Morgunblaðið - 03.08.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
FIDE
heldur fast
við sitt
Madrid, 2. ágú.st. AP.
STJORiN Alþjóðaskáksambandsins,
FIDE, bélt um helgina fast við þá
ákvörðun sína, að halda undanúrslita-
einvígin tvö í keppni áskorenda um
heimsmeistaratignina á áður ákveðn-
um stöðum, Pasadena og Abu Dhabi.
Sambandið boðaði til sérstaks
fundar í Madrid eftir að ekki hafði
tekist að komast að samkomulagi á
sambærilegum fundi, sem efnt var
til í Lucerne í Sviss.
Fulltrúi Sovétmanna á fundinum,
Nicolai Krogins, sagðist myndi
flytja skáksambandi sínu tiðindin,
en það væri alfarið undir forráða-
mönnum þess komið hvort Sov-
étmenn sendu fulltrúa sína til ein-
vígjanna eða ekki.
Mynd þessi er tekin í Kólombó á Sri Lanka, þar sem ættflokkaerjur hafa geisað að undanförnu. Meira en 200
manns hafa látið lífið, en heldur virtust erjurnar í rénun í gær. Rústirnar, sem rýkur úr á myndinni, eru leifar
Ifks.
Garri Kasparov á að mæta Victor
Korchnoi í Pasadena og á fyrsta
skák þeirra að hefjast þann 6.
águst. Vasily Smyslov á að mæta
Ungverjanum Zoltán Ribli á sama
tíma.
Krogins sagði blaðamönnum á
fundinum, að Campomanes, forseti
FIDE, hefði sjálfur ákveðið, að ein-
vígi Kasparovs og Korchnois færi
fram í Pasadena, þvert ofan í óskir
skákmannanna sjálfra, sem vildu
tefla í Rotterdam.
Stone segir ferðina
nokkuð gagnlega‘
Washington, 2. ágÚNt. AP.
RICHARD Stone, sérlegur sendi-
maður Bandaríkjaforseta í Mið-
START-viðræð-
ur sigla í strand
Genf, 2. ágúst. AP.
ENGINN sýnilegur árangur varð af
viðræðulotu fulltrúa Bandaríkja-
manna og Sovétmanna í Genf, þar
sem rætt var um takmörkun kjarn-
orkuvígbúnaðar stórveldanna. Hlé
verður gert á viðræðununum þangað
til 5. október. Lokapunkturinn f
þessari viðræðulotu voru óvenjuleg
og jafnframt harkaleg ummæli aðal-
fulltrúa Bandaríkjamanna, Edward
L Rowny, í garð sovésku sendi-
nefndarinnar.
Ummæli Rowny komu í kjölfar
þeirrar yfirlýsingar Viktor L.
Karpov, „að Bandaríkjamenn
væru ekki komnir til Genfar til
samninga, heldur til þess eins að
tefja tímann“. Talið er lfklegt, að
Rowny hafi ekki heyrt þessi um-
mæli Karpovs fyrir fund sendi-
nefndanna í dag, en verið að svara
fyrir sambærileg ummæli, sem
fallið hafa að undanförnu.
„Við tökum þessa samninga-
fundi mjög alvarlega, en við semj-
um á viðræðufundunumn sjálfum
en ekki í gegnum fréttatilkynn-
ingar," sagði Rowny. Bandaríska
sendinefndin neitar vanalega að
láta nokkuð uppi, en breytti út af
venjunni að þessu sinni. Karpov
hefur á hinn bóginn aldrei látið
tækifærið ónotað til þess að ræða
framkomu Bandaríkjamanna við
fréttamenn.
Ameríku, sneri heimleiðis í nótt eftir
10 daga ferð um svæðið. A sama
tíma og hann sneri heimleiðis bárust
fregnir af nýjum bardögum í Nicar-
agua og E1 Salvador.
Á leið sinni heim í gær gerði
Stone þriggja tíma stans á ferð
sinni í Managua, höfuðborg Nicar-
agua, og ræddi þar í klukkustund
við Daniel Ortega, yfirmann her-
stjórnar landsins, og Miguel
D’Éscoto, utanríkisráðherra.
Stone vildi ekkert gefa upp hvað
þeim fór á milli, en sagði viðræð-
urnar hafa verið „nokkuð gagnleg-
ar“. Skömmu eftir fund sinn með
Stone hitti Ortega Yuri Joachim,
starfsmann sovéska sendiráðsins í
Managua, að máli.
Mótmælakonur
teknar höndum
Komulus, New York, 2. igúsí. AP.
KONUR hótuðu í dag að halda
áfram mótmælum við birgðastöðina
í Seneca eftir að 242 þeirra höfðu
verið handteknar í gær. Konurnar
eru um 1.900 talsins.
Þær mótmæla fyrirhugaðri
staðsetningu stýriflauga og Persh-
ing 2-flauga í Evrópu í ár. Kon-
urnar gengu að vopnabúrinu og
röðuðu sér umhverfis 6 feta háa
veggi þess í litlum hópum.
Efnt var .til mótmælanna í
kjölfar fjölmennustu mótmæla
sumarsins. Konurnar eru víðs veg-
ar að úr heiminum; sumar sem
þátttakendur, aðrar sem áhorf-
endur.
„Mótmælum okkar mun ekki
ljúka að fullu fyrr en öllum kjarn-
orkuvopnum hefur verið útrýmt í
heiminum," sagði Toni Fitzpat-
rick, ein forystukvennanna.
Áður en Stone kom til Managua
hafði hann rætt viö skæruliða frá
E1 Salvador i Bogota í Kólombíu.
Skæruliðarnir hafa um langt skeið
reynt að velta stjórn landsins úr
sessi. Stjórnin í E1 Salvador nýtur
stuðnings Bandaríkjamanna, sem
sakað hafa stjórnvöld í Nicaragua
um að koma sovéskum og kúb-
önskum vopnum í hendur skæru-
liðum. Bandaríkjamenn hafa stutt
stjórnarandstæðinga í Nicaragua.
Reagan Bandaríkjaforseti lýsti
um helgina yfir ánægju sinni með
þau ummæli Fidel Castro, leiðtoga
Kúbumanna, að þeir væru reiðu-
búnir til að binda endi á vopna-
sendingar og herfræðilega aðstoð
við ýmis Mið-Ameríkuríki gegn
vissum skilyrðum. „Sé honum
(Castro) alvara með þessum um-
mælum er það góðs viti,“ sagði
Reagan. Sagði forsetinn
Bandaríkjamenn reiðubúna að
taka þátt í samningaviðræðum.
Jafnframt hvatti Reagan til þess
að lögð yrði áhersla á að frjálsar
kosningar yrðu haldnar í Nicar-
agua, ritfrelsi leyft og önnur for-
smáð mannréttindi virt.
Bandaríkjastjórn kvaðst fyrir
helgina vonsvikin vegna úrslita
atkvæðagreiðslu í fulltrúadeild
þingsins um frumvarp um aukna
leynilega hjálp við skæruliða í
Nicaragua. Var frumvarpið fellt
með 228 atkvæðum gegn 195. Er
talið líklegt að frumvarpið nái
aldrei fram að ganga í öldunga-
deildinni.
Reagan eftir fund með Shamir og Ahrens:
„ísraelsmenn verða ekki
til frambúðar í Líbanon“
Washington, 2. ájfÚNt. AP.
REAGAN forseti sagði eftir fund með
Yitzhak Shamir, utanríkisráðherra, og
Moshe Arens, varnarmálaráðherra,
um helgina að ástæðulaust væri að
fjölga bandarískum hermönnum í
Líbanon, þótt ísraelar hörfuðu.
Reagan kvaðst ekki sjá ann-
marka á undanhaldi fsraela og
George P. Shultz, utanríkisráð-
herra sagði það rangtúlkun að með
tilfærslunni væru ísraelar að
hreiðra um sig til langframa.
Assad Sýrlandsforseti kvaðst
ekki mundu hverfa með 50 þúsund
manna lið sitt fyrr en fsraelar hörf-
uðu. fsraelar og Bandaríkjamenn
hefðu árangurslaust beitt Sýrlend-
inga þrýstingi til að fá þá á brott.
Nú væru Sýrlendingar tilbúnir til
bardaga ef með þyrfti.
fsraelska sjónvarpið sagði þó að
Sýrlendingar kynnu að fallast á
brottflutning gegn skilyrðum, sem
Bandaríkjamenn yrðu að sam-
þykkja. Skilyrðin væru svipuð og í
samkomulaginu um brottflutning
ísraelshers, þar sem tryggt var að
Líbanonsher kæmi ekki inn á 45
kílómetra breitt svæði meðfram
landamærum ísraels.
Reagan sagði Rússa leita að tæki-
færi til íhlutunar í Líbanon, en eng-
inn vildi sjá þá nema Sýrlendingar.
Vonandi tækist einhverjum að telja
Sýrlendingum hughvarf. Sérfræð-
ingur Prövdu sagði skömmu síðar
að Bandaríkjamenn og Sovétmenn
ættu að taka saman höndum í Mið-
austurlöndum.
Arens sagði eftir fundinn með
Reagan að Tsraela og Bandaríkja-
menn greindi óverulega á í málefn-
um Líbanon. Bandaríkjamenn
munu hafa fallist á hugmyndir
fsraela um að stjórn Gemayels taki
í sínar hendur stjórn borgaramála
á svæðum sem fsraelar ráða.
Stríðandi fylkingar skæruliða
lögðu niður vopn í Trípóli og líb-
anska lögreglan náði undirtökun-
um.
Arabaþjóðir lögðu til að Örygg-
isráðið fordæmdi víg palestínskra
stúdenta í Hebron.
Aflétt var útgöngubanni í Nabl-
us, en lýst yfir útgöngubanni f An-
abta, Ramin og Beit Lid eftir skot-
árás á ísraela.
fsraelsher umkringdi bækistöð
kristinna hægrimanna í Kfar Fal-
ous og flutti þá brott, þótt opinber
talsmaður bæri það til baka. Koma
ísraela til borgarinnar var for-
dæmd.
Stuttfréttir
KUNNIR LEIK-
ARAR LÁTNIR
PETERARNE
Lundúnum 2. ágú.st. AP.
Breski leikarinn Peter Arne
fannst látinn á heimili sínu í
Lundúnum í gær. Hafði hann
verið barinn til dauða, en
lögreglan leitar morðingjans.
Arne var helst kunnur fyrir
leik sinn í Straw Dogs, Moon-
raker og The Return of the
Pink Panther. Arne var 62
ára.
RAYMOND
MASSEY
Beverly Ifills, 2. igúsL AP.
Hinn 82 ára gamli banda-
ríski leikari Raymond Massey
lést einnig í gær. Banamein
hans var lungnabólga. Massey
var kunnastur úr bandaríska
sjónvarpsmyndaflokknum
Doctor Kildare og kvikmynd-
inni East of Eden.
j
Maaeey Bmd
BUNUEL
LÁTINN
IMexíkóborg, 2. ágúst. AP.
Spænski kvikmyndaleik-
stjórinn Luis Bunuel lést f
sjúkrahúsi í Mexíkóborg í
gær, 83 ára gamall.
Bunuel var talinn i hópi
snjöllustu kvikmyndaleik-
stjóra samtímans. Hann var
mexíkanskur ríkisborgari frá
1949 og 20 af 32 kvikmyndum
sínum gerði hann í Mexíkó.
TITANIC
FUNDIÐ?
SL ('laire, Michigan, 2. ágú.Nt. AP.
Leiðangur undir stjórn
James Clary og Jack Grimm
telur sig vera búinn að finna
flak farþegaskipsins Titanic á
tveggja kílómetra dýpi. Um
tíma virtist leiðangurinn hafa
farið út um þúfur vegna
vondra veðurskilyrða, en svo
birti til og leiðangursmenn
gátu skoðað þrjú fyrirbæri
sem litu út fyrir að vera skips-
flök á djúpleitartækjunum.
Eitt þeirra er að sögn leiðang-
ursmanna „rétt lögun, rétt
stærð, lengd og breidd".
BRUNI í
BORPALLI
Aberdeen, 2. ápÍNt. AP.
Allmikil sprenging varð í
olíuborpalli BP í Norðursjó í
gær, en ekki er talin hætta á
meiri háttar slysi. 12 starfs-
menn borpallsins hlutu
brunasár, en enginn þeirra
slasaðist lífshættulega. Á
tveimur klukkustundum tókst
70 starfsmönnum pallsins að
ráða niðurlögum eldsins.
VINSÆLDIR
BEGINS DVÍNA
Tel Aviv, 2. ágúst. AP.
Skoðanakannanir benda til
að vinsæidir Begins forsætis-
ráðherra hafi dvínað talsvert.
33,2 prósent aðspurðra studdu
enn Begin. Sú tala var 41,1% í
júnf og 45% í mars.
HJARTALÆKN-
IRINN HÆTTIR
llöróaborK, 2. ágúsl. AP.
Hjartaskurðlæknirinn
frægi Christian Barnard hef-
ur dregið sig í hlé þar eð
skjálfti í höndum hans hefur
gert honum ókleift að stunda
uppskurði.