Morgunblaðið - 24.08.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
5
Kristbjörn Tryggva-
son lœknir látinn
KRISTBJÖRN Tryggvason læknir
lést í Reykjavík 23. ágúst. Hann
var fæddur í Reykjavík 29. júlí
1909, sonur hjónanna Tryggva Jó-
hanns Björnssonar skipstjóra og
Kristjönu Guðlaugsdóttur.
Kristbjörn varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1931 og lauk cand. med.-prófi frá
Háskóla íslands 1936. Stundaði
framhaldsnám víða erlendis og
fékk alm. lækningaleyfi 7. júní
1939, en 21. nóv. 1940 hlaut hann
viðurkenningu sem sérfræðingur
í barnasjúkdómum. Læknir í
Reykjavík frá 24. nóv. 1940,
Jónas Sólmundsson
húsgagnasmíða-
meistari látinn
Erlendir ritstjórar
heimsækja Vest-
mannaeyjar í dag
JÓNAS Sólmundarson, húsgagna-
smíðameistari lést í Reykjavík að
morgni 23. ágúst. Hann var fæddur í
Reykjavík 20. ágúst 1905.
Foreldrar hans voru Sólmundur
Kristjánsson trésmiður og kona
hans, Guðrún S. Teitsdóttir. Hann
nam húsgagnasmíði hjá Jóni Hall-
Jónas Sólmundsson
dórssyni og co. og lauk prófi frá
Iðnskólanum árið 1925 og sveins-
prófi ári síðar. Hann stundaði
framhaldsnám í Þýskalandi i hús-
gagnasmíði og innanhúsarki-
tektúr og stofnsetti árið 1930
smíðastofuna Reyni ásamt fleir-
um. Árið 1937 setti hann á stofn
eigin smíðastofu, smíðastofu Jón-
asar Sólmundarsonar. Hann sat í
stjórn Iðnaðarmannafélags ís-
lands árum saman og var í bygg-
ingarnefnd Iðnskólans frá upp-
hafi. Hann var gerður heiðursfé-
lagi Iðnaðarmannafélagsins 1977.
Eftirlifandi kona Jónas Sól-
mundssonar er Elín Guðmunds-
dóttir. Þau eignuðust fjögur börn.
Kristbjörn Tryggvason
deildarlæknir við barnadeild
Landspítalans frá 1. okt. 1956 og
yfirlæknir deildarinnar frá 1.
júní 1960. Kristbjörn varð dós-
ent við læknadeild Háskóla ís-
lands 1959, sat í stjórn Læknafé-
lags Reykjavíkur 1944—46 og
var formaður félagsins 1948—50.
Kristbjörn Tryggvason var
tvíkvæntur. Fyrri kona hans,
Fanney Sigurgeirsdóttir, lést 4.
ágúst 1941. Síðari kona hans var
Guðbjörg Helgadóttir. Þau eign-
uðust þrjú börn.
Norðurlandadeild International
Press Institute hóf ráðstefnu hér-
lendis á mánudag. Fimm ár eru síð-
an IPI hélt ráðstefnu hér síðast, og
eru gestir aö þessu sinni 70 talsins,
ritstjórar og fulltrúar blaða frá öll-
um Norðurlöndum. Auk fundar-
halda mun hópurinn fara í skoðunar-
ferðir um landið.
í gær var Snæfellsnes skoðað og
var flogið þangað með gestina á
Fokker-vél og er það í fyrsta skipti
sem svo stór vél lendir í Stykkis-
hólmi. í dag fer hópurinn til Vest-
mannaeyja og í kvöld verður mót-
taka hjá forseta íslands, Vígdísi
Finnbogadóttur. Á morgun verður
svo ferð til Þingvalla, Gullfoss,
Geysis og Skálholts og annað
kvöld verður svo forsætisráðherra
íslands, Steingrímur Hermanns-
son, með móttöku. Ráðstefnunni
lýkur á föstudag.
Samdráttur í farþega-
flugi innanlands
ÞAÐ ER rétt, það hefur komið fyrir
af og til í sumar að þurft hefur að
fella niður farþegaflug innanlands.
Eftirspurnin hefur verið minni en
gert var ráð fyrir við gerð áætlunar,"
sagði Einar Helgason, forstöðumað-
ur innanlandsflugs Flugleiða, að-
spuröur um það hvort farþegaflug
innanlands hefði dregist saman í
sumar.
Einar sagðist ekki vita ná-
kvæmlega hvað ylli þessari
minnkandi eftirspurn, en þó hefði
reynslan sýnt að yfirleitt hefði
dregið eitthvað úr farþegaflugi
þegar þrengdi að efnahag fólks.
Ekki vildi Einar þó gera mikið úr
samdrættinum, það væri undan-
tekning að flug væri fellt niður, en
ekki reglan.
VIÐ OSKUMBz■.
til hamingju með 50 ára afmælið!
VIÐ
viljum minna
á tilvist okk-
ar á Iðnsýn-
ingunni í aðalsal, bás
46, þar sem við
kynnum rammísl.
vinnufatnað og kulda-
fatnað.
VIÐ
viljum nota tækifærið
og minna á batamerki
ágústmánaðar.
íslenskur iðnaður
kjölfesta komandi
kynslóða
Hver aðgöngumiði gildir á tombólu
okkar. Góðir vinningar.
Verið velkomin!
Belaiaqerðin ^karnabær
9 J *M9 LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22
W r SIMI FRA SKIPTIBORÐI 85055