Morgunblaðið - 23.08.1983, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1983
39
Fjögur hundruð fímm-
tíu og sjö myndir
Erlendar
bækur
Siglaugur Brynleifsson
Renatc and L Fritz Gruber: The
Imagniary Photo Museum. With
456 Photographs from 1836 to the
Present. With texts by Helmut
Gernsheim, L. Fritz Gruber, Beau-
mont Newhall and Jeane von
Oppenheim. English Translation
by Michael Rollof. Penguin Books
1982.
Fritz Gruber er kunnur sem
aðalhvatamaður ljósmyndasýn-
inga og kvikmyndasýninga i
Köln. Hann hefur sett upp meira
en þrjú hundruð slíkar sýningar
milli 1950 og 1980. Hann hefur
einnig skrifað nokkrar bækur
um ljósmyndagerð og staðið að
mörgum sjónvarpsþáttum um
sama efni. Renate Gruber, eig-
inkona hans, hefur verið nánasti
samstarfsmaður hans undanfar-
in tuttugu ár og sér um ljós-
myndasafn hans.
Photokina er ljósmyndasýning
og jafnframt markaður, sem
haldin er í Köln á hverju ári. Það
hefur orðið til þess að auka
skilning manna á listrænu gildi
ljósmynda auk sögulegs gildis
þeirra. Fljótlega eftir að ljós-
myndatækni hófst var hún við-
urkennd sem listgrein af lista-
mönnum almennt, en þrátt fyrir
það er ekki langt síðan að lista-
söfn tóku að meta og viðurkenna
þessa listgrein með þvi að kaupa
og sýna ljósmyndir vegna list-
ræns gildis þeirra.
Það var haldin mikil listasýn-
ing í Manchester 1857, og þar
voru sérstök salarkynni tekin
undir ljósmyndasýningu, en sýn-
ingin stóð aðeins skamman tíma.
Fyrsta varanlega ljósmyndasafn
kom fyrst til sögunnar í Kunst-
halle í Hamborg.
Þar var haldin fyrsta viða-
mikla ljósmyndasýningin 1893
undir stjórn Ernst Juhl og sýnd-
ar um sex þúsund ljósmyndir.
Fyrsta fastasafn ljósmynda i
Bandaríkjunum var í Smith-
sonian-stofnuninni i Washing-
ton; það safn var helgað visinda-
sögu og tækni. The Museum of
Modern Art í New York og
George Eastman House i Roch-
ester sérhæfa sig i ljósmynda-
söfnun og sýningum. Víða í Evr-
ópu eru starfandi ljósmyndasöfn
og einnig eru listasöfn tekin að
safna og sýna ljósmyndir.
Þessi bók er úrval ljósmynda
frá 1836 til dagsins í dag og tit-
illinn er frá André Malraux, en
hann dreymdi um einkasafn
heimslistar, sem væri gjörlegt
að stofna til með hjálp prent-
tækni nútímans. Þetta er mjög
smekkleg útgáfa. Bókin kom
fyrst út á þýsku hjá DuMont
1981.
t
Eiginmaður minn,
ERICH EGON HÚBNER,
veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju, miövikudaginn 24. ágúst
kl. 15.00.
Halldóra Finnbjörnsdóttir.
t
GUÐMUNDURJÓNSSON,
húsasmióameistari,
Flatayrl,
er lóst 16. ágúst veröur jarösunginn frá Flateyrarkirkju, miöviku-
daginn 24. ágúst kl. 14.00.
Steínunn Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Inniiegustu þakkir fyrir aila þá samúö og vináttu er okkur hefur
veriö sýnd við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdafööur og afa,
GUDMUNDAR SKARPHÉÐINS KRISTJÁNSSONAR,
Stórageröi 12, Reykjavík.
Ólafía Guömundsdóttir,
Inga K. Guömundsdóttir, Bjarni Guðmundsson,
Þórdís K. Guómundsdóttir,
Pálmar Guömundsson, Erla Rannveig Gunnlaugsd.
og barnabörn.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö
andlát og útfarir feöganna
Valtýs Jónssonar Jóns G. Jónssonar
verslunarmanns, og fyrrv. gjaldkera,
Hamrabergí 38, R. Víöimel 40, R.
Kristlaug Gunnlaugsdóttir,
Gunnlaugur Valtýsson, Elín Eiríksdóttir,
Jón S. Valtýsson, Ásta Björnsdóttir,
Vatýr E. Valtýsson, Björk Einisdóttir,
Guömundur H. Valtýsson, Róbert Valtýsson,
og Valtýr Örn, Siguröur Steini, Elísa Rós,
Davíö, Elías Kári og Jónas.
MTX50
LÉTT BIFHJÓL
FYRIR 15 ÁRA
OG ELDRI
Kr.: 48.840-
HONDA Á ÍSLANDI
VATNAGÖRÐUM 24
SÍMI 38772 — 39466
Enginn efast
um gæðin frá
Þvotturínn þinn á aðeins skilið það besta
ÞVOTTAVÉL — tekur allt að 9 kg. og tekur inn á sig
heitt og kalt vatn.
Stillanlegt vatnsmagn í samræmi við þvottinn hverju sinni.
ÞURRKARI — tekur allt að 7 kg. af þurrum þvotti.
Meðal þurrktími 60-70 mín. 3 mismunandi hitastillingar.
1/^K.IIO ódýr og vönduð heimilistæki
l\3lillo■ 111 ii i
ARMULA8 S:19294