Morgunblaðið - 03.08.1983, Síða 18

Morgunblaðið - 03.08.1983, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983 5.500 manns voru í Atlavík Viðskilnaðurinn góður í Atlavík „ÞAÐ er auðvitað misjafn sauður í mörgu fé. En miðað við þennan mikla fjölda og frekar leiðinlegt veð- ur er óhaett að segja að viðskilnaður- inn sé nokkuð góður,“ sagði Jón Loftsson skógarvörður í Atlavík þeg- ar Morgunblaðið innti hann eftir því í g»r hvernig umhorfs væri á staðn- um eftir að 5 þúsund manns höfðu skeramt sér þar um helgina. „Mér leist satt að segja ekki á blikun þegar fór að rigna á föstu- dagskvöldið og ég ímyndaði mér að grasið yrði eitt flakandi sár að morgni. En það fór betur en á horfðist þrátt fyrir ausandi rign- ingu alla nóttina. Skipti þá ekki litlu máli að fólkið var ánægt og allir í banastuði. Hljómsveitirnar drógu fólkið að sér og þúsundir manna með ruslapoka úr plasti sem yfirhöfn dönsuðu af kappi til klukkan sex um morguninn." Jón sagði að um 500 manns hefðu starfað þarna við gæslu um helgina, um 50 á vakt á hverjum tíma. „Þetta væri ekki hægt öðru- vísi,“ sagði Jón, „þrátt fyrir að fólk gengi almennt vel um safnast auðvitað fyrir gífurlega mikið af rusli sem þurfti að hreinsa jafnóð- um. Sölusvæðin voru stundum eins og teppalögð af pylsubréfum þegar líða tók á daginn, en þá tók- um við tarnir og á morgnana var allt hreint og fínt. Eins lögðum við mikla vinnu í að hjálpa fólki við að finna bílastæði. Við reiknuðum með því fyrirfram að hægt væri að koma fyrir 5 til 6 hundruð bílum með góðu móti, en þegar mest var fór bílafjöldinn yfir þúsund. Þá var brugðið á það ráð að leggja meðfram þjóðveginum báðum megin." Jón sagði að eitthvað hefði borið á ölvun, eins og við væri að búast þegar margir unglingar kæmu saman, en allt hefði farið frið- samlega fram og væri framkoma unglinganna til fyrirmyndar. Egilsstöðum, 1. ágúst. GESTIR á Atlavíkurhátíð '83 eru nú flestir að taka saman föggur sínar og margir þegar haldnir til síns heima, enda lauk skemmtidagskránni í gærkvöldi með dansleik þar sem Stuðmenn og Grýlur héldu uppi fjöri. Rúmlega 5.500 manns sóttu Atlavík- ursamkomuna að þessu sinni. Skemmtidagskrá samkomunnar hófst á föstudagskvöld og höfðu þá hátt á 3 þúsund manns slegið niður tjöldum sínum í víkinni. Á föstudagskvöldi og langt fram yfir miðnætti var síðan látlaus lest bifreiða frá Egilsstöðum inní Atlavík. Raunar höfðu 1.000 manns þegar hreiðrað um sig í víkinni á fimmtudagskvöldi. Veðurguðir léku samkomugesti heldur grátt. Á fimmtudagskvöld- ið hellirigndi, en stytti upp að- faranótt föstudags. Síðan hélst bærilegt veður þar til aftur tók að rigna síðla laugardags og rigndi mikið aðfaranótt sunnudags. Var þá orðið bágt ástand hjá mörgum gestinum — þar sem fólk virtist almennt alls ekki búið undir rign- ingu og kalsa. Ölvun var áberandi og virtist vínföng hvergi skorta. Meira að segja að föstudagsmorgni var öl- teiti talsverð í víkinni. ölvunin náði þó hámarki aðfaranótt sunnudags, að sögn lögreglu, og þurfti gæslulið UÍA þá að hlúa að 50 manns vegna ofurölvunar og vosbúðar. Nokkuð var um minniháttar meiðsli, s.s. skurði og beinbrot, og voru miklar annir hjá læknum sjúkrahússins á Egilstöðum. Mikil umferð var milli Egils- staða og Atlavíkur alla helgina — og var hún óhappalítil. ökumenn óku undantekningalítið á hæfi- legum hraða og sýndu tillitssemi í umferðinni, þótt einstaka ökuníð- ingur skyti upp kolli við og við. Að sögn lögregluvarðstjórans á Egilsstöðum, Björns Halldórsson- ar, var mikið um gripdeildir á há- tíðarsvæðinu, tjöld voru skorin og brotist inn í bíla, og reyndist lög- reglu erfiðleikum bundið að kló- festa sökudólga. Skipulag allt og framkvæmd þess á hátíðarsvæðinu var með miklum ágætum og eiga UÍA- menn skilið hrós fyrir, svo og sá mikli meirihluti gesta sem sýndi af sér góða umgengni í hvívetna. í nótt var kalsaveður og gránaði í fjöll. — Ólafur. Hljómsveitin Aþena fri Egilastöóum; L fri v.: Björn Hallgrímsson, bassaleik ari; Valgeir Skúlason, trommari; Tómas Tómasson, gítarleikari; Örvar Ein- arsson, hljómborðsleikari og söngvari; Kjartan Einarsson, rótari hljómsveit- arinnar. Aþena á Egilsstööum kjör- in efnilegasta hljómsveitin Kgilsgtodum, l.ágúut A Atlavíkurhátíð nú um verslun- armannahelgina fór fram sérstök hljómsveitakeppni um titilinn „efni- legasta hljómsveitin ’83“. í keppn- inni tóku þátt 15 hljómsveitir víðs vegar af landinu og sigurorð af þeim bar hljómsveitin Aþena frá Egils- stöðum. Keppnin fór þannig fram að fyrst kusu gestir á hátíðinni þrjár hljómsveitir, er síðan kepptu til úrslita. í úrslitakeppnina komust auk Aþenu, kvennahljómsveitin Dúkkulísurnar frá Egilsstöðum og hljómsveitir Skriðjöklar frá Akur- eyri. Sérstök dómnefnd fjallaði síðan um leik þessara þriggja hljómsveita og varð niðurstaðan sú að Aþena hlaut fyrsta sæti, eins og áður sagði, í öðru sæti urðu Dúkkulísurnar frá Egilsstöð- um og Skriðjöklar frá Akureyri í þriðja sæti. Sigurvegararnir hljóta að laun- um 100.000.- krónur í peningum eða ókeypis plötuupptöku. — Ólafur Vel gengið um þjóðgarðana „ÞAÐ er mest fjölskyldufólk sem sækir þjóðgarðana og friðuðu svæðin, fólk sem gengur yfirleitt vel um og gefur sér tíma til að staldra við í nokkra daga. Enda hef ég ekki annað en góðar fréttir að færa, allt virðist hafa gengið stórslysalaust fyrir sig á þeim svæðum sem við höf- um haft afskipti af,“ sagði Jón Gauti Jónsson, framkvæmda- stjóri Náttúruverndarráðs, í samtali við Morgunblaðið í gær. Jón Gauti sagði að um 13 hundr- uð manns hefðu verið í Skafta- felli þegar mest var, en um þús- und manns í Jökulsárgljúfrum. Sagði hann að umgengnin á þessum stöðum hefði verið með ágætum, og sömu sögu væri að segja af öðrum stöðum, til dæm- is Landmannalaugum, en þar hefur stundum verið „róstu- samt“ um helgar. Vel heppnuð hátíðarhöld Verslunarmannahelgin gekk fremur vel fram í ár. Mbl. hafði sam- band við lögregluna á nokkrum stöðum á landinu og virtust flestir hafa sömu sögu að segja. Húsavík Að sögn lögreglunnar á Húsa- vík, gekk helgin vel fyrir sig, en nokkuð var um minniháttar óhöpp á vegum úti, og einn bíll fór útaf á sunnudaginn og slösuðust tveir. Laugahátíð á Laugum í Þingeyjar- sýslu fór mjög vel fram að sögn lögreglunnar og var með besta móti í ár. Var talið að flest hefði verið þar á laugardaginn, eða allt að 2.000 manns. Ágætis veður var á Húsavík á föstudag og fyrri hluta laugardags, en síðdegis á laugardag kólnaði nokkuð og tók þá að rigna. Akureyri Á Akureyri var fremur rólegt um helgina, og sagði lögreglan þar, að unglingarnir hefðu margir yfirgefið bæinn og haldið á útimót í Atlavík og á Laugahátíð. Lítil umferð var á Akureyri, en þó nokkuð var af tjöldum í bænum fyrir helgina. Engin stóróhöpp urðu á vegum úti. Hvolsvöllur Að sögn lögreglunnar á Hvols- velli, gekk helgin alveg ljómandi fyrir sig, þrátt fyrir gífurlega um- ferð um Suðurlandið. Mýrdals- sandur varð ófær á sunnudags- kvöld og mánudagsmorgun, en það hafði engin óhöpp í för með sér. Nokkrar skemmdir urðu á tjöldum undir Eyjafjöllum vegna hvass- viðris á sunnudag, en þá fuku tjöld ofan af fólki langan veg. Bíla- óhöpp voru fá, og sagði lögreglan að mikið eftirlit hefði verið á veg- um, og eftirtektarvert hafi verið hve margir voru með spennt bíl- belti og einnig var umferðarhraði undantekningalaust í löglegum mörkum. ísafjöröur Á ísafirði sagðist lögreglan ekki muna eftir að verslunarmanna- helgin hafi farið jafn friðsamlega fram, og ekki urðu nein umferð- aróhöpp. Tvær útihátíðir voru í nágrenni ísafjarðar, önnur á Reykjanesi og hin í Djúpmanna- búð og voru samtals á báðum há- tíðunum um 500 manns. Fór þar allt mjög vel fram og ölvun ekki meiri en um venjulegar helgar. Veðrið var að sögn lögreglunnar, ágætt en sólarlaust þar til á mánudaginn, en þá var glampandi sól og hiti. Ólafsvík LÍTIÐ var um að vera í Ólafsvík um helgina, að sögn lögreglunnar þar, en aðeins voru um 60 manns við Arnarstapa þegar mest var. Töluverð umferð var þó um svæð- ið, en allt slapp slysalaust. Leið- indaveður var þar, og fór unga fólkið flest eitthvað annað út á land, s.s. í Þjórsárdal, Húsafell eða Vestmannaeyjar. Lögreglan taldi að þetta hefði verið með ró- legustu helgum sumarsins og var lítið að gera hjá þeim.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.