Morgunblaðið - 03.08.1983, Side 44
BÍLLINN
BILASALA SIMI 79944 SMIÐJUVEGI 4 KÓPAVOTt
^\skriftar-
siminn er83033
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1983
500 milljón
kr. útskipun
á tíu dögum
UNDANFARNA daga hefur Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna verið að
afskipa miklu magni af frystum fisk-
afurðum til Bandaríkjanna. Nemur
verðmæti útskipaðs farms um 17,7
milljónum dollara eða um 490 millj-
ónum íslenskra króna.
Að sögn Guðmundar H. Garð-
arssonar, blaðafulltrúa SH, fór
Hofsjökull nýverið vestur um haf
með 4.000 lestir af frystum fiskaf-
urðum og þessa dagana er verið að
lesta í Goðafoss 2.700 lestum.
Samtals eru þetta því 6.700 lestir
og auk venjubundinna útflutn-
ingsafurða er talsvert af frystum
humri í þessum förmum.
Úlfarsá:
48 laxar á
einum degi
MOKVEIÐI hefur verið í Úlfarsá í
Mosfellssveit, eða Korpu eins og
sumir nefna hana. 1. ágúst var kom-
inn 241 lax á land úr ánni, en á sama
tíma í fyrra hafði aðeins veiðst 71
lax, aukningin er því rúmlega þre-
fóld.
Mest veiddist þann 28. júlí síð-
astliðinn, en þá komu eigi færri en
48 laxar á land, en aðeins er veitt
á tvær stangir í Úlfarsá.
Meðalþunginn er svipaður og í
Elliðaánum, um 5 pund og stærstu
laxar um 14 pund. Megnið af afl-
anum hefur veiðst í fossunum
tveimur við árósinn, en úr þessu
má búast við því að veiðistaðir
ofar fari að gefa afla. Sjá nánar
„Eru þeir að fá ’ann?“ á blaðsíðu
27.
Lengsta sjúkraflug TF-RÁN
Morgunblaóið / Kristján 1». Jón.Nson.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF-RÁN, fór í gær í lengsta sjúkraflug, sem vélin hefur farið í til þessa. Tveir sjómenn voru sóttir um
borð í tvo togara á hafi úti. Á meðfylgjandi mynd sést skipverji á Bjarna Benediktssyni RE í körfu í stefni skipsins og skömmu síðar
var hann hífður um borð í þyrluna. Togarinn var staddur á Halamiðum. Sjá nánar um sjúkraflugið á bls. 3.
Hinn nýi methafi í svifflugi, Baldur Jónsson, á heimili sínu í gærkvöldi.
Nýtt íslandsmet f svifflugi: M^nb,n4i4/(i“4j6n
Flaug fyrstur gull-C
„ÉG FLAUG austur að Leiðólfsfelli, tók þar mynd af hornpunktinum og
sneri við og flaug til baka aftur og lenti á Sandskeiði, eftir mikinn
barning við Ingólfsfjall. Þetta er meira en íslandsmet í lengdarfiugi á
svifflugu, því þetta er gull-C, sem aldrei hefur verið tekið áður hér á
landi, meira að segja með demanti,“ sagði Baldur Jónsson, byggingar-
meistari, sem á sunnudaginn setti nýtt íslandsmet í svifflugi, fiaug
svifflugu sinni yfir 300 kílómetra frá Sandskeiði að Leiðólfsfelli og til
baka aftur til Sandskeiðs og bætti fyrra met um rúma 50 kílómetra, en
það var sett fyrr í sumar. Svifflugnefnd Flugmálafélags íslands á eftir
að staðfesta metið formlega.
„Ég var í 7 klukkutíma og 20
mínútur á lofti og flugið gekk
vel, nema við Ingólfsfjall, þar
sem ég var næstum dottinn
niður. Eg flaug alla leið austur á
Foss á Síðu og flugið var miklu
lengra en það sem fæst viður-
kennt, því það er bara á milli
hornpunktanna sem voru
ákveðnir fyrirfram. Maður
ákveður það áður en maður legg-
ur af stað hvernig ætlunin er að
fljúga og það er vottað af trún-
aðarmanni Flugmálafélagsins
eða einhverjum svifflugmanni
og mér tókst það sem ég ætlaði
mér. Það að fljúga yfir 300 kíló-
metra gefur gull-C og demantur-
inn fæst fyrir að ákveða flugið
fyrirfram. Ég fór hæst í
5600—5700 metra hæð og það er
möguleiki að það sé demantur
fyrir það einnig, því ef maður
hækkar sig um 5 þúsund metra
eftir að maður sleppir, er einn
demantur fyrir það og ég sleppti
í 600 metra hæð yfir Sand-
skeiði," sagði Baldur.
lömbum
tvö greni
Dýrbítar unnir í Mosfellssveit:
Leifar af 37
fúndust við
TVÖ TÓFUGRENI voru nýlega unnin á afrétti Mosfellinga.
Ummerki við grenin báru það greinilega með sér að í þeim
báðum voru dýrbítar, því við þau var mikið af hauskúpum og
leggjum af lömbum og fullorðnu fé.
Helgi Bachman og Ómar Run-
ólfsson refaskyttur voru að leita
á afrétti og fundu þeir þá annað
grenið eftir nokkra leit og tókst
að vinna þar 6 dýr, 2 fullorðin og
4 yrðlinga. Við grenið voru 6 eða
7 hauskúpur af lömbum sem
greinilega voru frá því í sumar og
einnig eitthvað frá fyrra ári, en
Helgi sagði í samtali við Mbl. að
búast mætti við að annað eins
hefði verið inni í greninu. Eftir
þetta fóru þeir að leita betur og
fundi þeir þá nýbitið lamb. Biðu
þeir við lambshræið og skutu
læðu og einn yrðling sem komu
að því og fundu þeir síðan annað
greni og unnu refinn og þá tvo
yrðlinga sem eftir voru.
Við þetta greni fundu þeir 12
hausa, bæði af lömbum og full-
orðnu fé, og áætluðu að annað
eins hefði verið inni í greninu,
þannig að í og við þessi tvö dýr-
bítagreni hafa verið leifar af 37
lömbum. Sagði Helgi að ekki væri
það að furða, því þegar yrðl-
ingarnir væru orðnir þetta stórir
þá þyrfti lamb á dag til að fóðra
íbúa hvers grenis.
Mýrdalur:
Mikill skaði af heyfoki
MIKILL skaói varð af heyfoki í
Mýrdalnum seinnipart sunnudags-
ins og aðfaranótt mánudagsins, en
þá gerði hvasst af norðri og hey fauk
á haf út, en bændur áttu mikið hey
flatt. Veðurspá var nokkuð góð og
illa hefur gengið það sem af er sumri
að ná inn heyjum. Á fjórum bæjum
þar sem Morgunblaðið kannaði mál-
ið í gær fuku mest 800—1000 baggar
af heyi á einum bæ, en minnst 70.
Alíir þessir bæir eru austarlega
í Mýrdalnum, þar sem getur orðið
mjög hvasst í hviðum. í Kerl-
ingardal fuku 800—1.000 baggar, á
Höfðabrekku um 400 baggar, á
Litlu-Heiði 500—700 baggar og á
Stóru-Heiði 70 baggar af heyi.
Hvassviðrið ódrýgði einnig hey
á Síðu og undir Eyjafjöllum, eink-
um undir þeim austanverðum og á
Skógarsandi fauk talsvert af heyi.
Á veðurathugunarstöðinni á
Vatnskarðshólum fengust þær
upplýsingar að veðurhæðin hefði
verið sögð 8 vindstig, en hvassara
hefði orðið i mestu hviðunum.
Þessi vindhraði er óvenjulegur á
þessum árstíma í Mýrdalnum.