Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983 Lærið vélritun Ný námskeiö hefjast mánudaginn 8. ágúst. Kennsla ánnönau á rafmagnsritvélar. Engin heimavinna, Inn- Wy uppiysingar í síma 36112 og 76728. Vandi saltfiskverk- unar til meðferðar Vélritunarskólinn, Suðurlandsbraut 20. Sími 85580. HVSGA6NABÖLLIN BlLDSHÖFOA 20 • 110 REYKJAVlK * 91-01199 og 01410 Á einum stað 130 sófasett að skoða VOLKSWAGEN JETTA VOLKSWAGEN í fararbroddi á íslandi í meira en aldarfjóröung. Framhjóladrif - Halogen höfuöljós - Aflhemlar - Höfuópúóar Þynnuöryggisgler I framrúðu - Rúlluöryggisbelti Rafmagns- og fjöðrunarkerfi eru sérstaklega útbúin fyrir íslenskt veðurfar og vegi. Farangursrými 630 I. Verö frá kr. 338.000 (Gengi 12.7.1963) — segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra „MÉR er fullkomlega Ijóst að það er mikill vandi í saltfiskframleiðslunni og við höfum verið að líta á þau mál undanfarið. Hitt er svo annað mál, að þessi vandamál verða ekki leyst fyrst og fremst af opinberri hálfu. Þetta eru líka markaðserfiðleikar, sem sýna það mjög Ijóslega að það var ekki að ástæðulausu, sem þurfti að grípa til efnahagsráðstafana í vor. Þær ráðstafanir voru jafnvel ekki nægilegar til þess að halda atvinnu- vegum bærilega gangandi. Þessi vandamál voru rædd innan ríkis- stjórnarinnar í morgun og á þing- flokksfundum í dag, í framhaldi af umræðum um ráðstöfun gengismun- ar. Þau verða til meðferðar hjá ríkis- stjórninni í næstu viku,“ sagði Hall- dór Ágrímsson, sjávarútvegs- ráðherra, er Morgunblaðið innti hann álits á aðvörun þeirri, sem Sölusamband íslenskra fiskfram- leiðenda hefur sent til félagsmanna sinna. Þar voru félagsmenn varaöir við framleiðslu á saltfiski vegna tap- rekstrar í vinnslugreininni. „Ég get ekki sagt um það, til hvaða ráða verður gripið í þessu sambandi. Það er ljóst að það er þjóðhagslega hagkvæmast að frysta sem mest af fiski í dag. Hins vegar verðum við að gæta þess, áð halda okkar hefðbundnu saltfiskmörkuðum. Það er mjög vandséð að frystingin geti ein tek- ið við þeim afla, sem á land berst þannig að það er mjög nauðsyn- legt fyrir þjóðarbúið að saltfisk- verkun geti haldi áfram. Sem bet- ur fer er ekki mikil saltfiskverkun á þessum árstíma þannig að þessi mál verða enn erfiðari á næstu vetrarvertíð, ef ekki rætist úr. Það er nú þannig að flest fyrir- tæki í sjávarútvegi eru blönduð fyrirtæki og mikilvægt er að þau velji alltaf hagkvæmustu verkun- ina á hverjum tíma. Þessi fyrir- tæki geta líka jafnað á milli grein- anna í rekstri sínum, en síðan eru önnur fyrirtæki, sem aðeins verka í salt og skreið og eiga í mjög miklum erfiðleikum. Hins vegar vil ég taka það fram, að ég er mjög á móti því, að fært sé á milli vinnslugreina í sjávarútvegi. Það er nauðsynlegt að hver vinnslu- grein geti notið sín og leggi í verð- jöfnunarsjóð þegar vel gengur og taki úr honum þegar verr gengur. Það er hins vegar rétt, að flutt hefur verið frá saltfiskverkun yfir til frystingar fyrir nokkrum árum og á það hafa saltfiskverkendur bent. Ég tel það mjög óheppilegt Til sölu Einstaklingsíbúð Eitt herb., eldhús og snyrting í kjallara viö Skeggjagötu. Laus strax. Tjarnargata 3ja herb. ca. 80 fm góö kjallara- ibúö. Sér inngangur. Laus fljót- lega. Einkasala. Vesturbær 3ja herb. rúmgóö, falleg íbúö á 3. haeö viö Öldugötu. Hafnarfjörður 3ja herb. falleg ibúö í steinhúsi viö Suöurgötu. Espigerði 4ra—5 herb. glæsileg íbúö á 3. hæö. Tvennar svalir. Einkasala. Bræðraborgarstígur 5 herb. ca. 130 fm nýstandsett íbúö á 2. hæö. Laus fljótlega. Einbýlishús Kóp. 160 fm 7 herb. fallegt einbýlis- hús á tveim hæöum við Hlíöar- veg. Nýjar innréttingar aö mestu. Möguleiki á tveim íbúö- um. Stór lóö. Fallegt útsýni. Einkasla. Einbýlish. Sundlaugav. 190 fm einbýlishús á einni hæð. Húsiö er á stórri eignarlóö á óvenju friösælum og fallegum staö í Mosfellssveit. Bíiskúr fylgir og sundlaug. Mikill trjá- gróöur. Iðnaöarhúsn. Jarðhæö 240 fm fokhelt iönaöarhúsnæöi á jaröhæö viö Kaplahraun, Hafnarfiröi. Innkeyrslur. Sumarbústaðalönd á fallegum staö viö veiöivatn í Rangárvallasýslu, ca. klst. akst- ur frá Reykjavík. Möguleiki á hagabeit fyrir hesta. Málflutnings & fasteignastofa Agnar Gústafsson, hrl. ^Eiríksgötu 4j Símar 12600, 21750. Sömu símar utan skrifstofutíma. Cterkurog k/ hagkvæmur auglýsingamióill! Saltfiskverkunin skattlögð í tap — segir Bjartmar Pétursson, stjórnar- formaður Útvers á Bakkafirði „ÞAÐ er langt frá því að grundvöll- ur sé fyrir saltfiskverkun nú. Tap á sumarverkuninni er á milli 16 og 20% og fiskverð er of hátt miðað verð á erlendum mörkuðum, það er verðfall á erlendum mörkuðum mið- að við dollar. Þá er strangara gæða- mat en áður hefur verið einn þáttur þessa,“ sagði Bjartmar Pétursson, stjórnarformaður Útvers á Bakka- firöi, er Morgunblaðið innti hann álits á stöðu saltfiskverkunar. „Þá er upptaka gengismunar fáránleg aðgerð. Á fyrstu fimm mánuðum ársins eru tekin 19,5% af framleiðendum áður en greiðsla kemur til þeirra, það er útflutn- ingsgjald 9,5% og gengismunur 10%, sem á raunar engan rétt á sér. Á sama tíma og þetta er gert eru greiðslur til saltfiskverkenda úr verðjöfnunarsjóði 6%, þannig að í raun er verið að færa beint milli deilda i Seðlabankanum, úr verðjöfnunarsjóði í stofnfjársjóð fiskiskipa í gegnum gengismun. Með þessu virðist vera verið að refsa okkur fyrir að hafa ekki keypt skip, þetta er í raun hvati til skipakaupa. Ef þú ekki tekur þátt í vitleysunni ert þú bara skatt- lagður fyrir það. Þá má geta þess að afkomureikningar Þjóðhags- stofnunar yfir eins árs tímabil hafa verið alveg út í hött, þeir halda því fram, að það sé hagnað- ur af þessari grein nú, en raunin er sú að stórtap hefur verið á henni siðustu 12 mánuði. Það hlýtur að koma að því að menn hætti að framleiða með tapi, enginn getur staðið undir því. Það er bara með þá, sem ekki eru méð aðrar verkunargreinar eins og við, þeir geta ekki breytt til nema að fara út í fjárfestingar og það er nú ekki glæsilegur kostur í dag. Við erum því tilneyddir til að hætta eða verka áfram og er hvorugur kosturinn góður eins og málum er háttað nú. Eina raunhæfa leiðin i þessu er að fella niður útflutn- ingsgjöld og hætta upptöku geng- ismunar, væri svo gert ætti rekst- urinn að geta verið taplaus og jafnvel með hagnaði. Þetta er því í raun ekki tap á greininni sjálfri heldur er hún skattlögð í tap,“ sagði Bjartmar. Menn tapa trúnni á ríkisstjórnina — segir Björgvin Jónsson vegna upp- töku gengismunar af saltfiski „ÞAÐ er enginn grundvöllur orðinn til þess arna. Ég tel alveg fáránlegt að flytja til peninga til að borga niður skip, sem eru óborganleg með taprekstri í saltfiskverkun og þar á ég við ráðstöfun gengismunar. Ætli það séu ekki teknar af okkur á ann- að hundrað milljónír í gengismun," sagði Björgvin Jónsson, fram- kvæmdastjóri Glettings, er Morgun- blaðið innti hann álits á stöðu salt- fiskverkunar. „Ég veit ekki hver hefur leyfi til að ráðstafa gengismun í annað en verðjöfnunarsjóði. Eðlileg fjár- málastarfsemi getur ekki farið öðruvísi fram. Ætli það sé ekki orðinn mikil meirihluti fyrir þvi að mismuna endalaust. Meðan gengismunur er tekinn og honum varið eins og nú, er það eina verk- efni þeirra, sem ætla að reyna að stjórna þessu landi, að fella gengið með jöfnu og skömmu millibili og vera með aðrar smáreddingar. Þetta er verulega veikjandi fyrir stjórninni og allir verkendur í landinu, sem hafa trúað því að þeir eigi sjálfir að borga reikn- ingana sína, tapa trúnni á þessa ríkisstjórn vegna þessa," sagði Björgvin Jónsson. Til sölu Sér efri hæö í þríbýlishúsi viö Rauðagerði, ca. 140 fm. Bílskúr — geymslur í kjallara. Uppl. í síma 36228.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.