi Stýrimannafélags fs- lands 7. maí síðastliðinn: Aðalfundur Stýrimannafélags íslands haldinn 7. maí 1983 leyfir sér að vekja athygli alþjóðar á að ein mikilvægasta stofnun sjávar- útvegs og siglinga, Siglingamála- stofnun ríkisins, býr nú við svo alvarlegan fjárskort að ekki verð- ur við unað til frambúðar og hlýt- ur að leiða til þess að stofnunin geti ekki valdið sínu hlutverki. Þá verður ekki komist hjá að átelja það tómlæti sem virðist ríkjandi hjá stjórnvöldum og birt- ist m.a. í því að fjöldi alþjóðasam- þykkta, sem ætlað er að auka ör- yggi sjófarenda fæst ekki fullgilt- ur af íslands hálfu og Siglinga- málastofnuninni er synjað um fjárveitingar til þýðinga og ann- ars nauðsynlegs undirbúnings gildistöku. Glöggt dæmi um sofandahátt stjórnvalda í þessum efnum er að hinn 1. júní nk. taka gildi breyt- ingar á alþjóðareglum til að koma í veg fyrir árekstra á sjó (alþjóða- siglingareglur) án þess að Island hafi enn fullgilt þær og skip- stjórnarmönnum hafa enn ekki verið kynntar þessar breytingar. Ennfremur er rétt að koma á framfæri að íslensk skip hafa ver- ið stöðvuð erlendis og má búast við því í auknum mæli, þar sem ísland hefur ekki enn fullgilt al- þjóðareglur um öryggi mannslífa á hafinu frá 1974 (Solas ’74) og verður Siglingamálastofnun því að gefa út skipsskjöl samkv. regl- um frá 1960 (Solas ’60). Sem afleiðing af fjárskortinum hefur m.a. lagst af að Island taki virkan þátt í alþjóðasamstarfi um hin ýmsu siglingamálefni. Þá hef- ur samstarf við hinar norður- landaþjóðirnar rofnað að mestu. Hér að framan hefur aðeins ver- ið drepið á einn þátt í starfi Sigl- ingamálastofnunarinnar sem að öllu jöfnu er ekki gefinn mikill gaumur, þ.e. hinu alþjóðlega sam- starfi. Að framansögðu gerir fundur- inn þá kröfu til fjárveitingavalds- ins og þeirra stjórnvalda sem fara með yfirstjórn þessara mála að Siglingamálastofnun ríkisins verði tryggt það fé sem hún telur sig þurfa til eðlilegs reksturs. Skagafjörður: Þrjú heiðurs- samsæti í Skagafirði Mælifelli, 6. maí. FYRIR nokkru efndi kirkjukór Víði- mýrarsóknar til matarboðs, þar sem heiðursgestunum, síra Gunnari Gíslasyni, fv. prófasti í Glaumbæ, og frú Ragnheiði Ólafsdóttur, konu hans, og Birni Ólafssyni, organista á Krithóli, og Helgu Friðriksdóttur konu hans, votu færðir að gjöf hag- lega gerðir borðlampar úr birki með mynd Víðimýrarkirkju fagurlega skorna á aðra hlið, en nöfn þiggj- enda á hina. Síra Gunnar þjónaði Víðimýrarsókn í 39 ár og Björn á Krithóli var organisti kirkjunnar fast að 60 árum. Þá voru prófastshjónin heiðruð með samsæti í Miðgarði hinn 1. maí og stóðu allir söfnuðir Glaumbæjarprestakalls að að því boði og færðu þeim málverk af Tindastóli eftir Elías B. Hall- dórsson á Sauðárkróki. Við það tækifæri var hjónunum á Krithóli einnig fært málverk, Hólamynd eftir Jósef Björnsson, frá Víði- mýrarsöfnuði, en þau voru einnig heiðursgestir í samsætinu. Fjöl- menni var og margar ræður flutt- ar og þakkir fram bornar fyrir langa og góða þjónustu. Veizlunni stjórnaði Páll Dagbjartsson, skólastjóri í Varmahlíð. Hinn 3. maí héldu allir 4 söfnuð- ir Mælifellsprestakalls síra Ágústi Sigurðssyni og Guðrúnu L. Ás- geirsdóttur, konu hans, kveðju- samsæti í Árgarði, en síra Ágúst hefur þegar tekið við starfi sendi- ráðsprests í Kaupmannahöfn og flyzt nú þangað með fjölskyldu sinni. Var prestshjónunum og börnum þeirra gefið glæsilegt áletrað silfurfat í þakkarskyni fyrir árin 11 á Mælifelli frá sóknarbörnum, og kirkjukór Mælifellsprestakalls færði þeim stóra blómakörfu. Á annað hundr- að manns sóttu hófið og voru margar kveðjuræður fluttar og Ijóðamál. Sérstaklega má geta þess, að frumflutt var lag og ljóð, sem Pétur Pálmason á Reykjavöll- um hafði fengið samið fyrir þetta tækifæri. Sungu þeir lagið Pétur og Jón Gíslason í Miðhúsum við undirleik Gróu Hreinsdóttur og vakti lagið, sem er eftir Magnús Pétursson tónskáld, verðuga at- hygli. Ljóðið samdi Jóhann Guð- mundsson í Stapa af sinni kunnu snilld og var hann einnig veizlu- stjóri í Argarði þetta kvöld. G.L. Ásg. Ljósm. G.Berg. Dimission á Akureyri Aknrejri, 11. mai. *’ HELDUR viðraði leiðinlega fyrir hressa og káta nemendur Menntaskólans á Akureyri í dag, þegar þeir fögnuðu síðasta kennsludegi skólaársins. En þeir létu það ekki á sig fá og héldu þeim sið að heimsækja alla kennara sína, klæddir hinum skrautlegustu flíkum, syngjandi og trallandi og báru fram hinar sjálfsögð- ustu og eðlilegustu kröfur. — Eða þannig. a— .nnvrrírFBS Gegnheilt (massíft) gólfparket. — Vönduð vara, þykkt: 22 mm. og 12 mm. Full lakkað og tilbúið til lagningar. Aratuga ending sannargæðin. Auðvellt í lagningu, auðvellt í þrifum. EGILL ÁRNASON H.F. HÚSASMIÐJAN HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.