Morgunblaðið - 23.08.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.08.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÍJST 1983 5 Stöðugur straumur fólks á iðnsýninguna AÐSÓKNIN á iðnsýninguna í Laugardalshöll hefur verið með ágætum það sem af er, að sögn Sigurjóns Jóhannssonar, blaðafulltrúa sýningarinnar. Á sunnudagskvöldið höfðu rúmlega tólf þúsund manns séð sýninguna, og var sérstaklega fjölmenn á sunnudaginn, en þá komu um sex þúsund manns. Og þegar Morgunblaðið hafði samband við Sigurjón síðdegis í gær lá stöðugur straumur fólks inn í Höllina. Happagestur er valinn daglega á sýningunni, þ.e.a.s. gestir geta átt von á því að fá vingjarnlegt klapp á bakið og tilkynningu um að einhver hlutur á sýningunni sé þeirra. Að sjálfsögðu er hendings- aðferð notuð við val á þeim heppnu. Fyrsti happagesturinn var Sigríður Ingvadóttir og er meðfylgjandi mynd af Sigríði tek- in nokkrum sekúndubrotum eftir að henni voru færð gleðitíðindin. Enda talar svipurinn sínu máli. í „happagjöf" fékk Sigríður skrif- stofustól frá Stálhúsgagnagerð Steinars hf. Vinstra megin á myndinni er Guðni Jónsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, greinilega mjög ánægður líka. Iðnsýningin er opnuð klukkan þrjú á virkum dögum og stendur til tíu á kvöldin. Fyrsti happagesturinn á sýningunni, Sigríður Ingvadóttir, Ijómar eins og sól í heiði þegar henni eni færð gleðitíðindin. Morgunblaðið/RAX. Enski boltinn óbreyttur, getraunaseðillinn hækkar SVIPAÐ snið verður á útsendingu sjónvarpsins frá ensku deildar- keppninni og var í fyrra: sýndir verða valdir kaflar úr leikjum fyrri viku klukkan 18.50 á laugardög- um. Fyrsta umferð ensku deildar- keppninnar fer fram laugardaginn 27. ágúst og verður sýnt frá leikj- um þeirrar umferðar viku síðar, laugardaginn 3. september. Að vanda hófst vertíð ensku knattspyrnunnar á viðureign bikarmeistaranna og Englands- meistaranna, þetta er leikurinn um „góðgerðarskjöldinn", sem svo er nefndur, og léku Eng- landsmeistaranir Liverpool og bikarmeistararnir Manchester United á Wembley-leikvangin- um síðastliðinn laugardag. Að sögn Bjarna Felixsonar, íþrótta- fréttamanns sjónvarpsins, verð- ur þessi leikur sýndur í íþrótta- þætti laugardaginn 27. ágúst. Getraunirnar verða einnig með hefðbundnu sniði, þ.e.a.s. áfram verða tólf leikir á seðlin- um. Sigurgeir Guðmannsson, framkvæmdastjóri íþrótta- bandalags Reykjavíkur, sagði að venjuleg sala getraunaraða hér á landi væri um 500—600 þúsund raðir á viku. Taldi hann að tólf leikja raðir væru mjög heppi- legar fyrir íslendinga, en það munu vera rúmlega 530 þúsund möguleg úrslit úr tólf leikjum. Verð hverrar raðar hækkar úr krónum 1,50 í 2,50. Hressir málarar ,* Skagastrtfnd, 15. ágúnL í SUMAR hefur verið heldur Ktil vinna fyrir unglinga á Skagaströnd öfugt við það sem verið hefur undan- fariln sumur. Þess vegna hafa margir ungl- inganna beðið í ofvæni eftir að fá vinnu við hina árvissu málningu á togaranum Arnari. Þessi málningarvinna er nú í fullum gangi en milli 20 og 30 unglingar vinna við verkið, sem áætlað er að taki u.þ.b. hálfan mánuð. Er það þakkarvert að Skag- strendingur hf., sem gerir út Arn- ar, skuli láta taka togarann í gegn hér heima, því annars hefðu margir unglinganna haft litla sem enga vinnu hér á Skagaströnd í sumar. ÓB Örkin hans Nóa vekur mikla eftirtekt á iðnsýningunni í Laugardalshöll. Sennilega tekur hún þó ekki öll dýr merkurinnar, enda ekki til þess smíðuð, heldur er þetta þjónustuörk fyrir gesti sýningarinnar. Þarna geta menn staðið við borðstokkinn og gætt sér á súkkulaði og íslenskri mjólk. Morgunblaðið/Emilía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.