Morgunblaðið - 03.08.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
45
Þakkir til Reykjavík-
urborgar og aðstand-
enda brúðubílsins
Tveggja barna móöir í Breiðholti
skrifar:
„Góði Velvakandi.
Mig langar til að koma á fram-
færi þökkum til aðstandenda
brúðubílsins. Ég fór með börnin
mín tvö á sýningu í Breiðholti í
sumar og þarna var boðið upp á
leiksýningu, sem á sér enga líka
hér á landi. Leikararnir voru allir
dýr, drekar, apar, krókódíll, fugl-
ar, að ógleymdum refnum, sem
gerði mikla lukku hjá börnunum.
Dýrin töluðu og sungu með barna-
skaranum og það var sannarlega
áhrifamikið að taka þátt í barns-
legri gleði áhorfendanna.
Ég get ekki orða bundist um
það, hvað brúðurnar eru sérstak-
lega fallegar og vel gerðar. óska
ég þeim Sigríði og Helgu, sem
standa fyrir þessu skemmtilega
leikhúsi, til hamingju með frá-
bært starf.
Ég las í Morgunblaðinu fyrir
skömmu að Reykjavíkurborg byði
börnunum upp á þessa skemmtun.
Þökk sé öllum þeim sem eiga hlut
að þessu menningarframtaki, og
ég vona, að maður fái að sjá fleiri
slíkar sýningar í framtiðinni.
Þarna var ótrúlegur fjöldi af
bömum, og sýnir það, hversu vin-
sælar þessar leiksýningar eru hjá
þeim. Þau voru greinilega komin
til að hitta vini sína, apann, refinn
og hin dýrin, og taka þátt í gleði
þeirra og sorgum. Þarna komu
þær stöllur fræðslu á framfæri við
börnin og átti hún greiðan aðgang
að þeim.
Ékki er of mikið gert fyrir
yngstu börnin. Þarna voru börn
niður í tveggja ára og virtust þau
eiga auðvelt með að lifa sig inn í
leikinn af lífi og sál.“
Hjartans þakkir flyt ég vinum mínum og venslamönnum sem
heiðruðu mig á 75 ára afmæli mínu hinn 10. júlí síðastliðinn.
Sigurður ísólfsson.
GRJOTGRINDUR
A FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
Eram sértiælðlr i FIAT og CITROEN
SKEMMUVEGI 4
KOPAVOGI
SIMI 7 78 40
KVERKSTÆÐIÐ
nastás
Þetta er besta
sölusófasettið
okkar í bili, enda sterkt og ódýrt
■
Greiðslukjör í 6 til 8 mánuði
HISGA6NAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410
með því allra besta, sem sjónvarp-
ið hefur sent frá sér. Mér skilst, að
þeir séu nú endursýndir. En
hvernig getur það hafa átt sér
stað, að fyrri sýningarnar hafa al-
gjörlega farið fram hjá mér? Það
er ekki síður ánægjulegt að verða
vitni að því, hvað hóparnir héðan
að heiman hafa lagt mikið fram til
ánægju og uppbyggingar á þessari
miklu hátíð fyrir vestan. Kærar
þakkir til allra þeirra, er hlut eiga
að máli.
Fyrirspurn til
gatnamálastjóra
Einar Örn Thorlacius hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar að koma á framfæri fyrir-
spurn til gatnamálastjóra: Hve-
nær má vænta þess, að göturnar
Kleppsmýrarvegur og Skútuvogur
verði malbikaðar? Við báðar þess-
ar götur eru miklar Vöruflutn-
ingastöðvar, þ.e. Vöruleiðir og
Landflutningar, og mikil þunga-
umferð. Þetta eru stuttar götur,
en bilar fara þar um mikið hlaðnir
og því afskaplega bagalegt að hafa
þar þvottabretti og slæma að-
komu.
Manni svídur
svona framkoma
Gunnlaugur hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Ég ók
Breiðholtsbrautina heim í morgun
eins og oftar. Þar er verið að gera
þetta litla sætt og fínt við Blesu-
grófina, upp með Breiðholtsbraut.
Og það hefur verið unnið í þessu í
mestallt sumar, annað sumarið i
röð. Þess vegna finnst mér það
stinga algerlega í stúf við þessa
fegrunarviðleitni borgaryfirvalda,
að nú þegar gróðurnálarnar eru að
byrja að teygja sig upp öðru sinni
þá er eins og bíleigendur geti ekki
séð þær í friði. Þeir eru þegar
byrjaðir að aka þvers og kruss
þarna yfir og inn á göturnar í
Blesugrófinni. Þeir hafa sennilega
fengið heldur lága skatta og lang-
ar að bæta við þá vinnu við lag-
færingar á skemmdunum eitt
sumarið enn. Manni svíður svona
framkoma ökumanna, þegar verið
er að framkvæma hluti eins og
þarna til fegrunar og snyrtingar
fyrir almannafé.
Biðskýlin til
fyrirmyndar
Sverrir Sverrisson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar til að koma á framfæri
þökkum til forráðamanna Stræt-
isvagna Reykjavíkur og borgaryf-
irvalda fyrir biðskýlin, sem búið
er að setja upp víða um borgina af
miklum myndarskap, t.d. á Ægi-
síðunni. Mér finnast þau til fyrir-
myndar. Einnig langar mig að tjá
ánægju mína með það, hvað vagn-
stjórar á Leið 4 eru passasamir
með tímann. Ávallt skulu þeir
gæta þess að vera hvorki á undan
né eftir áætlun og það kunnum við
farþegarnir að meta.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Úrslitin ullu vonbrigðum.
Rétt væri: Úrslitin ollu vonbrigðum.
Ath.: ollu er af að valda; en ullu er af að vella.)
Framdrlfslokur - Aflstýrl - utað gler - Rúllubeltl •
upphltuð afturrúða - Þurrka og vatnssprauta á
afturrúðu - o.m.fl.
Verð frá kr. 514.000