Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983 Morgunbli4M/ÓI.K.Mag. Honum Frosta, borgfirska reiðhestinum sem nú er í leið með Bakkafossi til nýrra heimkynna í Texas, var ekekrt um það gefið að þurfa að yfirgefa fósturjörðina og barðist hatrammlega um þegar hann sá ó eftir félögum sínum þegar þeir voru hífðir um borð í Bakkafoss. Upphafið að veruiegum hestaútflutn- ingi til Texas? í GÆR var óvenjulegri útflutnings- vöru skipað út í Sundahöfn. Fimm borgfirskum gæðingum var skipað út í Bakkafoss, skip Eimskipafé- lagsins, sem í gærkvöldi lagði af stað til New York. Hestana seldi Guðrún Fjeldsted á Ölvaldsstöðum í Borgarfirði bandarískum olíuauð- mönnum sem í fyrrasumar voru sem oftar við laxveiði í Grímsá. Guðrún fylgdi hestunum til skips og sagði hún við blm. Mbl. að þrír þessara hesta ættu að fara til New York þar sem annar kaupandinn býr, en tveir þeirra ættu að fara til Texas. Sagðist hún vonast til að ef vel tækist til með þessa hesta þá yrði þetta upphafið að verulegum hestaút- flutningi til Bandaríkjanna, en þangað hafa ekki verið seldir hestar um margra ára skeið. Sagðist hún hafa ætlað að koma þeim út með flugi í fyrrahaust en það hefði dregist og væri enn ekki farið og hefði hún því orðið að senda þá út með skipi þó flugið væri ákjósanlegri flutningsmáti. Hestarnir eru allir borgfirskir, af Skuggafélagsræktun, eins og Guðrún orðaði það, og allir frá Guðrúnu nema einn sem er frá Höskuldi á Hofsstöðum. Þeir eru ARNARFLUG hefur gengið frá sölu á annarri Twin Otter-flugvél sinni til hollenzkra aðila, að sögn Agnars Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Arnarflugs, sem sagði söluna lið í endurskipulagningu innanlandsflugs félagsins, en vélin hefur nær ein- vörðungu verið notuð til (lugs hér innanlands. Agnar Friðriksson sagði sölu- verð vélarinnar vera 465 þúsund dollarar, sem jafngildir tæplega 13 milljónum íslenzkra króna. „Við teljum þetta verð vera mjög viðunandi og erum því ánægðir," sagði Agnar Friðriksson. Það kom fram í samtalinu við Agnar, að Arnarflug myndi hafa vélina á leigu fram til 1. október nk., en þá yrði hún afhent nýjum eigendum í Rotterdam í Hollandi, en þaðan er henni ætlað að sinna vöruflugi. Arnarflug keypti vélina hingað til lands frá Frakklandi um áramótin 1979/1980. Aðspurður sagði Agnar að endurskipulagning innanlands- flugs félagsins hefði tekizt nokkuð vel, sérstaklega framan af. „Hins vegar hafa verðlagsyfirvöld gert okkur lífið leitt undanfarið, þann- ig að við erum að selja þjónustu okkar á of lágu verði. Við höfum bætt sætanýtinguna hjá okkur töluvert á síðustu mánuðum og við munum halda þessu endurskipu- lagningarstarfi áfram," sagði 5 til 8 vetra gamlir, og allt góðir reiðhestar að sögn Guðrúnar. Sagði hún að kaupendurnir hefðu skoðað þá og valið sjálfir í fyrra, en upphafið að þessum viðskipt- um sagði hún að hefði verið það að þegar hún var leiðsögumaður við Grímsá, síðast í fyrra, bauð hún laxveiðimönnunum stundum á hestbak þegar illa viðraði fyrir laxveiðina. Þá hefðu þessir menn fengið áhuga á íslenska hestinum en þeir eiga báðir hesta úti. Hestana flutti Guðrún til Reykjavíkur í síðustu viku og gengust þeir þá undir dýralækn- isskoðun. í New York þurfa þeir að fara beint í sóttkví. Texashest- arnir fara þaðan eftir góða hvíld til Denver í Colorado. Verða þeir þar yfir sumartímann en f Texas á veturna en eigandi þeirra á búgarða á báðum stöðum. Guðrún sagðist síðan fara út í október og dvelja ytra í mánaðartíma til að aðstoða eigendurna við hestana. Fjórir hestanna virtust taka þessum selflutningum í Sunda- höfn af hinni mestu stillingu og æðruleysi þrátt fyrir að framund- an væri 8 sólarhringa sjóferð til annarrar heimsálfu. En Frosti, annar Texashestanna, virtist ekki kunna almennilega við umstandið Agnar Friðriksson, framkvæmda- stjóri Arnarflugs, að siðustu. Síðasta verk dr. Kristjáns Eldjárn, fyrrverandi forseta íslands, bók um Arngrím Gíslason málara, sem uppi var frá 1829—1887, kemur út hjá bókaútgáfunni Iðunni síðar á þessu ári, að því er Jóhann Páll Valdimars- son hjá Iðunni tjáði Mbl. Arn- grímur Gíslason málari bjó síðasta áratug ævi sinnar á Tjörn í Svarfað- ardal og var um skeið kvæntur ömmu- systur dr. Kristjáns Eldjárn. Að sögn Jóhanns Páls fylgdi Þór- arinn Eldjárn bókinni eftir og bjó hana til prentunar. Þórarinn segir í eftirmála að bókinni að áður en fað- ir sinn hafi fallið frá 14. september 1982 hafi hann um nokkurt skeið einbeitt sér að því að ljúka verki sínu um Arngrím málara. Þetta hafi verið efni sem var honum hugleikið allt frá bernsku, rannsóknarefni með öðru í nær 40 ár og hafi Arn- grímsbókin verið honum eins konar óskabarn meðal margra óunninna verka. Því hafi hann kosið að veita henni forgang umfram önnur verk- efni þegar hann hafði losað sig und- og barðist hatrammlega um þeg- ar verið var að hífa hann um borð. Hann var einn í hestagámi IJtgerðarfélag Akureyringa fær ekki leyfi til að flytja inn nýjan togara í stað Sólbaks, sem lagt hefur verið fyrir allnokkru. Að sögn Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, er nú í an embættisskyldum er tóku drýgst- an hluta af starfsævi hans. Fjöldi mynda verður í bókinni um Arngrím, þ.á m. litmyndir af öllum altaristöflum sem hann gerði ásamt ótal mannamyndum. Dr. Kristján Eldjárn, en hinir fjórir voru saman í gámi og þurfti að láta hann skipta við einn félaga sinn til að róa hann. gildi bann við innflutningi fiski- skipa, sem samþykkt var fyrir um ári og gilda skyldi í tvö ár. Á hinn bóginn er ekkert því til fyrirstöðu, að ÚA láti smíða skip hér á landi. Sagði Halldór, að fulltrúar frá ÚA hefðu rætt við hann ásamt fleiri ráðhérrum síðastliðinn föstudag. Hefðu þeir fyrst og fremst verið að kynna þau vanda- mál, sem félagið stendur frammi fyrir varðandi endurnýjun skipa sinna og lagt fram þau tilboð, sem félaginu hefðu borizt í ný- smíði togara. Ráðherrarnir hefðu hins vegar tjáð þeim það, að ákveðið hefði verið að flytja ekki inn ný skip og við það yrði staðið. Hins vegar væri ekkert bann við skipasmíðum innanlands, en þeir hefðu talið innlenda skipasmíði talsvert dýrari en tilboð, sem komið hefðu að utan. Ljóst væri, að menn legðust ekki gegn því að skipastóllinn yrði endurnýjaður, það væri hins vegar spurningin hvenær og með hvaða hætti. Hann tæki á hinn bóginn undir það með þeim Útgerðarfélags- mönnum að sjávarútvegurinn stæði ekki undir því að kaupa dýrari skip en hægt væri að fá. Morgunblaðið hafði einnig samband við Gísla Konráðsson, annan framkvæmdastjóra ÚA og vildi hann hvorki tjá sig um mál- ið né segja hvert næsta skref fé- lagsins yrði fyrr en að afloknum stjórnarfundi félagsins. Þjóðleikhúsið: Fimm leikar- ar fastráðnir Þjóðleikhúsið hefur ráðið fimm leikara til eins árs. Eru það Tinna Gunnlaugsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Ragnheiður Stein- dórsdóttir og Randver Þorlálviiyn. Umsækjendur um þessar nm stöður voru fimmtíu og sjö. Gæsluvardhald yegna ráns og líkamsárásar MAÐUR var úrskurðaður í gæslu- varðhald til 10. ágúst vegna ráns og líkamsárásar í Húsafelli um helgina. Hann er einnig ásakaður um þjófn- að á bíl og peningum og þegar hann var handtekinn af lögreglunni í Borgarnesi, var hann með ferða- tösku sem reyndist vera f eigu stúlku, sem var í Húsafelli um helg- ina. Maðurinn réðist á mann sem genginn var til náða í tjaldi sínu í Húsafelli, sló hann í höfuðið og tók veski hans. Þegar sá, sem fyrir árásinni varð, reyndi að stöðva árásarmanninn, sparkaði hann í höfuð hans, svo að sprakk fyrir á augnabrún. Atburðurinn átti sér stað á aðfaranótt laugardagsins. Kaldasti júlí í Reykjavík síðan 1887 Júlímánuður í Reykjavík í ár er svo miklu munar kaldari en veriö hefur undanfarin ár, og þarf reyndar að fara aftur til áranna 1885 og 1887 til að finna álíka kaldan júlímánuð. Var hitinn 8,5 stig að meðaltali eða 2,7 stigum undir meðaltali. En frá aldamótum og fram til 1970 hefur meðalhiti í Reykjavík í þessum mánuði aldrei farið undir 10 stig. Úrkoma var einnig óvenju mikil eða 40%o yfir meðallagi. Þessi kuldi er mestur í Reykjavík, en á Akureyri til dæmis var hitinn heldur lægri en í meðalári, en ekki mikið frábrugðinn. Hafnaði úti í vatni Mývalnssveit, 2. ágúst. HÉR VAR heldur leiðinlegt veður um helgina, síðdegis á laugardag fór að rigna og jafnframt gætti norðanáttar með kólnandi veðri. Mikil úrkoma var á sunnudag og slydda til fjalla. í gg.r fór veður batnandi er á daginn leið, og þegar birti upp síðdegis, sást að hæstu fjöll voru hvít niður í miðjar hlíðar. { dag er hér logn og glampandi sólskin og hiti um 20 stig. Mikil umferð var hér á vegum um verslunarmannahelgina og sótti gíf- urlegur fjöldi fólks Sumargleðina í Skjólbrekku á laugardagskvöld. Vit- að er um eitt umferðaróhapp hér í sveitinni á sunnudagskvöld, nánar tiltekið skammt frá Kálfaströnd. Þar missti ökumaður vald á bíl sín- um í knappri beygju með þeim af- leiðingum að hann hafnaði úti í vatni. Fréttaritari Nefnd um endur- skoðun gjaldeyris- og viðskiptamála Viðskiptaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, skipaði fyrir helgi nefnd til að endurskoða lög og reglur um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála. Skal endurskoðun m.a. beinast að því að draga úr viðskiptahömlum og rýmka reglur um gjaldeyrismeðferð svo veita megi betri og hagkvæmari þjónustu, samkvæmt því sem segir i fréttatilkynningu frá viðskiptaráðu- neytinu. I nefndina voru skipaðir: Davíð Ólafsson Seðlabankastjóri, sem verður formaður nefndarinnar, Árni Árnason framkvæmdastjóri, Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri, Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri, Jónas H. Haralz bankastjóri, Víglundur Þorsteinsson framkvaprndastjóri og Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis- stjóri. Arnarflug selur vél til Hollands Útgerðarfélag Akureyringa: Fær ekki að flytia inn skip Iðunn gefur út síðasta verk Kristjáns Eldjárn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.