Morgunblaðið - 24.08.1983, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Peninga-
markadurinn
/■
GENGISSKRÁNING
NR. 155 — 23. AGUST
1983
Kr. Kr.
Eining Kl. 09.15 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollari 27,800 27,880
1 Sterlmgspund 42,772 42,845
1 Kanadadollari 22,582 22.647
1 Dönsk króna 2,9478 2,9561
1 Norsk króna 3,7767 3,7875
1 Sænsk króna 3,5804 3,5907
1 Finnskt mark 4,9308 4,9450
1 Franskur franki 3,5307 3,5409
1 Belg. franki 0,5294 0,5309
1 Svissn. franki 13,0584 13,0960
1 Hollenzkt gyllini 9,4968 9,5241
1 V-þýzkt mark 10,6178 10,6483
1 ítölak líra 0,01778 0,01783
1 Austurr. sch. 1,5088 1,5132
1 Portúg. escudo 0,2307 0,2314
1 Spénskur peseti 0,1872 0,1877
1 Japansktyen 0,11492 0,11525
1 írskt pund 33,485 33,581
Sdr. (Sérstök
dráttarr.) 22/08 29,3928 29,4773
1 Belg. franki 0,5252 0,5267
V
—
— TOLLGENGI í ÁGÚST —
Eining Kl. 09.15 Toll- gengi.
1 Bandaríkjadollari 27,790
1 Sterlingspund 42,401
1 Kanadadollari 22,525
1 Dönsk króna 2,9388
1 Norsk króna 3,7666
1 Sænsk króna 3,5914
1 Finnskt mark 4,9431
1 Franskur franki 3,5188
1 Belg. franki 0,5286
1 Svissn. franki 13,1339
1 Hollenzkt gyllini 9,4609
1 V-þýzkt mark 10,5776
1 jtölak líra 0,01797
1 Austurr. sch. 1,5058
1 Portúg. escudo 0,2316
1 Spánskur peseti 0,1863
1 Japansktyen 0,11541
1 írskt pund 33,420
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur...............42,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.11. 45,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1)... 47,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar.0,0%
5. Verötryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
6. Ávísana- og hlaupareikningar... 27,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæöur í dollurum........ 7,0%
b. innstæöur í sterlingspundum. 8,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæöur í dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Veröbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir.... (32,5%) 38,0%
2. Hlaupareikningar .... (34,0%) 39,0%
3. Afuröalán ........... (29,5%) 33,0%
4. Skuldabréf .......... (40,5%) 47,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán...........5,0%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæö er nú 200 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á timabilinu frá 5 til 10 ára
sjóðsaöild bætast viö höfuöstól leyfl-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöin oröin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast við 2.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóðnum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu. en lánsupphæöln ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir ágúst 1983 er
727 stig og er þá miöaö viö vísitöluna
100 1. júní 1979.
Byggingavisitala fyrir júli er 140 stig
og er þá miðað viö 100 í desember
1982.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextlr eru nú
18—20%.
Ný útvarpssaga kl. 14.00
„Brosið eilífa"
eftir Pár Lagerkvist Nóbelsverðlaunahafa
Ný framhaldssaga hefst í útvarpi
kl. 14.00 en það er sagan „Brosið
eilífa'* eftir Pár Lagerkvist. Nína
Björk Árnadóttir les þýöingu sína.
— Pár Lagerkvist fæddist í
Váxjö í Smálöndum í Svíþjóð ár-
ið 1891, sagði Nína Björk.
Uppruni hans er meðal
bændafólks. Hann gaf út sína
fyrstu bók aðeins 21 árs gamall.
Það var prósabókin „Manneskj-
ur“ og aðra bók gaf hann út árið
eftir. Síðar vildi hann lítt af
þessum fyrstu bókum sínum
vita.
Áriðo1916 kom svo út ljóðabók
hans „Ángest", sem fyrst vakti á
honum verulega athygli.
Svo koma árin á eftir nokkur
leikhúsverk, einþáttungar og
leikrit, þar á meðal „Leyndar-
dómur himinsins". Grunntónn
þeirra og reyndar nær allra
verka hans síðan er mótsögnin
milli manneskjunnar og lífsins.
Hann snýst heitur gegn lífinu,
sem eyðileggur manneskjuna.
Leikrit hans „Jóns-
messudraumur á fátækraheimil-
inu“ hefur verið flutt hjá Leik-
félagi Reykjavíkur, í þýðingu
Lárusar Pálssonar.
Nokkur bjartsýni nær tökum á
honum í bókinni „Brosið eilífa“,
sem nú verður flutt í útvarpi.
Brosið eilífa hefur einnig verið
fært í leikbúning undir nafninu:
„Hinn ósýnilegi," manneskjan
neitar að gefa upp vonina.
Hið sama má segja um ljóða-
bókina „Vegur hins hamingju-
sama,“ 1921, en efi og beiskja
taka svo aftur við í næstu verk-
um hans.
Eftir þetta skrifaði Pár Lag-
erkvist margar bækur og hafa
ýmsar þeirra náð heimsfrægð.
Pár Lagerkvist
Böðullinn kom út árið 1933,
var strax árið eftir þýddur á ís-
lenzku af Sigurði Þórarinssyni
og Jóni Magnússyni. Böðullinn
kom út rétt eftir að Hitler komst
til valda og er mögnuð ádeila á
fasismann og nasismann. En
fyrsta bókin, sem náði alþjóð-
legri frægð var samt „Dvergur-
inn“, sem fyrir nokkrum árum
kom út á íslenzku í þýðingu
Málfríðar Einarsdóttur. „Barr-
abas“ kom út árið 1950 og hafa
Ólöf Nordal og Jónas Krist-
Nína Björk Árnadóttir
jánsson þýtt hana á íslenzku.
Þar er enn spurningin gamla á
ferðinni: Um getuna og mögu-
leika mannsins til trúar. Og hún
er áfram grunntónninn í næstu
verkum hans, sem eru stuttar
skáldsögur og byggja á efni úr
ritningunni. Ein þeirra hefur
komið út á íslenzku í þýðingu sr.
Gunnars Árnasonar, „Marí-
amna“.
Pár Lagerkvist fékk Nóbels-
verðlaunin árið 1951. Hann lést
1974.
Athafnamenn á Austurlandi kl. 20.30:
Rætt við Björn Kristjánsson
bónda og þúsundþjalasmið
frá Grófarseli í Jökulsárhlíð
Magnhildur Stefánsdóttir og Björn Kristjánsson, ábúendur Grófarsels.
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.30
er þátturinn Athafnamenn á Aust-
urlandi. Umsjónarmaðurinn,
Vilhjálmur Einarsson, skóla-
meistari á Egilsstöðum, ræðir
við Björn Kristjánsson bónda og
þúsundþjalasmið frá Grófarseli í
Jökulsárhlíð.
— Björn Kristjánsson er
sjálfmenntaður íslenskur bóndi,
sagði Vilhjálmur. — Hann kem-
ur víða við í þessari frásögn
sinni af mönnum og málefnum.
Frásögnin hefst um 1930, þegar
Björn er kallaður frá því að vera
forsöngvari í kirkju, í að reisa
sláturhús þar sem hann var
lengst af vélamaður. Hann segir
frá búskap í Jökulsárhlíðinni, en
þar bjó hann. Þótt Björn sé nú
aldraður maður er hann þó á
fullu að byggja sér hús.
Útvarp Revkjavík
AilDMIKUDKGUR
24. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð — Bald-
vin Þ. Kristjánsson talar.
8.40 Tónbilið.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sólmyrkvi í Súluvík“ eftir
Guðrúnu Sveinsdóttur. Jóna Þ.
Vernharðsdóttir les (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.35 Sjávarútvegur og siglingar.
Umsjónarmaður: Ingólfur Arn-
arson.
10.50 Söguspegill.
Þáttur Haraldar Inga Haralds-
sonar (RÚVAK).
11.20 Hljóð úr horni.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Lög úr kvikmyndum.
14.00 „Brosið eilífa“
eftir Pár Lagerkvist. Nína
Björk Árnadóttir byrjar lestur
þýðingar sinnar.
14.30 Miðdegistónleikar.
Heinz Holliger, Christiane Jacc-
ottett, Manfred Sax og Philippe
Mermoud leika Partítu í g-moll
fyrir óbó, sembal og bassa-
hljóðfæri eftir Georg Philipp
Telemann.
14.45 Nýtt undir nálinni.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplöt-
ur.
15.20 Andartak.
Umsjón: Sigmar B. Hauksson.
SÍDDEGIÐ
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Cathy Berberian syngur lög í
þjóðlagastfl eftir Luciano Berio
með Julliard-hljómsveitinni.
Höfundurinn stj./ Joáo Carlos
Martins og Sinfóníuhljómsveit-
in í Boston leika Píanókonsert
eftir Alberto Ginastera. Erich
Leinsdorf stj.
17.05 Þáttur um umferðarmál
í umsjá Birnu G. Bjarnleifsdótt-
ur.
17.55 Snerting.
Þáttur um málefni blindra og
sjónskertra í umsjá Arnþórs og
Gísla Helgasona.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
KVÖLDIÐ
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn.
Karl Ágúst Úlfsson heldur
áfram að segja börnunum sögu
fyrir svefninn.
20.00 Sagan: „Búrið“
eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur.
Höfundur les (9).
20.30 Athafnamenn á Austurlandi.
Umsjónarmaðurinn, Vilhjálmur
Einarsson, skólameistari á Eg-
ilsstöðum, ræðir við Björn
Kristjánsson, bónda og þúsund-
þjalasmið frá Grófarseli í Jök-
ulsárhlíð.
21.10 Einsöngur.
Christa Ludwig syngur lög eftir
Gustav Mahler. Gerald Moore
leikur á píanó.
21.40 Útvarpssagan:
„Strætið“ eftir Pat Barkcr. Erl-
ingur E. Halldórsson les þýð-
ingu sína (6).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dag.sk rá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 íþróttaþáttur Hermanns
Gunnarssonar.
23.00 Kvöldtónleikar.
a. Píanósónata eftir Árna
Björnsson. Gísli Magnússon
lcikur.
b. „í lundi Ijóðs og hljóma",
lagaflokkur eftir Sigurö Þórar-
insson. Sigurður Björnsson
syngur. Guðrún Kristinsdóttir
leikur á píanó.
c. Fiðlusónata í F-dúr eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
Þorvaldur Steingrímsson og
Guðrún Kristinsdóttir leika.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
24. ágúst
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Fiskiendur
Bresk náttúrulífsmynd um
andategundir í Skotlandi. Þýð-
andi og þulur Gylfi Pálsson.
21.05 Dallas
Bandarískur framhaldsflokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.00 Úr safni Sjónvarpsins
Huldubyggðin á heiðinni
Kvikmynd sem gerð var haustið
1971 um herstöð Atlantshafs-
bandalagsins á Keflavíkurflug-
velli og þá starfsemi sem þar
fer fram. Umsjónarmaður
Magnús Bjarnfreðsson. Áður
sýnd í Sjónvarpinu 1972.
23.00 Dagskrárlok