Morgunblaðið - 03.08.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
Farið að tygja sig til heimferðar f Húsafelli á sunnadag.
HúsafeU:
MorguDblaM/HBJ.
Furðuhlutur
í Skaftafelli
í Skaftafelli var töluvert fjöl-
menni um helgina og gisti þar flest
um 1350 manns á laugardagsnótt.
Aðallega var það fjölskyldufólk sem
lagði leið sína í Skaftafell og fór allt
mjög friðsamlega fram, að sögn
landvarðanna þar og bar lítið sem
ekkert á ölvun.
í skoðunarferð á Svínafellsjökli
fundu nokkrir göngugarpar úr
Skaftafelli einkennilegan hlut
ofan á skriðjöklinum. Það virtist
eins konar rannsóknartæki sem
svifið hefði niður í fallhlíf. Reynd-
ar voru tækin tvö, en þeir tóku
aðeins annað þeirra með sér niður.
Efst á tækinu var stór linsa og
sterk, og einhvers konar rafeinda-
útbúnaður var inni í tækinu. Leif-
ar af fallhlífum lágu á við og dreif
þar sem tækin fundust. Verið er
að kanna hvort þessi útbúnaður
tilheyrir Jöklarannsóknarfélag-
inu, eða öðrum sem stundað hafa
rannsóknir á jöklinum.
Á fímmta þúsund
MIKIL umferð var í Borgarfirði um
helgina — óvenju mikil og áberandi
meiri en í fyrra, að sögn lögreglunn-
ar í Borgarnesi. Gekk hún að mestu
áfallalaust fyrir sig og urðu engin
meiriháttar umferðaróhöpp. Tveir
bílar skemmdust mikið er kviknaði í
þeim, annar var við Langá, en hinn í
Húsafelli. 12—14 ökumenn voru
teknir grunaðir um ölvun við akstur
og 17 minniháttar umferðaróhöpp
voru skráð í bækur lögreglunnar.
Nokkur þúsund manns söfnuð-
ust saman í Húsafelli. Kristleifur
Þorsteinsson bóndi í Húsafelli
taldi að á fjórða þúsund manns
hefði verið þar um helgina þegar
allt var talið. Kom margt fólk með
rútum og einkabifreiðum af höf-
uðborgarsvæðinu og tjaldaði í
Húsafelli, auk sumarbústaðafólks-
ins. Kristleifur sagði að helgin
hefði verið áfallalaus að mestu og
sáralítil skemmdarverk hefðu ver-
ið unnin á staðnum að þessu sinni
en nokkrir „glæpamenn" hefðu þó
verið í hópnum, en hann taldi að
þeir hefðu flestir náðst. Sagði
hann að fólkið hefði flest verið á
aldrinum 14—20 ára og hefði mik-
ið verið drukkið.
Kristleifur sagði að lögreglan
hefði staðið sig vel í stykkinu yfir
helgipa og einnig hefðu félagar úr
Björguharsveitinni Ok verið þarna
við gæslu með heimamönnum.
Síðdegis í gær þegar Mbl. hafði
samband við Kristleif sagði hann
að búið væri að hreinsa svæðið að
mestu og væru það 10—15 bílhlöss
af drasli sem þar hefðu verið skil-
ín eftir.
í Húsafelli var ráðist á sofandi
mann í tjaldi sínu og hann barinn
og rændur. Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi náðist árásarmaður-
inn og var hann tekinn í vörslu
lögreglunnar og síðar fluttur til
Reykjavíkur. Dansleikir voru á
vegum Ungmennasambands Borg-
arfjarðar á föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld í félags-
ÞRIGGJA daga og fjögurra nótta
þjóðhátíð Vestmannaeyinga lauk í
Herjólfsdal undir morgun á mánu-
dag. Þjóðhátíðin var að þessu sinni í
umsjá knattspyrnufélagsins Týs og
var hátíðin í ár töluvert fjölmennari
en undanfarin ár, en talið er að um
6.500 raanns hafi sótt hátíðina.
Eins og oftast á þjóðhátíð var
talsvert um ölvun, en allt fór þó
rólega og vel fram, enda ávallt
sérstakt andrúmsloft vináttu og
gleði ríkjandi á þessari rómuðu
útihátíð í Herjólfsdal. Engin al-
varleg óhöpp eða slys áttu sér
stað.
Veðrið lék við þjóðhátíðargesti
lengst af helgarinnar, það rigndi á
föstudagskvöldið, en veður var
kyrrt og milt og lét fólk það ekkert
heimilunum Brautartungu og Brú
og fóru þeir vel fram að sögn lög-
reglunnar. Flestir komu á laugar-
dagskvöldið í Brautartungu, um
600 manns að því er talið er, en
húsið rúmaði ekki fleiri gesti.
Einnig var margt á föstudags-
kvöldið en færra á sunnudag því
þá var farið að fækka mikið gest-
um í héraðinu.
á sig fá þó bleytan kæmi einnig að
ofan. Dansað var á fullu fram
undir morgun og söngur, gleði og
glens í tjöldunum. Veður var hið
besta á laugardag og fram á
mánudag. Sól skein í þrjá daga í
röð sem þykir tíðindum sæta hér
um slóðir á þessu vætusama
sumri.
Boðið var upp á fjölbreytta
dagskrá á hátíðinni og dansað var
á þremur pöllum öll kvöldin. Fast-
ir liðir á þjóðhátíð voru á sínum
stað, bjargsig, brenna á Fjósa-
kletti og stórkostleg flugelda-
sýning sem er orðin hápunktur
hátíðarinnar. Að þessu sinni var
skotið upp tívolí-flugeldum fyrir
um andvirði um 80.000 króna.
HKJ
Vestmannaeyjar:
Um 6.500 manns
á þjóðhátíðinni
Hannes Tómasson stendur hér fyrir aftan tækið dularfulla, en hann var einn
þeirra sem fann það á Svínafellsjökli.
Ánægð fjölskylda ( Þjórsárdal.
Ljósm. Matthías Pétursson.
Þjórsárdalur:
Töluverð ölvun á útihátíð
MBL. hafði samband við Jón Guð-
mundsson, yfirlögreglumann á Sel-
fossi og sagði hann að nokkuð hefði
verið um ölvun í Þjórsárdalnum um
helgina, en allt hafi gengið vand-
ræðalaust fyrir sig.
Haldið var þar stórt mót, Gauk-
urinn ’83, en það voru Ungmenna-
samband Kjalarness og Héraðs-
sambandið Skarphéðinn sem
stóðu fyrir þvi. Jón kvað eitthvað
hafa verið um þjófnaði á svæðinu,
og nokkuð um ölvun við akstur, en
alls voru teknir í sýslunni 26 öku-
menn, grunaðir um akstur undir
áhrifum áfengis. Jón sagði sína
menn nokkuð ánægða með helg-
ina, enda hafi hún að mestu verið
slysalaus, og taldi hann að HSK
og UMSK hefðu staðið vel að mót-
inu í Þjórsárdal og haft góða
stjórn á hlutunum.
Að lokum sagði Jón að þeir
hefðu gert könnun á bílbeltanotk-
un fyrir helgi og hefði þeim þótt
hún færast mikið í aukana, og
voru þeir önnum kafnir við að
dreifa viðurkenningar- og happ-
drættismiðum frá Umferðaráði til
bílbeltanotenda alla helgina.
Allt að 90% notkun á bflbeltum yfir helgina:
Fólk orðið
jákvæðara í
garð beltanna
segir Tryggvi Jakobsson hjá Umferðarráði
„BÍLBELTANOTKUN var með allra
mesta móti á vegum úti um Verslun-
armannahelgina, allt að 90%, og er
það víst örugglega fslandsmet. Til
samanburðar má nefna að um Versl-
unarmannahelgina í fyrra var álitið
að á milli 60 til 70% farþega í fram-
sæti notuðu bílbelti,“ sagði Tryggvi
Jakobsson hjá Umferðarráði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Taldi Tryggvi að ýmsar skýr-
ingar væru á þessari almennu
notkun bílbelta nú, happdrættið
hafði til dæmis örugglega mikið
að segja að mati Tryggva, en lög-
reglan dreifði yfir 10 þúsund mið-
um. Annað sem Tryggvi nefndi
sem hugsanlega skýringu var
mynd sem sýnd var í sjónvarpinu
fyrir helgina um mikilvægi þess
að hafa börn í bílbeltum. En aðal-
skýringuna áleit Tryggvi þó vera
þá, að fólk væri almennt orðið
jákvæðara í garð bílbeltanna,
samanber könnun Hagvangs ný-
lega, þar sem 87% aðspurðra voru
meðmæltir notkun bílbelta. „En
nú ríður á að fylgja þessum góða
árangri vel eftir,“ sagði Tryggvi,
„fólk má ekki gleyma beltunum þó
Verslunarmannahelgin sé liðin.
Og við munum halda áfram að
dreifa happdrættismiðum í tvo
mánuði í viðbót og væntum þess
þá að hafa dreift um 50 þúsund
miðum þegar yfir lýkur.“