Morgunblaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1983
Biblíulestur
vikuna 15.—21. maí
Sunnud. 15. maí: Jóh. 15:26—16:4.
a) Hvert er hlutverk Heilags anda samkvæmt þess-
um orðum Jesú?
b) V.27 er til allra þeirra, sem þekkja Jesúm og trúa
á hann. Hvar er þér ætlað að vitna um hann?
c) V.2 hefur komið fram á mörgum stöðum á öllum
öldum. íhugum það.
Mánud. 16. maí: Róm. 7:1—13.
a) V.6: Hver er munurinn á að þjóna í fymsku
bókstafs eða nýjung anda?
b) V.12: Á hvern hátt á þetta við? Hver er tilgangur
lögmálsins?
Þriðjud. 17. maí: Róm. 7.14—25.
a) V.18: Við hvað á Páll?
b) V.19 lýsir þeirri spennu að vera kristinn maður f
föllnum heimi. Hið sama kemur fram í v.22—23.
Miðvikud. 18. maí: Róm. 8.1—11.
a) V.l—2 fela í sér kjarna fagnaðarerindisins. íhug-
aðu þau!
b) V.3. Hvað gerði Kristur til þess að koma þessu
svo fyrir?
c) V.10—11: Er þetta svo í lífi okkar?
Fimmtud. 19. maí: Róm. 8:12—17.
a) V.13: Viljum við taka upp þessa baráttu við synd-
ina?
b) V.14—16: Ihugaðu forréttindi og skyldur þess að
vera barn Guðs, eiga aðgang að honum sem föður.
c) .V.17: Hvað munum við erfa með Kristi?
Föstud. 20. maí: Róm. 8:18—30.
a) V.24—25: Ihugaðu þetta með vonina. Hver er
hún? Til hvers leiðir hún?
b) V.26: Lýsing á því, hvernig Heilagur andi er með
okkur í reynd. Guð veit, hvers við þörfnumst. Til
hvers biðjum við þá?
c) V.28: Hvað er átt við í þessu versi? Á það við um
þig?
Laugard. 21. maí: Róm. 8:31—39.
a) V.31—32: fhugaðu, hversu stórkostlegur kærleik-
ur Guðs til manna er.
b) .V.35—39: Þakkaðu Guði fyrir, að ekkert getur
slitið þig frá kærleika Krists — viljir þú þiggja
hann.
Norrænt
sunnudagaskólamót
Dagana 27. júní—2. júlí nk. verður
haldið í Reykjavík norrænt samkirkjulegt
mót fyrir aðila að sunnudagaskólaatarfi.
Af íslands hálfu taka Þjóðkirkjan, KFUM
og K, Hjálpræðisherinn og Hvítasunnu-
söfnuðurinn þátt í mótinu.
Dagskráin byggist á fyrirlestrum og
hópvinnu, en auk þess verða kvöldvök-
ur, morgun- og kvöldbænir og altaris-
ganga síðasta kvöldið.
Mótið fer fram í Háskóla íslands. Yf-
irskrift þess er tekin úr 8. Davíðssálmi:
„Hvað er maðurinn?". Gert er ráð fyrir
u.þ.b. 100 útlendum þátttakendum á
mótið, en allt að 50 Islendingum.
Sóknarprestar og forsvarsmenn ann-
arra hópa er standa að mótinu geta gef-
ið nánari upplýsingar. Innritun þarf að
vera lokið fyrir 7. júní. Hún fer fram á
skrifstofum Æskulýðsstarfs Þjóðkirkj-
unnar á Akureyri (s. 24873) og í Reykja-
vík (s. 12445) milli kl. 14 og 16 alla virka
daga nema laugardaga.
Eflaust verður mót þetta bæði
ánægjulegt og gagnlegt fyrir þá, sem
vinna að kristilegu barnastarfi, og eru
menn hvattir eindregið til þess að nota
þetta tækifæri til fræðsluöflunar á því
sviði.
Eru þeir
allir eitt?
6. sd. e. páska
Þegar komið var að hinstu stund
Jesú, var honum efst í huga að
biðja fyrir einingu lærisveinanna.
Hann sjálfur vissi sig eitt með Guði
foður. Hann vissi, að Guð faðir,
sonur og Heilagur andi er einn vilji,
ein hugsun þótt þrjár persónur séu.
Og hann vildi, að lærisveinarnir
væru eitt á þann hátt. Með því móti
væru þeir fullkomlega sameinaðir
Jesú sjálfum — væru sem einn vilji
í samfélagi við hann og Guð foður.
Allir eiga þeir að vera eitt. Eng-
inn er undanskilinn. Engum er
ætlað að vera útundan. Menn eru
ekki flokkaðir eftir kynþáttum,
stéttum, kynferði eða öðrum
mannlegum mismununaraðferð-
um. Það felur í sér ábyrgð okkar á
kristnum systkinum um allan
heim — einnig þeim, sem líða
píslir vegna trúar sinnar í fang-
abúðum kommúnista í Sovétríkj-
unum og þeim, sem skortir lífs-
nauðsynjar í fátækum löndum
þriðja heimsins.
Jesús sagði ekki, að allir
kristnir menn ættu að vera eins.
Innan samfélagsins við Krist
rúmast margar manngerðir —
menn með mismunandi hæfi-
Jóh. 17:20—26
leika, ólíkar skoðanir á ýmsum
málum. Þeir eiga eitt sameigin-
legt — hlutdeild í Kristi. Þeir eru
limir á þeim líkama Krists sem
hann skildi eftir í þessum heimi
og er kirkja hans.
Oft finna kristnir menn e.t.v.
meira fyrir því, sem aðgreinir þá
í mismunandi trúflokka en hinu,
sem sameinar þá í Kristi. En það
er einnig stórkostlegt að vita, að
fólk úr öðrum trúflokkum innan
kristninnar er systkini okkar —
því það byggir á sama Drottni og
frelsara og við. Þannig er hjálp-
ræðisverk Krists grundvöllur
allrar kristni.
Já, Jesús bað um einingu læri-
sveinanna. Viljum við vera svar
við þeirri bæn? Viljum við leyfa
kærleika Krists að komast að í
lífi okkar, knýja okkur til þess að
viðurkenna aðra kristna menn
sem systkini okkar? Eða viljum
við vera sjálfum okkur nóg og
láta okkur engu varða hvað verð-
ur um kristna menn nær og fjær,
af því að við setjum fyrir okkur
eitthvað í fari þeirra?
Guð gefi okkur hugárfar
Krists!
Flestir hefðbundnir sunnudaga-
skólar og aðrar kristilegar
barnasamverur hætta áður en skóla
lýkur á vorin. Sumarið er yfirleitt
ekki ákjósanlegur tími til þess að
reka slíkt starf.
Þó er langt þvf frá, að kristilegt
barnastarf sé ekkert á sumrin. Sunts
staðar er þá starfræktur e.k. kirkju-
skóli, og allar sumarbúðirnar taka til
starfa. Þær eru kjörið tækifæri fyrir
börn að dveljast í nokkra daga með
jafnöldrum sínum við holla útiveru,
leiki, gönguferðir, íþróttir, kvöldvök-
ur og samverustundir um Guðs orð.
Sérstaklega hafa börn af þéttbýlis-
svæðum og úr þorpum gott af þvf að
komast í meiri snertingu við náttúr-
una en ella, hafi þau ekki tök á að
vera f sveit á sumrin.
Frá sjónarhóli kirkjunnar eru
sumarbúðir eitt öflugasta tækið f
trúarlegu uppeldi barna. Þau heyra
kristinn boðskap, ræða hann eftir
þroska, taka þátt f bænagjörð og
læra mikið af kristilegum söngvum
og ritningarversum.
Því miður er varla unnt að hvetja
börn til þess að reyna dvöl í sumar-
búðum í sumar, því flest dvalarpláss
eru nú þegar frátekin f flestum
sumarbúðunum. Þó er alltaf reynd-
andi að athuga málið.
Vatnaskógur í Svínadal í Borg-
arfirði er líklega þekktastur
sumarbúðanna. Þar fá drengir á
aldrinum 9—17 ára að dveljast.
Skógarkjarrið, vatnið og íþrótta-
svæðið bjóða upp á ótæmandi
möguleika til útiveru, auk þess
sem farið er í skemmtilega göngu-
túra þegar vel viðrar. I sumar eru
liðin 60 ár frá því að sumarbúða-
starf hófst í Vatnaskógi. Af því
tilefni verður þar »opið hús“ um
verslunarmannahelgina. Starfið í
Vatnaskógi er rekið af KFUM í
Reykjavík og allar upplýsingar
fást á skrifstofu félagsins að Amt-
mannsstíg 2B.
Þar fást einnig upplýsingar um
standa KFUM og K myndarlega
að rekstri sumarbúða á suðvest-
urhorni landsins. En ekki einungis
þar. Við Hólavatn, innst (syðst) í
Eyjafirði reka KFUM og K á Ak-
ureyri sumarbúðir á sérstaklega
skjólsælum stað. Vatnið er þar að
sjálfsögðu vinsælast, en ýmislegt
annað dregur einnig að.
Norðlendingar eru dugmiklir.
Fyrir tæpum 20 árum hóf ÆsK
(Æskulýðssamband kirkjunnar) f
Hólastifti hinu forna sumarbúða-
rekstur við Vestmannsvatn í Aðal-
dal. Þar er vatn, fþróttasvæði,
leikvöllur og stutt 1 skógarkjarr til
leikja og gönguferða. Upplýsingar
fást hjá Æskulýðsfulltrúa Þjóð-
kirkjunnar á Akureyri.
Prestar á Austurlandi hafa
nokkur undanfarin ár staðið að
sumarbúðum að Eiðum. Þangað
sækja einkum börn af Austur-
landi. Vonir standa til að eystra
rísi sumarbúðir í eigu safnaðanna
á Austurlandi, þó ekki væsi um
Ytt úr vör ( Vatnmakógi
A DROTnNSLnfCI
, UMSJÓN:
’ Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Gunnar Haukur Ingimundarson
Séra ólafur Jóhannsson
Tekist á í góðu
Vindáshlíð í Kjós, en þar rekur
KFUK í Reykjavík sumarbúðir
fyrir stúlkur á aldrinum 8—16
ára. Þar er m.a. skógarkjarr,
hættulaus á og fjallið Sandfell —
allt ákjósanleg náttúrufyrirbæri í
sumarbúðum. Auk þess er þar gott
leiksvæði fyrir dvalargesti.
Börn eiga kost á sumarbúðadvöl
þótt þau séu yngri en að framan
greinir. KFUM og K í Hafnarfirði
reka sumarbúðir í Kaldárseli fyrir
sunnan Hafnarfjörð. Þar í hraun-
inu una þau sér vel við leiki og
gönguferðir. Og i ölveri undir
Hafnarfjalli eru sumarbúðir fyrir
6—12 börn, reknar í tengslum við
KFUM og K á Akranesi og í
Reykjavík. Þar er kjarr og lækur
hið eftirsóttasta á útivistarsvæð-
inu, en auk þess er þar leikskáli til
innileikja þegar ekki viðrar vel.
Eins og sést hér að framan,
í sumarbúðunum
Sungið á helgistund
börnin f þeirri góðu aðstöðu sem
er á Eiðum.
Vestfirðingar hafa litillega
reynt hið sama, og f sumar verða
um tíma starfræktar sumarbúðir
að Núpi í Dýrafirði á vegum
áhugasamra presta og safnaða
vestra.
Loks skal nefnt, að Sjónarhæð-
arsöfnuðurinn á Akureyri hefur
staðið fyrir sumarbúðum drengja
að Ástjöm í Kelduhverfi. Sá staður
er eins og gróðurvin i eyðimörk og
þar una drengirnir við bátsferðir,
íþróttir og aðra útiveru.
Þessi upptalning sýnir, að heil-
mikið er um að vera í kristilegu
barnastarfi á sumrin. Lesendur
Morgunblaðsins eru minntir á að
sýna þessu starfi velvild og biðja
fyrir dvalargestum og öllum þeim
fjölda sem starfar í kristilegum
sumarbúðum hérlendis sumarið
1983.