Morgunblaðið - 23.07.1983, Qupperneq 1
165. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja MorgunblaAsins
Stórsprengjuárás
á Beirút-flugvöll
Beirút, Washington, 22. júlí. AP.
SPRENGJUM rigndi í dag yfir alþjóðaflugvöllinn í Beirút, bækistöðvar líb-
anska hersins og önnur skotmörk í nágrenni höfuðborgar Líbanon. Þegar síöast
spurðist lágu að minnsta kosti tuttugu og þrír í valnum en sextíu og fimm höfðu
særzt. Forseti Líbanon, Amin Gemayel, kom að máli við Reagan Banda-
ríkjaforseta í Washington aðeins nokkrum klukkustundum eftir að árásirnar
hófust.
Að sögn lögreglu er búizt við að
fórnarlömb sprengjuárásarinnar
verði fleiri, því tilraunir til að stilla
til friðar milli hersveita kristinna
manna og drúsa í hæðunupi við
borgina hafa borið lítinn árangur
til þessa.
Fallbyssu- og eldflaugaskothríð
mun hafa byrjað yfir flugvellinum í
morgun og lét einn líbanskur borg-
ari lífið í fyrstu hrinunni en þrettán
særðust, þ.á m. þrír bandarískir
hermenn. í austurhluta Beirút
grandaði skothríðin átta borgurum
og særði ellefu, en einn nýliði lét
lífið í herbúðum austur af borginni
og hlutu átta hermenn þar meiðsli.
Líkur benda til að árásirnar hafi
verið nákvæmlega tímasettar, þar
sem þær hófust fáeinum klukku-
stundum áður en Gemayel forseti
átti fund með Reagan. Er þetta í
fyrsta skipti, sem skothríð er beint
að flugvellinum síðan alþjóðlegu
friðarsveitirnar komu til landsins
fyrir ellefu mánuðum.
Yfirstjórn líbanska hersins segir
að skothríðin hafi komið frá hæð-
um nær flugvellinum þar sem
kristnir menn og drúsar hafa skipzt
á skotum undanfarna þrjá daga.
Talsmaður ísraelska hersins í Líb-
anon telur að hún hafi komið frá"
skotgröfum drúsa hjá þorpunum
Bshamoun og Ain Anoub í fimm
kílómetra fjarlægð suðaustur af
flugyellinum.
Aður en Gemayel hóf viðræður
sínar við Reagan var hann spurður
um árásirnar í Beirút. „Hafið ekki
áhyggjur," svaraði forsetinn, „það
verður allt í góðu lagi innan tíðar.“
Kristilegir taka
vel boði Craxis
Róm, 22.JÚIÍ. AP.
BETTINO Craxi, sósíalistaleiötoginn
sem falið hefur verið að mynda ríkis-
stjórn á Ítalíu, fékk góðar undirtektir
hjá kristilegum demókrötum í dag, er
hann leitaði hjá þeim hófanna um
þáttöku í fimm flokka samsteypu-
stjórn.
Sandro Pertini forseti, sem einn-
ig er sósíalisti, fól Craxi að hafa
forgöngu um stjórnarmyndun í gær
og hóf hann samstundis viðræður
við leiðtoga stærsta stjórnmála-
flokksins á Ítalíu, Kristilega demó-
krataflokksins. Takist Craxi stjórn-
armyndun verður hann fyrsti for-
sætisráðherrann úr röðum sósíal-
ista eftir heimstyrjöldina síðari. 1
kosningunum hrapaði fylgi kristi-
legra demókrata úr 38,3% í 32,9%
en fylgi sósíalista jókst úr 9,8% í
11,4%.
Þrír aðrir flokkar, sem talið er að
Craxi muni eiga viðræður við, eru
smærri miðflokkar: Lýðveldisflokk-
urinn, Jafnaðarmannaflokkurinn
og Frjálslyndi flokkurinn.
Gemayel hafði áður rætt við
Weinberger varnarmálaráðherra,
en ekki hefur enn verið skýrt frá
viðræðum þeirra.
í öðrum fréttum frá Washington
segir að sérlegur erindreki Reagans
í Mið-Austurlöndum, Philip Habib;
hafi sagt af sér og verði Robert
McFarlane, fulltrúi forsetans í Ör-
yggismálaráðinu, látinn taka við
starfi hans. McFarlane er fjörutíu
og fimm ára að aldri og hefur að
baki tuttugu og fjögurra ára feril
með bandaríska landgönguliðinu.
Hann var um tima aðstoðarmaður
Henry Kissingers í Öryggisráðinu
og síðar sérstakur ráðunautur Ger-
ald Fords Bandaríkjaforseta.
ymwnwi
wBm Hot
Hlaupið í skjól
Starfsmenn Alþjóðaflugvallarins í Beirút hlaupa eins og fætur toga
undan sprengjuregni skæruliða. Lögreglumaðurinn, sem gengur í öfuga
átt, virðist þó ekki láta neitt á sig fá.
Stone þreifar fyrir
sér í Mið-Ameríku
Mexíkóborg, Managua, Nicaragua,
Washington, 22. júlí. AP.
SENDIMAÐUR Bandaríkjaforseta,
Richard Stone, kom til Cólombíu
Panama í dag. Bandaríski flotinn
hélt áfrara æfi.igum úti fyrir strönd-
um Mið-Ameríku og létu talsmenn
stjórnarinnar í Nicaragua í Ijósi von
um að umsvif flotans „yrðu ekki til
að hrinda af stað stríði“.
Stone lagði upp í ferð sína í gær,
og kom til Mexíkóborgar að
kvöldi. Við komuna þangað lýsti
sendimaðurinn stuðningi Reagans
Bandaríkjaforseta við friðarum-
leitanir Contadora-hópsins, en í
honum eru Mexíkó, Venezuela,
Cólombía og Panama. Stone lét
einnig hafa eftir sér að tillögur
stjórnarinnar i Nicaragua um
friðarviðræður í Mið-Ameríku
væru „til marks um að e.t.v. væri
vonarglæta um frið“.
Reagan sagði í gær að brátt
kæmi að því að bandaríski flotinn
myndi umkringja Nicaragua Ati-
antshafs- og Kyrrahafsmegin í
æfingaferð sinni. Aðspurður um
hvort Bandarikin hygðust setja
hafnbann á Nicaragua svaraði
Reagan: „Ég vona að ekki þurfi að
grípa til þess.“ Dómsmálaráð-
herra Nicaragua, Tomas Borge, iét
samdægurs i veðri vaka að nær-
vera bandaríska flotans „stuðlaði
síður en svo að friðvænlegu and-
rúmslofti“ og væri óskandi að hún
hleypti ekki af stað styrjöld.
Leiðtogi demókrata í banda-
rísku öldungadeildinni, Robert
Byrd, sagðist í dag óttast að ný-
skipuð Mið-Ameríkunefnd Reag-
ans væri til þess eins að draga
fjöður yfir ákvarðanir, sem þegar
hefðu verið teknar.
Armenar hóta ódæðum
til að ná heimsathygli
I •■■oannn Uiiiuu Dapío OO ■■•l( AD
Lausanne, Svius, París, 22. júlí. AP.
RÆÐUMAÐUR á alþjóðaþingi Armena í Lausanne í Sviss sagði áheyrendum
sínum í dag, að ofbeldisverk hefðu verið eina leiðin til að draga athygli heimsins
að málefnum Armena. Leynilegur skæruliðahópur Armena varpaði í dag
sprengjum að sendiráðsskrifstofu Frakka og að höfuðstöðvum Air France-
flugfélagsins í Teheran. Taiið er að sprengjan, sem banaði sex manns á Orly-
flugvelli í París í síðustu viku, hafi verið ætluð starfsmönnum tyrknesku
leyniþjónustunnar.
Á alþjóðaþinginu í Sviss sagði
Charles Villeneuve, armenskur
fréttamaður við franska útvarsstöð:
„Blóð og fórnir hafa haft áhrif á
almenningsálit í heiminum. Það
talaði enginn um Armeníu áður en
látið var til skarar skríða gegn
fyrsta tyrkneska sendifulltrúanum
árið 1975.“ Hann bætti við: „Kyn-
slóð verkanna er að taka við af kyn-
slóð endurminninganna og því verð-
ur ekki breytt.“ Þinginu er ætlað að
undirbúa myndun aiþjóðasamtaka,
sem berjast munu fyrir sjálfstæðu
ríki í Armeníu.
Franskur diplómat skýrði frá því
í dag, að tvær sprengingar hefðu
valdið minni háttar skemmdum á
tveimur frönskum mannvirkjum í
Teheran og hefði enginn særzt.
Ókunnur maður, sem sagðist vera
félagi í leyniher Armena fyrir frelsi
Armeníu (ASALA), hringdi til
franskrar fréttastofu og sagðist
bera ábyrgð á sprengingunum.
Að sögn lögregluyfirvalda í París
hefur Armeninn, sem handtekinn
var í síðustu viku sakaður um að
hafa staðið á bak við sprenginguna
á Orly-flugvelli, sagt frá því að
sprengjunni hafi verið ætlað að
springa um borð í tyrkneskri áætl-
unarvél í flugi. Samkvæmt frásögn
Armenans, Varadjidan Garabidji-
an, átti atburðurinn sér stað með
eftirfarandi hætti: Hann kom til
Orly-flugvallar í leigubifreið með
sprengjuna tilbúna og gekk að af-
greiðsluborðinu þar sem farþegar
voru að skrá sig í flug til Istanbul.
Garabidjian borgaði þar ókunnum
farþega 500 franka (u.þ.b. 1500 kr.
íslenzkar) fyrir að fara með pakka
til ákveðins manns í Istanbul. Átti
sprengjan, sem í pakkanum var, að
springa þegar flugvélin hefði verið
tuttugu mínútur í flugi með hundr-
að sextíu og sjö farþega, þ.á m. fé-
laga í tyrknesku leyniþjónustunni.
Sprengjan sprakk hins vegar löngu
fyrir tímann og áður en farþegar
gengu um borð. Garabidjian skýrði
ennfremur frá því að maðurinn,
sem útbjó sprengjuna sjálfa, hefði
komizt undan. Sex létust þegar
sprengingin varð og fimmtíu og
fimm særðust.
Launráð
Israels
og Kína?
París, 22. júlí. AP.
ísraelsmenn hafa undirritað
leynilegan samning um hernaðar-
aðstoð við Kínverja, að því er
vikublaðið VSD í París hermir í
dag. Samkvæmt samningnum
munu meira en hundrað ísraelsk-
ir leiðbeinendur og hernaðarsér-
fræðingar hjálpa Kínverjum til að
endurnýja og skipuleggja herafla
sinn.
Tímaritið segir að samning-
urinn kveði einnig á um smíði
Markava-skriðdreka og KFIR-
orrustuflugvéla eftir teikning-
um ísraelsmanna í Kína og
_með aðstoð ísraelskra tækni-
fræðinga. Ekki kemur fram
hvaða heimildir eru fyrir frétt-
inni.
í frásögn tímaritsins segir að
u.þ.b. hundrað ísraelskir sér-
fræðingar séu þegar komnir til
Kína „undir fölskum nöfnum
og að því er virðist í sakleysis-
legum viðskiptaerindum".
Stjórnvöld í Peking hafa aldrei
viðurkennt tilverurétt Israels
formlega og hafa engin opinber
tengsl við iandið. Franska blað-
ið segir að Kínaleiðtoginn Deng
Xiaoping hafi sjálfur haft for-
göngu um samningana eftir að
hann áttaði sig á að hermála-
samningar við Bandaríkin,
Frakkland og Vestur-Þýzka-
land, kynnu að verða of kostn-
aðarsamir.