Morgunblaðið - 24.08.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
17
Eins og áður sagði er nú mun
algengara að útlendingar
ferðist hér á eigin vegum en tíðk-
ast hefur undanfarin ár. Orsakir
þess eru án efa af margvíslegum
toga, en ætla má að þær megi að
einhverju leyti rekja til hins háa
verðlags hér á landi. Viðmælend-
um Mbl. sem starfa að ferðamál-
um bar nokkurn veginn saman um
að fyrir þá sök að almenningur í
Vestur-Evrópu hefði minni fjár-
ráð, vegna efnahagsörðugleika, en
áður legðu ferðamenn vaxandi
áherslu á sparnað í ferðalögum
sínum. Þá telja margir að sífellt
meira beri á því að efnaminna fólk
leggi leið sína hingað til lands,
sem leitist við að halda ferða-
kostnaði í lágmarki. T.a.m. sækt-
ist það eftir ódýrri gistingu og
hefði jafnvel tjald meðferðis í þvi
skyni. Konráð Guðmundsson, hót-
elstjóri á Sögu, sagði að reynslan í
sumar hefði leitt í ljós að erlendir
ferðamenn stöldruðu skemur við í
Reykjavík á ferðalagi sínu um
landið en áður. Af þeim sökum
m.a. hefði nýting herbergja á hót-
elum Reykjavíkur verið lakari í
júlímánuði þó að fjöldi útlendra
ferðamanna hafi vaxið. Skúli
Þorvaldsson, hótelstjóri á Holti,
kvað eina ástæðu samdráttarins
vera þá að sífellt færðist í aukana
að erlendum ferðamönnum væri
gefinn kostur á gistingu á einka-
heimilum við vægu verði. Hér
væri um ólöglega þjónustu að
ræða því að hún væri ekki gefin
upp til skatts. Skúli sagði enn-
fremur að það væri deginum ljós-
ara að ferðamál útlendinga hér
væru í miklum ólestri. Margir að-
iljar sem skipulegðu ferðir útlend-
inga hingað hugsuðu einungis um
að koma þeim til landsins, en létu
aðra þætti dvalarinnar s.s. gist-
ingu og ferðalög innanlands lönd
og leið. Því þyrftu þeir sem starfa
að þessum málum að taka upp
samvinnu til að freista þess að
snúa við þessari óheillaþróun,
enda væri mikið í húfi.
Ekki virðist vera um samdrátt
að ræða í rekstri hótela úti á
landsbyggðinni. Þó sögðu flestir
hótelstjórar sem rætt var við að
nýting herbergja hefði verið verri
í júní, en betri í júlí, miðað við
síðasta ár. Kjartan Lárusson, for-
stjóri Ferðaskrifstofu ríkisins,
sagði að rekstur Eddu-hótelanna
hefði gengið ámóta vel í sumar og
í fyrra; enda þótt heildartölur
lægju ekki fyrir. Samt væri
greinilegt að um gott meðalár
væri að ræða. Það kom fram í máli
margra hótelstjóra úti á landi að
talsvert hefði dregið úr bókunum
fram í tímann, en þeim mun al-
gengara væri að útlendingar
kæmu án þess að gera boð á undan
sér til að fá gistingu yfir nótt eða
skamman tíma á ferð sinni um
landið.
Ef á heildina er litið virðist að-
sókn í hópferðir innanlands
hafa verið svipuð og í fyrra. Því
bendir flest til þess að fjölgun
ferðamann í júlí hafi ekki haft
merkjanleg áhrif á aðsóknina i
þessar ferðir. Hjá ferðaskrifstofu
Úlfars Jacobsens fengust þær
upplýsingar að aðsóknin í
háfjallaferðir hefði verið með
ágætum í sumar. Þó væri ekki
raunhæft að bera hana saman við
farþegafjöldann í fyrra, því að það
hefði verið metár. Það kom einnig
fram að Þjóðverjar sækjast mest
eftir þessum ferðum sem fyrr, en
Bretum hefur farið mjög fjölgandi
í sumar. Á hinn bóginn hefur
Frökkum fækkað nokkuð, sem
vafalaust á rætur að rekja til tak-
mörkunar ferðagjaldeyris.
Helgi Jóhannsson, sölustjóri
Samvinnuferða — Landsýnar,
sagði að í byrjun ágúst hefðu um
4.200 útlendingar komið hingað
fyrir tilstuðlan ferðaskrifstofunn-
ar í sUmar og næmi aukningin
milli ára 30 af hundraði. Dóra
Ásgeirsdóttir hjá innanlandsdeijd
Útsýnar kvað aðsókn í þær hóp-
ferðir sem staðið væri fyrir í
tengslum við ráðstefnuhald hafa
verið nokkuð góða, en samt sem
áður væri um einhverja fækkun að
ræða. Kjartan Lárusson sagði að
aðsókn í þær ferðir sem Ferða-
skrifstofa ríkisins byði uppá inn-
anlands í sumar, væri síst verri en
á síðasta ári.
Af framansögðu er öldungis
ljóst að miklar hræringar
hafa verið í ferðamálum útlend-
inga í sumar, þótt hæpið sé á
þessu stigi að alhæfa um of, því að
upplýsingar um ýmsa þætti koma
ekki fram fyrr en 1 lok ferðaver-
tíðarinnar. En þó er ástæða til að
geta einnar tilgátu að lokum um
aukningu ferðamanna í júlí; enda
þótt hún skipti vafalaust ekki
sköpum. Hvort sem menn trúa því
eða ekki hefur tíðarfarið hér í
sumar verið nefnt í þessu sam-
bandi. Einn viðmælandi blaðsins
hafði það á orði að hann hefði hitt
erlenda ferðamenn sem beinlínis
hefðu flúið á náðir lands rigningar
og grálegs veðurfars vegna hit-
anna í Evrópu í sumar ...
Seinni sláttur hafinn
á nokkrum bæjum
„Her hefur verið góður þurrkur síðan á föstudag og hefur mikið náðst
upp og inn í hlöðu á þeim tíma en meirihluta þessa mánaðar hefur verið
stirð heyskapartíð, úrkoma flesta daga,“ sagði Guðmundur Gunnarsson
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar í samtali við Mbl. er
leitað var fregna hjá honum af heyskapnum í Eyjafirði.
Guðmundur sagði að margir
bændur væru búnir með fyrri
slátt og heyskapur almennt
langt kominn. Honum hefði
seinkað dálítið vegna óþurrka-
tíðarinnar í ágúst. Nokkuð væri
þó misjafnt eftir bæjum hvernig
gengi. Guðmundur sagði að þeir
sem byrjuðu slátt fyrstir í vor
væru byrjaðir að slá seinni slátt
en það væru þó einungis fáir
bændur sem slægju tvisvar.
Guðmundur Gunnarsson
bjóst við að heyfengur í Eyja-
firði yrði í þokkalegu meðallagi
eftir sumarið. Þó setti kal strik í
reikninginn sums staðar út með
Eyjafirði. Þá sagði hann að
reikna mætti með góðu fóður-
gildi þess heyfengs sem náðist í
júlí en það sem verið væri að
hirða þessa dagana yrði vænt-
anlega lakara.
STAL
ERFRAMTÍÐDJ
Nú bjóðum við þak og veggklæðningar úr stáli með inn-
brenndum litum, hvítt, brúnt, rautt, grátt blátt og svart.
Plöturnar eru 1.07 m á breidd. Lengd að óskum kaupanda allt að 10 m.
klæðningarbreidd er 1 m.
Klæðningsstálið er auðvelt í uppsetningu og hefur viðurkennda yfir-
borðsáferð. Við afgreiðum alla fylgihlutit.d. við glugga, hurðir, horn, enda-
samskeyti og kyli á þök.
Afgreiðum pantanir á 2 dögum.
Verðið er með því ódýrasta sem þekkist á þessu sviði.
Leitið nánari upplýsinga í síma 33331.
RR BYGGINGAVÖKUR HF
SUOURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.