Morgunblaðið - 03.08.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
7
Raðhús til leigu
í Kópavogi. Leigist frá og með 1. sept. ’83 til
1. sept. ’84. Húsiö er ekki alveg fullgert.
Tilboð óskast send á auglýsingadeild Mbl.
fyrir föstudagskvöld 5. 8. merkt: „K — 8728“.
„K -8728“.
MITSUBISHI
Framhjóladrif - Supershift (sparnaöargír) -
útlspeglar beggja megin - Ouarts klukka - Utað
gler í rúðum - Rúliubelti - upphltuð afturrúða -
Stórt farangursrými - o.m.fl.
verð frá kr. 231.000
(Cengl 5.7.1985)
ulHEKIAHF
■ ■ iLaugavegi 170-172 Sími 21240
UJI^J
Handunnar Olíukolur
í steinleir.
VERÐ AÐEINS
KR. 148.-& 245.-
Höfðabakka 9,
Reykjavík. S. 85411
Atvinnu-
rekstur í
Reykjavík
Heimdalhir, SUS í
Reykjavík, gekkst fyrr á
þessu ári fyrir ráðstefnu
um atvinnurekstur í
Reykjavik. Erindi á þessari
ráðstefnu hafa verið gefín
út í aðgengilegu hefti. Þar
fjallar Sigmar Ármanns-
son, lögfræðingur lands-
sambands iðnaðarmanna,
um gildi smáfyrirtækja
fyrir atvinnulífíð. Lokaorð
erindis hans eru tekin upp í
tvídálki Staksteina í dag.
Sigmar segir ennfremur í
grein sinni:
„Nú er að verða almennt
viðurkennt á Vesturlönd-
um, að smá og meðalstór
fyrirtæki gegni ekki síður
þýðingarmiklu hlutverki í
atvinnulífí einstakra landa
heldur en stórfyrirtæki.
Segja má, að á undanförn-
um árum hafí í sumum
löndum orðið nánast vakn-
ing í þessum efnum.
Stjómvöld og almenningur
hafí í sívaxandi mæli hug-
að að því, hvernig styrkja
mætti stöðu minni fyrir-
tækjanna. Hefur jafnvel
mátt ræða um eins konar
„smáfyrirtækjastefnu" í
þessu sambandi. Með
henni er leitast við að setja
fram hugmyndir um, hvaða
kröfur skuli gera til fyrir-
tækjanna sjálfra, jafnt
stórra sem lítilla, og til
stjórnvalda, svo að tryggja
megi viðgang atvinnulífs-
ins, þar sem smá og meðal-
stór fyrirtæki og stærri
rekstrareiningar starfa á
jafnréttisgrundvelli hlið við
hlið. Gerðar era tillögur
um úrbætur á flestum mik-
ilvægum sviðum atvinnu-
rekstrar, t.d. um skattamál,
um fjármagnsfyrirgreiðslu
til rekstrar og fjárfestingar,
um hagræðingaraðgerðir
og tækniráðgjöf, um
fræðslu og endurmenntun
jafnt stjórnenda sem
starfsfólks, og loks um
margvíslega löggjöf, er
varðar atvinnureksturinn
beinL Ekki síst hefur smá-
fyrirtækjastefnan átt fylgi
að fagna í löndum Efna-
hagsbandalags Evrópu, á
Norðurlöndum, í Sviss og
víðar."
Smá og stór fyrirtæki
„Stór og öflug atvinnufyrirtæki eru
nauösynleg hverri þjóö. Þau ein nægja
þó ekki til að tryggja þegnunum velferð
og öryggi. Nauösynlegt er aö leggja jöfn-
um höndum áherslu á smáar rekstrarein-
ingar sem stórar, og leitast viö aö tryggja
aö sambúðarörðugleikar þessara tveggja
fyrirtækjagerða veröi sem minnstir. Brýnt
er t.d., að svo sé búiö um hnútana, aö
framkvæmdir viö uppbyggingu stórfyrir-
tækja og tilfallandi þjónusta vegna starf-
rækslu þeirra gagnist minni fyrirtækjum í
sem ríkustum mæli. Án þessara tengsla
milli hinna minni fyrirtækja og hinna
stærri veröur efnahagur íslendinga ekki
bættur. Án jafnvægis milli þessara
tveggja rekstrargeröa er hætt viö, aö þaö
atvinnuleysi, sem um þessar mundir hrjá-
ir flestar nágrannaþjóöir okkar, haldi inn-
reiö sína hér á landi með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum."
(Sigmar Ármannsson í grein um gildi
smáfyrirtækja fyrir atvinnulífiö).
Nýjar at-
vinnugreinar
Magnús L. Sveinsson,
borgarfulltrúi, fjallaði um
hlutverk Reykjavíkurborg-
ar í atvinnuuppbyggingu.
Hann sagði að borgin ætti
ekki að gerast beinn þátt-
takandi í atvinnurekstri.
Hún ætti hins vegar að
stuðla að öflugu og vaxandi
atvinnulífí með óbeinum
aðgerðum: lóðaúthlutun-
um, hóflegri skattheimtu
— og ýmiskonar aðstöðu.
Tryggja þurfi batnandi
samskipti borgar og full-
trúa atvinnulífsins í því
skyni að örva fyrirtæki til
aukinna umsvifa og arð-
vænlegum greinum. Hann
tíundaði ýmsa möguleika,
sem atvinnumálanefnd
borgarinnar hefði fjallað
um og sagði m.a.:
„Auk þess, sem á undan
er talið, þá hefur borgin
talið sér skylt að stuðla að
og styrkja með sérstökum
hætti aðila með áform um
nýja framleiðshistarfsemi.
I því sambandi auglýsti
Ld. atvinnumálanefnd
borgarinnar, að hún væri
reiðubúin að greiða niður !
húsnæðiskostnað um
ákveðinn og tilskilinn tíma
og veita þróur ‘yrki.
Gerðir hafa verið fímm
samningar við fjögur fyrir-
tæki um greiðslu styrkja í
tiltekinn tíma, að uppfyllt-
um ákveðnum skilyrðum.
Hér er um að ræöa þrjú
rafeindafyrirtæki og fyrir-
tæki sem hóf framleiðslu á
umslögum.
Það er enginn vafi, að
nauðsynlegt er að efía raf-
eindaiðnað í Reykjavík en í
þeirri grein verðum við að
hasla okkur völl í framtíð-
inni.
Við erum þegar komin
inn í hringiðu örtölvubylt-
ingarinnar, sem breyta
mun verulega uppbyggingu
í atvinnulífínu. Nauðsyn-
legt er að laga þá byltingu
að atvinnulífinu, þannig að
hún leiði ekki til atvinnu-
leysis."
Reykjavík-
urhöfn
Reykjavík var vagga tog-
araútgerðar í landinu. Og
enn í dag er höfnin lífæð
atvinnulífs, sem að sjávar-
hliðinni snýr. Reykjavík er
stærsta vöruhöfn landsins
og útgerð er hér enn nokk-
ur, þó vart sé hægt að segja
að höfuðborgin hafi haldið
sínum hlut í því efni.
Árið 1981 voru tæplega
44 þúsund manns vinnandi
í Reykjavík. Arsverk voru
um 38 þúsund, enda ýmsir
í hlutastarfí. Ef höfuðborg-
arsvæðið er tekið í heild
voru ársverk nálægt 57
þúsund. Þar af var aðeins
1,5% við fiskveiöar og 3,1%
við fískvinnslu. Þetta svæði
og sér í lagi Reykjavík hafa
hvergi nærri haldið sínum
hlut í frumvinnslugreinum.
Reykjavík er eina sveit-
arfélag landsins sem ekki
fær eyri á fjárlögum til
hafnarframkvæmda, en
annars staðar greiðir ríkið
75% til 100% (landshafnir)
stofnkostnaöar. Reykvík-
ingar borga þó sinn hlut,
og sennilega vel það í
skatttekjum ríkisins. Fiski-
höfn í Reykjavík hefur
enga sérstöðu er réttlætir
þennan mun. Hér er á ferð
mismunun sem Reykvík-
ingar geta ekki þolað deg-
inum lengur.
Sólskinslampinn
Vandaður íslenskur sólar-
lampi með 10 PHILIPS
UVA-perum og svo hagan-
legri loftfestingu, aö í
geymslustöðu er hann að-
eins 22 cm frá lofti, auk
þess sem létt er aö lœkka
hann og hækka eða halla
að vild, t.d. fjær andliti og
nær fótum.
Góð kjör og einstakt verð:
28.500
Framleiðandi:
Grímur Leifsson
lögg. rafvm., 96—41410,
Húsavík.
Söluumboö:
iFOniX
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Skotið í mark
Eininga- og veggskápakynning okkar hefur hitt
þráöbeint í mark vegna þess aö viö bjóöum þér mesta
úrvaliö, bestu kjörin auk 3ja ára ábyrgöar á smíöi.
|Best er þegar báðir hagnast|
HÓSG&GNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK * 91-81199 og 81410