Morgunblaðið - 24.08.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Myndin hér að ofan sýnir sólmyrkva á ýmsum stigum og var hún tekin við ósa Mississippi-árinnar í Bandaríkj-
unum. Um almyrkva var að ræða en hann verður þegar máninn felur sig allan í skugga jarðar. AP.
Heræfingar úti
fyrir Nicaragua
Wa-shington, 23. ágúst. AP.
SKIP úr bandaríska sjóhernum
voru tilbúin til að hefja í dag
æfingar á Karabíska hafinu og
er almennt litið á þær sem aó-
vörun til vinstrisinnaðra upp-
reisnarmanna í Mið-Ameríku.
í heræfingunum munu taka
þátt 32 herskip, m.a. flugmóður-
skipin Independence og John F.
Kennedy, en auk bandarísku
skipanna verða tvö bresk og eitt
hollenskt. Talsmenn sjóhersins
segja æfingarnar ekkert frá-
brugðnar öðrum en flestir telja
þær eiga koma þeim skilaboðum
til Sovétmanna, Kúbumanna og
yfirvalda í Nicaragua, að skyn-
samlegast sé að hætta öllum
stuðningi við skæruliða vinstri-
manna og kommúnista í Mið-
Ameríku.
Heræfingarnar munu fara
fram að mestu við Puerto Rico,
á venjulegu æfingasvæði banda-
ríska sjóhersins, en þaðan
munu nokkur skip fara til æf-
inga úti fyrir Nicaragua. Önnur
skip munu samtímís vera með
æfingar á Kyrrahafi undan
vesturströnd Nicaragua.
Lindbergh-dóminum
verður ekki hnekkt
TILRAUN ekkju mannsins, sem
var tekinn af lífi 1936 fyrir ránið
og morðið á syni bandaríska flug-
kappans Charles Lindberghs, til
þess að fá dóminum hnekkt hefur
farið út um þúfur.
Alríkisdómarinn Frederick Lac-
ey, fullyrti í dómsúrskurði að ekkj-
unni, Önnu Hauptmann, sem er 83
ára gömul, hefði ekki tekist að
leggja fram nauðsynlegar sannanir
um, að réttindi hins látna eigin-
manns hennar samkvæmt stjórn-
arskránni hefðu verið fótum troðin
í réttarhöldunum gegn honum fyrir
tæpri hálfri öld.
Dómarinn bætti því við að
málið væri firnt — of langur
tími væri síðan málið var fyrst
tekið fyrir til þess að hægt yrði
að taka það upp að nýju.
Frú Hauptmann lagði í októ-
ber 1981 fram kröfu um skaða-
bætur að upphæð eitt hundrað
milljónir dala á þeirri forsendu
að hinn opinberi ákærandi í New
Jersey þegar málið var.rannsak-
að, Richard Wilentz, hefði brotið
gegn þeim réttindum sem sak-
borningurinn, Bruno Haupt-
mann, hefði haft samkvæmt
stjórnarskránni.
í kæru frú Hauptmanns sagði
ennfremur, að það hefði ekki
verið lík sonar Charles Lind-
berghs, sem hefði fundist, þótt
faðirinn hefði borið kennsl á
það. Rannsókn á líkinu hefði
leitt í ljós að það hefði verið 85
sm á lengd, en sonur Lindberghs
hefði verið aðeins 73,6 sm langur
þegar ránið fór fram.
Frú Hauptmann hélt því fram,
að Wilentz hefði vísvitandi veitt
rangar og villandi upplýsingar í
réttarhöldunum og verið þátt-
takandi í samsæri með Hearst-
blaðahringnum um að koma í
veg fyrir að Hauptmann fengi
sanngjörn réttarhöld.
Hún hélt því einnig fram, að
Wilentz hefði heimilað ólöglegar
símahleranir, sem verjendurnir
hefðu staðið fyrir.
Lacey dómari skýrir hins veg-
ar frá því, að frú Hauptmann
hafi ekki lagt fram nokkrar
sannanir um að Wilentz og
Hearst hafi gert með sér samn-
ing.
Hann vísaði því á bug stað-
hæfingum um símahleranir og
samsæri Wilentz og Hearst og
annarra gegn sakborningnum í
tengslum við mikið útlendinga-
hatur, sem þá fór 1 vöxt í Banda-
Allur er
varinn góður
Forsetar Zaire og Chad, Mób-
útú og Habre, fara hér um
götur í Ndjamena, höfuðborg
Chad, en þangað kom Móbútú
í heimsókn fyrir helgi. Eins
og sjá má er þeirra vel gætt
og kannski vissara því að það
er aldrei að vita hvaðan kúl-
urnar koma í þessu stríðs-
hrjáða landi. AP.
Brjóstagjöf
í strætó
Bruss<*l, 23. ágúst. AP.
MÆDRUM er leyfilegt að gefa
ungbörnum sínum brjóst í al-
menningsvögnum í Belgíu „svo
fremi sem það sé ekki gert of áber-
andi“ að því er samgönguráðherra
Belgíu, Herman de Crod, kunn-
gerði í dag. Engar reglur hafa ver-
ið um að banna/ leyfa brjóstagjöf,
við þessar aðstæður, en það hefur
vakið upp deilur með og á móti,
þegar konur hafa lagt börn sín á
brjóst í almenningsvögnum. Ekki
er skilgreint í yfirlýsingu ráð-
herrans hvernig eigi að tryggja að
brjóstagjöfin verði ekki of áber-
andi.
VikublaÖ
bannað
IsUnbul, 23. ájfúst AP.
TYRKNESKA herstjórnin hefur
ákveðið að banna vikublaðið
Nokta og gert upptæk síðustu
eintök þess. Bannið gildir um
ótilgreindan tíma. Að því er
virðist hafa í skrifum blaðsins
verið brotin ákvæði herstjórnar-
innar um pólitískar umræður í
landinu, að því er Haluk Sahin,
ritstjóri þess, sagði í viðtali við
AP. Nokta er þriðja blaðið, sem
herstjórnin bannar útgáfu á síð-
ustu fjórar vikur. í nýjasta ein-
taki þess var birt viðtal við Yild-
irm Avci, stofnanda tyrkneska
íhaldsflokksins. Upplag Nokta
hefur verið um tuttugu þúsund á
viku.
Charles Lindbergh, sem lést 1974.
ríkjunum og beindist fyrst og
fremst gegn Þjóðverjum og fólki
af þýskum ættum búsettu í
Bandaríkjunum.
Um þetta mál var fjallað í
Mbl. í fyrrahaust.
Mikil réttarhöld vegna
eiturlyfjasölu í Noregi
Osló, 23. ágúst. AP.
ÍTALI OG fyrrverandi foringi í breska sjóhernum eru á meðal 16
manna, sem nú eru fyrir rétti í Björgvin og Ósló sakaðir um að hafa
dreift og selt miklu af eiturlyfjum í Noregi. Réttarhöldin hófust í
báðum borgunum í gær, mánudag.
f Björgvin standa réttarhöldin
yfir ítala að nafni Mario Ghessi
og 13 Norðmönnum, sem saksókn-
arinn segir hafa hjálpað honum
við eiturlyfjasöluna frá því í sept-
ember 1979 þar til þeir voru hand-
teknir á síðasta ári. í Ósló eru
sakborningarnir tveir, 62 ára
gamall Breti, Norman Alfred
Robinson-Spry að nafni, og Karin
„Anka“ Jensen, 29 ára gömul
norsk kona og þriggja barna móð-
ir. Þau eru sökuð um að hafa
smyglað til Noregs og selt 158
grömm af heróíni.
Ghessi, sem er 28 ára gamall og
kallaður „Mike“ meðal undir-
heimalýðsins í Björgvin, er sakað-
ur um að hafa selt a.m.k. 40 kg af
hassi, 1,2 kg af amfetamíni og
1200 LSD-töflur og er andvirði
eitursins talið vera rúmlega 30
milljónir ísl. kr. Við upphaf rétt-
arhaldanna í gær viðurkenndi
Ghessi sök sína að mestu og
kvaðst hafa keypt eitrið í Dan-
mörku fyrir peninga, sem hann
hefði ýmist erft eða fengið að láni
hjá kynvilltum kunningja sínum í
Grikklandi.
Norskum yfirvöldum leikur
mestur hugur á að fá að vita
hvort Ghessi tilheyrir ítölskum
eða alþjóðlegum eiturlyfjahring.
Ghessi, sem var handtekinn í
september sl. þegar hann var að
taka við miklum peningum hjá
öðrum sakborningi í málinu, held-
ur því hins vegar fram, að hann
hafi verið einn að verki en getur
þó ekki gefið nógu sennilega skýr-
ingu á fjárráðum sínum.
Lögreglan í Björgvin hefur
óvanalega mikinn viðbúnað við
réttarhöldin. Fylgst er með öllu,
sem fram fer í salnum, í sjón-
varpstækjum og vopnaðir verðir
eru bæði utan dyra og innan.
Ghessi og aðrir helstu sakborn-
ingarnir eru handjárnaðir við
lögreglumenn meðan á réttar-
haldi stendur og er það næstum
einsdæmi í Noregi. í Osló er einn-
ig mikið við haft, sérstaklega
hvað varðar Karin Jensen, sem er
eiturlyfjasjúklingur og talin
hættuleg. Hún er gift manni, sem
nú situr í fangelsi fyrir eiturlyfja-
sölu.
Karin Jensen, ásamt Bretanum
Robinson-Spry, var handtekin á
heimili sínu, glæsilegri villu fyrir
utan Ósló, og kom í ljós við hús-
rannsókn, að þau hjónin áttu
mikla peninga á banka bæði í
Noregi og í Sviss. Við handtökuna
var hún auk þess með um 150.000
Nkr. innanklæða.
Karin hefur tvisvar flúið úr
haldi eftir að hún var handtekin.
Einu sinni úr fangaklefanum
sjálfum og í annað sinn af sjúkra-
húsinu þar sem hun átti sitt
þriðja barn. Robinson-Spry, sem
á síðustu árum hefur 15 sinnum
lagt leið sína til Noregs, heldur
hins vegar fram sakleysi sínu og
segist ekkert misjafnt hafa í
pokahorninu.
Kína:
Dæmdir
á fundi
Peking, 23. ágúst. AP.
GLÆPAMENN voru dæmdir til líf-
láts og/eða fangelsis á fjöldafundi í
Peking í dag. Við þessa „athöfn“
voru um áttatíu þúsund manns sem
fognuðu ákaft.
Ekki var vitað hversu margir
sakborningar voru dæmdir en þeir
eru sakaðir um alls kyns glæpi,
allt frá smálegum innþrotum og
upp i líkamsmeiðingar. Frétta-
skýrendur segja að þetta sé eina
bendingin enn um að kínversk
stjórnvöld hyggist hreinsa landið
og ákveða refsingar svo strangar,
að þar þori ekki nokkur maður að
hafa í frammi neins konar athæfi,
sem brjóti í bága við lög. Upp á
síðkastið hafa um fimmtíu þúsund
menn verið handteknir og hlotið
misjafnlega þunga refsingu.
Stuttfréttir