Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
Sýning Ólafs Th. Ólafssonar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
I'aA er langt um liðið síðan undir-
ritaður hefur gert sér ferð í „Djúpið"
við Hafnarstræti þar sem ýmsir
gjörningar fara fram á listasviði.
Astæðan er, aö eftir eigendaskipti i
staönum fækkaði myndlistarsýning-
um til muna og svo hef ég verið í
leyfi frá störfum um nokkurt skeið.
Töluverðar breytingar hafa orð-
ið á staðnum á þessum tíma og er
staðurinn nú líkari notalegum bar
en sýningarhúsnæði enda hefur
hluti af hinu takmarkaða rými
einmitt verið lagt undir vínstúku.
Þetta gerir það að verkum að
minni ástæða er til þess að geta
sérstaklega upphenginga mynd-
verka nema þá að um óvenjulegar
og vandaðar sýningar sé að ræða.
Að öðrum kosti yrðum við listrýn-
endur auðvitað að sinna einnig
fjölda smásýninga er settar eru
upp á veggi kaffihúsa- og matsölu-
staða, en slíkt gerum við einungis
í sértilfellum. Fjöldi sýninga í al-
mennum sýningarsölum leyfir
ekki slíkan munað ...
Þetta þurfti að koma fram þótt
alls óviðkomandi sé því sem hér
skyldi fjallað um, en það er fyrsta
sérsýning ungs málara, Ólafs Th.
Ólafssonar. Gerandinn lauk námi
frá málaradeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands vorið 1981 og
hefur síðan námi lauk fengist við
sjálfstæða listsköpun eftir því sem
aðstæður hafa leyft.
Við skoðun sýningarinnar koma
fram auðsæir hæfileikar en einnig
að ólafur er mjög óráðinn og
stefnulaus í listsköpun sinni. I
sumum mynda hans greinir áhorf-
andinn fullsterk áhrif frá fyrri
myndum Gunnars Arnar Gunn-
arssonar og á það einkum við um
myndina til hægri við listamann-
inn á ljósmyndinni er væntanlega
fylgir þessum línum. Að mínu
mati er þetta óþarfa víxlspor hjá
ólafi því aðrar myndir hans svo
SWNDSMET?
Frá því í ágúst 1982 hefur nautakjöt hækkaö um 100%;
lambákjöt um 120% og neysluvarningur yfirleitt hækkað um
100% — nema kjúklingar, þeir hafa aöeins hækkaö um 13%!
Þaö hlýtur að vera íslandsmet.
Má ekki bjóöa ykkur íslandsmeistara frá ÍSFUGL — ódýra og
gimilega. Þeir eru í rauðu og bláu pokunum.
ísfugl
Fuglaslaturhusið að Varmá,
Reykjavegi 36, Mosfellssveit.
91-66103 og 66766
samkvæmt kónnun verðlagseftirlitsins
Áberandi
gang-
trufianir
Hljóm-
plotur
Siguröur Sverrisson.
Rod Stewart
Body Wishes
Warner Brothers/ Steinar hf.
Ég gerði mér ekki miklar né
merkilegar vonir um þessa nýj-
ustu plötu Rod Stewart. Það er
sennilega af þeim sökum, að
vonbrigðin urðu ekki meiri en
raun bar vitni. Þessi plata er eins
og maður segir með hálfgerðum
fyrirlitningartón „óttalegt
drasl“.
Þótt Stewart hafi tekist að
draga sig út úr diskó-tónlistinni
að mestu vantar samt mikið upp
á að hann nái fyrri getu. Það er
aðeins í þremur fyrstu lögum
þessarar plötu, að hann sýnir
gamalkunn tilþrif. Þetta eru lög-
in Dancin’ alone, Baby Jane og
Move me. Eftir það fellur platan
langt niður fyrir meðallag og það
sem verra er, heldur sig þar á
enda.
Það er vafalítið leiðinlegt til
þess að vita fyrir aðdáendur
Stewart og þá kannski ekki síður
hann sjálfan, að þótt frægðar-
ljóminn leiki ennþá um hann er
stutt í að hann fölni af eins og
hver önnur sólbrúnka. Munurinn
er bara sá, að sólbrúnkuna má
krækja sér í með lítilli fyrirhöfn
á næstu sólbaðsstofu eða á
ströndinni, séu menn svo lán-
samir að búa ekki hér á landi.
Frægðin er hins vegar torfengn-
ari og enn erfiðara að verða sér
úti um hana eftir að hafa hrapað
niður af tindinum.
Body Wishes ber þess veruleg
merki, að Rod Stewart er orðinn
þreyttur og umfram allt óskap-
Íega staðnaður. Það er kannski
ekki rétt að gera kröfur til þess,
að „gamlar stjörnur" á borð við
hann kúvendi í stefnu eða stíl við
hverja plötu, en fjölga mætti
gripum og fjörga útsetningarnar
að skaðlausu.
Sem fyrr segir er að finna á
þessari plötu þrjú ágætis lög — 7
eru hins vegar beinlínis slök, þótt
í sumum örli á einhverju sem
flokkast getur undir tilþrif. Þau
eru hins vegar svo máttlítil, sem
og heildarsvipur þessarar plötu
að hún rykfelíur á mettíma.