Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
Saab-bifreiðin eftir veltuna. Morgnnbi*«ið/ói.K.Mag.
Tvær bílveltur
á Fjarðarheiði
— farþegi annarrar bifreiðarinnar stórslasaðist
Kgilsstödum. 1. ágúst.
SÍÐDEGIS í gær, sunnudag, ultu
tvær bifreiðir á svipuðum slóðum og
tíma á Fjarðarheiði. í fyrra skiptið
var um Volvo-bifreið að ræða og var
ökumaðurinn einn í bifreiðinni.
Hann sakaði ekki. í síðara skiptið
valt Saab-bifreið. í henni voru hjón
frá Seyðisfirði ásamt ungu barni
sínu. Eiginmaðurinn slasaðist alvar-
lega og var þegar fluttur með flugvél
til Reykjavíkur, en eiginkonan og
barnið sluppu ómeidd að kalla.
Saab-bifreiðin fór út af veginum
í krappri beygju efst í Fjarðar-
heiði ofan við Egilsstaði. Þau hjón
voru að koma frá Seyðisfirði og ók
eiginkonan bifreiðinni. í beygj-
unni kröppu virðist hún hafa
misst stjórn á bifreiðinni með
fyrrgreindum afleiðingum.
Á þessum stað er nær 20 m hár
vegkantur, og kastaðist bifreiðin
þar fram af og allt að 40 m frá
vegarbrúninni. Bifreiðin skemmd-
ist furðulítið.
Barnið var spennt f barnastól í
aftursæti bifreiðarinnar, en ekki
er vitað hvort þau hjón hafa notað
bílbeltin.
Eiginmaðurinn, sem er 47 ára
að aldri, slasaðist alvarlega, eins
og fyrr segir og var þegar fluttur á
Elorgarspítalann í Reykjavík. Mun
hann m.a. hafa skaddast á mænu,
en þó ekki sagður í lífshættu.
Kynferðis-
afbrotamaður í
gæsluvarðhald
MAÐUR var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 14. september og til að
sæta geðrannsókn á laugardaginn
var vegna kynferðisafbrots gagn-
vart 9 ára gamalli stúlku. Atburð-
urinn átti sér stað fyrripart mán-
aðarins og mun maðurinn hafa
gefið stúlkunni og bróður hennar
12 ára að aldri róandi lyf áður en
hann framdi afbrotið. Atburður-
inn átti sér stað á heimili barn-
anna.
Lengsta sjúkraflug
á þyrlu Gæslunnar
Áhöfn TF-RÁN við komuna til Reykjavíkur í gær. Talið frá vinstri:
Björn Jónsson, flugstjóri, Þórhallur Karlsson, flugmaður, Erling Gunn-
arsson, flugvirki, og Kristján Þ. Jónsson, stýrimaður.
„ÞETTA er lengsta sjúkraflug
sem við höfum flogið yfir sjó á
þessari þyrlu,“ sagði Björn
Jónsson, flugstjóri á TF-RÁN,
þyrlu Landhelgisgæslunnar, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann var þá nýkominn úr
sjúkraleiðangri, þar sem tveir
skipverjar, hvor á sínum togara,
voru sóttir út á rúmsjó. Var ann-
að skipið statt norð-vestur af
Kolbeinsey, en hitt á Halamið-
um.
„Það var kl. 9.10 í gærmorg-
un að beiðni barst til Slysa-
varnafélags íslands frá togar-
anum Hólmadrangi, um að
skipverji, sem slasast hafði um
borð, yrði sóttur með þyrlunni.
Skipið var þá statt norð-vestur
af Kolbeinsey. Það var skjótt
brugðist við og þyrlan var
komið í loftið kl. 9.30. Fyrst
fórum við til Akureyrar, þar
sem við tókum eldsneyti og
læknir kom um borð.
Við vorum komnir út að tog-
aranum um hádegisbil og
greiðlega gekk að koma hinum
slasaða skipverja um borð í
þyrluna, en hann hafði fengið
slæmt höfuðhögg. Þegar við
vorum yfir Hólmadrangi barst
Slysavarnafélaginu beiðni frá
togaranum Bjarna Benedikts-
syni um að sóttur yrði skip-
verji, sem fengið hafði slæmt
botnlangakast. Skipið var þá
statt vestur á Halamiðum.
Við flugum því með skipverj-
ann af Hólmadrangi til Akur-
eyrar, þar sem sjúkraflugvél
tók við honum og flutti hann til
Reykjavíkur. Við tókum elds-
neyti á Akureyri og vorum
komnir í loftið laust fyrir kl.
13.00 og flugum til Isafjarðar.
Þar var eldsneyti tekið og síð-
an flogið rakleitt út að skipinu
og þangað komum við um kl.
15.00. Þaðan flugum beint til
Reykjavíkur og vorum lentir
kl. 16.20," sagði Björn Jónsson.
Hann bætti því við að ferðin
hefði gengið eins og best var á
kosið og þyrlan reynst með af-
brigðum vel eins og endranær.
Þess má geta að með Birni í
þessari ferð voru þeir Þórhall-
ur Karlsson, flugmaður, Erling
Gunnarsson, flugvirki, Krist-
ján Þ. Jónsson, stýrimaður og
Sigurður Pétursson, læknir á
Akureyri, en hann fylgdi skip-
verjanum á Hólmadrangi til
Reykjavíkur.
Siglt með ms. Eddu á miðvikudagskvöldi frá Reykjavík til Newcastle.
Ekið á laugardegi um sögusvið stór-
myndarinnar: „Fýkur yfir hæðir“, til
hinnar fornu og fögru borgar York
(Jórvíkur). Borgarmúrinn frá 13. og 14.
öld umlykur borgina enn í dag.
Shambles hverfið er frá því fyrir daga
Normanna. Smíð höfuðkirkjunnar York
Minster hófst þegar á sjöundu öld, þótt
hún hafi aðallega verið reist þegar
Sturlungaöld ríkti hér.
Á landnámsöld okkar var Jórvík ein
helsta bækistöð víkinga. Heil hús og
verkstæði þeirra frá árunum 867 til
1066 hafa verið grafin upp og eru nú til
sýnis ásamt bushlutum, verkfærum og
vopnum forfeðranna frá þeim tíma.
í York verður gist í tvær nætur á afbragðs hótelum og ekið á mánudagsmorgni
til hins góða skips Eddu í Newcastle. Komið heim 17. ágúst.
9.500 kr.
Fyrir einnar viku ferð, gistingu, allar ferðir og farar-
stjórn sem og morgunmat og kvöldmat í Englandi.
FJÖRUMBORÐ:
MEÐ SKIPINU VERÐA í ÞESSARI FÖR:
Edda Björgvins
Helga Thorberg
Kjartan Ragnarsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Garðar Cortes
Jónas Þórir Þórisson
Bergþóra Árnadóttir
og hópur hennar:
Pálmi Gunnarsson,
Tryggvi Hubner
Gísli Helgason
Gengi 26.7*83
EIWREAIUR:
Við minnum á að auk þessa
auglýsa eftirtaldar ferða-
skrifstofur margs konar ferðir
tengdar áætlunarferðum
ms. Eddu:
Ferðaskrifstofa F.Í.B.
Ferðaskrifstofa stúdenta.
Ferðaskrifstofan Atlantic.
Flugferðir — Sólarferðir
Samvinnuferðir, Landsýn.
Afbragðsgóö greiöslukjör
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
10.ÁGÚST
JÖRVlKURFERf)
í stafrii: Kjartan Ragnarsson og
Guðrún Ásmundsdóttir
GYLMIR