Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
á þann hjalla er okkur mun öllum
einhvern tíma gjört að klífa.
Blessuð sé minning hans.
Haraldur Jónasson.
Með fáeinum orðum langar mig
til að minnast móðurafa míns, nú
þegar vegferð hans er lokið hér í
heimi.
Afi var húsasmiður og meistari
í sínu fagi. Hann var mikið á ferð-
inni í tengslum við starf sitt og
kom þá iðulega við hjá mömmu
sem heima gætti bús og barna. Þá
var hellt á könnuna og málin
rædd. Það var alltaf létt í afa.
Hann var kátur og glettinn. Hann
gaf sér oft tíma til að spjalla við
okkur systkinin. Mér eru alltaf
minnisstæðar þær stundir þegar
afi tók upp dúkkurnar mínar og
ræddi við þær smástund á rússn-
eskri tungu, en um það hafði ég
ekki minnstu vitund. Ekki spillti
fyrir, ef hann hafði haft meðferðis
súkkulaðimola eða ópal pakka,
sem ekki var ósjaldan. En
bernskuárin líða og börnin breyt-
ast í fullorðið fólk. Fullorðna fólk-
ið í lífi barnanna eldist, það er
lífsins saga.
Fyrir allnokkrum árum veiktist
afi af kransæðastíflu, ég minnist
þess hve hrædd ég var þá um að
við fengjum ekki lengur að hafa
hann hér á meðal okkar. En afi
hresstist og lifði mörg ár, að vísu
oft lasinn af völdum kransæða-
sjúkdómsins og fleiri kvilla.
Aldrei hafði hann hátt um sín
veikindi, þótt auðséð væri að hann
liði stundum.
Afi byggði húsið að Engihlíð 12
í Reykjavík. Var það að mestu gert
í aukavinnu á kvöldin og um helg-
ar. Þar hafa afi og amma búið síð-
an 1946. Þrjár aðrar íbúðir eru í
húsinu. Oft á tíðum hafa ættingj-
ar ömmu og afa fengið að búa i
íbúðum þessum. Ég og sambýlis-
maður minn, Finnur, urðum þess
aðnjótandi fyrir tæpum þremur
árum að fá risíbúðina hjá ömmu
og afa. Þar bjuggum við í rúm tvö
ár meðan við vorum að eignast
okkar eigið húsnæði. Okkur leið
mjög vel í nábýlinu við ömmu og
afa, oft á kvöldin var trítlað niður
til gömlu hjónanna og ætíð var
maður velkomin. Þá var hoft á
sjónvarp eða spjallað um liðna tíð.
Afi hafði margs að minnast frá
æskustöðvunum við Breiðafjörð,
WIKA
Allar stæröir og geröir
akE_.Lv
Söyifjflatyigjyr
Vesturgötu 16, sími 13280
cnro-ko
Klæðningarstál
Samanburður er
okkur í hag ...
gXO*ko er litaða klæðningarstálió
” með tvöföldu acrylhúöinni.
er framleitt með erfiöustu aðstæður
í huga, sumar, vetur, vor og haust.
gxo*ko er fáanlegt í sér lengdum eftir
9 óskum kaupandans.
qiQ-ko fylgihlutir fáanlegi
r.
stálkjarninn er 0,5 mm.
EINKALEYFIA ÍSLANOI
VÍRNET?
BORGARNESI - SÍMI 95 7296
Geriö samanburð á verði
I BYGGINGAVÖRURl
Hringbraut 120 Símar Timburdelld 28604
Byggingarvörur 28600 Málningarvörur og verkfœri 28605
Gólfteppadeild 28603 Flisar og hrelnlœfisfæki 28430
Hringbraut 120 (Aðkeyrsla frá Sóvallagötu)
39
Valtýr Jónsson
- Minningarorð
sem hann unni mjög, og frá tímum
er hann hafði hvað mest að starfa
sem húsasmiður. Fyrir þessi ár í
Engihlíðinni erum við Finnur
þakklát, bæði hvar varðar fjár-
hagslegan stuðning og hitt ekki
síður að fá að kynnast afa og
ömmu vel.
Ólafur afi hefur kvatt þennan
heim. Hann lést að heimili sínu að
kvöldi dags 23. júlí síðastliðinn.
Hann fékk að fara án þess að líða
mikið. Fyrir það erum við þakklát.
Söknuðurinn eftir afa er mikill,
mestur hjá ömmu og börnum
þeirra. En við afabörnin og litlu
langafabömin söknum afa. — Ást
hans á ungviðinu var fölskvalaus.
Ég vona að nú, þegar afi er laus
við sinn veika líkama, gefist hon-
um að líta aftur heim að Kirkju-
bóli í Barðastrandarsýslu og yfir
Breiðafjarðareyjarnar, þar sem
hugur hans dvaldi oft síðustu árin.
Blessuð sé minning afa míns.
Oddný Halla Haraldsdóttir.
Þegar Valtýr Jónsson er kvadd-
ur hinsta sinni, þá er það okkur
sérlega tregablandið að vera svo
langt í burtu að geta ekki verið
viðstödd úrför hans.
Vinskapur okkar og samstarf
byrjaði í bernsku og náði hámarki
þau fjögur ár, sem við vorum sam-
an í Verzlunarskólanum. Öll þau
ár vorum við nánast óaðskiljanleg:
við unnum saman að félagsmál-
um, lásum saman og byggðum
sumarhúsið Látalæti. Mestur tím-
inn hefur væntanlega farið í setur
á kaffihúsum, en eins og Volli
benti gjarna á, þá varð einhver að
fórna sér og bjarga heiminum.
í skóla var Volli allra manna
vinsælastur, enda sá félaginn, sem
sjálfkrafa sá um skemmtiefnið —
í öllu okkar vafstri var hann hinn
sanni hrókur alls fagnaðar: fynd-
inn með afbrigðum og hafði þá
náðargáfu að geta verið það án
þess að vera illkvittinn.
Eftir skólann skildust leiðir að
mestu enda urðu fjarlægðii-nar
miklar og fjarvistirnar langar.
Við sendum Dótlu og sonum
þeirra Valtýs innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum góðan Guð að
styrkja þau í sorginni.
Birgir, Ellý, Othar.
VIÐAR
KLÆÐNINGAR
í loft og á veggi. FulMakkaöar og tilbúnar
til uppsetningar. Vandaöar vörur á
hagstæöu veröi.
Mjög viöráöanleg greiöslukjör.
Cfy
EGILL ÁRNASON H.F. SKEIFUNNI 3 - SÍMI82111 - REYKJAVÍK